Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 12
Elsti frambjóðandinn 100 ára
Elsti frambjóðandi landsins í sveitar-
stjórnarkosningunum eftir viku er
Guðrún Glúmsdóttir, sem fagnaði 100 ára
afmælinu fyrir tæpum mánuði. Guðrún,
sem búsett er á Hólum í Reykjadal, er í
14. sæti á Ð lista Framtíðarinnar í Þing-
eyjarsveit.
Fermetrinn á milljón
„Við finnum fyrir mjög miklum
áhuga. Það eru viðræður í gangi
um nokkrar íbúðir, þótt þær séu
ekki komnar í formlega sölu,“
segir Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri og eigandi ÞG verks,
um nýjar íbúðir á Hafnartorgi í
miðborg Reykjavíkur. Fermetra-
verð í þakíbúðum, þeim dýrustu,
verður liðlega ein milljón kr.
Átján fluttu í fámennasta sveitarfélagið
Átján fluttu lögheimili sitt til Árneshrepps, fámennasta
sveitarfélags landsins, skömmu áður en síðustu forvöð
voru til þess með sveitarstjórnarkosningarnar í huga.
Látið hefur verið að því liggja að um sé að ræða smölun
til að í sveitarstjórn verði kosið fólk sem komi í veg fyr-
ir byggingu Hvalárvirkjunar. Hrafn Jökulsson, einn
þeirra sem fluttu norður, segir það absúrd að lög-
reglan hafi barið að dyrum á lögheimili hans og spurt barnsmóður hans að því
hvar hann hefði vaknað þann morguninn og sömuleiðis að því hvort þau tvö
væru byrjuð saman aftur.
Samhryggist gyðingum
Ég samhryggist gyðingum í Ísrael að hafa gengið í
gegnum árþúsunda höfnun og helför seinni heim-
styrjaldar án þess að öðlast þekkingu á friði en
verða þess í stað nákvæm eftirlíking eigin óvina.
Séra Bjarni Karlsson
Kona fer í stríð verðlaunuð
Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson
fengu verðlaun samtaka franskra handrits-
höfunda á Gagnrýnendavikunni, hliðardag-
skrá á kvikmyndahátíðinni í Cannes, fyrir
Kona fer í stríð. Gagnrýnendur einblína þar á
fyrstu eða aðra mynd höfunda. Benedikt og
leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir tóku við
viðurkenningunni.
Ísland - Indland
WOW air hefur áætlunarflug frá Íslandi til Delí 6. des-
ember. Hugmyndin er að tengja Indlandsmarkað við
áfangastaði í Norður-Ameríku.
VIKAN SEM LEIÐ
VETTVANGUR
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018
ansvottuð
tra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Ný kynslóð málningarefna
ONE SUPER TECH
Sv
be
u Byggir á nanótækni - sjálfhreinsandi
u Fyrir við, bárujárn og innbrenndar klæðningar
u Þekur ótrúlega vel
u Endist margfalt á við önnur málningarkerfi
Veldu betri málningu
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Það er til ákveðin tegund af fólki sem er svo merki-legt að allt sem gerist hjá því gerist annaðhvortalltaf eða aldrei. Ekki oft eða sjaldan eða stund-
um. Því tekst nánast ekki að mynda setningu án þess að
nota þessi orð. Af hverju er þetta alltaf svona? Af hverju
getum við aldrei gert þetta?
Ég efast um að þetta fólk taki eftir þessu en þetta hef-
ur á sér neikvæðan blæ. Það er nefnilega harla fátt sem
gerist annaðhvort alltaf eða aldrei.
Ég var einu sinni með yfirmann sem byrjaði flestar
samræður á þessum systrum. Og trúið mér, það var ekki
til að hrósa fólki eða ræða neitt á eðlilegum nótum. Það
var alltaf verið að segja okkur að annað hvort værum við
aldrei almennileg eða alltaf ömurleg. Sem er almennt
ekki til þess fallið að ná því besta útúr starfsfólki. Eða
bara nokkrum, ef útí það er farið.
