Morgunblaðið - 14.05.2018, Blaðsíða 35
AFP
Sigurstund Netta Barzilai hampar hér verðlaunagripnum og syngur lagið
aftur eftir að úrslitin urðu ljós. Hún er eðlilega ofsakát með árangurinn.
Ísraelska söngkonan Netta, eða
Netta Barzilai, bar sigur úr býtum í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva sem fram fór í Portúgal sl.
laugardagskvöld. Netta söng lagið
„Toy“, en hún sagði #MeToo-
byltinguna hafa verið sér innblástur
og tileinkaði sigurinn fjölbreytileik-
anum. Kýpur hafnaði í öðru sæti og
Austurríki í því þriðja. Stigagjöfin
var mjög dreifð og ekki var ljóst fyrr
en á lokasprettinum hver myndi
sigra og spennan var því mikil þegar
lokatölur duttu inn.
Ísrael stóð uppi
sem sigurvegari
lduna í Salnum
Samhentar Nanna Hlíf og Eva María fóru á kostum og gáfu allt í flutning sinn eins og glögglega má sjá hér.
Innlifun og trumbusláttur Nanna Hlíf Ingvadóttir
barði bumbur til að gera flutninginn enn áhrifameiri.
Morgunblaðið/Eggert
Gaman Fólk mætti með börn sín á viðburðinn enda afar
fjölskylduvæn leið til að njóta með ungviðinu.
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s
Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Fös 25/5 kl. 20:00 34. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas.
Fim 17/5 kl. 20:30 23. s Fim 24/5 kl. 20:30 aukas.
Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Fös 25/5 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 20:00 4. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Aðfaranótt (Kassinn)
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
hvaðan þeir straumar og stefnur
sem móta okkur eru að koma. Síð-
an notum við, af ásetningi, þessa
„notuðu þekkingu“ í dansstúdíóinu
til að skapa,“ útskýrir Rósa.
„Samhliða tek ég viðtöl við í
kringum 15 manns á hverjum
stað, og upp úr þeim að ég skrifa
frásögn í fyrstu persónu – en samt
nafnlaust – svo að úr verður n.k.
sjálfsævisaga danssenunnar.“
Verkefnið endurspeglar að
sumu leyti stöðu Rósu sjálfar.
Hún er ung og flink, og leggur sig
fram við að taka eins mikinn þátt í
íslensku danssenunni og hún get-
ur, en samt hefur hún búið nærri
þriðjung ævinnar í Belgíu bæði til
að mennta sig og til að byggja upp
eigin feril.
„Það er ekki hægt að neita því
að í borg eins og Brussel eru
tækifærin fleiri: það er meira um
að vera, fleira fólk og stærri dans-
sena. En það er ákveðin ósann-
girni sem fylgir því þegar
ákveðnir staðir verða að Mekkum
danssenurnar, því við megum ekki
fara öll úr landi, enda væri þá
ekki til þessi blómstrandi og
spennandi danssena sem Ísland
býr að í dag,“ segir hún. „Það
skiptir svo miklu máli að við rækt-
um líka okkar heimasenu.“
Hæð Sviðsmyndin er nokkuð stór í Traces og renna
dansarar og hlutar sviðsmyndarinnar saman á köflum.
Ljósmynd/Stanislav Dobak
Áferð Í Traces er á öllu von og farið langt út fyrir
rammann til að ná til allra skynfæra áhorfenda.
Traces minnir á hversu fjölhæfir dansarar þurfa stundum að vera. Í
verki Rósu leika dansararnir ekki aðeins ómissandi hlutverk í sjálfu
sköpunarferlinu heldur þurfa líka, í flutningnum, að beita röddinni, rétt
eins og þeir beita útlimum líkamans. Er líka skemmst að minnast verð-
launaverks ÍD, Fórn, þar sem dansararnir þurftu að læra að spila á gít-
ar og svífa um sviðið spilandi, syngjandi og dansandi í kaflanum „No
Tomorrow“ eftir Ragnar Kjartansson. Sú tíð virðist löngu liðin að það
eitt og sér að vera flinkur að dansa sé nóg.
Rósa segir þessa sömu þróun eiga sér stað á öllum listsviðum, og
að fjölhæfni komi í góðar þarfir hvort sem fólk starfar t.d. sem leik-
arar eða sem listmálarar. Rósa kvartar ekki: „Vissulega eru lagðar
auknar kröfur á dansara nú en oft áður, en það gerir starfið líka fjöl-
breytilegra og um leið skemmtilegra. Það er alltaf gaman að þurfa að
læra eitthvað alveg nýtt, og þreifa sig áfram á öðrum sviðum en mað-
ur er vanur.“
Raunar grunar Rósu að krafan um fjölhæfni komi sér vel fyrir ís-
lenska listamenn, bæði í dansi og á öðrum sviðum, enda eru þeir oft
búnir að koma víða við og hafa ekki takmarkað alla sína þjálfun og
menntun við þröngt svið afmarkaðs listforms eins og sumir erlendir
kollegar þeirra. Íslensku dansararnir virðast frakkir og frumlegir, og
óhræddir við að prófa nýja hluti. „Í heimi samtímadansins heyri ég oft
hvað fólk er hissa á því að svona ofboðslega lítið land eins og Ísland
hafi búið til svona mikið af góðum dönsurum.“
Miklar kröfur gera
starfið skemmtilegra
EKKI LENGUR NÓG AÐ KUNNA BARA AÐ DANSA?