Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 24

Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018 ✝ Ketill ÁgústKierulf Larsen fæddist í Reykja- vík 1. september 1934. Hann lést á Landspítalanum 26. apríl 2018. Foreldrar hans voru hjónin Axel Larsen, f. 12.11. 1879 í Kaup- mannahöfn, d. 1938, og Helga Þórðardóttir Larsen, f. 14.05. 1901 að Vola í Flóa, d. 1989. Systur Ketils eru Zoe Fanney Sóley, f. 1929, d. 1943, og Ingi- björg Guðrún Sólveig, f. 1937. Dóttir Ingibjargar er Helga Fanney Bergmann, f. 1969. Sambýliskona Ketils var Ólöf Benediktsdóttir bóka- safnsfræðingur, f. 1947. Þau byggðu sér hús í Grafarholtinu sem þau nefndu Tjarnarengi og þar bjó Ketill til æviloka. Þau hættu sambúð árið 2003. Börn þeirra eru 1) Hólmfríður stundaráðs Reykjavíkur á Fríkirkjuvegi 11 frá árinu 1963 og þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Hann stofnaði þar unglingaklúbba og fór með barnahópa í Saltvík á Kjalarnesi og í Víðidal á sumrin. Hann var einnig um- sjónarmaður hússins á Frí- kirkjuvegi 11 og gætti þess af mikilli samviskusemi. Hann starfaði í leikflokki Litla sviðs- ins í Þjóðleikhúsinu 1967-68 og í Leiksmiðjunni 1968-69. Hann lék ýmis hlutverk í Þjóðleik- húsinu frá 1969, m.a. í sýning- unni Inuk, sem sýnd var í 19 löndum á árunum 1974-78. Ketill var þekktur skemmti- kraftur fyrir börn, lék jóla- sveininn Askasleiki og stjórn- aði jólasveinaskemmtunum á Austurvelli frá árinu 1969. Hann skapaði persónuna Tóta trúð og lék fyrir börn. Hann málaði í frístundum og hélt yf- ir 40 málverkasýningar frá 1970-2017. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í dag, mánudag- inn 14. maí kl. 13. Þórunn, f. 1971, gift Ugo Morelli. Börn þeirra eru Alma Sól, Bene- dikt Axel, Imm- anuel Ketill, Krist- ófer Tómas, Emil Þorlákur og Agata Líf. 2) Sólveig Dögg, f. 1974, gift Brynjari Hilm- arssyni. Börn þeirra eru Axel Enok og Esther Ólöf. 3) Axel, f. 4.4. 1980 og d.10.4. 1980. 4) Ívar Helgi, f. 1981. Ketill stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri á árunum 1960-62, Leiklistar- skóla Ævars Kvaran árin 1962- 64 og útskrifaðist úr Leiklist- arskóla Þjóðleikhússins árið 1967. Hann sótti einnig tíma í söng og myndlist. Ketill vann á býli móður sinnar, Engi v. Vesturlands- veg, 1952-60. Hann var starfs- maður Æskulýðs- og tóm- Pabbi reyndist mér afar vel, hann var skilningsríkur, raun- góður og hvetjandi. Hann var húsvörður hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur. Mér fannst ævin- týralegt að fá að vera með hon- um í vinnunni á Fríkirkjuvegi 11, í þessu stórkostlega húsi þar sem voru leynileg herbergi, langir gangar og brakandi stig- ar. Háaloftið var mest spenn- andi en til að fara þangað þurfti að fara upp draugalegan stiga baka til í húsinu. Við fórum líka stundum með honum í Saltvík á sumrin þar sem hann hélt uppi skemmtun fyrir börnin á reiðnámskeiðinu. Hann sagði sögur og stóð fyrir ýmsum skemmtilegum uppá- komum. Honum fannst gaman að koma fólki á óvart. Hann sagði alltaf að maður ætti að lífga upp á lífið með því að gera eitthvað skemmtilegt. „Lífið er leikur,“ sagði hann oft. Ég hafði líka gaman af að fara í bæinn með pabba en eins og margir vita var hann þekkt andlit