Morgunblaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 134. DAGUR ÁRSINS 2018  Skjaldborg, hátíð íslenskra heimild- armynda, verður haldin á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 18.-21. maí, líkt og hefð er fyrir. 18 nýjar íslenskar heimildarmyndir verða sýndar og einnig verða kynnt níu verk í vinnslu. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár verður danski klipparinn Niels Pagh Andersen sem hefur klippt yfir 250 kvikmyndir og að meirihluta heimild- armyndir. Má af þeim nefna verðlauna- myndirnar The Act of Killing og The lo- ok of Silence eftir Joshua Openheimer og Three Rooms of Melancholia eftir Pirjo Honkasalo. Andersen mun leiða meistaranámskeið á hátíðinni á laug- ardeginum. Tvenn verðlaun verða að vanda veitt á hátíðinni, annars vegar Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar og hins vegar Ljóskastarinn, dómnefnd- arverðlaun hátíðarinnar. Í dómnefnd að þessu sinni verða leikstjórarnir Ragnar Bragason og Yrsa Roca Fann- berg og Elísabet Indra Ragnarsdóttir tónlistarkona. Andersen heiðurs- gestur Skjaldborgar  Andri Björn Róbertsson bassabarí- tón syngur í Lessons in Love and Vio- lence, nýrri óperu eftir tónskáldið George Benjamin og textahöfundinn Martin Crimp, sem frumsýnd var í konunglega breska óperuhúsinu í Covent Garden í London í fyrradag. Textinn er byggður á leikriti Cristopher Mar- lowe um Játvarð II. Englands- konung. Andri í nýrri óperu um Játvarð II. Eyjamenn tóku um helgina forystuna í úrslitarimmunni um Íslandsmeist- aratitil karla í handknattleik. ÍBV vann FH í fyrsta leik liðanna fyrir fullu húsi í Vestmannaeyjum. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari en liðin mætast aftur á morgun og þá á heimavelli Hafnfirð- inga í Kapla- krika. »6 Ósvikin stemning í Vestmannaeyjum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Kátiljákalandið hentar mun betur til hjólreiða en fólk ef til vill ætlar. Ótrúlega víða samsíða hraðbrautum og þjóðvegum hafa verið lagðir stígar fyrir hjólreiðafólk og nú er slík braut komin meðfram nánast allri austur- ströndinni, frá Flórída og norður á bóginn. Aðstaðan er frábær og veg- farendur tillitssamir. Svo er líka frá- bært að fara þetta að vori til, þegar veðráttan er mild og mátulega hlýtt,“ segja hjónin Þóra Hrönn Njálsdóttir og Sigurjón Pétursson í Hafnarfirði. Frá syðsta odda Nýlega komu Þóra Hrönn og Sigurjón úr mikilli hjólreiðaferð um Bandaríkin, það er frá Key West sem er syðsti oddi Flórída hvaðan þau hjóluðu alls 2.870 kílómetra norður til New York, alla leiðina inn á Times Square. Alls tók ferðalagið – að hvíld- ardögum meðtöldum – 37 daga. Far- ið var í gegnum alls níu ríki, það er Flórída, Georgíu, Suður-Karólínu, Norður-Karólínu, Virginíu, Mary- land, Delaware, New Jersey og New York. Allt gekk eins og í sögu í þess- um leiðangri sem hafði verið vel undirbúinn. Lagt var upp í ferðina og flogið vestur um haf 15. mars, fyrst til Or- lando í Flórída og þaðan svo áfram næsta dag til Key West sem er um 270 km sunnan við Miami og er syðsti staður á meginlandi Bandaríkjanna. „Við tókum hjólin okkar með sem farangur og það var fyrirhafnarlítið enda eru þau létt og hægt að brjóta þau saman. Að vera á reiðhjólum sem við erum vön gerði ferðina þægilegri en ella hefði orðið,“ segir Sigurjón. Gríðarlega langar brýr Fyrsti leggur ferðarinnar var frá Key West til Miami, en þar á milli eru um 270 kílómetrar eða þrjár dag- leiðir. „Hjólað er eftir rifum sem ná frá Miami 270 km