Morgunblaðið - 14.05.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
BORGIRNAROKKAR
–með Alberti Eiríkssyni & Bergþóri Pálssyni
Sælkeraferðir með heims-
borgurunum Alberti og Bergþóri
Bratislava 20. september
Prag 27. september
Búdapest 19. október
Porto 16. nóvember
ÚT AÐ BORÐA MEÐ
ALBERTI OG BERGÞÓRI
Aðeins 16 pláss
– fyrstur kemur fyrstur fær
Frá kr.
79.995
m/morgunmat
595 1000 . heimsferdir.is
Hoppandi og skopandi ærslabelgir við menningarhúsin í Kópavogi
Gleði á
túninu við
Gerðarsafn
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Það hoppar hver á sínum forsendum á Ærslabelg. Sumir voru einbeittir á svip og huguðu að næsta leik á með-
an aðrir slepptu fram af sér beislinu og ósvikin gleði og frelsi sáust langar leiðir úr brosandi andlitunum.
Í mildu sumarveðri á sunnudags-
morgni var hópur barna og fullorð-
inna samankominn við nýuppsetta
hoppudýnu á túninu við Gerðarsafn
í Kópavogi.
Fullorðnir nutu þess að fylgjast
með ungviðinu sem hoppaði og
skoppaði af öllum lífs og sálar
kröftum á litríkri dýnunni.
Foreldar, afar og ömmur sátu í
rólegheitum og fylgdust glöð með
börnunum skemmta sér og fá útrás
fyrir hreyfiþörfina.
Eldri börnin sem komu án full-
orðinna skemmtu sér ekki síður.
Uppblásna hoppudýnan sem kall-
ast Ærslabelgur var sett upp í síð-
ustu viku. Að sögn Ármanns Kr.
Ólafssonar bæjarstjóra var varla
byrjað að blása í dýnuna þegar
krakkarnir voru mættir. Ármann
segir að Ærslabelgur hafi verið
hugsaður sem fyrsta skrefið til þess
að lífga upp á svæðið bak við menn-
ingarhúsin.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ef ekkert verður að gert eru líkur á
að verð á bílum fyrir utan rafbíla sem
ganga 100% fyrir rafmagni, muni
hækka um 25 til 35% í tveimur hækk-
unum 1. september og 1. janúar.
Þessar hækkanir koma til vegna nýs
og betri mengunarmælikvarða Evr-
ópusambandsins sem hvatt hefur að-
ildarríkin til þess að grípa til ráðstaf-
ana til að koma í veg fyrir að
hækkunin lendi á bifreiðaeigendum,“
segir Jón Trausti Ólafsson, formaður
Bílgreinasambandsins. Hann segir
að Danir hafi lækkað vörugjöld til að
koma í veg fyrir að hækkunin skili
sér í hærra verðlagi á bifreiðum og
Svíar hafi nýtt sér heimild til þess að
fresta hækkunum til ársins 2020.
Geta komið í veg fyrir hækkun
„Íslensk stjórnvöld hafa dregið
lappirnar og ekki brugðist við sem
skyldi. Frá því í vetur höfum við ýtt á
aðgerðir frá stjórnvöldum. Það hefur
ekki skilað sér og allar líkur eru á að
ekki verði hægt að koma í veg fyrir 10
til 15% hækkun á innfluttum bifreið-
um hinn 1. september,“ segir Jón
Trausti og bætir við að það sé hins
vegar nægur tími til þess koma í veg
fyrir aðra 10 til 15 % hækkun um ára-
mótin og jafnvel draga til baka, með
mótvægisaðgerðum væntanlega
hækkun í september.
„Við erum mjög ánægð og fögnum
nýjum og réttlátari mengunarmæli-
kvarða, Worldwide Harmonized
Light Vehicles Test Procedure, sem
sýnir rauntölur um eldsneytisnotkun
og útblástur koltvísýrings (CO2).
Hann tekur við hlutverki New Euro-
pean Driving Circle, sem notaður
hefur verið frá 1980 og er að flestra
mati er úreltur,“ segir Jón Trausti
sem bendir á að minni bifreiðameng-
un sé allra hagur.
„Bíllinn er oft talinn mesti orsaka-
valdur CO2 mengunar en samkvæmt
svari umhverfisráðherra árið 2015
við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen
er hægt að rekja 4% losunar gróð-
urhúsalofttegunda til útblásturs bif-
reiða á Íslandi á meðan 72% útblást-
ursins koma frá framræstu votlendi,“
segir Jón Trausti sem óttast hæga
endurnýjun bifreiðaflotans.
