Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 13

Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 13
„Stóru húsin sáum við meira fyrir okkur sem dúkkuhús, sem eigend- urnir gætu síðar meir notað sem skrín fyrir ýmsa hluti sem þeim eru kærastir í lífinu.“ Morgunblaðið/Hari Byggingameistararnir Halla Kristín, t.v., og Auður Ösp, með tilsniðna veggi og annan smáhúsbúnað í húsin sín. sem hann klæddist alltaf stöðl- uðum og leiðinlegum jakkafötum. Heima hjá sér gerði hann sér það helst til dundurs að sauma á sig fatnað úr húsgagnaáklæði og skrýddist slíkum flíkum alltaf nema í vinnunni.“ Áhöld kunna að vera um hvort athæfið sé skrýtnara, karlsins hjá SÞ eða þeirra Auðar Aspar og Höllu Kristínar. En þær kærðu sig kollóttar. Auður Ösp var á þessum árum í meistaranámi í leikmynda- og búningahönnun í Tékklandi og Halla Kristín í meistaranámi í hönnun í Sydney í Ástralíu. Þær eru svo til nýkomnir heim, starfa báðar sjálfstætt, meðal annars við kennslu og hafa hvor um sig sinnt ýmsum verkefnum á sínu sviði og hafa nóg að gera. Áhuginn á smá- húsum með tilheyrandi smámunum er þó enn fyrir hendi og saman hafa þær haldið vinnustofur fyrir börn sem vilja gera lítil hús í Hönnunarsafni Íslands og víðar. „Þau hús eru af allt öðrum toga en við byggðum þegar við vorum báðar staddar á landinu og sýndum á Hönnunarmars fyrir nokkrum árum. Þá bjuggum við allan húsbúnað til á staðnum og létum þannig eins og fólkið væri að flytja inn og koma sér fyrir í húsunum sínum,“ segir Auður Ösp. Á sýningunni tefldu þær fram fimm eintökum af númer- uðum smáhúsum úr viðar- plötum, sem öll stóðu á mahónífótum og voru þrjár hæðir og ris. Svona álíka stórt og vænt hefðbundið dúkkuhús. Einnig byggðu þær þrjú minni hús eins og þær eru enn að þróa og framleiða í smáum stíl. Dúkkuhús verða furðuskrín Sem vöruhönnuðir eru þær vanar að vinna módel af öllu mögulegu í smækkaðri mynd, en þó ekki jafn agnarsmárri og hús- búnaðurinn í smáhúsin. „Maður er auðvitað miklu frjálsari að búa til smáútgáfur af hlutunum heldur en að vinna þá í eðlilegri stærð. Lítið mál að snara upp innréttingum í herbergi á einum degi ef það er bara 20 fersentímetrar og búa það ýmsum smámunum samkvæmt þörfum og smekk þeirra sem við ímynduðum okkur að eigi her- bergið. Stóru húsin sáum við meira fyrir okkur sem dúkkuhús, sem eigendurnir gætu síðar meir notað sem skrín fyrir ýmsa hluti sem þeim eru kærastir í lífinu. Nokk- urs konar furðuskrín eða safn- gripir.“ Smáhúsin, sem þær kenna krökkum og fjölskyldum þeirra að setja saman og innrétta á vinnu- stofunum draga að mörgu leyti dám af fyrrnefndu húsunum fimm. Enda leiddi eitt af öðru í smá- húsagerð vinkvennanna. Nammibarinn og sköpunargáfan „Við mætum til leiks með nammibarinn okkar, eins og við köllum efniviðinn, sem saman- stendur af þremur tilsniðnum veggjum og gólfi auk húsgagna, tilsniðinna borð- og stólfóta, timb- urs, tannhjóla, víra, textíls, og alls konar dóts til að prýða herbergin. Oftast hafa krakkarnir frjálsar hendur, en stundum felum við þeim að innrétta herbergi fyrir ákveðna manngerð, til dæmis upp- finningamanneskju, sem gæti hafa fundið upp hina fullkomnu kleinu eða hvað annað sem væri. Verk- efnin fara alveg eftir hópunum sem koma á námskeiðin,“ segir Auður Ösp. Gluggarnir í smáhúsunum eiga sér fyrirmyndir því þeir eru gerðir eftir ljós- myndum sem vinkon- urnar tóku á ferðum sínum um Vesturbæ Reykjavíkur og Hlíð- arnar áður en þær héldu utan í meistara- námið. Áhuginn á hinu smáa hefur nefnilega lengi blund- að í þeim – og blundar enn. „Við höfum ekki auglýst smáhúsa- vinnustofurnar, en svörum kalli þegar við getum. Garðabær hefur til dæmis fengið okkur til að halda vinnustofur fyrir börn í vetrarfríi, en þær henta mjög vel fyrir tíu ára börn og eldri. Betra er að þau yngri komi í fylgd með foreldrum sínum, sem oft hafa ekki síður gaman af að spreyta sig. Þroska sköpunargáfuna og eiga góða stund með börnum sínum.“ Skapandi starf Í Hönnunarsafni Íslands hefur stundum verið efnt til smá- húsavinnustofa fyrir skapandi krakka og foreldra þeirra. Herbergi uppfinningakonu Svona býr uppfinningakona í huga hönnuðanna. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Ævintýrahús Burðarstoð- irnar og húsið sjálft sem er þrjár hæðir og ris. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018 www.apotekarinn.is - lægra verð REYKLAUS VERTU Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ Nicotinell Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afslátt ur* * 2MG og 4MG 204 stk pakkningum. Gildir af öllum bragðtegundum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.