Morgunblaðið - 27.04.2018, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
VINNINGASKRÁ
52. útdráttur 26. apríl 2018
73 11979 24715 35637 45327 56558 63114 71200
436 12605 25420 35778 45833 56994 63744 71757
889 13362 26006 35919 45868 57053 63773 71760
1319 13712 26013 35920 46114 57167 63807 71787
2064 13743 26276 36007 46574 57171 64163 72242
2262 14084 26378 36438 46914 57191 64165 72833
2347 15026 26544 36548 47352 57291 64461 72879
3048 15605 26806 36567 49394 57580 64495 72921
3263 15817 27052 36618 50002 57992 64871 73320
3627 15900 27516 36692 50865 58159 65030 73371
4511 16234 27581 36733 51045 58574 65441 73373
4599 16373 27836 36925 51056 58720 66234 73759
4830 16495 28311 37001 51455 58790 66236 74816
5115 16516 28357 37254 51605 58851 66293 74827
5278 16570 28611 37730 51681 58960 66535 75057
5329 16971 28741 38132 51787 59264 66697 75159
5431 18168 28926 38137 52482 59383 66841 76419
6169 19009 28929 38792 52971 59477 66846 76421
6226 19085 29400 39065 53190 59490 67034 76691
6503 19295 29415 39238 53240 59957 67285 76799
6595 19457 29597 39470 53510 60347 67896 76988
7261 19458 29659 39804 53717 60445 68280 77210
7702 20592 29721 39936 53831 60564 68596 78658
7764 21046 31024 40351 53973 60770 68954 79030
7798 21233 31566 40697 54298 61145 68987 79580
8056 21254 31644 41092 54455 61257 69076 79727
8323 21578 31687 41294 54862 61380 69648 79732
8583 21872 31693 41300 55013 61433 69727 79749
8628 21897 32825 41860 55046 61455 70113 79768
8662 22056 32974 42105 55117 61736 70115 79831
8937 22289 33014 42338 55240 61786 70331 79999
9468 22482 33044 42866 55850 61844 70358
9791 23606 33138 43016 55889 61970 70807
10062 24149 33151 43120 55903 62078 70963
10863 24236 33827 43144 55941 62236 70964
11380 24631 34093 43679 55988 62244 71035
11486 24667 35550 44629 56427 62647 71083
362 11463 18626 31840 42542 53418 63580 74696
2416 12197 18905 32645 43481 54133 64703 74741
4373 14455 19020 32936 43716 54820 65131 74809
4853 14720 19224 35170 44262 54952 65706 75225
5533 14775 19359 35645 44515 59839 66528 75554
5613 14792 19788 36715 45936 60462 66853 75991
5740 15218 22174 38198 46921 61012 67208 77416
5818 15439 26690 38217 48831 61072 68948 78645
7354 15484 27705 38361 50308 61868 69306 79683
7645 15703 28031 38377 50905 62481 71016
9601 15766 28880 40552 51544 62675 71190
10009 16535 30799 41899 51968 62991 71912
11187 17478 31689 42077 52155 63019 72581
Næstu útdrættir fara fram 11., 15., 17., 24. & 31. maí 2018
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
3711 20219 66994 78312
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
797 23805 48081 59800 66406 77367
4694 28252 50973 59929 68013 78249
17829 30319 55308 61686 74413 78932
22323 45687 55312 65008 75124 79912
Íbúðar v inningur
Kr. 15.000.000 Kr. 30.000.000 (tvöfaldur)
3 5 5 9 0
Í aðdraganda síð-
ustu kosninga varð til-
vonandi þingmönnum
tíðrætt um ömurleg
lífsgæði lífeyrisþega …
(skelfilegt þetta orð,
lífeyrisþegi) og hvað
það væri bráðnauðsyn-
legt að gera eitthvað í
því. Eins og allir vita
sem vilja vita, þá hefur
nákvæmlega ekkert
verið gert í þeim málum. Menn
segja örugglega, séu þeir spurðir,
að verið sé að vinna í þessu, það
þurfi að gera kerfisbreytingu og
gera þetta allt skilvirkara og það
taki tíma, og örugglega einhverjir í
nefnd af því tilefni. Hvað er búið að
segja það oft áður?
Fólk yfir 67 ára er ekkert „þeg-
ar“, fólk á þessum aldri er löngu bú-
ið að skila öllum sínum sköttum og
gjöldum og leggja fé til hliðar sem
njóta átti á hinu margrómaða
áhyggjulausa ævikvöldi, ævikvöldi,
sem á ákveðnum tímapunkti breytt-
ist í martröð. Martröð sem virðist
engan enda taka, þó allir lofi öllu
fögru.
