Fréttablaðið - 27.07.2018, Qupperneq 6
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Krónan
mælir með!
599 kr.pk.
Fylltir hamborgarar, 2x120 g
149 kr.pk.
Gestus snakk, 175 g
Gott með
borgaranu
m
reykjanesbær Þrátt fyrir lélegt
ástand hefur Sundhöll Keflavíkur,
sem hönnuð var af Guðjóni Samú-
elssyni, hátt varðveislugildi vegna
byggingarlistar hússins og menn-
ingarsögu. Breytingar sem hafa
verið gerðar á húsinu í gegnum tíð-
ina eru að verulegu leyti afturkræfar
og listrænt gildi þess nokkuð. Þetta
kemur fram í óháðu mati sem gert
var á Sundhöll Keflavíkur.
Í júní óskaði húsafriðunarnefnd
eftir því að Minjastofnun myndi
leggja rökstutt mat á varðveislu-
gildi sundhallarinnar. Nokkur styr
hefur staðið um húsið en eigandi
þess, Vatnsnessteinn ehf., stefnir að
því að láta rífa húsið og byggja þar
fjölbýlishús. Hollvinasamtök sund-
hallarinnar hafa barist fyrir því að
húsið fái að standa.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
veittu í upphafi árs leyfi fyrir því að
rífa húsið, en Fréttablaðið greindi
frá því í mars að það var atkvæði
bróðurdóttur eiganda hússins sem
réð úrslitum í ákvörðun umhverf-
is- og skipulagsráðs Keflavíkur um
nýtt deiliskipulag á reitnum þar sem
Sundhöllin stendur.
Matið á húsinu var unnið af
Hjörleifi Stefánssyni arkitekt.
Meta átti fimm þætti; byggingar-
list þess, menningarsögulegt gildi,
umhverfis gildi, upprunaleika-
gildi og tæknilegt ástand hússins.
„Heildarniðurstaða Hjörleifs er sú
að tæknilegt ástand byggingarinnar
er mjög slakt. Sé litið til byggingar-
listarinnar, eins og húsið stendur
núna, þá skorar það ekki hátt en
það er hægt að taka til baka breyt-
ingar sem gerðar hafa verið á því í
gegnum tíðina,“ segir Þór Hjaltalín,
sviðstjóri hjá Minjastofnun.
Ysta byrði hússins er í slæmu
ástandi en um timburklæðningu
er að ræða að stærstu leyti. Undir
henni leynist þó upprunalega
húsið frá 1944. Þaki var bætt á höll-
ina 1951 og í matinu segir að unnt
sé að færa húsið aftur í það mót
með auðveldum hætti.
„Breytingar sem gerðar hafa
verið á mannvirkinu frá árinu 1944
hafa rýrt gildisþætti, yfirbyggingin
jók við notagildið en dró heldur
úr listrænu gildi. Útivistarsvæðið
bætti notagildið en rýrði list-
rænt gildi til muna en út yfir allan
þjófabálk tók með breytingu á
þakbrúnum og timburklæðningu
útveggjanna sem voru til verulegs
skaða fyrir gildi hússins,“ segir í
mati Hjörleifs.
„Staðan núna er þannig að þessi
skýrsla verður send húsafriðunar-
nefnd sem mun funda um málið
13. ágúst. Þá verður tekin afstaða til
þess hver næstu skref eiga að vera
og hvort friðlýsa skuli húsið,“ segir
Þór. joli@frettabladid.is
Framtíð Sundhallarinnar ræðst
á fundi húsafriðunarnefndar
Ysta byrði hússins er í slæmu ástandi en um timburklæðningu er að ræða að stærstu leyti. Undir henni leynist þó upprunalega húsið frá 1944.
Húsafriðunarnefnd mun
funda um framtíð Sund-
hallar Keflavíkur. Bærinn
veitti leyfi til að rífa bygg-
inguna. Í óháðu mati
á gildi hússins segir að
breytingar á því í gegnum
tíðina hafi rýrt það.
Grikkland Íbúar á Attíkuskaga bera
sjálfir ábyrgð, að hluta til, á skógar-
eldunum sem hafa kostað 83 lífið
hið minnsta á Attíkuskaga Grikk-
lands. Þetta sagði Panos Kammenos,
varnarmálaráðherra Grikklands
og stofnandi þjóðernispopúlista-
flokksins Sjálfstæðir Grikkir. Hann
hafnaði því alfarið að stjórnvöld
hafi brugðist Attíkuskagamönnum,
líkt og ríkisstjórnin hefur verið
sökuð um.
„Þetta er gamall glæpur. Strönd
Aþenu, allar þessar fasteignir,
meirihluti þeirra er reistur í leyfis-
leysi og íbúar hafa sölsað undir sig
ströndina í algjörri lögleysu,“ sagði
Kammenos í viðtali við BBC gær
og vildi meina að hin leyfislausa
byggð hafi staðið í vegi fyrir fólki
sem reyndi að flýja eldana.
Kammenos heimsótti bæinn
Mati, sem varð verst úti í eldunum,
og var samstundis umkringdur
reiðum og sárum íbúum. „Þú leyfðir
fólki að brenna að ástæðulausu,“
mátti heyra konu hrópa að ráðherr-
anum í myndbandi sem BBC birti.
Fjölmargir Grikkir eru ósáttir
við viðbrögð ríkisstjórnar Alexis
Tsipras forsætisráðherra við eld-
unum. Í umfjöllun CNBC sagði að
Grikkjum þætti óásættanlegt að
engin skýr áætlun hafi verið til svo
að hægt væri að forða íbúum undan
hamförunum. – þea
Sagði íbúa
bera ábyrgð á
skógareldunum
Viðskipti Markaðsvirði samfélags-
miðlarisans Facebook lækkaði um
fimmtung í gær. Virði fyrirtækisins
lækkaði um meira en 120 milljarða
Bandaríkjadala, andvirði 12,6 billj-
óna króna, að því er Bloomberg
greinir frá. Um er að ræða mesta
hrun fyrirtækis á einum degi í
Bandaríkjasögunni.
Á miðvikudaginn birti Facebook
tölur um auglýsingasölu og vöxt fyrir
annan ársfjórðung þessa árs og voru
þær tölur talsvert lægri en grein-
endur höfðu gert ráð fyrir. Svo virðist
því sem hneykslismál undanfarinna
mánaða, einkum tengd vafasamri
meðferð persónulegra upplýsinga,
hafi haft afar neikvæð áhrif á veldi
Marks Zuckerberg forstjóra. – þea
Facebook
hrynur í verði
2 7 . j ú l í 2 0 1 8 F Ö s t U d a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
2
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
9
-B
1
A
C
2
0
7
9
-B
0
7
0
2
0
7
9
-A
F
3
4
2
0
7
9
-A
D
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K