Morgunblaðið - 29.05.2018, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 124. tölublað 106. árgangur
500 SÆTI Á 5.000 KR.
Fyrstur kemur,
fyrstur fær
Fljúgðu innanlands
Sólarhringstilboð 29. maí, frá kl. 10
Ferðatímabil: 1.-30. júní
Í MINNINGU
ARABÍSKRA
KVENNA ALDARMINNING ÓLAFAR
ÓLAFUR INGI
SNÝR AFTUR
Í ÁRBÆINN
BÓKIN AFTANSKIN 30 FYLKIR HEILLAR ÍÞRÓTTIREYÐIMERKURGANGA 12
Grunnskólakennarar fá 4,1%
launahækkun 1. júní og um 150 þús-
und króna eingreiðslu í júlí, sam-
kvæmt nýjum kjarasamningi við
Samband íslenskra sveitarfélaga
sem lagður verður fyrir félags-
menn í almennri atkvæðagreiðslu á
næstunni. Samningurinn er aftur-
virkur frá 1. desember sl. og hann
gildir fram á næsta ár. Í samn-
ingnum er umdeilt vinnumat fellt
niður og tími kennara til undir-
búnings aukinn. Tímann vill forysta
kennara nota til að vinna með
stjórnvöldum að raunverulegri sátt
um kjör kennara. »15
Kennarar fá 150
þúsund í eingreiðslu
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Grunnskólakennarar hafa staðið
í harðri baráttu fyrir bættum kjörum.
Ný tækni sem
tekin hefur verið
í notkun hjá
ÍSAL í Straums-
vík gerir fyrir-
tækinu kleift að
auka sölu á áli til
bílaframleiðenda
í Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Um 10% fram-
leiðslunnar fara
nú til bíla-
framleiðenda, en álið er notað m.a.
í kæli/hitakerfi bílanna. »16
ÍSAL eykur sölu til
bílaframleiðslu
Nýtt Álstangirnar
eru af nokkrum
gerðum.
Lítið samband virðist vera á milli
meðaltímakaups í atvinnugreinum
og þess hversu hátt hlutfall starfs-
fólks hefur lokið háskólaprófi.
Kemur það fram í skýrslu sem Hag-
fræðistofnun er að leggja lokahönd
á og kynnt var á ársfundi Vinnu-
málastofnunar. Þannig var meðal-
tímakaupið lægst í fræðslu-
starfsemi þar sem hlutfall þeirra
sem lokið hafa háskólaprófi er
hærra en í öðrum greinum. »18
Ekki samband milli
launa og menntunar
Niðurstaða bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði
er óbreytt eftir endurtalningu sem fram fór í
gærkvöldi. Samfylking og Vinstri græn fóru
fram á endurtalninguna, en tíu atkvæðum mun-
aði að þriðji maður Samfylkingar næði inn og
fimm til að oddviti VG næði inn. Formlegar við-
ræður hófust í gær milli Sjálfstæðisflokks, VG og
óháðra og Samfylkingar og annars félags-
hyggjufólks í Norðurþingi. »2, 4 & 11
Morgunblaðið/Valli
Staðan óbreytt eftir endurtalningu
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Um 70 konur hafa farið í fyrir-
byggjandi brjóstnám hér á landi á
síðustu árum, flestar á síðustu þrem-
ur árum. Á Landspítalanum hafa
brjóst 58 kvenna verið fjarlægð frá
árinu 2010 og 12 á Klíníkinni frá
2016. Auk þess eru nokkrar konur að
búa sig undir aðgerðir. Umræddar
konur höfðu ekki fengið krabba-
meinsgreiningu en eru með BRCA1-
og BRCA2-stökkbreytingar í genum
sem auka líkur á krabbameini.
Um miðjan maí opnaði Íslensk
erfðagreining vefsíðuna arfgerd.is
þar sem Íslendingar geta nálgast
upplýsingar um hvort þeir hafi
BRCA2-stökkbreytingu.
Fyrirspurnum til Landspítalans
vegna fyrirbyggjandi brjóstnáms
hefur fjölgað mjög að undanförnu,
vegna aukinnar vakningar og um-
ræðu í þjóðfélaginu um BRCA.
Kristján Skúli Ásgeirsson,
brjóstaskurðlæknir á Brjóstamið-
stöð Klíníkurinnar, segir að á þessu
ári hafi aukist mjög eftirspurn eftir
viðtölum um ráðgjöf og upplýsingar
um fyrirbyggjandi brjóstnámsað-
gerðir hjá konum með stökkbreyt-
ingar í BRCA-genum eða annað sem
veldur mikilli æviáhættu á að fá
brjóstakrabbamein.
Eftir að umræða jókst um BRCA-
genin hefur þeim fjölgað mjög sem
leita til Brakkasamtakanna og inn á
lokaða Facebook-síðu samtakanna
sem eingöngu er ætluð BRCA1- og
BRCA2-arfberum á Íslandi. Búist er
við því að í kjölfar aukins aðgengis að
upplýsingum, ekki síst á arfgerd.is,
muni fyrirbyggjandi brjóstnámsað-
gerðum fjölga. »6
Fleiri láta taka af sér brjóst
Búist við frekari aukningu á næstunni vegna aukins aðgengis að upplýsingum
Algengt mein
» Brjóstakrabbamein er al-
gengasta krabbamein hjá ís-
lenskum konum. Lífshorfur
hafa batnað mjög síðustu ár.
» 100 til 140 konur hafa á
hverju ári farið í brjóstnám á
Landspítalanum vegna krabba-
meins og 80 til 130 í minni
brjóstaaðgerðir vegna þess.