Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 23
Morgunblaðið/Hari 20.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Fyrir 4-6 600 g tófú (skin tofu) 1 laukur, smátt skorinn 100 g vorlaukur, smátt skorinn 1 stórt hvítlauksrif, rifið 2 tsk grænmetiskraft 1 pakki hrísgrjónapappír 4 tsk túrmerik duft Sjóðið tófúið í vatni í 10 mínutur. Hellið svo vatninu af og setjið kalt vatn á tófúið og kreistið svo vatnið í burtu. Setjið svo tófu, allan laukinn, tvær tsk grænmetiskraft (eða salt) og blandið vel saman. Takið næst hrísgrjónapappír og setjið út í kalt vatn og takið svo strax upp úr vatni. Leggið hrísgrjónapappír á borð og setjið 1,5 skeið af tófú ofan á og rúllið svo þannig að blandan haldist inni með því að pakka inn köntunum. Hitið pönnu og setjið 2 msk olíu út á. Takið „pakkann“ og setjið út á pönnuna og steikið í þrjár mínútur og snúið svo. Þegar það er orðið gyllt er það tilbúið. Berið fram með hrísgrjónum eða hrís- grjónanúðlum. Gott með vegan fiskisósunni. Steikt „egg“ „Rækjur“ á pönnu Fyrir 4-6 500 g frystar veganrækjur (fæst í Asian Market) 100 g engifer, rifin 5 ml sólblómaolía ¼ tsk svartur pipar 150 g blanda af hveiti og hrís- grjónahveiti til helminga og saltað 1/2 tsk salt Blandið 1-2 tsk sólblómaolíu, rifnu engiferi og svörtum pipar saman við rækjurnar. Blandið svo saman hveiti- blöndunni við 180 ml vatn og ½ tsk af salti. Hitið 5 ml af olíu á pönnu. Takið rækjurnar og veltið upp úr deig- blöndunni og setjið svo út í heitu ol- íuna. Steikið veganrækjurnar í olíu- nni þar til gullinbrúnar. Berið fram með sætri chillissósu. Fyrir 4-6 2 msk vegan fisksósa (fæst í Asian Market) 4 msk Maggi sósa (fæst í Asian Mar- ket) 2 tsk sykur 2 lítil hvítlauksrif, rifin 1/2 tsk rautt chilli, saxað 2 tsk sítrónusafi Blandið öllu saman í skál og hrærið. Passar vel með asísk- um mat. Vegan fiskisósa Fyrir 4-6 1 pakki hrísgrjónapappír 150 g þurrkað hakkað vegan „nautakjöt“ (fæst í Nettó eða Vietnam Market) 1 stór laukur, hakkaður 1 blaðlaukur, ca 300 g, skorinn í þunnar sneiðar 3 gulrætur, skornar í litla bita 100 g maískorn (fryst) 100 g hvítkál, skorið smátt 2 tsk salt 2 tsk pipar 550 ml sólblómaolía Sjóðið þurrkaða vegan nautakjötið í um það bil 10 mínútur. Hellið þá vatninu af og skolið með köldu vatni og kreistið svo allt vatn úr því. Hitið 50 ml olíu á pönnu og steikið vegan nautakjötið, laukinn og hvítlaukinn í fimm mínútur. Bætið út á pönnuna hvítkáli, maís, blað- lauk, gulrótum, salti og pipar og hrærið vel. Takið hrísgrjónapappír og bleytið með því að strjúka blautri tusku yfir hvert blað. Á meðan, hitið vel 500 ml olíu á pönnu. Setjið svo eina og hálfa matskeið af vegan kjötblöndunni á hvern pappír og rúllið og lokið hliðunum. Djúpsteikið vorrúllurnar í olíunni þar til gullinbrúnar. Gott að bera fram með sætri chillisósu, hrísgrjónum eða núðlum. Gómsætar vorrúllur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.