suður í Karíba- hafið. Á milli þessara rifa eru gríð- arlega langar brýr. Sú lengsta er kölluð Sjö mílna brúin og er 7 mílur eða rúmir 11 km eins og nafnið gefur til kynna. Þetta tók nokkuð á því að- eins er rúmlega metra breið rein ut- an vegreinarinnar sem hjólað er eftir og brúarhandriðið er ekki nema metri á hæð,“ segir Sigurjón og held- ur áfram: Tíu þúsund kílómetrar „Mestan hluta alls ferðalagsins var hjólað á strönd Atlantshafsins eða eins nálægt henni og mögulegt var. Við sáum því Atlantshafið flesta daga ferðarinnar. Frá Miami er hjólað í gegnum borgir eins og Ft. Lauder- dale og West Palm Beach en á þess- ari leið getur að líta einhver flottustu einbýlishús sem finnast í Norður- Ameríku og þótt víða væri leitað. Og allt var þetta á rennisléttu landi, það var varla brekka á allri þessari leið.“ Til New York náðu þau Sigurjón og Þóra Hrönn 22. apríl og fóru þá greiða leið alla leið inn í miðborgina. „Bandaríkjamenn eru með allt á hreinu. Í milljónaborginni hefur ver- ið útbúin frábær aðstaða fyrir hjól- reiðafólk, einfaldlega til að svara kröfum íbúanna um góða aðstöðu til útivistar og hreyfingar. Hjólreiðar og umhverfisvænn samgöngumáti er alls staðar í sókn,“ segir Sigurjón sem með konu sinni hefur stundað þetta sport árum saman. Hjólað þrisvar hringinn um Ísland, farið í mótorhjólaleiðangur um Víetnam – og svo gert víðreist í Ameríku. Fóru þau þvert yfir Bandaríkin frá St. Augustine í Flórída til San Diego í Kaliforníu, alls 4.200 kílómetra leið árið 2011. Árið 2016 fóru þau svo suð- ur Kyrrahafsströndina, það er frá Vancouver í Kanada til San Diego í Kaliforníu, 2.710 km. Þegar nýafstað- inni austurstrandarferð er svo bætt við eru kílómetrarnir í Ameríku orðnir rétt tæplega 10 þúsund – og geri aðrir betur! Á reiðhjóli í gegnum níu ríki  Hjóluðu við Atlantshafið á austurströnd USA Ljósm/Úr einkasafni Hjólafólk Þóra Hrönn og Sigurjón komin til Maryland frá Flórída. Lokaspretturinn inn í New York var þá eftir. USA Hjólið og skýjakljúfurinn. VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Hverjir gáfu Íslandi stig? 2. Afinn ber ábyrgð á ódæðinu 3. Allt getur gerst 4. Foreldrar árásarmannsins í haldi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á þriðjudag Vestan 8-15 m/s um landið vestanvert með lítils- háttar skúrum eða slydduéljum. Norðlægari austantil. Á miðvikudag Suðvestan 5-13 með rigningu og súld, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti 5 til 10 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 5-10 m/s og rigning, en snýst í vest- an 8-13 seinnipartinn með lítilsháttar skúrum. Hiti 8 til 14 stig. VEÐUR „Hafi Íslandsmeistarar Vals haldið að þeir gætu leyft sér að vera kærulausir gegn liði á borð við nýliða Fylkis þá var sú ranghugmynd lík- lega rækilega slegin úr koll- inum á þeim á Hlíðarenda í gærkvöld,“ skrifar Sindri Sverrisson meðal annars í umfjöllun um leik liðanna. Fjallað er um alla leikina í efstu deildum karla og kvenna í íþróttablaðinu í dag. »2 Kæruleysi er öll- um hættulegt Íslandsmeistararnir í Þór/KA hirtu öll stigin á heimavelli bikarmeistara ÍBV í gær þegar liðin áttust við í 3. um- ferð Pepsi-deildar kvenna í knatt- spyrnu. Leiknum lauk með 2:1-sigri gestanna en mörkin komu með mín- útu millibili undir lok fyrri hálfleiks. Þór/KA hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í deildinni og titilvörn fer því vel af stað. »2 Meistarar Þórs/KA með fullt hús stiga ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.