Nú er ég ekki að stinga uppá að fólk fari almennt að
rannsaka hlutföll á ýmsum daglegum viðburðum. Af
hverju kemurðu of seint í 35 prósentum tilvika? Af
hverju gerirðu þetta bara í einu tilviki af hverjum fimm?
Það snýst meira um viðhorfið. Hvernig þú talar við fólk.
Nú er einmitt sá tími sem þessar týpur blómstra. Hér í
Reykjavík höfum við sextán gerðir af þeim. Sem væri allt
í lagi ef þær væru ekki allar í framboði. Pólitíkin í borg-
inni er nefnilega rekin áfram af alltaf/aldrei fólkinu.
Borgarsjóður hefur aldrei staðið betur eða aldrei verr.
Allt eftir því hver talar. Borgarbúar hafa aldrei haft það
jafn gott hjá sumum. Aldrei jafn skítt hjá öðrum. Meiri-
hlutinn gerir alltaf allt til að gera lífið ömurlegra fyrir
alla.
Staðreyndir eiga undir högg að sækja þegar kemur að
kosningum. Þær breytast í „borið saman við“ og „miðað
við“ og „í tíð fyrri meirihluta“ og eftir sitjum við og skilj-
um ekkert.
Svo er náttúrlega blæbrigðamunur á þessu því stund-
um breytist þetta í frábært/ömurlegt. Undir það falla
hlutir eins og borgarlínan, þétting byggðar, hvar við ætl-
um að hola þessum Landspítala niður, þrengja götur,
moka í holur og setja allt mögulegt í stokk.
Önnur útfærsla er að allt sé „það eina“ sem einhver
gerir eða vill. Það eina sem meirihlutinn gerir er að
þrengja götur og það eina sem sjálfstæðismenn vilja er
að fjölga bílum. Þetta er ekki beint gáfulegt.
Fyrir venjulega kjósendur er það frekar ólíklegt að
allar hugmyndir sem koma fram í kosningabaráttu séu
annaðhvort frábærar eða ömurlegar. Það væri býsna
ótrúleg tilviljun. Svona tölfræðilega.
Það merkilega við þetta er að þegar öllu er á botninn
hvolft þá eru flestir sammála. Svona nokkurn veginn.
Það þarf fleiri (og helst ódýrari) íbúðir, það þarf að bæta
almenningssamgöngur, manna leikskóla, laga göturnar
og svona hitt og þetta sem gerir Reykjavík að betri borg.
Ég geri mér grein fyrir því að þetta er geggjuð pæl-
ing, en gætum við talað um svona hluti? Svona einu sinni.
Bara svo við förum ekki í enn einar kosningarnar sem
minna á húsfélagsfund hjá fólki með reiðistjórn-
unarvanda.
Alltaf og aldrei
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’Staðreyndir eiga undir högg að sækja þegar kemur að kosn-ingum. Þær breytast í „borið saman við“ og „miðað við“ og„í tíð fyrri meirihluta“ og eftir sitjum við og skiljum ekkert
UMMÆLI VIKUNNAR
’Mér ofbýður yfirgangurþessara manna. Þetta er íraun rán um hábjartan dag
Einar Pálsson garðyrkjubóndi ósáttur við að
einkaaðilar rukki fólk rólk fyrir að leggja
bílum við Hraunfossa.
Eldsneytið
á uppleið
Bensínlítrinn hefur hækkað
um 23 krónur frá því verðið
var lægst í fyrrasumar. Þá hef-
ur verðið á dísilolíu hækkað
um 25 krónur á lítrann. Þetta
kemur fram í athugun Félags
íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) fyrir Morgunblaðið.
Costco bauð lægsta verð á
bensíni og dísilolíu í fyrra.
Atvinna