Fréttablaðið - 27.07.2018, Síða 4
LANDBÚNAÐUR „Þetta sýnir að það
eru möguleikar til hagræðingar.
Það er ljóst miðað við þær kannanir
sem hafa verið gerðar meðal bænda
að það er vilji hjá þeim til að skoða
breytingar,“ segir Svavar Halldórsson,
framkvæmdastjóri markaðsstofunn
ar Icelandic lamb, um nýútkomna
úttekt KPMG á afurðastöðvum.
Sú ályktun er dregin í úttektinni að
arðsemi í virðiskeðju sauðfjárbænda,
það er „frá bónda til búðar“, sé
óásættanleg. Bent er á að framleiðsla
á kindakjöti hafi vaxið umfram inn
lenda neyslu undanfarin ár. Útflutn
ingur á umframframleiðslunni hafi
aukist en við núverandi aðstæður
sé framleiðslukostnaður hærri en
heimsmarkaðsverð og meðal útflutn
ingsverð.
Svavar segir sum útflutningsverk
efni ganga vel en önnur ekki. „Gengi
krónunnar hefur haft áhrif. Það er
samt þannig að ef ekki á að draga
mikið saman í sauðfjárrækt, verður
að vera hægt að flytja út þá hluta af
lambinu sem ekki seljast hér.“ Hann
segir vilja hjá bændum að skoða
stofnun sameiginlegs útflutnings
fyrirtækis. „Svo höfum við náð
árangri í markaðssetningu fyrir ferða
menn. Neysla þeirra er að aukast.“
Meðal leiða sem nefndar eru í hag
ræðingarskyni er fækkun afurða
stöðva og að kannaðir verði kostir
þess að minnka framleiðsluna þar til
jafnvægi næst milli framboðs og inn
lendrar eftirspurnar.
Oddný Steina Valsdóttir, formaður
Landssambands sauðfjárbænda,
segir að þótt gagnlegar upplýsingar
sé að finna í umræddri úttekt, hefði
hún viljað sjá meira afgerandi niður
stöður og tillögur. „Það þarf að skoða
allt verðmyndunarferlið, frá bónda til
neytanda.“
Hún segir að tillögurnar þurfi að
skoða vel og hagræða þurfi alls staðar
þar sem hægt er. „Við höfum lagt á
það áherslu að það geti verið skyn
samlegt að draga úr framleiðslunni.
En það þarf líka að efla afurðastöðv
arnar. Það blasa við möguleikar en
það þarf að hugsa þetta með tilliti til
hagsmuna bænda og neytenda.“
Brynhildur Pétursdóttir, fram
kvæmdastjóri Neytendasamtak
anna, tekur undir það að fækka megi
afurðastöðvum, þó þannig að eðlileg
samkeppni verði tryggð.
„Framleiðslan er of mikil. Það
þarf að draga úr henni þannig að við
séum að framleiða fyrst og fremst
fyrir innanlandsmarkað. Þótt ein
hver útflutningur sé eðlilegur verður
áhættan sem honum fylgir að vera á
ábyrgð framleiðenda sjálfra.“
Hún segist hafa efasemdir um að
skynsamlegt sé að halda áfram að
framleiða í stórtækum mæli fyrir
erlenda markaði. „Það ætti að vera
næg áskorun að halda í heimamark
aðinn og fá ferðamenn til að borða
meira af okkar innlendu framleiðslu.“
Endurskoðun á samningi um
starfsskilyrði í sauðfjárrækt stendur
yfir og er gert ráð fyrir að úttekt
KPMG verði innlegg í þá vinnu.
sighvatur@frettabladid.is
Minni framleiðsla og fækkun
afurðastöðva meðal tillagna
Fækkun afurðastöðva og minnkun kindakjötsframleiðslu eru meðal hagræðingarleiða sem nefndar eru í
úttekt KPMG. Arðsemi sauðfjárbænda talin óásættanleg. Formaður Landssambands sauðfjárbænda segir
að hagræða þurfi þar sem það sé hægt. Mikilvægt sé að hugsa málið út frá hagsmunum bænda og neytenda.
Formaður Landssambands sauðfjárbænda hefði viljað sjá meira afgerandi tillögur í úttekt KPMG. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þótt einhver út-
flutningur sé
eðlilegur verður áhættan
sem honum fylgir að vera á
ábyrgð framleiðenda sjálfra.
Brynhildur Pétursdóttir, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtakanna
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR FRÁ 16. JÚNÍ TIL OG MEÐ 4. ÁGÚST
®
DÍSEL 2.0L 170 HÖ, 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING. FULLT VERÐ 5.985.000 KR.
AUKAHLUTIR: 18” ÁLFELGUR, BAKKMYNDAVÉL OG LITAÐ GLER. AÐEINS 3 BÍLAR Í BOÐI.
