Morgunblaðið - 27.04.2018, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
ICQC 2018-20
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagins 7. maí
SÉRBLAÐ
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. maí
» Hin sígilda kvikmynd leikstjórans MilošFormans, Amadeus, var sýnd fyrir fullum
sal í eldborg í Hörpu í gærkvöldi á bíótón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem lék
tónlist Wolfgangs Amadeusar Mozarts við
kvikmyndina. Um kórsöng sá Mótettukór Hall-
grímskirkju og malasíski píanóleikarinn Mei Yi
Foo lék einleik. Amadeus hlaut átta Ósk-
arsverðlaun árið 1985 og þykir ein besta kvik-
mynd Formans sem lést 13. apríl síðastliðinn.
Amadeus sýnd í Eldborgarsal á bíótónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Bíótónleikar Sinfóníuhljómsveit Íslands lék tónlist Amadeusar Mozarts við kvikmyndina í Hörpu.
Gestir Kjartan Thors, Sigrún Gísladóttir og Júlíus Ólafsson voru í Hörpu. Fjör Elín Rut, Edda Bára Kristínardóttir og Fjóla Hólm Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Valli Gaman Sigríður Gísela Stefánsdóttir og Ingunn
Árnadóttir skemmtu sér vel og brostu blítt.
George R.R. Martin, höfundur
sagnabálksins vinsæla um Krúnu-
leikana, Game of Thrones, hefur til-
kynnt aðdáendum sínum að ný bók
um ævintýraheiminn sé væntanleg.
Það verður þó ekki sjötta bindið í
bálkinum eins og hann hafði áður
boðað að kæmi næst út, bók sem á
að heita The Winds of Winter, held-
ur er um að ræða frásögn af Targ-
aryen-ættinni, og gerist hún á und-
an atburðunum sem fjallað hefur
verið um í sjónvarpsþáttunum vin-
sælu. Þeir byggðust í upphafi eink-
um á fimmtu bók bálksins, A Dance
With Dragons, en handritshöfund-
arnir eru þó nú komnir talsvert út
fyrir þann ramma og inn í frásögn-
ina sem Martin hefur boðað í sjötta
bindinu.
Bókin væntanlega mun nefnast
Fire and Blood og kemur út 20.
nóvember næstkomandi. Martin
segir það „ekki skáldsögu“ heldur
sögu Targaryen-fjölskyldunnar í
Westeros og fjallar um borgara-
styrjöld sem batt nær enda á völd
fjölskyldunnar. Martin segir hand-
rit sögunnar hafa verið nær 1.000
blaðsíður.
Sagnaþulur Sagnabálkur George
R.R. Martin nýtur mikilla vinsælda.
Martin
segir sögu
Targaryen
Tilkynnt var í gær um ríflega 40
tónlistarmenn og hljómsveitir sem
bæst hafa við dagskrá tónlistar-
hátíðarinnar Iceland Airwaves sem
haldin verður 7.-10. nóvember. Af
erlendum atriðum eru það Alma frá
Finnlandi, Av Av Av frá Danmörku,
Bedouine og Blood Orange frá
Bandaríkjunum, Cashmere Cat frá
Noregi, Descartes a Kant frá Mex-
íkó, Fever Ray frá Svíþjóð, Gaffa
Tape Sandy, Hak Bakeer og Husky
Loops frá Bretlandi, Jarami frá Sví-
þjóð, JMSN frá Bandaríkjunum,
Polo & Pan frá Frakklandi, Rejjie
Snow frá Írlandi, Smerz frá Nor-
egi, Snail Mail frá Bandaríkjunum,
Sorry og Stereo Honey frá Bret-
landi, The Voidz frá Bandaríkjun-
um, Trupa Trupa frá Póllandi og
Wwwater frá Belgíu.
Úr röðum íslenskra flytjenda
bætast við Axel Flóvent, Amaba-
dama, Ceasetone, Flóni, vök, GKR,
Hatari, Hildur, Himbrimi, Hórmón-
ar, Jói Pé og Króli, Logi Pedro,
Mammút, Máni Orrason, Sycamore
Tree, Teitur Magnússon, Pink
Street Boys, Unnsteinn, Ylja og
Young Karin. Frekari upplýsingar
um hátíðina má finna á vef hennar,
icelandairwaves.is.
Yfir 40 atriði bætast við
Frá Mexíkóborg Mexíkóski sextettinn Descartes a Kant blandar saman
poppi, málmi, pönki, skóglápi og kabarett í listsköpun sinni.