Morgunblaðið - 14.05.2018, Page 31
stöðina. Sex klukkustundum síðar
hófst gosið og við tókum náttúrulega
þátt í því að ferja fólk í land. Ég man
að hundrað manns fóru í lestina en
svo margir voru á dekki að 430
manns stigu á land þegar báturinn
kom að bryggju í Þorlákshöfn. Síðan
fórum við fimm ferðir til að bjarga
veiðarfærum og öðrum verðmætum.
Gjafar var happafleyta að þessu
leyti þegar mest reið á, en ekki að
öðru leyti. Við vorum síðan þrjár vik-
ur á loðnu sem gekk ágætlega en á
útstíminu frá Grindavík strandaði
báturinn í innsiglingunni þar.
Árið síðar festum við kaup á Sæ-
björgu VE - 56 en hann var lengdur í
Danmörku 1974 og bar þá 700 tonn.
Við gerðum hann út í tíu ár, áfalla-
laust, en í desember 1984 brotnaði
keflablásari svo báturinn varð vél-
arvana og strandaði í Hornsvík, fyrir
austan Hornafjörð. Þar varð einnig
mannbjörg en við vorum dregnir í
land í línustól.
Þarna misstum við bátinn, fengum
ekki leyfi til kaupa á nýjum bát og
urðum þess vegna einnig af kvót-
anum á nýju kvótaári 1985. Ég hef
þess vegna aldrei verið kvótagreifi.“
Theodór var einn af stofnendum
Eyjaíss, 1986, sem sá bátunum fyrir
ís, og vann þar til 1988. Hann var síð-
an vélstjóri hjá Ísfélaginu til 1995 er
hann lét af störfum.
„Ég get ekki neitað því að hafa
nokkrum sinnum komist í krappan
dans við Ægi. En í öll þessi skipti
urðu mannbjörg. Það skiptir mestu
þegar upp er staðið “
Fjölskylda
Eiginkona Theodórs er Margrét
Eirikka Sigurbjörnsdóttir, f. 10.2.
1934, húsfreyja. Foreldrar hennar
voru Sigurbjörn Metúsalemsson, f.
1906, d. 2000, bóndi og vitavörður á
Vestur-Stafnesi á Reykjanesi og k.h.,
Júlía Jónsdóttir, f.1906, d. 1979.
Börn Theodórs og Margrétar eru
1) Þorbjörg, f. 1959, þjónustu-
fulltrúi í Hveragerði en maður henn-
ar er Haukur Logi Michelsen múr-
arameistari og eru börnin Theodór
Aldar, f. 1978, Hrefna, f. 1984 , og
Elvar Aron, f. 1993; 2) Sigurbjörn
M., f. 1960, vélstjóri í Eyjum; 3) Haf-
þór Theodórsson, f. 1961, stýrimaður
í Eyjum en kona hans er Hanna R.
Björnsdóttir, félagsráðgjafi og sonur
þeirra er Jóhann Birnir, f. 1991; 4)
Júlíanna, f. 1962, starfsmaður á dval-
arheimili aldraðra í Eyjum en maður
hennar er Ingólfur Ingólfsson, veiði-
eftirlitsmaður eru dætur þeirra Mar-
grét Rós f. 1982 og Alma f. 1988; 5)
Bára, f. 1966, sérkennari í Sundsvall í
Svíþjóð en maður hennar er Tommy
Westman viðskiptafræðingur og er
dóttir þeirra Embla Mira f. 1997; 6)
Björk, f. 1971, viðskiptafræðingur í
Reykjavík, og 7) Harpa, f. 1975, hús-
freyja í Eyjum en maður hennar er
Örvar Guðni Arnarson fjármálastjóri
og eru börnin Salka Sól, f. 2001,
Klara, f. 2005, og Högni, f. 2010.
Hálfsystir Theodórs, sammæðra:
1) Rósa Guðmunda Snorradóttir, f.
1927, d. 2015, húsfreyja í Eyjum og
Garðabæ. Alsystkini Theodórs: 2)
Sigurveig Þórey, f. 1935, d. 1935; 3)
Snorri Sigurvin Ó. Vestmann, f.
1938, sjómaður í Hveragerði; 4) Ingi
Steinn, f. 1942, sjómaður í Eyjum; 5)
Ellen Margrét, f. 1943, húsfreyja á
Flúðum, og 6) Þór Guðlaugur. f.
1947, vélstjóri í Mosfellsbæ.
Foreldrar Theodórs voru Ólafur
Guðmundsson Vestmann, f. 1906, d.
1970, sjómaður í Eyjum og k.h., Þor-
björg Guðmundsdóttir, f. 1905, d.
1960, húsfreyja..
