Morgunblaðið - 29.05.2018, Side 29

Morgunblaðið - 29.05.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2018 Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þér finnist gaman að gefa öðrum ráð verðurðu að minnast þess að þú átt ekki að stjórna lífi annarra. Skyndilega opnast möguleikar sem þú áttir ekki von á. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú er rétti tíminn til að hrinda í fram- kvæmd þeim áætlunum sem þú hefur svo lengi unnið að af kostgæfni. Árangurinn mun ekki láta á sér standa. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Rétta lausnin er ekki endilega sú sem liggur í augum uppi. Þú hefur aldrei ver- ið þekkt/ur fyrir að fara hefðbundnar leiðir í lífinu, haltu þínu striki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert svo upptekin/n af ákveðinni hugmynd að þú getur ekki með nokkru móti sleppt henni. Námskeið gæti hjálpað þér við að tileinka þér nýja færni sem sparar þér tíma. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Við gleymum því oft í sókn okkar eftir auði og öryggi hvernig við getum lifað í gleði frá degi til dags. Þótt einhver lofi þér gulli og grænum skógum gleypirðu ekki við því. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Munið að aðgát skal höfð í nærveru sálar og það á ekki síst við um þá tíma sem nú ganga í hönd. Það hriktir í stoðum sam- bands en ástin sigrar allt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Í dag ættirðu að líta yfir allt sem þú hef- ur afrekað. Að gera hluti í hálfkæringi eða með hálfum huga gerir bara lítið úr þér. Þú sefur ekki nóg. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú verður að skipuleggja hlutina betur, hvort sem um er að ræða einkalíf þitt eða atvinnu. Það er aldrei rétti tíminn til að eignast barn eða íbúð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur meðbyr og átt að not- færa þér hann til þess að koma áhugamálum þínum í höfn. Boltinn er í þínum höndum hvað varðar að taka ákvörðun í deilumáli. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt þú hljótir ekki verðlaunin sem þú þráðir mun það gefa þér margt í aðra hönd að hafa átt hlut að máli. Gamall draum- ur verður að veruleika. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér býðst óvænt tækifæri til þess að vinna þér inn peninga í dag. Fólk tekur eft- ir hversu vel þér líður og þú geislar af ham- ingju. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér finnst þú ekki í stakk búin/n til að taka á þig aukna ábyrgð en í raun og veru ertu það. Notaðu viljastyrk þinn ekki bara fyr- ir sjálfa/n þig heldur líka í annarra þágu. Hinir og ég (í aðdraganda kosn-inga),“ skrifar Helgi R. Ein- arsson: Er sumir hér djúsa og djamma, deila, hneykslast og gjamma í ró og næði ég ræði og snæði rófur og sviðakjamma. Og svo er það „gleymskan“: Gvendur gamli á Bakka gleymdi mér alveg að þakka fyrir það þegar að með Þrúði hans eignaðist krakka. Páll Imsland heilsaði leirliði hvort heldur það væri í fýlu eða sigurvímu að lokinni talninganótt og sagði: „Ég nenni samt ekki að yrkja um pólitíkina, það er svo mikið af óviti þar á ferð. Held mig í staðinn við vit- lausa limrugerð af landanum, smá- sögur úr ónafngreindu mannlífi“: Hann röri til fiskjar á fleytu, sem fúnaði hægt undan bleytu, er lá hún í nausti á löngum að hausti full upp af færum og beitu. Sigurlín Hermannsdóttir minnir á hina nýju borgarlínu og segir frá því að á féssíðunni sinni birtist aug- lýsing frá Miðflokknum um „já- kvæða hvata í almennings- samgöngum“. – „Í bakgrunni var frýsandi hrossið og allt í einu sá ég ljósið“: Í almenningssamgöngum tökum oss tak því talsvert er mikið í húfi. Á Skjóna eða Grána oss skellum á bak eða skeiðum um bæinn á Stúfi. Útblástursmengunin minnka þá skal og malbik af götunum hverfur. Um línu um borgina brátt höfum val en bílanna enginn er skerfur. Síðan bætir Sigurlín við: „Verstur fjandinn að ég hef aldrei kunnað að sitja hest og er þar að auki búin að ráðstafa atkvæði mínu!