í mannlífi bæjarins. Hann þekkti annan hvern mann og það gat verið svolítið þreytandi fyrir barn að stoppa á hverju götuhorni til að spjalla við ein- hvern. Stundum fórum við niður að smábátahöfn og settumst inn í kaffivagninn, það þótti mér æv- intýralegt. Við fórum líka á Hverfisgötuna og fengum pönnsur hjá henni Fríði í hatta- búðinni. Núna á síðustu árum fóru barnabörnin með honum í bæjarferðirnar. Minnisstætt er mér atriði út þættinum Sjálf- stætt fólk þar sem Jón Ársæll var að ræða við pabba á Mokka og ungur sonur minn var með honum. Pabbi stendur upp þarna meðal kaffihúsagesta á Mokka og tekur eina af sínum flottu aríum, en hann gat brostið í söng hvar og hvenær sem var. Myndavélinni er þá beint að syni mínum sem sýnir engin svipbrigði en sötrar sitt barna- kakó með röri eins og ekkert sé eðlilegra. Svona vorum við öll vön þessum óvæntu uppákomum hans pabba. Pabbi lék Tóta trúð og Askas- leiki, foringja jólasveinanna. Við börnin lékum alltaf með honum þegar við vorum lítil og svo stóð barnabörnum það til boða einn- ig. Sem barni fannst mér æv- intýri að taka þátt í þessu með honum. Það var eftirminnileg upplifun að standa á þaki köku- hússins á Austurvelli með mann- hafið fyrir framan mig og taka þátt í skemmtun jólasveinanna. Þegar ég varð eldri reiddi pabbi sig á mína hjálp með því að und- irbúa sveinana, sminka og hjálpa til með búninga og skegg. Þegar hann fór að eldast kom hann í leikskólann þar sem ég var að vinna og lék jólasvein á jólaballi. Ég sá hann síðast skemmta börnum í október síð- astliðnum, hann lék þar við hvern sinn fingur og börnin velt- ust um af hlátri. Þá var hann bara að sýna einföld töfrabrögð, brjóta saman vasaklút og þykj- ast spila á penna. Hann hafði ótrúlegt lag á börnum og náði að fanga athygli þeirra án þess að vera með læti. Sem barn man ég eftir brúðunni Hvutta sem hann dró stundum fram fyrir okkur og mér fannst brúðan lifna við í höndunum á honum. Röddin var líka svo raunveruleg, ég var al- gerlega heilluð. Pabbi var alltaf að gefa manni ráð og ég ætla að enda á ráði frá honum. Dveldu ekki við nei- kvæða hluti heldur gerðu líf þitt að leik. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku pabbi minn. Þín Sóldögg. Afi spurði mig oft hvað mér þætti skemmtilegt við sig. Hann var skemmtilegur, hann var alltaf að ferðast og hann sagði skemmtilegar sögur. Hann kenndi mér að vera ekki hrædd- ur við flugur, hann sagði að Tarsan kæmi og bjargaði mér. Það var gaman að fara í bæ- inn með afa, á Mokka og í Ráð- húsið. Hann hitti fullt af fólki í Ráðhúsinu en skrifaði og sagði fullt af sögum inni á Mokka. Einu sinni vorum við í bæn- um að fá okkur pylsur í Pylsu- vagninum. Afi keypti handa mér tvær pylsur og þegar ég var bú- inn með fyrri pylsuna þá kom máfur og rændi hinni pylsunni. Afi var rólegur en ég spurði hvort ég fengi aðra fría. Afi reddaði því. Hann var góður afi. Axel Enok. Í dag minnist ég frænda míns og vinar, Ketils Larsen. Við Ketill vorum þremenningar að skyldleika, föðuramma mín og móðurafi Ketils voru systkin. Alla tíð var mikill samgangur og kærleikar milli fjölskyldna okk- ar. Ég man Helgu Larsen og þau systkin þegar þau bjuggu á Hjalla við Sogaveg og við í næsta