Morgunblaðið - 29.05.2018, Side 24

Morgunblaðið - 29.05.2018, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 ✝ Sif Sigurðar-dóttir fæddist í Danmörku 23. nóv- ember 1943. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. maí 2018. Foreldrar Sifjar voru Lúvísa Möller, f. 19.8. 1914, d. 14.3. 1966, og Sig- urður Samúelsson læknir, f. 30.10. 1911, d. 26.1. 2009. Þau eignuðust þrjú börn. Sif var elst, þá kom Sjöfn, f. 14.12. 1945, d. 24.12. 1948, og Sigurður Samúel yngstur, f. 30.9. 1951. Hann er læknir í Banda- ríkjunum. Hinn 13. október 1968 giftist Sif Þorsteini Blöndal lækni, f. 5.8. 1946, þau skildu. Börn Sifjar og Þorsteins eru: 1) Sjöfn fjár- málastjóri, f. 2.7, 1966, kjördóttir Þorsteins. Kynfaðir hennar Dag- ur Sigurðarson skáld, f. 6.8. 1937, d. 19.2. 1994. Maki Sjafnar Jokum Sommer ljósmyndari, f. 13.8. 1966, þau skildu. Dóttir þeirra er Sól Blöndal, f. 29.7. 2002. 2) Auðunn Árni verkfræð- ingur, f. 10.8. 1969, maki Stef- anía Björg Eggertsdóttir við- skiptafræðingur, f. 9.3. 1975. ugi, f. 17.3. 1992, Þorkell, f. 25.6. 2003, Ólafía Kristín, f. 5.9. 2006, og Ásta Sóllilja, f. 19.9. 2009. Sif ólst upp í Reykjavík og gekk í grunnskóla þar að und- anskildu einu ári sem fjölskyldan bjó í Bandaríkjunum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík vorið 1963 og kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1966. Hún lagði stund á bókmenntafræði, fyrst við Há- skólann í Uppsölum í Svíþjóð en síðar við Háskóla Íslands frá hausti 1982 og lauk þaðan prófi vorið 1984. Sif hóf kennslu árið 1966 og kenndi við Barnaskóla Kópa- vogs, Ásgarðsskóla í Kjós og Hvassaleitisskóla í Reykjavík. Hún flutti til Uppsala í Svíþjóð 1975 og bjó þar til 1982 að frá- töldum einum vetri er hún kenndi við grunnskólann á Hólmavík. Á Svíþjóðarárunum kenndi Sif íslenskum börnum ís- lensku. Hún kenndi við Landa- kotsskóla 1982-1983 og við Vest- urbæjarskólann í Reykjavík frá 1984 með hléum þegar hún kenndi við Hjallaskóla í Kópa- vogi og nýbúum íslensku hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Hún lét af störfum við Vesturbæj- arskólann 2010. Sif verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 29. maí 2018, og hefst athöfnin kl. 15. Dætur þeirra eru Þórhildur Sif, f. 11.3. 2004, og Krist- ín Rut, f. 6.2. 2007. 3) Edda Lúvísa, sjúkraþjálfari og salsadanskennari, f. 15.9. 1976, maki Páll Hólm Sigurðsson húsasmíðameistari, f. 26.5. 1967. Börn þeirra eru Klara Líf Blöndal, f. 9.4. 2009, og Nikulás Tómas Blöndal, f. 22.8. 2012. Dóttir Páls Hólm frá fyrra hjónabandi er Jóna Guðný, f. 3.2. 2000. Sif giftist hinn 14. janúar 2005 Atla Heimi Sveinssyni tónskáldi, f. 21.9. 1938. Synir Atla Heimis frá fyrra hjónabandi eru: 1) Teit- ur, BA í guðfræði og fulltrúi, f. 23.3. 1969, sambýliskona hans er Bryndís Bjarnadóttir ferðamála- fræðingur, f. 26.8. 1972, dóttir Teits og Elínar Þórhallsdóttir hótelstjóra, f. 6.5. 1967, er Auð- ur, f. 2.6. 1998, synir hans og Ing- unnar Jónsdóttur læknis, f. 8.5. 1976, eru Bessi, f. 14.3. 2006, og Leo, f. 10.7. 2007. 2) Auðunn, stjórnmálafræðingur og sendi- herra, f. 4.2. 1971, maki Sigríður Ragna Jónsdóttir verkefnastjóri, f. 20.1. 