Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Síða 23
Morgunblaðið/Hari
20.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Fyrir 4-6
600 g tófú (skin tofu)
1 laukur, smátt skorinn
100 g vorlaukur, smátt skorinn
1 stórt hvítlauksrif, rifið
2 tsk grænmetiskraft
1 pakki hrísgrjónapappír
4 tsk túrmerik duft
Sjóðið tófúið í vatni í 10 mínutur. Hellið svo
vatninu af og setjið kalt vatn á tófúið og kreistið
svo vatnið í burtu. Setjið svo tófu, allan laukinn,
tvær tsk grænmetiskraft (eða salt) og blandið vel
saman. Takið næst hrísgrjónapappír og setjið út í
kalt vatn og takið svo strax upp úr vatni. Leggið
hrísgrjónapappír á borð og setjið 1,5 skeið af tófú
ofan á og rúllið svo þannig að blandan haldist inni
með því að pakka inn köntunum.
Hitið pönnu og setjið 2 msk olíu út á. Takið
„pakkann“ og setjið út á pönnuna og steikið í þrjár
mínútur og snúið svo. Þegar það er orðið gyllt er
það tilbúið. Berið fram með hrísgrjónum eða hrís-
grjónanúðlum. Gott með vegan fiskisósunni.
Steikt „egg“
„Rækjur“ á pönnu
Fyrir 4-6
500 g frystar veganrækjur (fæst í
Asian Market)
100 g engifer, rifin
5 ml sólblómaolía
¼ tsk svartur pipar
150 g blanda af hveiti og hrís-
grjónahveiti til helminga og saltað
1/2 tsk salt
Blandið 1-2 tsk sólblómaolíu, rifnu
engiferi og svörtum pipar saman við
rækjurnar. Blandið svo saman hveiti-
blöndunni við 180 ml vatn og ½ tsk af
salti. Hitið 5 ml af olíu á pönnu. Takið
rækjurnar og veltið upp úr deig-
blöndunni og setjið svo út í heitu ol-
íuna. Steikið veganrækjurnar í olíu-
nni þar til gullinbrúnar. Berið fram
með sætri chillissósu.
Fyrir 4-6
2 msk vegan fisksósa (fæst í Asian
Market)
4 msk Maggi sósa (fæst í Asian Mar-
ket)
2 tsk sykur
2 lítil hvítlauksrif, rifin
1/2 tsk rautt chilli, saxað
2 tsk sítrónusafi
Blandið öllu saman í skál og
hrærið. Passar vel með asísk-
um mat.
Vegan fiskisósa
Fyrir 4-6
1 pakki hrísgrjónapappír
150 g þurrkað hakkað vegan „nautakjöt“ (fæst í
Nettó eða Vietnam Market)
1 stór laukur, hakkaður
1 blaðlaukur, ca 300 g, skorinn í þunnar sneiðar
3 gulrætur, skornar í litla bita
100 g maískorn (fryst)
100 g hvítkál, skorið smátt
2 tsk salt
2 tsk pipar
550 ml sólblómaolía
Sjóðið þurrkaða vegan nautakjötið í um það bil 10 mínútur. Hellið
þá vatninu af og skolið með köldu vatni og kreistið svo allt vatn úr
því.
Hitið 50 ml olíu á pönnu og steikið vegan nautakjötið, laukinn og
hvítlaukinn í fimm mínútur. Bætið út á pönnuna hvítkáli, maís, blað-
lauk, gulrótum, salti og pipar og hrærið vel.
Takið hrísgrjónapappír og bleytið með því að strjúka blautri
tusku yfir hvert blað. Á meðan, hitið vel 500 ml olíu á pönnu.
Setjið svo eina og hálfa matskeið af vegan kjötblöndunni á hvern
pappír og rúllið og lokið hliðunum.
Djúpsteikið vorrúllurnar í olíunni þar til gullinbrúnar.
Gott að bera fram með sætri chillisósu, hrísgrjónum eða núðlum.
Gómsætar vorrúllur