JEEP 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
600.000 KR. AFSLÁTTUR. TILBOÐSVERÐ 5.385.000 KR.
®
JEEP COMPASS LIMITED OPENING EDITION®
jeep.is
BRetLAND Þrjú stærstu dagblöð
breska gyðingasamfélagsins prent
uðu í gær samræmda forsíðu. Blöðin
birtu leiðara þar sem því var haldið
fram að samfélagi gyðinga á Bret
landi stafaði ógn af þeim möguleika
að Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka
mannaflokksins, kæmist til valda.
„Þetta gerum við af því að flokkur
inn sem var, þar til nýlega, náttúru
legt heimili okkar samfélags hefur
breyst vegna fyrirlitningar Corbyn
liða í garð gyðinga og Ísraels. Þessi
smánarblettur gyðingahaturs hefur
fest á stjórnarandstöðunni eftir að
Jeremy Corbyn varð leiðtogi hennar
árið 2015,“ sagði meðal annars í
leiðaranum.
Ásakanir um andúð á gyðingum
hafa plagað Verkamannaflokkinn
undanfarna mánuði. Það leiddi til
þess að flokkurinn uppfærði reglur
sínar í síðustu viku. Þær breyt
ingar voru þó ekki nógu miklar, að
mati ritstjórna dagblaðanna
þriggja. „Sú þrjóska Verka
mannaflokksins að innleiða
ekki að fullu skilgreiningu
Alþjóðlega minningarbanda
lagsins um helförina (IHRA) á
gyðingaandúð, sem leiddi
til þess að þingmaður
flokksins, Margaret
Hodge, sagði við leiðtoga sinn
að hann væri gyðingahatari, er
versta móðgunin til þessa.“
Helsti munurinn á nýjum
reglum flokksins og skil
greiningar IHRA er sá, að
mati ritstjórnanna,
að í reglum Verka
mannaflokksins er
ekki kveðið á um að
samanburður Ísra
elsríkis við Þýska
land nasismans jafngildi gyðinga
hatri né að það sé gyðingahatur að
segja tilvist Ísraelsríkis sjálfa rasíska.
Umræðan um skilgreiningu á gyð
ingahatri hefur klofið Verkamanna
flokkinn. Corbyn og skugga ráðherrar
hans eru í minnihluta í umræðunni.
Á mánudag var samþykkt að þing
menn flokksins muni greiða atkvæði
um það í september hvort innleiða
skuli skilgreiningu IHRA að fullu í
reglur flokksins. – þea
Forsíður og leiðarar gegn Jeremy Corbyn og Verkamannaflokknum
DÓMSMÁL Bubbi Morthens og
RÚV voru í Héraðsdómi Reykja
víkur dæmd til að greiða Steinari
Berg Ísleifssyni miskabætur vegna
ummæla sem féllu í sjónvarpsþátta
röðinni Popp og rokksaga Íslands.
Þá voru ummælin, auk ummæla
sem Bubbi lét falla á Facebook og
í viðtölum, dæmd dauð og ómerk.
Samkvæmt dómnum eiga Bubbi
og RÚV að greiða Steinari 250 þús
und krónur hvort auk dráttarvaxta
og samtals tvær milljónir í máls
kostnað. Dómurinn sýknaði Bubba
af kröfu Steinars um að sá fyrrnefndi
skyldi dæmdur til refsingar.
Forsaga málsins er sú að í 7. þætti
umræddrar þáttaraðar ræddi Bubbi
um samskipti sín við Steinar plötu
útgefanda á árunum 19801984. Þar
sagði Bubbi að útgefandinn hefði
„mokgrætt“ á hljómsveit hans, Egó.
Að mati dómsins sé um að ræða
staðhæfingu um staðreynd sem ekki
hafi verið sönnuð.
Þá kemur fram í dómnum að
RÚV hafi af stórfelldu gáleysi endur
sýnt umræddan þátt. Þeim sé ekki
heimilt að sýna þáttinn aftur nema
ummælin verði fjarlægð. – sar
RÚV og Bubbi
greiði bætur
Bubbi Morthens.
Jeremy Corbyn
UMfeRÐ Umferð um landið hefur
aldrei verið meiri í júnímánuði en í
ár, samkvæmt mælingum Vegagerð
arinnar. Að jafnaði fóru 100.622 bílar
á dag yfir 16 „lykilteljara“ á þjóðvegi
1 víðsvegar um landið. Það eru um
þúsund fleiri bílar á dag en í fyrra.
Umferðin jókst mest á Suðurlandi
en þar fóru að jafnaði 6,4 prósent
fleiri bílar um nú en í fyrra. – bg
Metumferð um
hringveginn
2 7 . j Ú L í 2 0 1 8 f Ö S t U D A G U R4 f R é t t i R ∙ f R é t t A B L A Ð i Ð
2
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
9
-9
D
E
C
2
0
7
9
-9
C
B
0
2
0
7
9
-9
B
7
4
2
0
7
9
-9
A
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K