1970, börn þeirra eru Ill- Við Sif frænka mín og vinkona vorum jafngamlar og aldar upp saman að miklu leyti. Mæður okk- ar voru systur og feður okkar frændur. Var ég mjög mikið á heimili Lúvísu og Sigurðar. Við Sif fylgdumst að alla okkar ævi. Hún var stoð mín og stytta í gegnum lífið. Ógleymanlegir eru þeir tímar þegar við ungar stúlkur fengum að fara í skóla til Sviss, margt skemmtilegt og óvænt gerðist þar. Þegar Sif var við nám í Svíþjóð og Edda Lúvísa var átta mánaða var ég hjá þeim og leit eftir Eddu Lúvísu. Við Auðunn Árni fórum stundum í bíó og sáum t.d. Emil í Kattholti, það var gaman. Ég þakka frænku minni og vin- konu allt og allt. Atla Heimi, Sjöfn, Auðuni Árna, Eddu Lúvísu, Sigurði Sam- úel, mökum þeirra og börnum sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi góður guð geyma hana Sif mína. Ólöf Kristín Magnúsdóttir. Frá því að við systur munum eftir okkur hafa Sif og móðir okk- ar verið bestu vinkonur. Þær urðu það reyndar miklu fyrr því þær kynntust sextán ára í menntó og þar með hófst ævilangur vinskap- ur. Sönn vinátta er dýrmætari en gull, það vita þeir sem hana upp- lifa. Sif og mamma voru sannar- lega heppnar hvor með aðra, og maður lifandi hvað þær gátu talað. Hversu oft höfum við ekki hringt í mömmu og fengið svarið: ég hringi í þig á eftir, ég er að tala við Sif í hinum símanum. Svo leið oft- ast klukkutími. Þannig var það alltaf, enda hafa þær gengið sam- an ævina og deilt gleði og sorgum. Og ef þær gátu ekki hist voru mál- in rædd og lífsgátan leyst í gegn- um símann. Við munum fyrst vel eftir Sif þegar við vorum orðnar nokkuð stálpaðar, en heimsálfur skildu vinkonurnar að lengi vel. Eftir að Sif og fjölskylda flutti heim frá Svíþjóð og við frá Bandaríkjunum varð mikill samgangur milli fjöl- skyldnanna og mörg voru skemmtilegu matarboðin. Á þeim árum var einhver ævintýralegur sænskur hippablær yfir fjölskyldu Sifjar og okkur fannst Sif svo spennandi. Svo var hún líka gull- falleg, skemmtileg og sjarmerandi og sóttumst við systur eftir því að spjalla við hana. Tíminn leið og börnin urðu full- orðin og barnabörn litu dagsins ljós hjá þessum vinkonum. Þá hóf- ust árlegu Flateyjarferðirnar en ættmæðurnar tvær pökkuðu nið- ur matarbirgðum fyrir hundrað manns og héldu saman út í Flatey með börn sín og barnabörn. Þar höfum við dvalið nokkra daga á hverju sumri síðustu tíu ár- in, við á Vogi og Sif og fjölskylda beint á móti, í Ásgarði. Þvílíkir dýrðardagar. Það hefur varla brugðist að í hvert sinn sem við dvöldum í eyjunni hefur verið sól og blíða. Börnin léku og busluðu í víkinni og Sif og mamma sátu gjarnan inni í stofu að spjalla yfir kaffibolla, Sif alltaf með prjónana og það voru sannarlega listaverk sem hún framleiddi. Þetta voru notalegar stundir. Það var alltaf gott að vera ná- lægt Sif, hún gaf frá sér ljúfa og góða strauma. Það voru aldrei læti í kringum hana og öll börn hænd- ust að henni. Börnin sem hún kenndi hafa sannarlega verið heppin. Sif hafði alltaf einlægan áhuga á því sem aðrir voru að gera, kunni að samgleðjast fólki og var óspör á hrósyrði. Hún tók alltaf á móti okkur með bros á vör og spurði frétta af okkur og börnum okkar. Við erum þakklátar fyrir að hafa kynnst henni og þakklátar fyrir að hafa náð að faðma hana stuttu áður en hún kvaddi þennan heim. Í dag er sorg í hjörtum margra. Það eru margir sem hafa misst mikið. Atli Heimir eiginkonu sína, börn hennar yndislega mömmu, barnabörnin bestu ömmu í heimi og mamma okkar sína góðu vin- konu. Mitt í sorginni er gott