Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is Misty FANTASIE Haldari 6.990 kr. Buxur 2.650 kr. og 3.880 kr. Dekraðu við línurnar 27. apríl 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.76 101.24 101.0 Sterlingspund 140.6 141.28 140.94 Kanadadalur 78.4 78.86 78.63 Dönsk króna 16.463 16.559 16.511 Norsk króna 12.669 12.743 12.706 Sænsk króna 11.736 11.804 11.77 Svissn. franki 102.36 102.94 102.65 Japanskt jen 0.922 0.9274 0.9247 SDR 145.34 146.2 145.77 Evra 122.66 123.34 123.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.0172 Hrávöruverð Gull 1325.7 ($/únsa) Ál 2247.0 ($/tonn) LME Hráolía 74.0 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Ferðaritið Luxury Travel Guide, sem sér- hæfir sig í skrif- um um áfanga- staði, hótel, heilsulindir og fleira, hefur valið jóga- og heilsu- setrið Sólir jóga- stöð ársins í Evr- ópu. Prentútgáfa Luxury Travel Guide er gefin út í rúm- lega hálfri milljón eintaka og er les- endahópurinn efnameiri ferðamenn, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sól- um. Veitir tímaritið árlega viðurkenn- ingar til þeirra sem þykja skara fram úr á sínu sviði. Sólir voru stofnaðar vorið 2015 og fagna því þriggja ára starfsafmæli um þessar mundir. Eigendur Sóla eru Sól- veig Þórarinsdóttir, Aðalheiður Magn- úsdóttir og Karen Axelsdóttir. Sólir útnefndar jóga- stöð ársins í Evrópu Sólir Sólveig og Aðalheiður. STUTT Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Æskilegt hefði verið að frumvarp um ný persónuverndarlög væri komið fram. Það myndi auðvelda fyrirtækj- um vinnuna við að undirbúa sig fyrir gildistökuna eftir mánuð, hinn 25. maí. Þetta segir Halldór Másson, ráðgjafi hjá Opnum kerfum, í samtali við Morgunblaðið. „Reglugerð Evrópusam- bandsins hefur verið birt og því höfum við hana til stuðnings til að takast á við þess- ar breytingar sem fylgja nýju lögunum. Það hefði hins vegar verið af hinu góða að geta miðað við frumvarpið því vissulega geta ríkisstjórnir haft áhrif á lagasetninguna. Nefna má sem dæmi að í reglugerðinni eru laun ekki flokkuð sem persónulegar upp- lýsingar á meðan aðild að stéttar- félagi er flokkuð sem viðkvæmar persónulegar upplýsingar. Almennt myndi Íslendingum þykja að þessu ætti að vera öfugt farið,“ segir hann. Sekt gæti numið 4% af veltu Fyrirtæki eða aðrir sem gerast brotlegir við persónuverndarlögin geta fengið sekt sem getur numið allt að 4% af árlegri veltu viðkomandi fyrirtækis á heimsmarkaði eða allt að 20 milljónum evra. Fjárhæð sekta fer eftir eðli og alvarleika brots. Að sögn Halldórs er misjafnt hve langt á veg fyrirtækin eru komin varðandi undirbúning fyrir löggjöf- ina. „Mörg fyrirtæki hafa tekið málið föstum tökum. Fjármálafyrirtæki og fjarskiptafyrirtæki sem eðli málsins samkvæmt safna miklu af gögnum hafa staðið sig býsna vel. Því miður eru of mörg fyrirtæki og stofnanir sem hafa stungið höfðinu í sandinn eins og strútur. Ætla að bíða og sjá hvernig framvindan verður. Ég get ekki mælt með því. Lögunum er ætl- að að taka gildi eftir mánuð og snerta öll fyrirtæki. En það er mikilvægt að stjórnendur átti sig á að það er aldrei of seint að hefjast handa,“ segir hann. Gæti tekið eitt og hálft ár Spurður hve langan tíma sú vinna taki hjá umsvifamiklum og flóknum fyrirtækjum, nefnir hann eitt til eitt og hálft ár. Halldór vekur athygli á að megnið af ákvæðum í fyrirhuguðum lögum sé í núgildandi persónuverndarlög- um. „Fyrirtæki hefðu átt að fram- fylgja þeim en sektarákvæði hafa ekki verið til staðar og Persónuvernd gert erfitt að framfylgja lögunum.