Theodór Snorri
Ólafsson
Kristjana Jónsdóttir
húsfr. í Hvammi
Sigurður Greipsson
b. í Hvammi í Dýrafirði
Kristjana Rósa Sigurðardóttir
húsfr. í Eyjum
Guðmundur Jónsson
múrari í Eyjum
Þorbjörg Guðmundsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Guðlaug Tómasdóttir
vinnuk. í Gufunesi
Jón Jónsson
vinnum. í Gufunesi í Mosfellssveit
OttóGuðmundsson
Vestmann sjóm. á
Fáskrúðsfirði
Guðmundur Vestmann
skipstj. í Rvík
Ingólfur Arnarson
Guðmundsson úrsmiður
í Eyjum
Arnar V. Ingólfsson
járnsmiður í Eyjum
Jóhann Tómas
Bjarnason kaupfélagsstj.
og síðar framkvstj.
Fjórðungssambands
Vestfjarða
Kristjana Guðlaug
Guðmundsdóttir
húsfr. á Þingeyri
Guðríður Ólafsdóttir
húsfr. í Eyjum
Sigurður Sigurðsson
b. og skipavinnum. í Eyjum
Þórunn Sigurðardóttir
húsfr. og fiskvinnsluk. í Eyjum
Guðmundur Guðmundsson Vestmann
bátsformaður á Fáskrúðsfirði
Málfríður Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur Sigurðsson
sjóm. og tómthúsm. í Rvík
Úr frændgarði Theodórs Ólafssonar
Ólafur Guðmundsson Vestmann
sjómaður í Vestmannaeyjum
Sá guli goggaður Theodór kann
handtökin og innbyrðir golþorsk.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
Verumgáfuð ogborðum
fisk
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5mín.
Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is
Hollt og
fljótlegt[ ]
ÁNMSG
P
R
E
N
T
U
N
.IS
100 ára
Karl Sigurðsson
90 ára
Ásta M. Einarsdóttir
85 ára
Erla Jónsdóttir
Guðmundur St.
Gunnarsson
Haukur Haraldsson
Theódór Snorri Ólafsson
80 ára
Björgvin Daníelsson
Helga Tómasdóttir
Jóhann Borg Jónsson
Stefán Björn Ólafsson
75 ára
Birgir Bjarndal Jónsson
Matthildur Guðmundsdóttir
Ólafur Ragnar Grímsson
Robert Eugene Benitez
Svana Þorgeirsdóttir
Valgarður Sigurðsson
70 ára
Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir
Bjarni Einar Baldursson
Halldór Guðmundsson
Ísak Möller
Konráð A. Lúðvíksson
Kristjana E. Kristjánsdóttir
Kristján Ingi Helgason
Sveinbjörn Jónsson
Teresa Maria Jacunska
Örn Lýðsson
60 ára
Agga Hrönn Hauksdóttir
Halldór Zoéga
Hallgrímur Hrafn Gíslason
Helga Einarsdóttir
Hildigunnur Pálmadóttir
Hörður Óskarsson
Sigrún Margrét Jónsdóttir
Sigurjón Steindórsson
Sigurlaug S. Angantýsd.
Sonja Hulda Jónsdóttir
50 ára
Anna Hedvig Þorsteinsd.
Birna Kolbrún Gísladóttir
Elín Gróa Karlsdóttir
Eyþór Einar
Sigurgeirsson
Hjördís Edda Broddadóttir
Hreinn Hreinsson
Júlíus B. Benediktsson
Karen Viðarsdóttir
Karlotta Hlífarsdóttir
Sigurður Pálsson
Soffía Dagmar Þorleifsd.
Þorkell Ingi Þorkelsson
40 ára
Anna Sigrún Ásmundsd.
Berglind Sigurðardóttir
Eyrún Berta Guðmundsd.
Halla Rós Arnarsdóttir
Jaroslaw Andrzej Bucik
Jón Hans Ingason
Kristín Hrund Clausen
Magnea Árnadóttir
Robert Laczak
Sigmundur Ísak Þorsteinss.
Thiphawan S. Sveinsson
Þorsteinn V. Thorarensen
30 ára
Dagný Sveinsdóttir
Desh Deepak
Gísli Kristjánsson
Guðrún Björg Ingimundard.
Hafrún Eir Hafliðadóttir
Helga Margrét Aðalsteinsd.
Ingi Svavarsson
Katrín Björk Kragh
Lára Björk Bragadóttir
Monika Denikiewicz-Lada
Ragnar Kristinn Lárusson
Róbert Lunddal Gunnarss.
Samúel Jóhannsson
Stefán Smári Jónsson
Til hamingju með daginn
40 ára Anna er frá Orms-
stöðum í Eiðaþinghá en
býr í Kópavogi. Hún er
grunnskólakennari í
Kársnesskóla.
Maki: Ingvar Sigurður Al-
freðsson, f. 1976, tölv-
unarfr. hjá Vodafone.