að muna, gott að rifja upp allar góðu minningarnar. Við munum alltaf minnast Sifjar með hlýju og vænt- umþykju og gott er að ímynda sér hana glaða og brosandi með mömmu í sófanum í húsinu í Flat- ey, umkringd öllu fólkinu sem hún elskaði. Elsku Sjöfn, Auðunn Árni og Edda. Þið áttuð einstaka móður sem fór allt of snemma. Minning hennar lifir í hjörtum okkar allra. Hildur, Ásdís og Margrét Ásgeirsdætur. Kveðja frá saumaklúbbnum: Í dag kveðjum við Sif Sigurð- ardóttur eftir harða baráttu við erfið veikindi. Orrustuna háði hún af einstöku æðruleysi og bjartsýni eins og hennar var von og vísa. Hún lét aldrei bilbug á sér finna. Við í þessum litla hópi höfum fylgst að í gegnum súrt og sætt. Sumar okkar kynntust strax í barnæsku en aðrar á skólaárun- um. Við höfum brallað margt í gegnum áratugina sem verður ekki tíundað hér, við erum, jú, orðnar rosknar konur og eigum að vera til fyrirmyndar. Sif var glaðlynd, góðhjörtuð og svo glæsileg að eftir var tekið. Hún var opin fyrir nýjum hug- myndum, jákvæð og úrræðagóð. Hún var víðlesin og tónelsk. Hún var sannur vinur vina sinna og vildi leysa hvers manns vanda. Hún gaf endalaust af sér. Vert er að minnast á handa- vinnu Sifjar. Þar skapaði hún mörg listaverk. Fegurðarskyn hennar og vandvirkni voru einstök en ekki flaggaði hún þessu frekar en öðrum kostum sínum. Í hönd- um hennar urðu til fegurstu flíkur og oft var engu líkara en hún væri göldrótt því þær voru svo einstak- ar. Listfengi Sifjar fékk einnig að njóta sín í matargerð og alltaf var tilhlökkunarefni að mæta til henn- ar í saumaklúbb og þiggja góð- gerðir þar á bæ. Sif helgaði starfsævi sína kennslu. Hún var einstaklega áhugasamur kennari og lét sér mjög annt um nemendur sína. Hún lagði mikla vinnu í kennsluna og var vakin og sofin yfir velferð nemendanna. Við saumaklúbbssystur höfum gengið saman langan veg, stund- um sléttan, stundum grýttan en við höfum verið lánsamar að eiga hver aðra að og á langri ævi skilur maður hversu mikilvægt það er. Það hefur verið skammt stórra högga á milli þetta vorið. Við erum vart búnar að kveðja Sigríði Ein- arsdóttur, eina okkar, þegar Sif er hrifin á braut. Í Hávamálum er tilgreint hvað einkennir sanna vináttu og henni er lýst sem æðsta formi mann- legra samskipta. Þar segir meðal annars: Veistu, ef þú vin átt, þann er þú vel trúir, og vilt þú af honum gott geta, geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Það er engu líkara en sauma- klúbbur eins og okkar þar sem vinkonur „finnast oft“ og reglu- lega, áratugum saman, sé sniðinn eftir þessu heilræði. Ekki er að undra að vinátta okkar sem bygg- ist á væntumþykju og gagn- kvæmri virðingu hafi orðið æ dýr- mætari með aldrinum. Við kveðjum góða vinkonu með söknuði og vottum öllum ástvinum hennar okkar dýpstu samúð. Anna, Hildigunnur, Ingunn, Kristín Halla, Kristín Mjöll, Margrét, Ragn- hildur og Sólveig. Lífið, það er líf á langferð undir stjörnunum. Að deyja, það er aðeins hin alhvíta hreyfing. (Hannes Pétursson) Sif, vinkona mín til margra ára, er látin. Andlát hennar kom ekki á óvart, hún var búin að vera veik um nokkurt skeið og ljóst að ekki yrði um lækningu að ræða. Þó svo að það hafi verið ljóst var alltaf von sem blundaði í brjóstinu, von um að hún fengi að vera hjá okkur lengur, von um að við fengjum saman enn eitt sumar í Flatey. Von um að fá