Morgunblaðið - 14.05.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • solskalar.is
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Yfir 90 litir í boði!
Umferð á milli Eskifjarðar og Nes-
kaupstaðar hefur aukist um 36 pró-
sent með tilkomu Norðfjarðarganga
sé tekið mið af talningu á umferðinni
fyrstu fjóra mánuði ársins.
Reikna má með að umferðin á heilu
ári aukist um ríflega 30 prósent, að
því er fram kemur í frétt á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
Göngin tengja helstu byggða-
kjarna Fjarðabyggðar, þ.e. Neskaup-
stað og Eskifjörð/Reyðarfjörð.
Samkvæmt umferðarteljurum
Vegagerðarinnar hefur umferð um
Norðfjarðargöng, frá því í janúar
byrjun til loka apríl, verið 36% meiri
en um Oddsskarðið á sama tímabili á
síðasta ári.
Norðfjarðargöng voru opnuð í nóv-
ember 2017 og til að bera saman árið
2018 (um Norðfjarðargöng) í heild við
árið 2017 (um Oddsskarðið) þykir
raunsannara að nota þá umferð sem
Vegagerðin áætlar að hefði farið um
Oddsskarðið í nóvember og desem-
ber á síðasta ári, ef göngin hefðu ekki
komið til, segir í fréttinni. Með þetta í
huga og ef einkenni umferðar um
Norðfjarðargöng haldast svipuð ein-
kennum umferðar um Oddsskarðið
gæti umferðin, fyrir árið 2018, um
Norðfjarðargöng orðið rúmlega 30%
meiri en um Oddsskarðið árið 2017.
Þessi aukning er í samræmi við það
sem Vegagerðin áætlaði að gæti
gerst og gangi þetta eftir mun um-
ferðin vera í samræmi við spá um um-
ferð sem Vegagerðin birti 2013.
sisi@mbl.is
Ljósmynd/Jens Einarsson
Norðfjarðargöng vígð Umferð var hleypt um þau í nóvember í fyrra og var heilmikið tilstand af því tilefni.
Göngin stórauka umferð
Umferð milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar eykst um 36%
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Flokkur fólksins vill að foreldrar hafi
val um að vera lengur heima með
börnum sínum með því að greiða
þeim sömu upphæð og borgarsjóður
greiðir fyrir barnið hjá dagforeldri.
Þetta er meðal þeirra stefnumála
sem flokkurinn setur á oddinn í
Reykjavík en með þessu ætlar Flokk-
ur fólksins að brúa bilið frá því töku
fæðingarorlofs lýkur og þar til barn
hefur náð tveggja ára aldri.
Þá vilja þau einnig að öll börn í
grunnskólum fái gjaldfrjálsar máltíð-
ir ásamt því að frístundaheimili verði
gjaldfrjáls fyrir efnaminni foreldra.
Húsnæði fyrir alla
Flokkurinn ætlar einnig að tryggja
húnsæði fyrir alla en til þess að ná því
markmiði verða lóðir til uppbygging-
ar á félagslegu húsnæði í borginni
„einungis seldar á kostnaðarverði“.
Leggja þau til að undið verð ofan af
„stigvaxandi okri í verðlagningu á
lóðum borgarinnar“ og að „lóða-
skorstsstefna“ núverandi meirihluta
verði afnumin. Þá vill flokkurinn að
til starfa taki hagsmunafulltrúi aldr-
aðra í Reykjavík. Hlutverk hans
verði að byggja upp heildstætt kerfi
sem heldur utan um aðhlynningu og
aðbúnað aldraðra ásamt því að sjá til
þess að húsnæði, heimahjúkrun,
dægradvöl og heimaþjónusta sé full-
nægjandi. Hagsmunafulltrúinn á
einnig að tryggja að unnið sé sam-
kvæmt viðurkenndum manneldis-
markmiðum og hollustu í fæðuvali á
hjúkrunarheimilum og þjónustumið-
stöðvum.
Greiða götu einkabílsins
Í samgöngumálum segist flokkur-
inn ætla að greiða götu einkabílsins
og verður dregið úr umferðaröng-
þveitinu í borginni með því m.a. að
fjölga göngubrúm í stað gönguljósa.