“ Jón Arnljótsson brást skjótt við: Hafnar bæði línu og lest, en löngun þessa tónar Sigurlín að sitja hest sem að stöðugt prjónar. Ólafur Stefánsson skrifar á Leir að í útvarpi allra landsmanna glumdi fyrir nokkrum dögum svo- hljóðandi auglýsing um fyrirlestur: „Gigt og kynlíf, – á það samleið?“: Náttúran í kroppnum rær og rokkar, menn reyna eftir megni að gera sitt, jafnvel þó að gamlir gigtarskrokkar þeir geti ekki lengur skellt í splitt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gigt, kynlíf og borgarlínan „ÞETTA ER NIÐURLÆGJANDI. ÉG ÞARF EKKI HEYRNARTÆKI.“ „EKKI SEGJA MÉR AÐ ÉG FÁI ÞENNAN.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að geta alltaf sæst eftir rifrildi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HÆ, LÍSA. ÞETTA ER JÓN... VÆRIRÐU TIL Í AÐ KOMA Í BÍÓ MEÐ MÉR Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ? ER ÞAÐ? ...BARA SI SVONA? ÞAÐ ÞARF AÐ VENJAST ÞESSU SMÁM SAMAN ÉG VILDI AÐ ÞETTA VÆRI BARA MARTRÖÐ! EKKI ÉG! ÉG ÞOLI EKKI MARTRAÐIR! FYRIRGEFÐU! Frá London er símað, að um há-degi á mánudaginn hafi Þjóð- verjar gert áköf áhlaup og stór- skotahríð frá Rheims til Soissons, Locre og Vormezeele. Frá Berlín er tilkynt að á mánu- dagskvöldið hafi verið aukin stór- skotahríð í Flandern, hjá Lys, Somme, Avre og sunnan við Laon. Her þýzka ríkiserfingjans hefir tekið alla hæðina hjá Chemindes- Dames. Orusta stendur hjá Aisne. Frá Wien er tilkynt að Austur- ríkismenn hafi látið lítið eitt undan síga hjá Tonale (í Ítalíu).“ Víkverji veit fátt skemmtilegra en að fletta gömlum dagblöðum og tíðindin hér að ofan voru síðustu símfregnir frá Kaupmannahöfn sem birtust í Morgunblaðinu á þessum degi fyrir réttri öld, mið- vikudaginn 29. maí 1918. x x x Fleira var í fréttum þennan dag,svo sem þetta: „Samgöngumálanefnd Ed. flytur þingsályktunartill. um að skora á landsstjórnina að stuðla að því, að Eimskipafélag Íslands taki að sér rekstur á bátaferðum um Faxaflóa, eða hlutist til um, að ferðir þessar komist á annan hátt sem fyrst í hentugt og trygt horf. Er stjórn- inni og gefin heimild til þess að hækka að nokkru styrkinn til Faxaflóaferða, ef brýn nauðsyn krefur.“ x x x Þá voru lesendur hvattir til aðmissa ekki af Tökubarninu og rógborna prestinum, fallegum og áhrifamiklum sjónleik í fjórum þáttum, sem sýndur var í Gamla bíói um þær mundir. „Ef þér viljið sjá verulega góða kvikmynd, sem sýnir yður mjög viðburðaríkan, undarlegan og spennandi æfiferil, þá sjáið þetta sem þér hljótið að horfa hugfangnir á frá upphafi til enda,“ sagði í aug- lýsingu á forsíðu blaðsins. Loks kom fram að Hafnarfjarð- arbifreiðin nr. 6 færi daglega milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. „Uppl. í símanr. 33 í Hafnarfirði og í Reykjavík hjá S. Kampmann, sími 586.“ vikverji@mbl.is Víkverji En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég gerði Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum. (Sálm: 73.28)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.