„Meðalaldur íslenska bifreiða er 12
ár og ég er hræddur um að sala á nýj-
um bifreiðum með þróuðustu og
sparneytnustu bensín- og dísilvélun-
um auk tvinnbíla, tengiltvinnbíla og
hybrid-bíla muni dragast verulega
saman vegna fyrirséðra verðhækk-
ana,“ segir Jón Trausti sem bendir á
að minnkandi innflutningur á um-
hverfisvænum bifreiðum geti valdið
stjórnvöldum erfiðleikum við að
standa við Parísarsamkomulagið frá
2015.
Ríkið lækki vörugjöld á bifreiðum
Morgunblaðið/Golli
Álögur Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins vill aðgerðir.
Nýr mengunarmælikvarði gæti hækkað verð á bifreiðum ESB hvetur aðildarríkin til þess að koma
í veg fyrir hækkun Danir lækka vörugjöld Svíar fresta gildistöku Ekkert að gerast á Íslandi
Losun gróðurhúsa-
loftegunda á Íslandi
» Framræst land 72%
» Iðnaður/ efnanotkun 12%
» Fólksbílar 4%
» Landbúnaður 4%
» Annað 4%
» Sjávarútvegur 3%
» Aðrar samgöngur 1%
Bæjarstjórn Kópavogs hefur
ákveðið að grípa til aðgerða til að
bregðast við skorti á daggæsluúr-
ræðum yngstu barna í bænum.
Meðal þess sem gripið verður til er
þreföldun á stofnstyrk til dagfor-
eldra sem hækkar úr 100.000 kr. í
300.000 krónur. Stofnstyrkur gerir
dagforeldrum kleift að undirbúa
húsnæði sitt fyrir daggæslu og
kaupa nauðsynlegan búnað. Þá fá
allir dagforeldrar 150 þúsund
króna aðstöðustyrk fyrir viðhaldi
og endurbótum á húsnæði og leik-
tækjum og er hann greiddur ár-
lega. Loks verða framlög bæjarins
til dagforeldra hækkuð til að koma
til móts við mismun á leikskóla-
gjöldum annars vegar og dvalar-
kostnaði hjá dagforeldrum hins
vegar þegar börn ná 15 mánaða
aldri. Nemur hækkunin 20 þúsund
krónum. Ný gjaldskrá tekur gildi
1. ágúst.
Markmið aðgerðanna er annars
vegar að laða nýja dagforeldra að
starfinu og styrkja þá faglega og
hins vegar að efla starfskrafta dag-
foreldra í Kópavogi.
Í frétt frá Kópavogsbæ segir að í
samráði við stjórn Félags dagfor-
eldra í Kópavogi verði skipulögð
aukin starfsþjálfun og fræðsla
verði á vegum daggæslufulltrúa og
leikskólaráðgjafa. Bætist hún við
starfsréttindanámskeið sem gerð
er krafa um að dagforeldrar ljúki.
Þá segir að haldinn verði
kynningarfundur fyrir foreldra til
upplýsingamiðlunar varðandi þjón-
ustu dagforeldra og hlutverk Kópa-
vogsbæjar gagnvart daggæslumál-
um. Fyrsti slíkur fundur verður
haldinn í haust og verður hann með
svipuðu sniði og fundir sem haldnir
eru fyrir nýja foreldra í leikskólum
í Kópavogi.
Dagforeldrar í Kópavogi fá
nú 300 þúsund í stofnstyrk
Bæjarstjórnin bregst við skorti á daggæslu yngstu barna
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Kópavogur Verið er að styrkja um-
gjörð dagforeldra í bænum.
Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson,
þingmaður Mið-
flokksins og
fyrrverandi for-
sætisráðherra,
hefur flutt lög-
heimili sitt í
Garðabæ. Sig-
mundur var áður
til heimilis í Að-
alstræti 6 á Ak-
ureyri í húsi í eigu fjölskyldu
Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þing-
manns Miðflokksins. Hann flutti
lögheimilið sitt þangað í desember
í fyrra eftir að fyrri lögheimilis-
skráning var kærð skömmu eftir
kosningar.
Sigmundur Davíð, sem hefur um
árabil verið þingmaður fyrir Norð-
austurkjördæmi, flutti lögheimili
sitt á eyðibýlið Hrafnabjörg III í
Jökulsárhlíð fyrir alþingiskosning-
arnar 2013.
Sigmundur Davíð bjó hins vegar
hvorki þar né á Akureyri, heldur á
höfuðborgarsvæðinu. Ekki náðist í
Sigmund Davíð við vinnslu fréttar-
innar.
Flytur
lögheimilið
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson