Morgunblaðið - 27.04.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Eru sparifötin
hrein?
Meirihluti Samfylkingar, Pírata og Vinstri
grænna heldur naumlega velli ef marka má
niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir
Morgunblaðið dagana 23. til 25. apríl. Meiri-
hlutaflokkarnir þrír mælast þar með um 47%
fylgi og 12 borgarfulltrúa af 23.
Samfylkingin mælist jafnframt með mesta
fylgið, 30,7% og átta borgarfulltrúa. Sjálfstæð-
isflokkurinn kemur þar á eftir með 27,3% og
sjö borgarfulltrúa. Aðrir flokkar fá umtalsvert
minna fylgi, en samkvæmt könnuninni myndu
Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Miðflokk-
urinn og Píratar öll fá tvo borgarfulltrúa. VG
mælist með um 9,7% fylgi, Miðflokkurinn fær
7,3% og Píratar fá 6,8%. Viðreisn og Flokkur
fólksins fá síðan hvort um sig einn borgarfull-
trúa, en fylgi Viðreisnar mælist 5,3% og Flokk-
ur fólksins fær 3,6%.
Af öðrum flokkum í framboði er Framsókn-
arflokkurinn hlutskarpastur með 2,8%. Sósíal-
istaflokkurinn og Kvennaframboðið mælast
bæði með um 1,8% og Höfuðborgarlistinn fær
1%. Alþýðufylkingin fær 0,8% og Íslenska
þjóðfylkingin mælist með hálft prósent. Frels-
isflokkurinn rekur svo lestina með 0,3% en
0,5% nefndu að þeir myndu kjósa annan flokk
eða lista en þá sem í boði voru í könnuninni.
Þess má geta að litlu munaði að Sjálfstæð-
isflokkurinn næði inn áttunda borgarfulltrúan-
um í könnuninni á kostnað Pírata og felldi um
leið meirihlutann. Líkt og fyrr sagði var könn-
unin unnin dagana 23.-25. apríl og náði hún til
3.700 þátttakenda. Alls svöruðu 1777 úr þeim
hópi og er svarhlutfall því 48%. Niðurstöðurn-
ar voru vigtaðar eftir menntun og borgarhluta
Einnig var spurt hvaða einstakling kjósend-
ur vildu helst sjá gegna embætti borgarstjóra
að kosningunum loknum og svöruðu alls 980
þeirri spurningu. Dagur B. Eggertsson, borg-
arstjóri, var þar oftast nefndur á nafn en 45,4%
þeirra sem svöruðu könnuninni vildu fá hann
sem borgarstjóra. Eyþór Arnalds, borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins, var nefndur af
29,4% og 8,8% svarenda vildu Vigdísi Hauks-
dóttur, oddvita Miðflokksins í embættið. Líf
Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, fékk
4,4% stuðning en aðrir fengu minna.
Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík
Könnunin var gerð dagana 23. til 25. apríl 2018.
Einnig var spurt um fylgi Kvennaframboðs (1,8%),
Sósíalistaflokksins (1,8%), Höfuðborgarlistans
(1,0%), Alþýðufylkingarinnar (0,8%), Íslensku þjóð-
fylkingarinnar (0,5%) og Frelsisflokksins (0,3%).
Björt framtíð býður ekki fram að þessu sinni.
Heildarúrtak í könnuninni var 3.700 einstaklingar.
1.777 svöruðu og var þátttökuhlutfall 48%.
Kjörnir verða 23
borgarfulltrúar í vor
í stað þeirra 15 sem
nú eru.
12 fulltrúa þarf til að
mynda meirihluta.
Úrslit kosninga 31. maí 2014
Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa
Könnun 21.-27. mars 2018
Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa
Könnun 23.-25. apríl 2018
Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa30%
25%
20%
15%
10%
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
2
10,7%
2
7,3%
1
5,3%
1
5,9%
2
7,7%
2
6,8%
5
31,9%
8
31,7%
8
30,5%
1
5,0%
2
7,3%
1
8,3% 3
12,8%
2
9,7%
4
25,7%
7
27,4%
7
27,3%
0
3,1%
0
2,8%
0
2,7%
1
3,6%
B Framsóknar-flokkur C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkurfólksins M Miðflokkurinn P Píratar S Samfylkingin V Vinstrihreyfingin– grænt framboð
Meirihlutinn heldur naumlega velli
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn njóta mests fylgis Um 45% vilja Dag sem borgarstjóra
30% vilja Eyþór Píratar, VG, Miðflokkurinn, Viðreisn og Flokkur fólksins fá fulltrúa kjörna
„Ég get ekki annað en verið ánægð-
ur með stöðuna. Ljóst er að það
stefnir í jafnar kosningar. Við þurf-
um að taka á öllu okkar og sjáum að
mikilvægt er að halda vel á spöð-
unum næstu vikur,“ segir Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri og efsti
maður á lista Samfylkingarinnar.
Hann segist finna meðbyr í kosn-
ingabaráttunni og það endurspeglist
í könnunum. Nefnir að Samfylkingin hafi verið að mæl-
ast með helmingi minna fylgi í haust. „Ég tel að það séu
að teiknast upp býsna skýrir valkostir. Þeir snúast um
það hvort borgin þróist áfram sem græn, nútímaleg,
skemmtileg og fjölbreytt borg þar sem lögð er áhersla
á að allir hafi tækifæri. Eða þá að hverfa aftur til gamla
tímans,“ segir Dagur.