meiri tíma með henni. Sif hlaut í vöggugjöf góðar gáf- ur, glæsilegt útlit, létta lund og gott hjartalag. Hún var með af- brigðum greiðvikin og gjafmild, höfðingi heim að sækja, gerði fátt skemmtilegra en að safna saman fólki og elda veislumat sem hún töfraði fram svo áreynslulaust að fyrr en varði stóð hrokað borð í borðstofunni. Hún var skemmti- leg og það blundaði í henni bóhem sem skaut upp kollinum af og til og lýsti sér m.a. í því að hún fór ekki alltaf troðnar slóðir í lífinu. Sif var bæði listfeng og hand- lagin, var alltaf að hekla og prjóna fallega og eigulega gripi sem hún gaf fjölskyldu og vinum. Hún var einn mesti bókaormur sem ég hef kynnst, nánast sama hvaða bók var nefnd, hún hafði lesið hana. Tónlist var henni einnig hugleikin enda hefur hún leikið mikilvægt hlutverk í lífi hennar lengi og ekki þurfti hún að leita langt til að fá uppáhaldstónverk sín leikin af snillingi. Ævistarf Sifjar var kennsla grunnskólabarna. Hygg ég að þar hafi hún notið sín einna best. Ég tel að aðrir geti gert kennarastarfi hennar og hæfileikum á því sviði betri skil en ég en hún hafði að mínu viti alla þá eiginleika til að bera sem prýða mega góðan kenn- ara. Ég varð líka oft vör við hve vænt henni þótti um nemendur sína, bæði þá sem hún var að kenna svo og gamla nemendur sem ég hitti stundum með henni á förnum vegi. Þá gaf hún sér góðan tíma til að spjalla við þá og var for- vitin um þeirra hagi. Börn sem hafa notið væntumþykju Sifjar eru heppin börn. Eftir að Sif fór á eftirlaun tók hún að sér verkefni sem ég veit að íslenska þjóðin á eftir að þakka henni fyrir síðar meir. Hún hratt af stað vinnu með góðu fólki við að flokka og skrá verk tónskáldsins síns, til að gera þau aðgengileg tónlistarfólki, en þar er um þjóð- argersemar að ræða eins og allir vita. Sif var vinmörg og setti svip á lífið og tilveruna, hún kunni að gleðja og örva en einnig að hugga og styrkja. Hún var því gæfusöm, örlát á vináttuna sem ég naut í rík- um mæli. Þessir eiginleikar henn- ar fylla okkur, sem eftir stöndum, þakklæti fyrir að hafa fengið að vera henni samferða á lífsleiðinni. Ég votta Atla Heimi og börnum Sifjar, þeim Sjöfn, Auðuni Árna og Eddu Lúvísu, bróður hennar Sigurði Samúel og ástvinum henn- ar öllum mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning kærrar vin- konu. Ragnhildur Benediktsdóttir. Langri samveru er lokið á þess- ari kveðjustund. Þegar við kynnt- umst bjó Sif á heimili föður síns í Háuhlíð í Reykjavík, ég leigði hjá góðu fólki í hlíðinni fyrir neðan, Hörgshlíðinni. Sif gekk með Sjöfn og var mikil og ljós yfirlitum í víð- um Marimekko-kjól, ég var að ljúka fyrsta ári í háskólanum, það var sumar og allt var fagurt og skemmtilegt. Síðan hafa höf og lönd skilið okkur að, í stað brekk- unnar, um lengri eða skemmri tíma og gengið hefur á ýmsu hjá okkur báðum, eins og er í lífinu, en vináttutengslin hafa aldrei rofnað. Fallegt matarborð, hlaðið ótrú- legustu kræsingum, margir gestir í kringum borðið, sem þekkjast ekki endilega vel, en andrúmsloft- ið ýtir undir fjörugar samræður um allt á milli himins og jarðar. Þetta er minning sem ég geri ráð fyrir að margir vinir Sifjar og kunningjar tengi við. Með engum fyrirvara og að því er virtist áreynslulaust gat hún slegið upp veislu af minnsta tilefni, auk þess að finna sér oft tilefni til þess vegna