Morgunblaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018 AL LT SEM ÞÚ ÞA RFT TIL AÐ SM ÍÐA SU MA RH ÚS IÐ EÐ A P AL LIN N! Hjólsög HKS210L 19.799,- Hleðsluborvél AKS45IND 24.541,- 39.420,- Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is VOR Steypuhrærivél Bútsög KAP305JL 52.500,- SKOÐIÐ FLEIRI VORTILBOÐ FRÁ HOLZMANN Á HEIMASÍÐU IÐNVÉLA: WWW.IDNVELAR.IS Þjóðkvæði og sagnadansar fyrir alla fjölskyl Fagmenn Halla Elísabet Viktorsdóttir og Sigríður Sigurpálsdóttir Schev- ing stóðu sig með prýði. Hér syngja þær um Litlu Jörp með lipran fót. » Eva María Jónsdóttir miðaldafræðingur ogNanna Hlíf Ingvadóttir harmonikuleikari buðu um helgina í Salnum upp á dagskrá þar sem sjón- um var beint að því hvernig börn hafa hugsanlega skemmt sér allt frá landnámi, m.a. með þjóð- kvæðum og sagnadönsum. Viðburðurinn var styrktur af nefnd um fullveldis- afmæli Íslands. Viðburðurinn var liður í Fjöl- skyldustundum Menningarhúsanna í Kópavogi sem haldnar eru á hverjum laugardegi. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í Brussel býr Rósa Ómarsdóttir, einn af efnilegri danshöfundum Ís- lands. Þar er hún eins og blómi í eggi, og þvertekur fyrir það þegar blaðamaður spyr hvort belgíska höfuðborgin sé ekki frekar leiðinleg og ólistræn enda sneisafull af jakkafataklæddu fólki á leið inn og út úr stofnunum Evrópusambands- ins: „Það er mikill misskilningur, það er að segja ef farið er út fyrir Evrópuhverfið, og er Brussel mikil listaborg. Hér eru mörg stór dans- leikhús, dansinum gert jafnhátt undir höfði og leikhúsi – ef ekki hærra – og margir stærstu dans- flokkar Evrópu eru með aðsetur í borginni.“ Rósa (www.rosaomarsdottir.com) flutti til Brussel árið 2010, þegar hún var 22 ára gömul, til að stunda nám við hinn virta P.A.R.T.S. nú- tímadansskóla og lauk þar ígildi mastersgráðu á fjórum árum. „P.A.R.T.S. er einkaskóli sem þekktur er fyrir að fylgja sínum eigin reglum, og fá að komast upp með það að notast hvorki við bachelor- né mastersgráðu heldur gefa nemendum einfaldlega sína P.A.R.T.S-gráðu,“ útskýrir Rósa glettin. Dansferillinn hófst í ballettskóla Guðbjargar Björgvinsdóttur úti á Seltjarnarnesi þar sem Rósa æfði frá sjö ára aldri. Á unglingsárunum fór hún að þreifa fyrir sér á öðrum sviðum í dansi og minnist þess hvernig það markaði tímamót þeg- ar hún sótti sumarnámskeið Borg- arleikhússins og Íslenska dans- flokksins. „Mér fannst nútíma- dansinn svo svakalega skemmti- legur að ég beið ekki boðanna og skráði mig strax í nútímadansbraut Listdansskóla Íslands og var í hon- um meðfram menntaskólanámi í MH. Síðan tóku við tvö ár af BA- námi á dansbraut Listaháskólans áður en ég hélt til Brussel.“ Mörkin verða óljós Nýjasta verk Rósu, Traces, hef- ur vakið töluverða athygli þar sem það hefur verið sýnt í Evrópu, og vonast hún til að verkið verði flutt á Íslandi áður en langt um líður. Traces hefur verið lýst sem verki sem snertir öll skynfærin, og mætti líta á það sem tilraun til að skapa heim fyrir áhorfandann að stíga inn í, eða ferðalag þar sem mörkin milli líkama og náttúru verða óljós. Nú þegar hefur Trac- es komið til Svíþjóðar, Belgíu og Hollands en verkið verður flutt í Noregi í September. „Traces spratt upp úr einhvers konar um hverfismeðvitund og langaði mig að skoða hvernig mætti gera dansverk þar sem allt það sem er á sviðinu hefur jafn- mikið vægi: dansinn, hljóðið, sviðsmyndin, jafnvel lyktin,“ út- skýrir Rósa en hún hlaut á sínum tíma Grímuverðlaunin, ásamt Ingu Huld Hákonardóttur, fyrir dans- verkið The Valley. Verkið er flókið og óhefðbundið, og ekki auðvelt að lýsa með orðum en Rósa segir Traces