nágrenni. Þá var oft kom- ið við hjá frænku til að þiggja einhverjar góðgerðir. Þegar ég var níu ára var ákveðið að senda mig sumarlangt í sveit til fólks, sem við þekktum ekki, en var sómafólk og góðkunningjar Helgu. Það sem réð úrslitum var að Ketill fór á sama stað og mér fannst ég vera öruggur að eiga hann sem stoð til að halla mér að meðan ég var fjarri foreldr- um mínum og systkinum. Þetta var ógleymanlegt sumar, Ketill var alltaf að segja mér sögur sem hann bjó til sjálfur. Eitt sinn sátum við á sunnudegi inni í stofu og Ketill las fyrir mig spennandi glæpasögu upp úr Dýraverndaranum. Ketill fletti blaðsíðum og virtist lesa af síð- unum, sem auðvitað var hreinn spuni. Lesturinn féll niður þar sem við þurftum að bregða okk- ur frá til að stugga kindum úr túninu. Þegar við komum aftur inn í stofuna var kona nokkur, sem hafði hlustað á, að blaða fram og aftur í Dýraverndaran- um. Hún skildi ekkert í því að hún fann ekki söguna, en var spennt að vita hvernig þetta endaði allt saman. Svona leið sumarið, Ketill var ótrúlega hugmyndaríkur og mér leiddist aldrei. Eftir þetta hef ég litið á Ketil sem verndarengilinn minn, fyrir utan frændskapinn. Síðar, þegar við systkinin vor- um orðin fullorðin og búin að stofna fjölskyldur, kom Ketill til okkar í jólaboðin, hann lék og söng, börnum og fullorðnum til mikillar gleði. Það setti sann- arlega skemmtilegan og góðan svip á jólaboðin að fá Askasleiki í heimsókn. Katli var mjög margt gott gefið í vöggugjöf, mikið hug- myndaflug og listfengi og hann var einn af þeim mönnum, sem tókst að varðveita barnið í sjálf- um sér. Hann var því gleðigjafi þar sem hann kom og lagði aldr- ei illt til nokkurs manns. Það fer vel á því að útför Ketils er á af- mælisdegi móður hans, sem reyndar er líka afmælisdagurinn minn. Ég fékk þann heiður að halda undir horn á kistu Helgu þegar hún var jarðsett í Lága- fellskirkjugarði vorið 1989. Ég og fjölskylda mín þökkum Katli samfylgdina og allar ógleymanlegu stundirnar og sendum fjölskyldu hans samúð- arkveðjur. Við biðjum þeim blessunar um ókomna tíð. Guðmar Magnússon. Þá hefur Ketill vinur minn kvatt. Seinast sáumst við þegar hann sýndi mér þá vinsemd að sækja móttöku í höfuðstöðvum Morgunblaðsins 17. janúar sl. Hann var glaðbeittur með glettnisglampann í augum, þótt nokkuð hefði þyngst fyrir fæti. Við höfðum um margt að tala, eins og jafnan þegar fundum okkar bar saman, en í fjölmenn- inu þennan dag fengum við ein- ungis smástund einir. Ketil hafði ég þekkt í 55 ár. Þá hittumst við í okkar fyrsta tíma í Leiklistarskóla Ævars R. Kvarans, leikara, lögfræðings og lífskúnstners. Þann heimilislega skóla sóttum við í tvö ár og töld- um báðir að þeim tíma hefði ver- ið vel varið. Þeir nemendur Æv- ars sem ætluðu sér stærri hlut í leiklistinni héldu síðar í for- framaðri skóla þar sem fjöl- mennur hópur kennara tók við þeim. Það má segja að hjá mörgum hafi þar með stærra skref verið stigið. Ketill var einn af þeim sem sóttu sér meiri menntun í listgreininni. Ég fór annað, þótt halda megi því fram að þar með hafi leiklistin ekki endilega verið yfirgefin. Ketill var elsti nemandinn í hópnum okkar hjá Ævari en ég var yngstur. En við urðum þó fljót- lega góðir vinir og