Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 22
Fyrir 4-6
200 g þurrkað vegan nautakjöt
100 g hvítlaukur, rifinn
100 g laukur, hakkaður
1 tsk salt
1 msk sojasósa eða vegan fiskisósa
200 ml sólblómaolía
1/2 tsk chilli sósa
Setjið þurrkað vegan nautakjöt í pott og sjóðið í 10
mínútur. Hellið vatni af og skolið með köldu vatni
og kreistið svo allt vatnið úr.
Hitið pönnu með sólblómaolíunnni og steikið svo
vegannautakjötið í 10 mínútur, þar til brúnað. Setjið
næst hvítlaukinn og laukinn út á pönnuna og saltið og
eldið í 5 mínútur. Bætið næst við sojasósu og chillisósu og
eldið í 2 mínútur.
Gott í samlokur eða með núðlum eða grjónum. Skreytið með
gulrótasneiðum.
Bragðmikið „nautakjöt “
Kristín flutti til Íslands fyrirátta árum og er nú sest hérað, gift íslenskum manni. Hún
hefur brennandi áhuga á matreiðslu
og gerðist vegan fyrir nokkrum árum.
„Ég hef verið vegan bráðum í sex
ár. Mér líður vel af þeim mat og svo
er ég mikill dýravinur. Svo er það líka
gott fyrir umhverfið að vera vegan,“
segir hún.
Kristín á góða víetnamska vinkonu
sem er kokkur sem hefur kennt henni
handtökin en einnig hefur hún lært
mikið af kokkaþáttum í sjónvarpinu.
„Í þessu matarboði bauð ég fólki að
koma heim til mín til að kynna þeim
víetnamskan veganmat,“ segir Krist-
ín.
„Ég þekkti bara eina í hópnum en
hinir voru gestir sem ég hef spjallað
við á netinu en þau tilheyra veganhópi
á Facebook.“
Góðir gestir mættu í boðið hjá
Kristínu en flestir voru úr veg-
anhópi sem er á Facebook.
Vegan frá Víetnam
Hin víetnamska Chang
Pham Thi, sem notar ís-
lenska nafnið Kristín,
kynnir Íslendingum víet-
namskan veganmat. Hún
bauð heim í matarboð og
bar fram girnilegar kræs-
ingar frá heimalandinu,
allt vegan að sjálfsögðu.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
MATUR Algeng hráefni sem notuð eru í Víetnam eru kjöt, sjávarfang, fiskisósa,rækjumauk, sojasósa, hrísgrjón, ávextir, grænmeti, engifer, mynta,
chilli, lime, og thai basil lauf. Maturinn er talinn mjög heilsusamlegur.
Bragð af Víetnam
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018
Fyrir 4-6
500 g frystur veganfiskur, þiðinn
(fæst í Asian eða Vietnam Market)
100 g engiferrót, rifin
1/2 tsk salt
1/4 tsk svartur pipar
300 g tómatar, smátt saxaðir
bútur blaðlaukur, skorinn smátt
Setjið 0,5 ml sólblómaolíu á pönn-
una og hitið. Steikið veganfiskinn
þar til gullinbrúnn. Taktu svo fiskinn
af og geymið til hliðar. Í sömu
pönnu, hellið 0,5 ml olíu ásamt
engiferinu, 1/2 skeið af salti, smá
chilli, tómötunum og blaðlauknum
og eldið í 5 mínútur. Bætið svo fisk-
inum út í sósuna og piprið. Gott
með hrísgrjónum.
„Fiskur“
með engifer
Chang Pham Thi, sem
notar íslenska nafnið
Kristín, galdrar fram
gómsæta rétti.