Bankarnir voru rændir innan frá,
sögðu menn, en stjórnvöld ræna þá
sem þau kalla lífeyrisþega, gera það
fyrir allra augum og fæstir láta sig
það varða, sem er í raun þyngra en
tárum taki. Munið þið eftir mótmæl-
um í borginni þegar öryrkjar
reyndu að vekja athygli á sínum
málum? Hélt ekki.
Hvers vegna er það, að fjöldinn
fer á límingunum í mótmælum ef
flytja á eitt stykki ríkisstofnun út á
land, en getur svo ekki lyft litla
fingri til að mynda þrýstihóp til að
styðja baráttu þess hóps sem er
rændur af stjónvöldum beint fyrir
framan nefið á okkur? Hvers vegna
þetta sinnuleysi? Hvað er langt
þangað til þú verður 67 ára?
Það þarf ekki nema eina máls-
grein inn í þingið sem segir: „af-
nema skal strax krónu á móti krónu
skerðingu á allar
greiðslur Trygg-
ingastofnunar til ör-
yrkja og 67 ára og
eldri.“
Þetta er ekki flókið
og þarf enga nefnd eða
endurskoðun til, vilji er
allt sem þarf og að láta
verkin tala. Allt annað
getur komið síðar en
þetta er lífsspursmál
fyrir gríðarlega stóran
hóp einstaklinga. Og
það sem meira er, það
kemur í veg fyrir áframhaldandi
stórþjófnað ríkissjóðs af stórum
hópi einstaklinga á þessu landi. Við
skulum nefnilega ekki gleyma því að
kalla þetta réttu nafni, þetta er
þjófnaður og ekkert annað, alveg
óþarfi að fara eins og köttur í kring-
um heitan graut með fínyrðum eins
og að kalla þetta skerðingar, tölum
bara hreint út.
Okkar heldri borgarar eiga betra
skilið en svona framkomu.
Öryrkjar eru líka kallaðir „-þeg-
ar“ = lífeyrisþegar, alveg ótrúlegt
fyrirbæri þessir „-þegar“, en þeirra
hlutskipti er jú að þiggja það að
vera t.d. blindur eða lamaður. Nú,
svo er það sá hópur sem glímir við
andleg veikindi sem helst enginn vill
vita af, þetta eru allt einstaklingar,
svona „þegar“ og hafa sjálfsagt þeg-
ið það með þökkum að fá að vera
blindur eða lamaður, það er jú, svo
„kúl“, getur legið uppi á kerfinu og
haft það huggulegt heima, ekki
mæta í vinnuna og láta okkur hin
bara vinna fyrir sér. Fráleitt að
þessi hópur fái eitthvað greitt ef
hann getur unnið eitthvað. Ef þau
geta unnið þá vinna þau eins og við
hin og málið dautt, er það ekki?
Skítt með það þó þau þurfi að erfiða
helmingi meira en við hin til að
komast til og frá vinnu, skítt með
það þó allt sem þau gera sé í mörg-
um tilfellum helmingi erfiðara fyrir
þau að gera en okkur hin og kosti
kannski líka helmingi meira vegna
fötlunarinnar. Já, en fá þau ekki allt
frítt?Væri kannski bara ekki snið-
ugt að þessi hópur hefði mannsæm-
andi laun og gæti séð fyrir sér sjálf-
ur? Það er ekkert fínt að neyðast til
að framvísa örorkukorti til að betla
afslátt þar sem hann er að fá, en
fólk er neytt í þá stöðu. Það er sér-
stök staða að fá t.d. frítt í sund en
hafa ekki efni á því að kaupa sér
sundskýlu.
Það er auðvitað alltaf til fólk sem
misnotar kerfið, það virðist því mið-
ur vera eitthvað í hinu mannlega
eðli sem gerir það að verkum að það
finnast alltaf svartir sauðir. En þeir
eru misjafnir sauðirnir í mörgum
stéttum, man einhver eftir hruninu?
Hvað er búið að dæma marga sauð-
ina þar? Hvað eru þær margar
krónurnar sem fara á milli handa í
verslun og þjónustu, í iðnaðinum, í
sjávarútveginum án þess að þær
fari fyrst í „kassann“ sem borgar
fyrir sjúkrahúsin og skólana okkar?
Og hvor hópurinn haldið þið að sé
með fleiri svarta sauði innanborðs,
öryrkjar eða atvinnulífið? Ég er al-
veg viss um að það eru ekki þeir
fyrrnefndu.
Það óskar sér enginn að verða ör-
yrki ef viðkomandi hefði val og að
sama skapi verður enginn lífeyr-
isþegi (hata þetta orð) að eigin vali.
Stjórnvöld hafa hins vegar það
val að gera öllum þegnum sínum
það kleift að lifa mannsæmandi lífi,
en kjósa að gera það ekki og stela
frá hluta þeirra, og ekki bara laun-
um þeirra heldur einnig virðingu og
sjálfstæði einstaklingsins.