það breyttist aldrei, þótt síðar yrði stundum alllangt á milli funda. Ketill, sem var lengur en aðrir „foringi jóla- sveinanna“, fékk mig í lið með sér og í allmörg ár skemmtum við saman á jólaböllum og þegar mest var stundum á mörgum á dag. Pétur Pétursson útvarps- þulur, sem átti bækistöð í húsi Hreyfils við suðvesturhornið á Arnarhóli, var okkar umboðs- maður og hlóð á okkur verk- efnum. Síðar bjuggum við að því hversu vel Ketill var kynntur sem jólasveinn, en sumir vinir hans héldu því fram að Ketill væri í raun í dulargervi 11 mán- uði á ári, þ.e. þegar hann birtist ekki sem foringi jólasveinanna í aðdraganda jóla og fram að þrettánda. Þótt þessi vertíð stæði aðeins fáeinar vikur, þar til Grýla kallaði sitt hyski í hell- inn aftur, þá fékk maður for- smekkinn af fjárhagslegu sjálf- stæði þarna og gat staðið á eigin fótum gagnvart jólagjöfum og nokkuð umfram það. Ketill var hinn fæddi jólasveinn. Aðstoð- armenn hans komust ekki með tærnar þar sem hann hafði hæl- ana og ég hafði iðulega ástæðu til að vera þakklátur fyrir að vera ósýnilegur og óþekkjanleg- ur innan í hinu mikla gervi. Ketill var góðviljaður, hrekk- laus og hjálpsamur og hvarf iðu- lega með mann inn í heima sem enginn kynntist án hans. Sömu heimar sáust einnig í myndum sem aðeins hann hefði getað málað. Þær voru litskrúðugar og bjartar og hétu gjarnan nöfnum sem tengdu þær við heima sem stundum eru viðkunnanlegri en þessi eini sem flestir aðrir láta sér nægja að þekkja. Nú er Ket- ill horfinn úr heimi og á örugg- lega innangengt í aðra. Hvað sem því líður er víst að honum verður hvarvetna tekið fagnandi. Hans barnslega hjarta var samt við sig og sló ætíð í þeim takti sem ég heyrði fyrst fyrir 55 ár- um. Enginn veit með algjörri vissu hvernig farið er á milli landamæranna sem Ketill hefur nú gert, en á meðan nákvæmari fréttir hafa ekki borist um ann- að er ekki úr vegi að gefa sér að Ketill muni sennilega hafa farið þetta á puttanum. Davíð Oddsson. Ljúfur drengur er látinn. Allt frá unglingsárum höfum við þekkt Ketil, annað okkar úr drengjaflokki í Vatnaskógi, hitt sem ungan puttaling sem stóð við Vesturlandsveginn nálægt Engi eða Grafarholti og beið þess að fá far til Reykjavíkur. Á þeim árum var þetta landsvæði í sveit, talsvert langt frá Reykja- vík. Tveimur áratugum síðar eða svo kynntist 10 ára sonur okkar svo æskulýðsfulltrúanum Katli og naut góðs af vinsemd hans, frásagnargleði og umhyggju á námskeiði í Saltvík. Vinskapur þeirra hefur enst alla tíð síðan. Ketill var hugmyndaríkur með ólíkindum svo að ævintýra- persónur og nýir heimar spruttu upp og voru honum sem op- inberun, hann hafði unun af því að skálda og segja frá. Hann tók sögusögnum með fyrirvara og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Ketill málaði myndir, hélt fjölda sýninga á þeim og hann hlustaði mikið á tónlist, alls kon- ar tónlist. Einstakur, dálítið sér- kennilegur, oft kjagandi í bæn- um með burðarpokana sína, afar eftirminnileg persóna sem vildi allt gera fyrir þá sem minna máttu sín og áttu við sjúkdóma eða erfiðleika að stríða. Ketill Larsen sagði stundum eitthvað á þessa leið: Ganga lífsins er alltaf leit að ró og jafnvægi. Hann fann sínar leiðir í þeirri