Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Blaðsíða 29
20.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Meira til skiptanna Þjóðgarðurinn Theth hefur margt uppá að bjóða. Náttúran er óspillt og fjallaþorpin líka; tíminn virðist hafa staðið í stað í sumum þeirra svo tilfinningin er næstum eins og að ferðast aftur í tímann. Auðveldara hefur verið að ferðast um Prokletije- fjöllin, sem ná fram Alb- aníu til Kosovo og aust- urhluta Svartfjallalands eftir að ný gönguleið, „Toppar Balkanskagans“ var opnuð árið 2012. Ferðalangar gista gjarnan í heimagistingu í gömul steinhúsum á bóndabæj- um þar sem boðið er uppá mat úr héraði. Aftur í tímann THETH, ALBANÍU Annecy er heillandi borg á sumr- in, með fallegum síkjum og svo er bæjarstæðið einstakt við sam- nefnt vatn, eitthvert það hrein- asta í Evrópu. Fjöllinn í kring ramma vatnið inn og eru margar litlar strendur við vatnið. Þarna er hægt að stunda fjölmargar vatna- íþróttir, þar á meðal að láta bát draga sig áfram á bretti. Líka er hægt að fara í ýmiss konar sigl- ingar á stórum sem smáum bát- um. Á hverju ári er haldin hátíð í Annecy sem kallast, Fête du Lac (4. ágúst) en þá er meðal annars hægt að horfa á mikilfenglega flugeldasýningu yfir vatninu. Vatnaíþróttir og flugeldasýning ANNECY, FRAKKLANDI Þessi bær er þekktur fyrir skíðaíþróttir en hann hefur ekki minna upp á að bjóða á sumrin. Gönguleiðirnar eru margar en fyrir þá sem vilja bara virða fyrir sér útsýnið er hægt að fara upp í mikla hæð í kláfi og skoða hið tignarlega fjall Mont Blanc. Bærinn sjálfur er sérstaklega fallegur með skemmtilegum byggingum og beljandi jökulá. Þar er líka hægt að versla, ekki síst eru útivistar- búðir margar. Ævintýragjarnar fjölskyldur ættu að heim- sækja ævintýragarðinn við borgina (www.chamo- nixparc.com). Hann er við hæfi allrar fjölskyld- unnar. Hægt er að fara í fjallarússíbana, langar rennibrautir og farartæki af ýmsu tagi auk þess að leika á leikvöllum og hoppa á trampólínum. Ævintýragarður og kláfferð CHAMONIX, FRAKKLANDI Skadar-vatn liggur alveg upp að Albaníu og er umkringt fallegri sveit og fjöllum. Þar er hægt að synda eða fara á kanó og er ólík- legt að maður hitti marga ferða- langa heldur frekar einstaka veiðimann á gömlum trébáti. Við vatnið, sem er það stærsta á Balkanskaganum, er friðlýst svæði, þjóðgarður frá árinu 1983. Þarna er eitt helsta fuglaskoðunarsvæði í Evrópu. Helstu þorpin eru Virpazar og Vranjina. Skadar er vinsælt svæði hjá íbúum höfuðborgarinnar Podgo- rica, sem flýja sumarhitann í borginni til að dvelja við vatnið. Fuglaskoðun og rólegheit SKADAR, SVARTFJALLALANDI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.