Börn: Viktor Örn, f. 2004,
Ásmundur Steinar, f. 2010,
og Þórunn Arna, f. 2014.
Foreldrar: Ásmundur Þór-
hallsson, f. 1935, og Þór-
unn Sigríður Oddsteins-
dóttir, f. 1938.
Anna Sigrún
Ásmundsdóttir
40 ára Berglind er úr
Kópavogi en býr í Reykja-
vík. Hún er grunnskóla-
kennari í Fossvogsskóla.
Maki: Hrafn Þórðarson, f.
1973, sjálfstætt starfandi
hagfræðingur.
Börn: Óskar, f. 2004, Lúk-
as, f. 2007, og tvíburarnir
Mikael og Rakel, f. 2013.
Foreldrar: Sigurður
Steinþórsson, f. 1947, og
Kristjana Ólafsdóttir, f.
1954. Þau reka Gull og
silfur.
Berglind
Sigurðardóttir
30 ára Lára er af Sel-
tjarnarnesi en býr í Kópa-
vogi. Hún er tannsmiður
hjá RFJ tönnum.
Maki: Ívar Örn Haralds-
son, f. 1985, smiður og er
með eigið fyrirtæki –
Smíðafimi.
Börn: Embla, f. 2015, og
Haraldur Bragi, f. 2017.
Foreldrar: Bragi Björg-
vinsson, f. 1959, og Berg-
lind Þorfinnsdóttir, f.
1960. Þau eru búsett á
Seltjarnarnesi.
Lára Björk
Bragadóttir
David Cook hefur varið doktors-
ritgerð sína í umhverfis- og auðlinda-
fræði. Heiti ritgerðarinnar er Stuðlað
að sjálfbærni með notkun umhverfis-
vísa og hagrænu mati á vistkerfis-
þjónustu (Promoting environmental
sustainability through the utilisation
of an indicator set, ecosystem servi-
ces perspective and non-market va-
luation techniques). Andmælendur
voru Dr. Robert Costanza, Crawford
School of Public Policy, Australian
National University, og Dr. Giles Atk-
inson, London School of Economics
and Political Science. Leiðbeinandi
var dr. Brynhildur Davíðsdóttir pró-
fessor í umhverfis- og auðlindafræði
við Hagfræðideild Háskóla Íslands.
Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Daði
Már Kristófersson, forseti Félags-
vísindasviðs Háskóla Íslands, og dr.
Ståle Navrud, Norges miljø- og biovi-
tenskapelige universitet.
Í ritgerðinni eru umhverfisáhrif
orkuframkvæmda á Íslandi sett í
samhengi við sjálfbæra þróun og
greind út frá mörgum sjónarhornum,
meðal annars með tilliti til áhrifa á
náttúrugæði. Ritgerðin í heild sýnir
mikilvægi þess að Íslendingar auki
þekkingu á virði náttúrugæða lands-
ins í mismunandi vistgerðum og
landslagi. Fjallað
er um sambandið
milli orku-
framkvæmda og
umhverfisáhrifa á
Íslandi og lýst
nýrri aðferðafræði
við val á vísum til
að meta umhverf-
islega sjálfbærni.
Einnig er lagt til að verðmætamat sé
notað til að meta kostnað umhverfis-
áhrifa. Fjallað er um hvaða verðmæti
gætu verið tekin til greina í slíku mati
og sömuleiðis við stjórnsýsluákvarð-
anir tengdar virkjanaframkvæmdum.
Í þessu samhengi var greiðsluvilji al-
mennings kannaður og beitt var svo
kölluðu skilyrtu verðmætamati á
tveimur jarðvarmasvæðum, Eldvörp-
um og Hverahlíð, til að greina vilja al-
mennings til að vernda svæðin sem
vísbendingu um virði náttúrugæða.
Niðurstöður sýna að greiðsluvilji fyrir
vernd Eldvarpa var að meðaltali
8.433 kr. og 7.122 kr. fyrir Hverahlíð.
Sömu aðferðafræði var beitt til að
meta greiðsluvilja til að vernda Heið-
mörk og reyndust skattgreiðendur
tilbúnir til að greiða frá 17.039 kr. til
24.790 kr. til að tryggja vernd Heið-
merkur.
David Cook
David Cook er fæddur í Paignton, Englandi árið 1983. Hann er með BA próf í hag-
fræði frá háskólanum í Exeter frá árinu 2005 og lauk MSc prófi í sjálfbærri þróun
frá sama skóla árið 2007. David hefur jafnframt MA gráðu í skipulagsfræðum frá
háskólanum á Vestur-Englandi frá árinu 2012 og lauk MS gráðu í umhverfis- og
auðlindafræði frá Háskóla Íslands árið 2014. David er núna nýdoktor við HÍ.
Doktor