leit. Vinskapur okkar hélst stöð- ugt. Við eigum margar góðar minningar um samveru, meðal annars frá heimsókn til hans í súpuveislu fyrir mörgum árum. Tvö barnabörn okkar fengu eitt sinn að skoða strætisvagninn hans – neðanjarðar. Ógleyman- legt. Áðurnefndur sonur okkar kom fram í nokkur skipti með Katli þar sem báðir voru í trúða- hlutverki á þjóðhátíðum. Ein- stakt samband var á milli þeirra vinanna. Okkur þótti vænt um að frétta af því að sonur okkar hringdi í vininn fyrir fáeinum vikum. Ketill kvaðst vera lasinn svo að hann spurði þá hvort hann gæti eitthvað gert fyrir hann. Ketill svaraði að bragði: „Já, syngdu fyrir mig. Eitthvað sem þú velur sjálfur.“ Hann valdi til flutnings norskan söng, og þar sem systir hans var nærstödd sungu þau saman keðjusöng – í símann – um göngu á skógarstíg í leit að friði og ró: „Jeg gikk en tur på stien og sökte skogens ro.“ Ein- stök kveðjustund. Ketill talaði stundum um ung- lingsár sín í KFUM í Laugar- nesinu og hvað honum hefði þótt vænt um leiðtogann Bjarna Ólafsson. Hann sótti oft sam- komur KFUM og Kristniboðs- sambandsins og átti ljúfar og góðar minningar úr Vatnaskógi. Vinahópur Ketils er mjög stór og ljúflyndi hans kunnugt öllum þeim sem hann umgekkst. Við fjölskyldan þökkum alla elsku- semi Ketils á samleiðinni. Inni- legar samúðarkveðjur til barna hans og fjölskyldunnar. Blessuð sé minning Ketils Larsen. Rúna Gísladóttir og Þórir S. Guðbergsson. Ég kynntist Katli fyrst í Landssambandi hugvitsmanna, en hann hafði ýmsar hugmyndir til bóta fyrir land og þjóð. Ekki var neinn skortur á slík- um hugmyndum hjá Katli, en eins og oft er til vandkvæða varðandi góðar hugmyndir er að það vantar fjármögnun til verk- efna. Veit ég um þó nokkur mál sem hægt væri að koma í fram- kvæmd af hans hugmyndum, þá er slíkt gert í fullri samvinnu við afkomendur. Talsvert var um samskipti og Ketill var glettinn og hafði gam- an af ýmsum uppákomum. Til dæmis hafði hann mjög góða rödd. Eitt sinn hringdi ég í Ket- il, en var þá að sækja dæturnar á leikskólann, og sagði við þær að ég ætluðu að hringja í jóla- sveininn, þetta vakti mikla at- hygli meðal leikskólabarnanna. Ketill ræddi við börnin í dágóða stund, og allir höfðu gaman að uppátækinu. Ketill sagið mér að „heiðra skaltu skálkinn þannig að hann skaði þig ekki“. Ég hef nú alist upp við það að þegar menn sýna af sér siðleysi í athöfnum á að taka á slíkum málum af ein- drægni og hörku, og þó að menn standi saman. Ketill valdi að fylgja Jesú Kristi og hans boðskap, þar var um engan ágreining okkar á milli. Nú er hann kominn á ann- an og betri stað. Erlingur Thorsteinsson. Fjöllistamaðurinn Ketill Lar- sen, vinur okkar allra, er látinn. Það er sjónarsviptir að þessum einstaka manni, er við sáum daglega í miðbænum með far- angur sinn. Ketill þekkti marga og margir þekktu hann, ef ekki, kynntist hann fólki auðveldlega með fuglablístri og brosi. Það var hans háttur að nálgast fólk. Að kveðja góðan vin eftir sextíu ára hnökralausa vináttu er þakkarvert. Í Leiklistarskóla Ævars Kvaran og Leiklistarskóla Þjóð- leikhússins áttum við samleið sem var einstaklega ánægjuleg- ur og gefandi tími. Ketill var góður félagi og traustur vinur, sagði heiðarlega sinn hug og