Mikið skelfing skammast ég mín
fyrir ykkur sem þessu ráðið núna,
sem og þau ykkar sem hafa ráðið =
fyrri ríkisstjórnir. Hvernig getið þið
sofið?
Að skammast sín
Eftir Sigurlaugu
Gísladóttur » Þetta er ekki flókið
og þarf enga nefnd
eða endurskoðun til,
vilji er allt sem þarf.
Sigurlaug Gísladóttir
Höfundur er verslunamaður
á Blönduósi.
Er ekki kominn
tími til að tala um til-
finningar? Hætta að
bíta bara á jaxlinn,
láta sem ekkert sé,
töffarast áfram og
reyna að gleyma?
Það er þungt að
verða fyrir áfalli og/
eða missa. Og missir
getur verið marg-
víslegur. Vinamissir
og atvinnumissir svo eitthvað sé
nefnt. Missir eigin getu vegna
slyss eða sjúkdóma. Missir for-
eldra, systkina, barna, maka eða
annarra ástvina. Þar sem allt
verður svo hrikalega sárt og við
upplifum jafnvel einhverskonar
höfnun um stund. Öll áföll eru
þung og verða ekki með góðu móti
afgreidd á léttvægan hátt með ein-
hverjum útskýringum þar sem
skautað er í gegnum tilfinningar á
hraðferð.
Hvernig líður þér í dag?
Tölum um tilfinningar. Tölum
um líðan okkar. Spyrjum ekki
bara leiðandi spurninga eins og
„hvað segir þú gott í dag?“ eða
„hvað segirðu, er ekki bara allt
gott, eru menn ekki bara hressir?“
Er ekki nær að spyrja: „hvernig
hefurðu það í dag“ eða „hvernig
líður þér í dag?“
Látum af yfirborðsmennsku í
samskiptum og því að spyrja
frétta en hlusta síðan ekki á svarið
sem við höfum eftir allt saman
kannski bara takmarkaðan áhuga
á að heyra.
Það er gott
að gráta
Það missir enginn
eins og þú. Það syrgir
enginn eins og þú. Það
saknar enginn eins og
þú, því það er enginn
eins og þú og það líð-
ur engum nákvæm-
lega eins og þér. Það
bregst því enginn ná-
kvæmlega eins við og
þú.
Þú ert samt ekki
eitthvað skrítinn eða með tilfinn-
ingar sem þarf að bæla eða loka á
eða fá hjálp við, nema í fæstum til-
fellum. Þvert á móti.
Veistu að þótt þú syrgir, saknir,
grátir og finnir til þá má líka alveg
brosa og hlæja inn á milli án þess
að það þyki eitthvað óeðlilegt.
Og veistu að svo er það bara
styrkleikamerki að gráta af gleði
og þakklæti. Það er ákveðið vott-
orð um heilbrigði. Það að sýna ekki
tilfinningar er nefnilega veik-
leikamerki. Hefting sem setur á
okkur þungt farg. Við þurfum að fá
heilnæma útrás tilfinninga og finna
þeim eðlilegan farveg.
Það er svo þungt að missa, til-
veran er skekin á yfirþyrmandi
hátt. Angist fyllir hugann, örvænt-
ingin og umkomuleysið er algjört.
Tómarúmið hellist yfir og tilgangs-
leysið virðist blasa við.
Það er svo sárt að sakna en það
er gott að gráta. Tárin eru dýr-
mætar daggir, perlur úr lind minn-
inganna. Minninga sem tjá kær-
leika og ást, væntumþykju og
þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga
sem þú einn átt og enginn getur
afmáð eða frá þér tekið. Tárin
mýkja og tárin styrkja. Í þeim
speglast fegurð minninga og þakk-
lætis. „Sælir eru sorgbitnir því að
þeir munu huggaðir verða.“ Og
sælir eru þeir sem eiga von á Krist
í hjarta því að þeir munu lífið erfa
og eignast framtíð bjarta.
Hlúum hvert að öðru
Það er svo mikilvægt að við
stöndum saman. Hlúum hvert að
öðru og veitum sjálfum okkur og
öðrum það skjól sem á þarf að
halda og rými til að syrgja á okkar
hátt og til að takast á við áföll,
vonbrigði og söknuð. Og síðan jafn-
framt til að rækta okkur og byggja
okkur upp að nýju með einhverjum
hætti til að líta bjartari daga. Jafn-
vel þótt allt sé breytt og ekkert
verði eins og áður var.
Stöndum saman, sýnum hvert
öðru virðingu, nærgætni og skiln-
ing. Því þá verður allt svo miklu
betra. Gefum vonina aldrei frá
okkur.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Látum af yfirborðs-
mennsku í sam-
skiptum og því að spyrja
frétta en hlusta síðan
ekki á svarið sem við
höfum jafnvel takmark-
aðan áhuga á að heyra.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Tölum um tilfinningar
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?