Morgunblaðið - 14.05.2018, Page 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnastjóri hjá NýsköpunarmiðstöðÍslands, á 50 ára afmæli í dag. Hún hóf störf þar fyrir einuog hálfu ári en þar áður hafði hún verið í níu ár hjá
Byggðastofnun, þar af sem forstöðumaður fyrirtækja- og lánasviðs
í fimm ár.
„Hjá Nýsköpunarmiðstöð er ég með leiðsögn fyrir frumkvöðla og
fyrirtæki og held námskeið fyrir konur sem eru með viðskipta-
hugmynd og langar að stofna fyrirtæki. Námskeiðið heitir Brautar-
gengi, er haldið tvisvar á ári og stendur í fimmtán vikur.“
Elín er komin á fullt í golfið ásamt manni sínum og yngstu dóttur
þeirra. „Við hjónin höfðum verið eitthvað að fikta í golfinu en kol-
féllum fyrir þessu fyrir fjórum til fimm árum og höfum verið á
fullu síðan og dóttir okkar líka, svo við erum þrjú saman í þessu.“
Þau eru núna stödd á Tenerife og eiga pantaðan tíma klukkan níu
núna fyrir hádegi á golfvellinum Las Americas.
„Það verður í fyrsta sinn sem við spilum golf á erlendri grundu.
Svo ætlum við með krakkana í vatnagarðinn og förum eitthvað fínt
út að borða í kvöld.“
Eiginmaður Elínar er Gunnlaugur Sighvatsson, rekstrarstjóri
Martaks í Grindavík. Samtals eiga Elín og Gunnlaugur fimm börn
og þau eru Valdimar Örn Baldursson, f. 1994, Særós Gunnlaugs-
dóttir, f. 1994, Auður Gunnlaugsdóttir, f. 1996, Júlía Gunnlaugs-
dóttir, f. 1998, og María Rut Gunnlaugsdóttir, f. 2007.
Fjölskyldan Elín, Gunnlaugur og börn eru stödd á Tenerife.
Spilar golf í fyrsta sinn
á erlendri grundu
Elín Gróa Karlsdóttir er fimmtug í dag
T
heodór Snorri Ólafsson
fæddist í Vestmanna-
eyjum 14.5. 1933 og ólst
þar upp. Hann var í
Barnaskóla Vest-
mannaeyja og lauk vélstjóraprófi frá
Vélskólanum 1950: „Ég var svo ung-
ur þegar ég sótti um inngöngu í skól-
ann að ég þurfti að fá undanþágu.“
Theodór fór 14 ára á sumarsíld
fyrir Norðurlandi, á bátnum Vonin
VE 113, og síðan á vetrarvertíð á
sama bát og var þar í fimm ár, fyrst
háseti og síðan vélstjóri. Hann var
vélstjóri hjá Helga Benediktssyni,
útgerðarmanni í Eyjum, í önnur
fimm ár og fór þá í tvígang til Sví-
þjóðar þegar sóttir voru bátar sem
Helgi hafði látið smíða þar.
„Við sóttum bátinn Frosta VE fyr-
ir Helga, árið 1955, en hann strand-
aði á Landeyjasandi úti af jörðinni
Siglunesi, í febrúar árið 1956. Allir
komust þó heilu og höldnu í land. Síð-
an sóttum við bátinn Gullþóri til Sví-
þjóðar og á honum var ég eina ver-
tíð.“
Theodór hóf útgerð í Eyjum,
ásamt Hilmari Rósmundssyni, mági
sínum, árið 1959: „Við Hilmar gerð-
um út bátinn Sæbjörgu og vorum
þrisvar aflahæstir í Eyjum og einu
sinni yfir landið. En þessu fylgdu
miklar útilegur. Við sóttum fast sjó-
inn og það mæddi á eiginkonunni
með öll börnin heima.
Sæbjörg sökk úti af Vík í Mýrdal
árið 1963. Við komumst allir í björg-
unarbát og vorum hirtir upp eftir
töluvert volk.“
Í ársbyrjun 1973 keyptu þeir bát-
inn Gjafar sem þá var nýuppgerður:
„Sá bátur kom til Eyja 22. janúar
1973 og lá þá fyrir neðan Vinnslu-
Theodór S. Ólafsson, vélstjóri í Vestmannaeyjum – 85 ára
Hjá afa og ömmu Theodór og Margrét taka lífinu með ró og spjalla við Högna sem er yngsta barnabarnið þeirra.
Krappur dans við Ægi
Vanur maður Hér er íslenski sjómaðurinn á gedduveiðum í Svíþjóð.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.