Hann segist innilega þakklátur fyrir þann stuðning
sem hann fái sem borgarstjóri. „Ég mun gera mitt
besta til að standa undir því. Ég lít þannig á að þarna sé
í raun verið að lýsa yfir stuðningi við samhentan meiri-
hluta í borginni en ekki aðeins mig persónulega.“
Dagur B. Eggertsson
Býsna skýrir val-
kostir teiknast upp
„Mér sýnist að meirihlutaflokkarnir
séu aðeins að gefa eftir og ný fram-
boð að koma inn. Samfylkingin og
Sjálfstæðisflokkurinn hafa verið að
mælast álíka stór í skoðanakönn-
unum, eru efst til skiptis,“ segir Ey-
þór Laxdal Arnalds, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins.
„Almennt sígur þetta í rétta átt.
Meirihlutinn gefur eftir smátt og
smátt, hann hangir nú á minnsta mögulega mun og fell-
ur á endanum. Ég er bjartsýnn á að þetta fari vel,“ seg-
ir Eyþór. Hann segir að frambjóðendur flokksins finni
fyrir vaxandi stuðningi við þau mál sem sett hafi verið
á oddinn. „Margir vilja sjá breytingar og við erum
flokkurinn sem getur innleitt þær,“ segir Eyþór.
Spurður um niðurstöðu könnunarinnar um borg-
arstjóraefni, þar sem 45% þátttakenda vilja Dag B.
Eggertsson áfram segir Eyþór að sitjandi borg-
arstjórar hafi yfirleitt sterka stöðu í slíkum könnunum
en reynslan sýni að ef borgarstjóri sé ekki með helm-
ings traust þá falli hann.
Eyþór Laxdal Arnalds
Meirihlutinn hangir
á minnsta mun
„Ég er þakklát
fyrir fylgið og að
fólkið nefnir okk-
ur í skoðana-
könnun. Það er
síðan allt annað
mál hvað kemur
upp úr kjörköss-
unum. Ég er
ánægð með að
meirihlutinn heldur, við erum sam-
mála um að starfa áfram saman. Ef
vinstriáherslur eiga að aukast,
verður að kjósa VG,“ segir Líf
Magneudóttir, efsti maður á lista
Vinstrihreyfingarinnar - Græns
framboðs. Hún vonast til að fylgið
aukist og VG nái inn sínum þriðja
manni. „Við erum vígreif og ég held
að fylgið eigi eftir að skila sér.“
Líf Magneudóttir
Vonast eftir
auknu fylgi
„Ég er afar
þakklát fyrir
þann stuðning
sem við erum að
fá. Hann sýnir að
við erum komin á
skrið og það
passar við tilfinn-
ingu okkar um
að það hafi verið
síðustu eina til tvær vikur. Þá er
ánægjulegt að við séum orðin fjórði
stærsti flokkurinn í Reykjavík og
við stefnum hraðbyri í að verða
þriðji stærsti,“ segir Vigdís Hauks-
dóttir, efsti maður á lista Mið-
flokksins. Hún segist líta björtum
augum til næstu fjögurra vikna og
spáir því að Miðflokkurinn toppi á
réttum tíma, í kosningnum.
Vigdís Hauksdóttir
Toppum á
réttum tíma
„Við komum
frekar seint fram
og erum rétt að
klára okkar
kynningarefni
með helstu
stefnumálum. Ég
er bara ánægð í
ljósi þessa. Við
erum með frá-
bæran lista,“ segir Kolbrún Bald-
ursdóttir, efsti maður á lista Flokks
fólksins. Hún segir að framboðið
fari á fulla ferð í kosningabarátt-
unni eftir helgi. Verði með kynn-
ingarfund, fari á hverfafundi og
fari um til að hitta fólk. „Við erum
með öðruvísi áherslur en mörg
hinna framboðanna og efnislega
ósátt við núverandi borgarstjórn.“
Kolbrún Baldursdóttir
Með öðruvísi
áherslur
„Það er auðvitað
ánægjulegt að
við bætum við
okkur fylgi frá
síðustu kosn-
ingum. Enn er
langt til kosn-
inga og fylgi
flokkanna rokk-
ar mikið á milli
skoðanakannana. Við ætlum að
gera miklu betur í kosningnum,“
segir Dóra Björt Guðjónsdóttir,
efsti maður á lista Pírata. Hún telur
framboðið á réttri leið og vísar til
skoðanakönnunar sem Fréttablaðið
birti nýlega en þar var flokkurinn í
þriðja sæti. „Við ætlum að halda
áfram að sýna fólki þau góðu bar-
áttumál sem við höfum,“ segir hún.
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Ætlum að
gera betur
„Okkur líst ágæt-
lega á stöðuna.
Þessi könnun er
gerð á löngum
tíma þegar listi
okkar var bara
kominn fram en
ekki málefnin og
kosningabar-
áttan ekki hafin
fyrir alvöru. Við erum undir það
búin að sveiflur séu í tölunum og
vissum að það væri fullt af pólitísk-
um tækifærum í farvatninu,“ segir
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, efsti
maður á lista Viðreisnar. Hún segir
að niðurstöður skoðanakönnunar-
innar brýni frambjóðendur Við-
reisnar og minni þá að fjörið sé rétt
að hefjast.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Fullt af
tækifærum