einstakrar gestrisni sinnar og þarfar til að hlúa að mönnum og málefnum. Við erum ófá, vinir og vanda- menn, sem bægjum frá okkur kulda og hrolli með sjölum, trefl- um og í peysum sem Sif hefur prjónað. Hún var listamaður á því sviði. Ég reyndi í upphafi að leika þetta eftir, en á meðan ég komst upp að höndum á barnapeysu lauk hún mörgum flíkum. Peysan mín lá síðan óhreyfð í 40 ár, en fyrir stuttu hjálpaði hún mér af stað aftur og það tókst að ljúka verk- inu. Hún hafði líka yndi af því að lesa góðar bókmenntir og að tala um það sem hún las, njóta tónlist- ar og annarrar menningar. Mér er sérstaklega minnisstæð óperuferð á Svíþjóðarárum hennar; þar sem við brunuðum frá Uppsölum á flengreið í óperuna í Stokkhólmi og rétt náðum inn áður en tjaldið var dregið frá. Börnin og barnabörnin voru líf og gleði Sifjar, en önnur börn fengu einnig að njóta hennar óeig- ingjarna faðms. Það kom því kannski af sjálfu sér að ævistarfið tengdist börnum. Henni var mjög hugleikið hvernig staðið var að og hvernig ætti að standa að kennslu ungmenna, var ekki alltaf ánægð með hvernig þeim málum var fyr- irkomið og reyndi að beita þar áhrifum sínum. Réttlætiskennd hennar og samhygð með þeim sem minna máttu sín var sterk og ég hef engan þekkt sem sýndi veikum ættmennum jafn mikla al- úð og tryggð og hún. Já, það er margs að minnast þegar gamall vinur er kvaddur og erfitt að gera þeim hughrifum skil í fáum orðum. Megi hún hvíla í friði og börn og barnabörn finna huggun í góðum minningum. Hjördís Hákonardóttir. Minningabrot um ástkæra vin- konu: Þegar ég sá hana fyrst var hún í bláköfl- óttum kjól, hún kom frá útlöndum, frá Ameríku, svo falleg og ég horfði lengi. Svo urðum við vinkonur, fjórtán ára gamlar. Allt gerðist, allt umhverfðist, tíminn óð áfram, um stund nam jörðin staðar, hélt svo áfram eins og ekkert hefði ískorist. Alltaf héldum við áfram að vera vinkon- ur. Söknuðurinn eftir Sif er sár, mjög sár. Sólveig Hauksdóttir. Æskuvinkona mín er látin eftir erfið veikindi. Okkur varð fljótt vel til vina þegar við, 6 ára hnátur, bjuggum í Eskihlíð 16A og 16B. Við bjuggum hvor í sínum stiga- ganginum á sömu hæð og á milli íbúða skildi aðeins einn veggur sem við vildum gjarnan láta setja á hurð. Pabbi minn mundi vel eftir fyrstu heimsókn Sifjar til mín því kætin var svo mikil. Við fórum meðal annars í koddaslag og fiðrið flaug um herbergið okkur til mik- illar gleði. Við vorum heimagangar hvor hjá annarri öll bernsku- og ung- lingsárin. Það voru margir at- burðir sem við upplifðum á sama tíma. Við eignuðumst reiðhjól og hjóluðum allan þann dag. Fjöl- skyldur okkar eignuðust líka bíla sama daginn. Þau fengu ameríska „drossíu“; tvílita gula og græna en við fengum austantjaldsbíl; gráan Pobeda. Ekki mátti á milli sjá hvor okkar vinkvennanna væri ánægðari með þessa nýju farar- skjóta heimilisins. Við fluttum líka báðar úr Eskihlíðinni um svipað leyti í nýbyggð hús en ekki minnk- aði samgangurinn. Mér eru þessi ár okkar Sifjar í Eskihlíðinni sérstaklega kær. Í minningunni var alltaf sól á sumr- in. Leikið var úti og inni. Gaman var að fara í feluleik innan um risastór steypt rör og stóra steina í Öskjuhliðinni. Í hæfilegri fjar- lægð eltum við Imbu, sem rak kýrnar hans Geira í Hlíð, eftir Hafnarfjarðarveginum og yfir í Fossvoginn á túnin þar sem nú er Landspítali. Við fórum í