Morgunblaðið - 29.05.2018, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Bolað burt eftir kvartanir í …
2. Ráðist á Hafþór á …
3. Huliðshjálmur á klámvefjum
4. Keyptu fasteignir á Spáni fyrir …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikar á vegum KÍTÓN, félags
kvenna í tónlist, verða haldnir í Iðnó í
kvöld kl. 20.30 og bera þeir yfirskrift-
ina Konur eru konum bestar – ís-
lenskar konur í ljóðlist og tónlist. Á
þeim munu Hallveig Rúnarsdóttir
sópransöngkona og Hrönn Þráins-
dóttir píanóleikari flytja efnisskrá
með lögum íslenskra kventónskálda
við ljóð íslenskra kvenljóðskálda.
Tónlistin sem verður flutt á tón-
leikunum kemur víða við og á efnis-
skránni má finna allt frá náttúrulýs-
ingum Jórunnar Viðar yfir í glænýja
tónlist eftir ungtónskáldið Sunnu
Rán Wonder. Þá munu Hallveig og
Hrönn einnig flytja „Hvolf“ eftir Önnu
Þorvaldsdóttur, verk sem hún samdi
fyrir þær árið 2010, og einnig verk
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Þuríði
Jónsdóttur og Elínu Gunnlaugs-
dóttur.
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlist-
arsjóði og Menningar- og ferða-
málaráði Reykjavíkurborgar og eru
samstarfsverkefni KÍTÓN og Iðnó.
Konur eru konum
bestar í Iðnó
Þjóðlistahátíðin Vaka hefst á morg-
un á Akureyri og stendur yfir þar og í
nágrenni bæjarins til 2. júní. Á hátíð-
inni verður m.a. boðið upp á nám-
skeið, tónleika og samspilsstundir og
fram koma tónlistarmenn og söngv-
arar frá Íslandi, Finnlandi, Noregi,
Englandi og Hjaltlandseyjum og dans-
hópar frá Íslandi og
Noregi. Chris Foster
er listrænn stjórn-
andi Vöku og dag-
skrá hátíðarinnar og
frekari upplýs-
ingar má finna
á vefsíðu
hennar, vaka-
folk.is.
Þjóðlistahátíðin Vaka
haldin á Akureyri
Á miðvikudag Suðlæg átt, 3-10. Skýjað og smásúld eða þokuloft
sunnan- og vestanlands með hita 8 til 12 stig. Bjartviðri norðaust-
antil á landinu og hiti 15 til 22 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-18 m/s suðvestan- og vest-
anlands, rigning eða súld við ströndina. Hiti 8 til 14 stig. Suðaustan
5-10 á Norður- og Austurlandi, léttskýjað og hiti að 20 stigum.
VEÐUR
Sex stig frá toppi
og niður í fallsæti
Verða án Söru í mikil-
vægum HM-leik
LeBron James er á leið í úrslitaeinvígi
NBA-deildarinnar í körfuknattleik í
áttunda skiptið á jafnmörgum árum
eftir að hann bar lið Cleveland Caval-
iers á herðum sér einu sinni sem oft-
ar í oddaleik Austurdeildarinnar í
fyrrinótt. Cleveland lagði þar Boston
Celtics á útivelli, 87:79, og leikur til
úrslita um NBA-titilinn fjórða árið í
röð. »4
Á leið í lokaúrslitin
áttunda árið í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Komið hefur verið upp heitum pott-
um og búningsaðstöðu í fjöru á
Hauganesi við utanverðan Eyjafjörð
og þar útbúin góð aðstaða fyrir sjó-
sundsfólk. Aðstæður á þessum slóð-
um fyrir sjósund eru allar hinar
bestu, fjaran er sendin og grunn og
hægt að vaða um 25 metra út þegar
lágsjávað er. Þá snýr fjaran mót sól-
ríku suðri, en slíkar aðstæður eru
sjaldgæfar á Norðurlandi. Það er
Elvar Reykjalín, framkvæmdastjóri
Ektafisks, sem að þessu stendur
með fjölskyldu sinni, en þau reka
fyrir veitingastað í þorpinu og hafa
raunar gert sitthvað fleira í því skyni
að styrkja Hauganes sem ferða-
mannastað.
