Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 12
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Þótt vinkonurnar ogvöruhönnuðirnir AuðurÖsp Guðmundsdóttirog Halla Kristín
Hannesdóttir byggju til
skamms tíma sitt hvorum
megin á hnettinum, samein-
uðust þær um að skapa alls
konar fólki heimili við hæfi.
Ímynduð heimili að vísu, en
hönnuð fyrir alvörufólk úti um
allan heim, sem þær þekktu ekki
hætishót en höfðu lesið um og
þótti skemmtilega sérviskulegt.
Það batt ekki bagga sína sömu
hnútum og samferðamennirnir eins
og sagt hefði verið í gamla daga.
Þær stöllur hófu að setja
myndir og frásagnirnar af lífsmáta
þessa fólks á vef sem þær einar
höfðu aðgang að og smám saman
fóru þær að skiptast á hug-
myndum um heppilega hluti og
heimili fyrir þetta fólk. Og
skemmtu sér konunglega.
„Þessi iðja okkar varð
kveikjan að því að við hófum í
sameiningu að byggja smáhús
og agnarsmá húsgögn og hús-
búnað eins og okkur fannst
henta íbúunum, sem við gáfum
okkur að byggju í húsunum,“
segir Auður Ösp og útskýrir
nánar:
Smáhús fyrir skrýtinn karl
„Við byggðum til dæmis smá-
hús fyrir karl, sem ég las um og
vann hjá Sameinuðu þjóðunum þar
Smámunir og -hús
fyrir ímyndað fólk
Smáhúsavinnustofur fyrir börn hafa annað slagið skotið upp kollinum í Hönnunar-
safni Íslands og víðar. Forsprakkarnir eru Auður Ösp Guðmundsdóttir og Halla
Kristín Hannesdóttir vöruhönnuðir. Á námsárunum byrjuðu þær að byggja smáhús
fyrir alls konar fólk, sem var þeim með öllu óviðkomandi og svolítið sér á parti.
Morgunblaðið/Hari
Gægst inn um glugga Halla Kristín og
Auður Ösp gægjast inn um gluggana.
Smávinnustofa
Hver og einn inn-
réttar herbergi
eftir sínum
smekk.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
MYRKVA GLUGGATJÖLD
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
að ég fúnkeri sem best þarf ég
líka að fá tíma þar sem ég er
aleinn með sjálfum mér. Ég þarf
tíma til að hugsa, skrifa, vera í
þögn, labba úti náttúrunni, læra.
Þegar ég fæ þennan tíma hef ég
meiri orku til að sinna öðrum. Er
betri félagslega þegar ég fæ líka
að vera einn. Þetta hljómar
kannski mótsagnakennt, en svona
er þetta.
Það er hollt og gott fyrir okkur
öll að skoða okkur sjálf með jafn-
vægið milli þess að vera einn og
með öðrum í huga. Finna réttu
blönduna og taka svo ábyrgð á því
að passa upp á hana. Greina hvað
við þurfum mikinn tíma með sjálf-
um okkur og finna út hvernig við
tryggjum að við fáum þann tíma –
morgnarnir virka best fyrir mig.
Sömuleiðis þurfum við að passa að
sinna samskiptum og samveru
með þeim sem skipta okkur mestu
máli. Þeim hópum sem við viljum
tilheyra.
Njótum ferðalagsins!
Gaui.
Hugleiðingar um heilsu og hamingju
Morgunblaðið/Eggert
Einvera Þótt mennirnir séu félagsverur þurfa margir á því að halda að vera
einir með sjálfum sér, lesa, læra, hugsa, vera úti í náttúrunni - eða á kaffihúsi.
Einn og með öðrum
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi, sem heldur úti bloggsíð-
unni: njottuferdalagsins.is
Það er margt sem hægt er aðskrifa um þegar kemur aðheilsu og hamingju. Heilsa
er meira en að vera líkamlega í
góðu standi og í andlegu jafnvægi.
Félagslegi þátturinn skiptir líka
miklu máli. Við mannfólkið erum
félagsverur og þurfum á hvert
öðru að halda. En í mismiklum
mæli. Sumir þurfa líka að vera
reglulega einir með sjálfum sér til
þess að ná sér í orku. Ég er einn
af þeim. Ég er mikið í kringum
fólk dagslega, vinn með hópa af
ýmsu tagi og er hluti af stórri fjöl-
skyldu. Ég fæ mikla orku þegar
ég er í kringum skemmtilegt og
lifandi fólk. Ég hef virkilega gam-
an af fólki, finnst gaman að heyra
hvað fólk er að fást við daglega,
hvað það er að pæla og hvað lætur
því líða vel.
Mér finnst hópar heillandi fyr-
irbrigði. Ég pæli í hvað heldur
þeim saman, af hverju fólk vill
vera hluti af hópnum, hvaða
óskrifuðu reglur gilda í honum og
hvaða afleiðingar það hefur að
brjóta þessar reglur. En til þess
Árleg barnavagnavika Ferðafélags
barnanna hefst í dag, mánudaginn 14.
maí, og lýkur föstudaginn 18. maí. Efnt
verður til einnar til tveggja klukku-
stunda gönguferða víðsvegar á höfuð-
borgarsvæðinu, fyrir fólk með börn í
barnavögnum eða -kerrum. Þægilegur
og rólegur gönguhraði, en á leiðinni
taka þátttakendur nokkrar teygju- og
slökunaræfingar, sem henta prýðilega
fyrir jafnt mömmur og pabba, afa og
ömmur.
Í heilsubótargöngunni er upplagt
tækifæri til að sýna sig og sjá aðra, og
eiga skemmtilega samverustund með
öðru barnafólki.
Fararstjóri er Lína Móey. Ekki þarf
að panta, bara mæta.
Í dag verður lagt upp í gönguna kl.
12.30 frá Húsdýragarðinum í Laugar-
dal, en annars verður á sama tíma
gengið frá eftirfarandi stöðum: Þriðju-
dagur, 15. maí: Árbæjarlaug. Miðviku-
dagur, 16. maí: Sundlaug Seltjarnar-
ness. Fimmtudagur, 17. maí: Perlan.
Föstudagur, 18. maí: Vesturbæjarlaug.
Árleg barnavagnavika Ferðafélags barnanna 14. - 18. maí
Hópgöngutúrar með börn í
barnavögnum eða -kerrum
Morgunblaðið/Golli
Göngutúr Barnavagnar og -kerrur eru engin fyrirstaða í heilsubótargöngum.