Morgunblaðið - 29.05.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 29.05.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum www.apotekarinn.is - lægra verð REYKLAUS VERTU Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ Nicotinell Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afslátt ur* * 2MG og 4MG 204 stk pakkningum. Gildir af öllum bragðtegundum. Endurskoðunarnefnd Reykjavíkur- borgar hefur fallist á erindi fjár- málastjóra Orkuveitu Reykjavíkur um að endurskoðunarfyrirtækið KPMG veiti dótturfyrirtækinu Orku Náttúrunnar þjónustu sem felst í að verkefnastýra umbótum á ferli Hlaða og götuljósa. Erindi þessa efnis var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar. „Jafnframt lögð fram staðfesting KPMG dagsett sama dag á því að sú vinna sem óskað er eftir í erindi fjár- málastjóra OR ógni ekki óhæði þar sem hún leiðir ekki af sér sjálfsmats- ógnun né ógnun vegna eigin hags- muna né málsvarna og að þjónustan felur ekki í sér stjórnunarstörf,“ seg- ir í bókun endurskoðunarnefndar. „Málið snýst um að sérfræðingur sem starfar við ráðgjöf hjá KPMG var fenginn í þetta verkefni hjá Orku náttúrinnar,“ segir Eiríkur Hjálm- arsson, upplýsingafulltrúi Orkuveit- unnar, þegar leitað var skýringa á þessari bókun. „KPMG hefur verið ytri endur- skoðandi OR-samstæðunnar og þess vegna er leitað til endurskoðunar- nefndar (sem er sameiginleg fyrir Reykjavíkurborg og OR) um heimild til að fá þennan sérfræðing til verks- ins. Hlutverk nefndarinnar er þá að meta hvort hætta sé á viðskiptin hafi áhrif á stöðu KPMG sem óháðs end- urskoðanda fyrirtækisins, hvort í vinnu endurskoðenda KPMG felist eitthvert mat á störfum ráðgjafa KPMG. Það var ekki talin hætta á því og heimildin var því veitt,“ segir Eiríkur. KPMG er raunar að hætta sem ytri endurskoðandi OR-samstæð- unnar en Grant Thornton að taka við í kjölfar útboðs, samkvæmt upplýs- ingum Eiríks. sisi@mbl.is Telja ósk OR ekki ógna óhæði  Orkuveitan fær nýjan endurskoðanda Morgunblaðið/Ómar Orkuveitan Nýr endurskoðandi samstæðunnar er að taka við. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Verði nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara (FG) og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga sam- þykktur í atkvæðagreiðslu meðal kennara, sem hefst á fimmtudaginn, mun hann gilda til 30. júní á næsta ári. Samningurinn er afturvirkur frá 1. desember sl. en hann gildir nokkru lengra fram á næsta ár en samning- urinn sem framhaldsskólakennarar gerðu við ríkið í vor og aðrir þeir samningar sem ríkið hefur samið um að undanförnu við félög BHM. Þeir renna allir út í lok mars á næsta ári. Nýr menntunarkafli Í samningi grunnskólakennara og sveitarfélaganna er kveðið á um 4,1% launahækkun 1. júní og 150 þúsund kr. eingreiðslu 1. júlí nk. Fram kemur í kynningu Félags grunnskólakennara á samningnum sem undirritaður var sl. föstudag, að launaflokkur bætist við eftir 20 ár í kennslu, eða við 50 ára aldur hjá þeim sem taka laun eftir lífaldri, frá og með 1. ágúst nk., vinnumatið fell- ur út og tími kennara til undirbún- ings er aukinn. Þá er í samningnum nýr menntunarkafli, sem er óbreytt- ur frá þeim samningi sem FG samdi um í mars sl. en félagsmenn felldu þann samning í atkvæðagreiðslu. Í samningi grunnskólakennara kemur fram að nýjar launatöflur taka gildi 1. júní og 1. ágúst og samið var um persónuálag vegna viðbótar- menntunar leiðbeinenda. Einnig fá kennarar annaruppbót eða persónu- uppbót í lok hverrar annar, 85 þús. kr. 1. júní, 85 þús. kr. 1. desember og 89 þús. kr. 1. júní á næsta ári svo dæmi séu tekin úr samningnum. Kjarasamningur sá sem fram- haldsskólakennarar samþykktu á dögunum felur til samanburðar í sér prósentuhækkanir í tveimur áföng- um, 2,21% hækkun afturvirkt frá 1. nóvember sl. og 2% hækkun 1. júní nk. Þá sömdu framhaldsskólakenn- arar um 30 þúsund kr. eingreiðslu sem kemur til útborgunar 1. júní og sérstaka 70 þúsund kr. eingreiðslu 1. febrúar á næsta ári. Í upplýsingum sem forysta FG, hefur sent til félagsmanna fyrir hönd samninganefndarinnar um nýgerðan samning segir m.a. að eldri kennarar hafi borið skarðan hlut í samningum síðustu ára. Í þessum samningi sé gerð tilraun til að bæta fyrir það að einhverju leyti með því að launa- flokkur kemur inn eftir 20 ár í kennslu eða við 50 ára aldur hjá þeim sem taka laun eftir lífaldri. Fram kemur að ýmis mál séu óuppgerð t.d. varðandi launasetningu mismunandi hópa og segir í bókun við samninginn að farið verði í samtal um endurskoð- un þess á samningstímanum. Aðgerðir í haust eða stuttur samningur og viðræður um sátt ,,Samninganefnd félagsins stóð frammi fyrir tveimur möguleikum. Annar var að fara í aðgerðir í haust til að fylgja eftir kröfum um bætt kjör. Slíkar aðgerðir hefði verið hægt að fara í síðastliðinn vetur eða snemma í vor en þeir kostir voru ekki nýttir. Hinn kosturinn var að gera samning til eins vetrar og freista þess að vinna með stjórnvöld- um að raunverulegri sátt um bætt kjör kennara,“ segir í pósti til fé- lagsmanna í FG. 4,1% hækkun og 150.000 kr. eingreiðsla Morgunblaðið/Eggert Í skólastofu Atkvæðagreiðslu um nýjan samning kennara lýkur 5. júní.  Stuttur samningstími og ætla að freista þess að vinna með stjórnvöldum að sátt um bætt kjör kenn- ara  Launaflokki bætt við eftir 20 ár í kennslu, vinnumatið fellur út, tími aukinn til undirbúnings

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.