Morgunblaðið - 29.05.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.750.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.550.000 kr.
Renault Koleos, verð frá: 5.490.000 kr.
KADJAR, KOLEOS & CAPTUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
0
8
4
Vætutíðin í maí hefur ekki haft
mikil áhrif á undirbúning móts-
svæðisins fyrir Landsmót hesta-
manna í Víðidalnum í Reykjavík
sem fer fram í byrjun júlí en aftur á
móti hefur hestamannamótum ver-
ið frestað og aflýst.
Gæðingamót Fáks og úrtökur
fyrir Landsmót fór fram um
helgina en keppni á laugardeginum
var frestað og fór hluti af henni
fram á sunnudagskvöldinu og það
sem ekki náðist að klára þá fer
fram annað kvöld. Þá hefur einu
móti í Spretti í Kópavogi verið af-
lýst vegna veðurs í maí og öðru í
Sörla í Hafnarfirði frestað.
Þórir Örn Grétarsson, fram-
kvæmdastjóri hestamannafélagsins
Fáks, segir undirbúning svæðisins
fyrir landsmót vera á ágætis áætl-
un. „Svæðið er tilbúið í aðalatriðum
og ekkert stórt eftir í jarðvinnu eða
vallargerð. Það voru gerðar nýjar
áhorfendabrekkur í fyrrasumar
þannig að svæðið sjálft er í mjög
góðum málum en það sem eftir er
verður lagað í júní,“ segir Þórir.
Hann heyrir það á hestamönnum
í Víðidalnum að þeir eru orðnir
þreyttir á rigningunni. Veðráttan í
maí hefur haft áhrif á undirbúning
hjá keppnisknöpum en erfiðara er
að þjálfa í svona veðri fyrir kyn-
bótasýningarnar, að sögn Þóris.
Miðasala fyrir Landsmót hesta-
manna hefur farið ágætlega af stað
en Þórir býst við að það komi aftur
kippur í hana eftir úrtökurnar,
þegar það er orðið ljóst hvaða
hestakostur mætir á svæðið.
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hestar Frá Landsmóti hestamanna í Víðidal í Reykjavík árið 2012.
Mótum frestað
vegna veðurs í maí
Mótssvæði Fáks tilbúið í aðalatriðum
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Margir menntaskólar útskrifuðu
nemendur sína síðastliðinn laug-
ardag. Námsárangur dúxa virðist
verða betri með árunum en met í
meðaleinkunnum voru slegin bæði í
Verzlunarskóla Íslands og Flens-
borgarskólanum.
Sextán nemendur í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð fengu ágæt-
iseinkunn, þ.e.a.s. vegna með-
aleinkunn yfir 9. Enar Kornelius
Leferink var þó með hæstu með-
aleinkunn útskriftarárgangsins en
hann útskrifaðist með 9,88 í með-
aleinkunn.
Gott skipulag nauðsynlegt
Enar útskrifaðist eftir þriggja ára
nám og hefur haft í nógu að snúast
alla menntaskólagönguna. Hann er
ekki einungis framúrskarandi náms-
maður heldur lauk hann einnig fram-
haldsprófi í píanóleik með fram námi,
ásamt því að vera forseti nemenda-
félagsins. Til þess að afreka þetta allt
saman þurfti Enar að skipuleggja sig
vel en hann leggur áherslu á gildi
skipulags.
„Ég held að góð skipulagning sé
langsamlega mikilvægust, ekki bara í
náminu sjálfu heldur í lífinu öllu.“
Hann bætir því við að það að reyna
sitt besta og að fagna litlu sigrunum í
lífinu sé einnig einn af grunnþátt-
unum í því að skara fram úr.
Þétt dagskrá virðist ekki hafa
dregið úr námsárangri Enars. Hann
segir píanóleikinn og félagsstörfin
hafa hjálpað honum að ná svo góðum
árangri í náminu. „Mér fannst alltaf
mjög gott að taka mér pásur frá bók-
lega náminu með því að spila á pí-
anóið og félagslífið er ekkert minna
mikilvægt en lærdómurinn.“
Leiðin liggur beint í háskóla
Nýstúdentar eru alvanir að fá
spurningar um framtíðarplön og En-
ar segist hafa velt því mikið fyrir sér
hvað taki við eftir útskrift.
,,Ég stefni á iðnaðarverkfræði í
Háskóla Íslands næsta haust. Ég
ætla bara að sjá til hvort ég hitti
naglann á höfuðið og ef ekki þá
skipti ég bara.“ Hann segist ekki
spenntur fyrir því að taka sér
námshlé enda hafi hann unun af því
að læra.
Enar útskrifaðist ekki bara á
laugardaginn heldur átti hann einnig
nítján ára afmæli. Hann segir dag-
inn hafa staðið undir væntingum.
„Þetta var bara ótrúlega góður
dagur. Það var margt í gangi og
þessu var vel fagnað.“
Forseti nemendafé-
lagsins varð dúx MH
Útskrifaðist eftir þriggja ára nám með 9,88 í meðaleinkunn
Ljósmynd/Steinn Jóhannsson
Nýstúdentar Þau Snædís Björnsdóttir og Enar Kornelius Leferink fluttu
ávarp fyrir hönd nýstúdenta við útskrift Menntaskólans við Hamrahlíð.