sunnu- dagaskóla í bílskúr í Mjóuhlíð og fengum biblíumyndir. Á sunnu- dögum var oft farið í Austurbæj- arbíó klukkan þrjú að sjá Roy Ro- gers. Þar höfðu strákar skiptimarkað með „hasarblöð“ en við söfnuðum hins vegar myndum af amerískum leikurum og líka servíettum. Sif eignaðist bróður í september 1951. Við vorum stund- um að passa hann og ég man að hann var mikill gleðigjafi og fjör- kálfur. Þessar minningar frá fyrstu árum okkar saman eru að- eins brotabrot af okkar skemmti- legu samverustundum. Eftir árs- dvöl í Bandaríkjunum kom Sif í bekkinn minn í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Í menntaskóla héld- um við alltaf vinskapinn og vina- hópurinn stækkaði. Enn erum við vinkonurnar með svokallaðan „saumaklúbb“. Við vorum upphaf- lega ellefu en nú eru þrjár látnar. Sumarið 1960 eftir fyrsta vet- urinn okkar í menntaskóla fórum við tvær fljúgandi til Kaupmanna- hafnar og bjuggum um tíma hjá dönskum vinahjónum foreldra Sifjar. Þetta var algjört ævintýri og frjálsræði. Svo sigldum við for- framaðar heim með Gullfossi ásamt mörgum skólafélögum, rétt áður en skólinn hófst í október. Lúvísa móðir Sifjar var mér sérstaklega góð, talaði mikið við okkur vinkonurnar og lagði okkur lífsreglurnar. Hún sagði okkur sögur frá veru fjölskyldunnar í Danmörku, en þar dvöldu þau á stríðsárunum og þar fæddist Sif. Dönsk matarmenning var á heim- ilinu og Lúvísa var góður kokkur. Það varð mikið reiðarslag þeg- ar Lúvísa fékk heilablóðfall. Hún lá í fimm ár á Landspítalanum og dó í mars 1966 aðeins 51 árs göm- ul. Þá gekk Sif með Sjöfn, elsta barnið sitt, sem fæddist í byrjun júlí. Nærri má geta hvað söknuður Sifjar eftir móður sinni hefur ver- ið sár við þessar aðstæður. Litlu telpunni sinni gaf hún sama nafn og yngri systir hennar hafði borið, en hún lést eftir erfið veikindi rétt þriggja ára gömul. Sif var með afbrigðum glæsi- leg, félagslynd, vinsæl, einstak- lega gjafmild og hjálpsöm. Hún sá spaugilegar hliðar á mönnum og málefnum og hafði góða frásagn- arhæfileika. Bjartsýn og óttalaus tókst hún á við sjúkdóminn og af æðruleysi en varð að lokum að láta í minni pokann. Ég votta öllum ástvinum hennar innilega samúð. Hennar er sárt saknað. Anna Eymundsdóttir. Þegar komið er að leiðarlokum og mín kæra vinkona Sif hefur kvatt er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að vera vinur hennar en um leið djúpur sökn- uður yfir samverustundum sem ekki koma aftur. Við Sif kynnt- umst gegnum sameiginlega vini þegar við báðar bjuggum í Sví- þjóð, þar sem ég bjó í 5 ár en hún lengur en við fluttum um svipað leyti aftur til Íslands og urðum nánir vinir. Kvöldstundir saman yfir góðum mat og fjörugum sam- ræðum var eitthvað sem við sótt- um stíft í. Oft var liðið fram á eft- irmiðdag þegar ákveðið var að slá upp veislu sama kvöld. Einfald- lega til að vera saman. Og þar var Sif sannkallaður meistari, matar- gerð hennar var óviðjafnanleg og yfir öllu þetta hrífandi, bóhemíska yfirbragð, sem var hennar sterka einkenni ásamt hlýju og húmor. En við hittumst ekki bara yfir máltíðum heldur ferðuðumst sam- an í árlegum rútuferðum undir heitinu Sæluferðir Selmu, þar sem hálendi Íslands og flestar aðrar afskekktar byggðir landsins voru skoðuð í þaula í frábærum vina- hópi og helst voru börnin með. Við Sif Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.