Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018 VETTVANGUR Frambjóðendur á listum Sjálf-stæðisflokksins fyrir komandisveitarstjórnarkosningar eru næstum fimm hundruð talsins. Þessi fjölmenna og öfluga sveit vinnur nú stefnumálum sínum fylgis um allt land á lokasprettinum fyrir kjördag. Ég hef verið svo heppin að hafa haft tækifæri til að heimsækja frambjóðendur og stuðningsmenn flokksins í mörgum sveitarfélögum á undanförnum vik- um. Hvarvetna ríkir metnaður til að gera betur í þágu samfélagsins, með bjartsýni, gleði og kraft að leiðarljósi. Slagorð Sjálfstæðisflokksins í síð- ustu alþingiskosningum, „Fyrir okkur öll“, á ekki síður vel við í þessum kosningum. Sveitarfélögin bera ábyrgð á mörgum mikilvæg- ustu hagsmunamálum borgaranna og hafa því veruleg áhrif á lífsgæði okkar allra. Því miður er víða pott- ur brotinn en við höfum líka dæmin um hvernig hægt er að standa vel að málum, veita góða þjónustu og sýna á sama tíma ráðdeild í rekstri. Snúum Reykjavík af rangri leið Í Reykjavík hefur Sjálfstæðisflokk- urinn kynnt skynsamlega og metn- aðarfulla stefnu í mörgum málum sem auka mun lífsgæði borgaranna og bæta daglegt líf, til að mynda í húsnæðismálum og í dagvistunar- og leikskóla- málum þar sem boðið verður upp á fleiri valkosti og fjölbreyttari þjónustu. Nýleg þjónustukönnun í stærstu sveitarfélögum landsins sýnir að hvergi eru íbúarnir óánægðari með þjónustu leikskóla og grunnskóla en í Reykjavík, sjálfri höfuðborg landsins. Þetta er með ólíkindum og verðskuldar í mínum huga eitt og sér að kjósendur færi núverandi meirihluta reisupassann. Frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins hafa bent á hvernig gera megi betur. Borgin hefur brugðist á fleiri sviðum. Hún fær falleinkunn á fimm af níu mælikvörðum fjármála í nýrri skýrslu Samtaka atvinnulífs- ins. Og hún er Íslandsmeistari í skattbyrði í flokki stærstu sveitar- félaga landsins; ekkert þeirra tekur til sín hærra hlutfall af tekjum íbú- anna en Reykjavík gerir. Þetta er afleitt og þessu ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn líka að breyta. Það má ekki alltaf vera fyrsta svar hins op- inbera að seilast dýpra ofan í vasa heimilanna, oft til að fjármagna óskilvirkt og þunglamalegt bákn. Stjórnvöld verða að líta í eigin barm, hagræða og forgangsraða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur því boðað að hann ætlar að lækka út- svar borgarbúa í þrepum á hverju ári þar til það verður komið undir 14%. Þetta eru góð og skynsamleg áform sem auka munu ráðstöf- unartekjur einstaklinga og fjöl- skyldna í Reykjavík. Nýtum tækifæri hverrar byggðar Ég er stolt af því að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins víðsvegar um landið hafa slegið réttan tón í nálg- un sinni á viðfangsefnin. Að sjálf- sögðu er höfð uppi eðlileg og mál- efnaleg gagnrýni á frammistöðu og stefnumál annarra en megin- áherslan er á ágæti okkar eigin stefnu, góða frammistöðu þar sem við höfum verið við stjórn- völinn, og tæki- færin sem við sjáum í hverri og einni byggð; tækifærin til að gera betur fyrir okkur öll. Ég trúi að byggðir landsins eigi sér bjarta framtíð. Með skynsamlegum áherslum geta stjórnvöld bæði á landsvísu og á hverjum stað lagst á eitt um að nýta með ábyrgum hætti þau tækifæri sem sannarlega eru fyrir hendi á mörgum sviðum, til að mynda í ferðaþjónustu, fiskeldi, iðnaði, matvælaframleiðslu og margvíslegri nýsköpun á þessum sviðum og fleirum. Krafturinn býr í fólkinu og hugvitinu eru lítil tak- mörk sett; verkefni okkar stjórn- málamanna er að hlúa að jarðveg- inum og sjá til þess eins og frekast er unnt að forsendur séu til staðar til að hægt sé að nýta tækifærin. Ég get fullvissað lesendur um að við finnum öll til ábyrgðar í þeim efnum og verkefnin eru ærin. Ég veit að frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins hafa það sem þarf til að nýta tækifærin. Fyrir okkur öll ’Sveitarfélögin beraábyrgð á mörgum mikilvægustu hagsmuna-málum borgaranna og hafa því veruleg áhrif á lífsgæði okkar allra. Því miður er víða pottur brot- inn en við höfum líka dæmin um hvernig hægt er að standa vel að málum. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordis@xd.is Morgunblaðið/Eggert Víkingur Heiðar Ólafs- son píanóleik- ari tísti um leigubílaferð í Berlín þar sem bílstjórinn hafði nokkuð sérstakar landfræðilegar hugmyndir um Ísland: „Reifst við leigubílstjóra í Berlín sem telur að ég hafi rangt fyrir mér í því að Ís- land sé eyja. Það er víst hægt að keyra frá Reykjavík til Helsinki.“ Rithöfund- urinn, lögfræð- ingurinn og uppi- standarinn með meiru Bergur Ebbi Bene- diktsson tísti: „Það er fáránlegt að við séum með þjóðleikhús, fjöl- miðla og sveitastjórnarkosningar á þessari eyju. Ef einhver myndi finna þessa eyju í dag væri hann bara: „hér geta svona 15-20 manns búið í einhverju veðurathugunar- kjaftæði.“ Sjónvarps- stjarnan Berg- lind Péturs- dóttir, gjarnan kennd við Festi- val, tísti um sam- skipti sín við son sinn: „Svo icey stemning hérna eftir að að Kári hætti að kalla mig mömmu og byrjaði að kalla mig Berglindi Festival. Dæmi: – Góða nótt Kári elska þig múmú sín kútur - Góða nótt, Berglind Festival.“ AF NETINU R GUNA GÓÐAR I Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.