“ Skipta má vinnunni við undirbún- ing persónuverndarlaganna í þrjá hluta. Fyrst þarf að festa á blað alla þá ferla þar sem unnið er með persónugreinanlegar upplýsingar. „Dæmi um upplýsingar sem fyrir- tæki safna væri myndbandaleiga sem skráir spólur á kennitölu við- skiptavina,“ segir Halldór og nefnir að í reglugerðinni sé tæmandi listi yfir hvað teljast persónugreinanleg- ar upplýsingar. Ef ekki sé til laga- heimild fyrir söfnun upplýsinganna þurfi að fá samþykki frá viðskipta- vinum. Kvitta þurfi fyrir hvert og eitt atriði, ekki dugi að fá langt skjal sem sé samþykkt eins og hugbúnað- arframleiðandum hefur verið tamt. „Því næst þarf að renna yfir og flokka öll gögn sem til eru í fyrirtæk- inu sem hafa safnast saman í áranna rás. Sem betur fer eru komin tæki og tól sem flokka þau sjálfvirkt,“ segir hann. Loks þarf að tryggja að gögnin sem safnað er séu örugg og tryggja að notkun þeirra uppfylli verklags- reglur. „Það er of algengt að trún- aðarupplýsingar berist á ranga við- takendur. Það er hægt að stilla kerfin með þeim hætti að notendum er leiðbeint með notkun, sjálfvirkum aðgangsstýringum eða gögnin séu dulkóðuð svo aðrir geti ekki lesið þau.“ Enn fremur er hægt að láta tölvu- kerfin læra inn á notendur, t.d. hve- nær viðkomandi er í vinnu og hvaða gögn hann nýtir. „Komi í ljós að hann sé að vinna í kerfinu utan þess tíma, og jafnvel frá útlöndum, kvikna við- vörunarbjöllur.“ Betra fyrir atvinnulífið ef frumvarpið væri komið Morgunblaðið/Eggert Sekt Sekt getur numið 4% af árlegri veltu fyrirtækja á heimsmarkaði.  Ný persónuverndarlög taka gildi eftir mánuð  Fyrirtæki mislangt á veg komin Halldór Másson Bankaráð Seðla- banka Íslands hef- ur kosið Gylfa Magnússon, dós- ent í við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, formann ráðsins. Tekur hann við formennskunni af Þórunni Guð- mundsdóttur sem kjörin var vara- formaður bankaráðsins. Alþingi kaus nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands hinn 18. apríl síðastliðinn. Í bankaráðinu eiga einnig sæti Sigurður Kári Krist- jánsson, Frosti Sigurjónsson, Bolli Héðinsson, Una María Óskarsdóttir og Jacqueline Clare Mallett. Varafulltrúar í ráðinu eru Þór- lindur Kjartansson, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Hildur Trausta- dóttir, Vilborg Hansen, Kristín Thoroddsen, Ólafur Margeirsson og Bára Valdís Ármannsdóttir. Gylfi Magnússon formaður bankaráðs Seðlabankans Gylfi Magnússon Hagnaður Kaffi- társ nam 24,8 milljónum króna á síðasta ári. Það er töluverður við- snúningur frá árinu 2016 þegar 10,5 milljóna króna tap var á rekstri félagsins. Munar þar mestu að á síðasta ári var bókfærð 45 millj- óna króna jákvæð matsbreyting á fjárfestingareignum. Rekstrartekjur félagsins á síðasta ári námu 1.019 milljónum króna og drógust saman á milli ára um 73 milljónir króna. Rekstrarhagnaður var 29,2 millj- ónir króna á síðasta ári, en til sam- anburðar var hann 25,3 milljónir króna árið 2016. Eignir félagsins námu 1.302 millj- ónum króna í árslok 2017. Eigið fé var 534 milljónir króna og eiginfjár- hlutfall félagsins var 41% um ára- mótin. Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður fyrir rekstr- arárið 2017. Hjónin Aðalheiður Héð- insdóttir og Eiríkur Hilmarsson eiga allt hlutafé í félaginu. Kaffitár snýr tapi í hagnað vegna matsbreytingar Aðalheiður Héðinsdóttir „Boltinn er nú hjá fram- kvæmdastjórn Evrópusam- bandsins,“ segir á vef dóms- málaráðuneytisins. Vonir standi til að þaðan verði málið afgreitt fljótlega og mögulegt verði að taka reglugerðina upp í EES- samninginn um svipað leyti og hún komi til framkvæmda innan ESB. Dómsmálaráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp til nýrra persónuverndarlaga á vorþingi, segir í fréttinni. Boltinn er hjá Brussel EVRÓPUSAMBANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.