Þá leggja þau til að gerð verði fleiri
mislæg gatnamót og vilja stórefla nú-
verandi almenningssamgöngur.
Flokkurinn er einnig hlynntur því að
flugvöllurinn í Vatnsmýrinni verði
áfram á sínum stað.
Vilja að foreldrar fái greitt
Flokkur fólksins birtir stefnumálin sín í Reykjavík Öll-
um tryggt húsnæði Flugvöllurinn áfram í Vatnsmýrinni
Morgunblaðið/Eggert
Flokkur fólksins Kolbrún Baldurs-
dóttir leiðir listann í Reykjavík.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Efst á stefnuskrá Pírata í Reykja-
vík er að verða málsvarar ungs
fólks og að auka lífsgæði ungs
fólks. Í stefnuskrá flokksins, sem
kynnt var fyrir helgi í Petersen-
svítunni, segir að ungt fólk hafi
vantað málsvara og hafi sumir
flokkar „beinlínis verið í stríði
gegn ungu fólki“.
Píratar vilja að Reykjavík verði
samkeppnishæf við stórborgir ná-
grannalandanna svo ungt fólk yf-
irgefi ekki landið til frambúðar. Til
þess að ná þessu markmiði ætla
þeir m.a. að fjölga stúdentaíbúðum
og gera vistvænni ferðamáta að
raunverulegum valkosti. „Ungt fólk
tekur sjaldnar bílpróf en áður og
vill geta tekið strætó og notið nær-
þjónustu í hverfunum. Það er dýrt
að reka bíl og skipulag borgarinnar
á forsendum einkabílsins er á for-
sendum eldri kynslóða.“ Þá vilja
Píratar einnig að kosningaaldurinn
verði lækkaður í 16 ár á sveit-
arstjórnarstigi og að sálfræðiþjón-
usta verði aðgengileg í skólum.
Skipulagt húsnæði fyrir alla
Þá ætlar flokkurinn að leita allra
mögulegra leiða til að taka á
bráðavandanum á byggingarmark-
aði og tryggja húsnæði á viðráð-
anlegu verði. „Við leggjum áherslu
á stöðugleika á byggingarmarkaði,
að auka framleiðni og styðja við
iðnnám. Píratar hafa lagt hornstein
í stjórnsýslu Reykjavíkur á líðandi
kjörtímabili sem styttir boðleiðir,
rafvæðir ferla og skilar okkur skil-
virkari stjórnsýslu fyrir alla borg-
arbúa, líka uppbyggingaraðila.“
Segist flokkurinn ætla að skipu-
leggja húsnæði fyrir alla aldurs- og
félagshópa innan áhrifasvæðis
borgarlínu og skapa þannig nú-
tímalega og spennandi menning-
arborg. Verður skipulagt húsnæði
fyrir stúdenta, ungt fólk, eldri
borgara, félagslegar íbúðir og
leiguíbúðir í tengslum við borg-
arlínu.
Píratar ætla að vera
málsvarar ungs fólks
Stefnumál Pírata í Reykjavík kynnt
Morgunblaðið/Eggert
Píratar í Reykjavík Dóra Björt Guð-
jónsdóttir, oddviti Pírata í borginni.
Vinnufundur í
kjaradeilu ljós-
mæðra verður
haldinn í dag.
Katrín Sif Sigur-
geirsdóttir, for-
maður samn-
inganefndar
þeirra, kvaðst
bjartsýn fyrir
fundinn í samtali
við mbl.is. Næsti
formlegi fundur með allri samn-
inganefnd ríkisins er síðan á mið-
vikudag. Málinu var vísað til ríkis-
sáttasemjara 5. febrúar síðastliðinn
og hefur lítið þokast áfram í við-
ræðum deiluaðila þangað til eitt-
hvað virðist hafa rofað til í síðustu
viku. Samninganefnd ljósmæðra
hittist á föstudag þar sem farið var
yfir málin. „Það er farið myndast
samtal og það er kominn einhver
samningsvilji,“ sagði Katrín sem
vonar það besta.
Rofar til í kjaradeilu
ljósmæðra og ríkis
Katrín Sif
Sigurgeirsdóttir