hafa orðið til í nánu samstarfi við dansarana (Katie Vickers, Inga Huld Há- konardóttir, Tiran Willemse og Kinga Jaczewska), sviðsmyndar- hönnuðinn (Ragna Ragnarsdóttir) og höfund tónlistarinnar (Svein- björn Thorarensen): „Ef eitthvað er vann ég meira með sviðsmynd- arhönnuðinum og tónlistarhöfund- inum en með dönsurunum, og öll unnum við mikið í sama rými – líklega í tólf vikur samtals,“ segir hún. „Við þreifuðum okkur áfram með spuna, og smám saman að fór komst skýrari mynd á ákveðnar senur og svo á verkið allt. Það mætti lýsa Traces sem ljóði sem hálfpartinn skrifaði sig sjálft, eða kannski minnti ferlið á vinnubrögð myndhöggvarans sem finnst hann kalla styttuna fram úr steininum.“ Við sköpun Traces var leitað fanga víða og segir Rósa að hjátrú og helgisiðir úr mismunandi heiðnum siðum hafi m.a. verið nýttir sem efniviður og innblástur, og mannslíkaminn líka notaður til að búa til mismunandi landslag – í orðsins fyllstu merkingu. Dans- ararnir fjórir vinna með sviðs- myndina, sem er frekar stór, og mjög frábrugðin hefðbundnum sviðsmyndum dansverka. „Verkið hefst með ritúali, þar sem dans- ararnir kyrja, og vinna með vatn, plöntur og þurrís. Þeir búa líka til hljóðmynd með líkamanum og röddinni, og hverfa síðan undir efni sem verður að landslagi,“ seg- ir Rósa. Jaðarinn er ekki sveitó Annað verkefni sem Rósa hefur unnið að, Secondhand Knowledge, er ekki síður merkilegt. Um n.k. rannsóknarverkefni er að ræða, sem Rósa vinnur með Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Rob- erts, en Secondhand Knowledge hóf göngu sína á Reykjavík Dancefestival árið 2014. Segja má að Rósa sé, á vissan hátt, að líta um öxl og varpa ljósi á hvar dans- inn í litlum og tiltölulega af- skekktum samfélögum eins og Ís- landi stendur í samanburði við dans-höfuðborgir Evrópu. Hún lýsir því þannig að oft sé litið á þessi litlu samfélög eins og þau séu á eftir meginstraumnum, og að danssamfélagið þar fái ekki það nýjasta og ferskasta beint í æð eins og í stórborgum menning- arheimsins. – Að þessar jaðar- senur listaheimsins séu sakaðar um að vera svolítið sveitó. „En markmið verkefnisins er einmitt að sýna fram á að svo er ekki,“ segir Rósa. „Það hefur t.d. verið bent á að pönkið kom frekar seint til Ís- lands, en það þarf ekki endilega að vera neikvætt. Því ef við rýnum í söguna þá sjáum við að íslenska pönkið var líka eitthvað allt annað en pönkið úti í heimi, og sem slíkt hvorki verra né betra. Straumar og stefnur geta borist mishratt á milli staða, en um leið eru þær líka að breytast og mótast, og skemmtilegir hlutir að gerast frá sjónarhorni listarinnar,“ segir Rósa. „Secondhand Knowledge er því að vissu leyti sjálfseflingar- verkefni fyrir dansinn á minni stöðum, þar sem allri minnimátt- arkennd er útrýmt.“ Secondhand Knowledge hefur fengið norræna og flæmska styrki og hefur m.a. heimsótt Trondheim í Noregi, Árósa í Danmörku, Riga í Lettlandi, Sagreb í Króatíu, og meira að segja litla eyju í Grikk- landi. Framkvæmdin er þannig að Rósa og félagar hafa haldið tveggja vikna vinnustofu með dönsurum og danshöfundum sem búa á hverjum viðkomustað verk- efnisins. „Við lesum greinar um „notaða þekkingu“, og skoðum Dansinn skoðaður frá nýjum hliðum  Dansverkið Traces hefur vakið töluverða athygli enda mjög óhefðbundið  Í verkefninu Second- hand Knowledge kortleggja Rósa Ómarsdóttir og félagar hvar danssenur á jaðrinum standa Ljósmynd/Hákon Pálsson Hlutverk Í rannsóknarverkefninu Secondhand Knowledge freistar Rósa þess að sýna fram á mikilvægt framlag danssenunnar í minni samfélögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.