var alltaf uppörvandi og leiðbein- andi, á jákvæðan hátt, varðandi listina. Minnismiðar Ketils voru margir og penninn alltaf með í för, því hugmyndaflugið var ein- stakt og oft var lófinn allur út- skrifaður og teiknaður. Er ég kvaddi Ketil á dánarbeðnum, var hann ekki sáttur að hverfa úr þessum heimi, átti mörgu ólokið. Allar sögurnar, ævintýrin og ljóðin áttu að verða að bók. Nú taka börnin hans við ævi- starfinu og greiða úr öllum hug- myndunum, því þau eru fær um það, Fífa, Sólveig og Ívar. En Ketill og Ólöf eignuðust fjögur börn, misstu dreng nýfæddan sem þau syrgðu mjög. Margt upplifði Ketill, ferðað- ist mikið, lék og sprellaði, stund- aði kristilegt félagsstarf og var fullur af áhuga fyrir lífinu. Á yngri árum var hann léttur og lipur, sem jólasveinn sást hann á þökum í miðbænum og veifaði til barnanna. Ketill var mjög barn- góður enda leiðbeinandi barna til margra ára. Mér vildi hann einnig leiðbeina sem best og ég þakka nú fyrir það. Í lok sam- tals okkar hvort sem það var að kvöldlagi í síma eða á förnum vegi lauk samtali okkar alltaf á þessa leið „og vertu sigurviss“. Ég bið Guð að blessa Ketil, Ólöfu, börn og afkomendur, með þessum orðum, verið sigurviss. Blessuð sé minning góðs vinar. Jónína H. Jónsdóttir, Heiðdalshúsi, Eyrarbakka. Meðan aðrir unglingar fóru sína gandreið á flöskustútum og hasspípum vorum við í Klúbbi 71 á allt annars konar flugi und- ir dyggri leiðsögn Ketils Larsen. Við flugum á vit ævintýra, skap- andi lista og fórum í helgar- útilegur upp um fjöll og firnindi. Þar var mikið samið og spilað, heimsmálin rædd og heimspeki- legar vangaveltur ígrundaðar. Sem starfsmaður íþrótta- og tómstundaráðs vann Ketill Lar- sen mikið og gott starf með ung- lingum, þar sem hann meðal annars stofnað Klúbb 71. Klúbb- urinn hélt til í veglega timb- urhúsinu að Fríkirkjuvegi 11, sem Thor Jensen byggði á sín- um tíma Það var mikil gróska í starfseminni. Samin leikrit, lög, textar og ljóð sem flutt voru á sjúkrastofnunum, sambýlum, fangelsum og á litla sviðinu á jarðhæð höfuðstöðvanna við Frí- kirkjuveg. Um árabil aðstoðuðu klúbbsfélagar Ketil við að und- irbúa komu jólasveinanna til Reykjavíkur og skemmtu áhorf- endum við hátíðlega athöfn þeg- ar ljósin voru tendruð á stóra jólatrénu á Austurvelli. Allt und- ir dyggri stjórn Ketils. Nokkur okkar fengu auk þess vinnu sem aukaleikarar hjá Þjóðleikhúsinu gegnum tengslanet Ketils, sem var lærdómsríkt og gott vega- nesti. Margoft var farið í skála- ferðir í hina ýmsu skála og eng- um datt í hug að reyna að smygla með sér áfengi. Ketill setti ekki margar reglur, en ein regla var ávallt í hávegum höfð. Það mátti aldrei hafa áfengi um hönd, né önnur vímuefni í tengslum við starfsemi Klúbbs 71. Þetta var á þeim tíma þegar notkun áfengis var mjög algeng meðal unglinga og þó ýmsir klúbbfélagar neyttu þess við aðrar aðstæður bárum við það mikla virðingu og hlýhug til Ketils að það kom aldrei til greina að brjóta þá reglu. Um leið og ég þakka Katli áratuga kynni sendi ég afkom- endum hans og öðrum aðstand- endum samúðarkveðjur. Ásgeir R. Helgason. Sjónarsviptir er að Katli Lar- sen, sem nú hefur lokið jarðvist Ketill Larsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.