Norðlenskt Benidorm
„Aðstaðan er góð en vonandi er
þetta bara fyrsti áfanginn. Ég tel að
hér séu mikil tækifæri fyrir hendi og
ef aðsókn verður góð má alltaf bæta
við og byggja upp,“ sagði Elvar
Reykjalín þegar hann sýndi Morg-
unblaðinu aðstæður í sundfjörunni
góðu. Heitu pottarnir tveir, sem í
rennur vatn úr borholu skammt frá,
voru settir upp síðasta haust en bún-
ingsklefar og sturtur, sem eru í létt-
byggðu timburhúsi, komu fyrir hálf-
um mánuði. Þá hefur verið lagður
göngustígur efst í fjörukambinum að
aðstöðunni og þessa dagana er verið
að fínpússa ýmislegt í umhverfinu á
þessum stað.
„Já, fólk hefur talsvert sótt hingað
á Hauganes í sjósund, sem er þó vel
að merkja sport sem Íslendingar
hafa ekki stundað mikið fyrr en á
síðustu árum. En væntanlega gildir
hér að góðar aðstæður efli áhugann.
Þetta er eiginlega norðlenskt Beni-
dorm,“ segir Elvar. Hann fjár-
magnar þessa framkvæmd alfarið
sjálfur en væntir þess þó að gestir
skilji eitthvað eftir í baukum sem
komið hefur verið upp á baðstaðn-
um.
Hauganes hefur komið sterkt inn
á síðustu árum sem ferðaþjónustu-
staður. Þar er fyrirtækið Whale
Watching með aðstöðu og gerir út
tvo báta sem fara í hvalaskoðunar-
ferðir út á Eyjafjörðinn. Þá koma
margir við hjá Elvari í Ektafiski og
kynna sér fiskverkun hans og veit-
ingastaðinn Baccalá Bar, þar sem
saltfiskur unninn á staðnum er áber-
andi á matseðlinum.
15 þúsund manns á Hauganesi
„Mér þykir óskaplega vænt um
þorpið mitt, hér hef ég alltaf búið og
vil efla staðinn. Að gera sjávarútveg-
inn fólki sýnilegri er mér ákveðin
hugsjón og allt spilar þetta vel
saman; fiskverkun, hvalaskoðun,
veitingastaður, gott tjaldsvæði og
nú sjóböðin. Hingað í þorpið koma
um 15.000 manns á ári og mun bara
fjölga í framtíðinni,“ segir Elvar
Reykjalín að síðustu.
Sjósund mót sólríku suðri
Glæsileg bað-
strönd á Hauga-
nesi við Eyjafjörð
Sælureitur Elvar Reykjalín við fjöruna á Hauganesi við Eyjafjörð og í baksýn eru heitu pottarnir og búnings-
aðstaðan sem komið hefur verið upp. Hægt er að vaða á sendnum botni minnst 25 metra út í sjóinn á þessum slóðum.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Busl Aðgangur er ókeypis en þess vænst að gestir skjóti klinki í kassann.
Ísland verður án Söru Bjarkar Gunn-
arsdóttur í leiknum mikilvæga gegn
Slóveníu í undankeppni heimsmeist-
aramóts kvenna í knattspyrnu á
Laugardalsvellinum 11. júní en komið
er í ljós að hún er með trosnaða hásin
og verður frá keppni í fimm til sex
vikur. Berglind Björg Þorvaldsdóttir,
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Anna Rakel
Pétursdóttir koma allar inn í hópinn
sem býr sig vel undir leikinn næstu
tvær vikur. »2
Breiðablik, Grindavík og FH
eru jöfn og efst á toppi
Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu eftir að FH og Fylkir
skildu jöfn, 1:1, í síðasta
leiknum í sjöttu umferð
deildarinnar í Kaplakrika í
gærkvöld. Leikurinn var
skemmtilegur, sérstaklega
fyrri hálfleikurinn, en jafn-
tefli varð niðurstaðan.
Toppliðin þrjú eru aðeins
sex stigum fyrir ofan fall-
sæti í hnífjafnri deild. »3