Fréttablaðið - 27.07.2018, Síða 8

Fréttablaðið - 27.07.2018, Síða 8
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Tæknifrjóvg- anir eru meiriháttar fjárfesting og fólk er reiðubúið að greiða fyrir þessa með- ferð, með eða án stuðnings, því ekki verður settur verðmiði á það að vera foreldri. Þetta kemur okkur á óvart sem höfum tilhneigingu til að líta á evrópskar borgir sem griðastað fólks af ólíkum uppruna. N íu mánuðum eftir að sæði og egg-fruma áttu stefnumót í ræktunar-skál á rannsóknarstofu á Bretlandi – undir hárréttum kringumstæðum og vökulu auga vísindamanns – kom Louise Brown í heiminn þann 25. júlí árið 1978, á Oldham-sjúkrahúsinu í Manchester. Louise litla var fyrsta glasabarnið. Um þessar mundir eru fjörutíu ár liðin frá því að þessi nútímalega ástar- saga átti sér stað. Fæðing Louise Brown er eitt mesta afrek vísinda- sögunnar. Ekki minna afrek en tunglgangan níu árum áður. Tæknifrjóvgun hefur tekið gríðarlegum framförum undanfarna áratugi, og er í dag sam- heiti yfir nokkrar meðferðir við ófrjósemi, eins og glasafrjóvgun, smásjárfrjóvgun, uppsetningu frystra fósturvísa og tæknisæðingar. Foreldrar Louise Brown voru þeir fyrstu sem eignuðust barn eftir tæknifrjóvgun og síðan þá hafa sex milljónir foreldra gert slíkt hið sama. Þar á meðal eru foreldrar íslensks drengs sem varð þrítugur fyrr á þessu ári. Íslendingar fengu fyrsta glasabarnið árið 1988. Í dag eiga 3,3 til 4,3 prósent allra fæðinga á Íslandi rætur að rekja til tæknifrjóvgunar. Tæknifrjóvgun hefur á tiltölulega stuttum tíma bylt hugmyndum okkar um hina hefðbundnu fjöl- skyldu. Með tækninni hefur það ekki aðeins breyst hvernig við eignumst börn, heldur hverjir geta eignast börn. Í dag geta gagnkynhneigð pör sem glíma við ófrjósemi fengið tækifæri til að eignast barn, sama á við um lesbíska konu sem vill bera egg konu sinnar. Einhleyp kona getur freistað þess að eignast barn án aðkomu karlmanns. Allir eiga skilið þann möguleika að geta eignast barn, og með tæknifrjóvgun er það í flestum tilfellum raunin, sama hvort einstaklingurinn glímir við líkamlega eða félagslega ófrjósemi. Tæknifrjóvganir eru og verða vettvangur umræðu um flókin siðferðileg álitamál. Slíkt hlýtur að vera vitnisburður um heilbrigt samfélag, þar sem skiln- ingur er á því að grundvallarbreyting á grunnstofnun samfélagsins, fjölskyldunni, þarf að eiga sér stað samhliða upplýstri umræðu. Um leið þarf að ganga úr skugga um að fjárhagur einstaklings eða pars komi ekki í veg fyrir að þau geti reynt að eignast barn. Tæknifrjóvganir eru dýrar og ekki á allra færi. Þrátt fyrir stuðning ríkis og stöku stéttarfélaga. Hér á landi er fyrsta meðferð ekki niðurgreidd og einstaklingar sem eiga barn fyrir fá ekki niðurgreidda meðferð frá ríkinu. Þetta er ekki raunin annars staðar á Norður- löndum. Þessu þarf að breyta, enda er það á end- anum þjóðhagslega hagkvæmt, bæði út frá mikilvægi þess að viðhalda eðlilegri fólksfjölgun, sem farið hefur hratt minnkandi, og út frá hamingju og velferð einstaklingsins. Tæknifrjóvganir eru meiriháttar fjár- festing og fólk er reiðubúið að greiða fyrir þessa með- ferð, með eða án stuðnings, því ekki verður settur verðmiði á það að vera foreldri. 40 árum seinna Simbi refsivöndur Héraðsdómur dæmdi í gær- morgun dauð og ómerk ummæli sem Bubbi Morthens lét falla um Steinar Berg í þættinum Popp- og rokksaga Íslands. Ríkisútvarpinu er í dómnum uppálagt að birta dómsorð og að greiða Steinari 250 þúsund krónur í miskabætur auk máls- kostnaðar. Í Efstaleitinu virðist fólk hafa ákveðið snarlega að refsa Bubba lymskulega fyrir að hafa komið stofnuninni í þennan bobba með orðbragði sínu. Eftir hádegisfréttir var lag Hauks Morthens um Simba sjómann leikið í flutningi Bubba en sú afgreiðsla stenst tæpast samanburð við flutning Hauks á lagi sínu. réttnefni Mannanafnanefnd reynist þeim oft erfið sem vilja breyta nafni sínu. Skemmst er að minnast baráttu Jóns Gnarr fyrir að fá að bera það nafn. Goðsögnin Sæmi rokk hefur nú fengið grænt ljós og má kenna sig við rokkið í þjóðskrá. Þessi tilslökun gæti opnað á ýmsa skemmtilega möguleika og þannig upplýsir Eiríkur Jónsson á vef sínum að Gunnar L. Hjálmarsson íhugi að skipta yfir í Dr. Gunni. Þá veltir Stefán Pálsson sagnfræðingur fyrir sér hvort Villi naglbítur, Heiða í Unun, Biggi Maus og fleiri muni standast þrýstinginn. Eða kannski frekar freistinguna. thorarinn@frettabladid.is Fréttir bárust af því í vikunni að ímam (klerkur múslima) nokkur í Danmörku hafi verið ákærður fyrir að hvetja í prédikun sinni til morða á gyðingum. Líkt og hér á landi er það refsivert í Danmörku að hvetja til refsiverðs verknaðar. Málflutningur af þessu tagi á auðvitað ekkert skylt við tján- ingar frelsi það sem við viljum standa vörð um og er nokkuð til umfjöllunar þessi dægrin. Við hér á Íslandi höfum sem betur fer ekki þurft að bregðast við andstyggilegri ræðu eins og þessari. Ég vil leyfa mér að vona að það sé vegna þess að Íslendingar eru almennt vel upp aldir í góðum siðum og náungakærleik, vel upplýstir og umburðarlyndir þótt við séum mögulega þrætu- gjörn og stundum stóryrt á opinberum vettvangi. Hatur á einstökum hópum manna, sem endur- speglast í máli áhrifavalds eins og því sem nú verður ákært fyrir í Danmörku, þekkjum við ekki hér á landi og skulum aldrei kynnast. Ég funda reglulega með dóms- og innanríkis- ráðherrum sem fara með löggæslu- og öryggis- mál á landamærum í Evrópusambandinu vegna Schengen samstarfsins. Austurríki tók nýverið við formennsku í ráðherraráði ESB. Á óform- legum fundi sem Austurríki boðaði til um daginn var fjallað sérstaklega um vaxandi gyðingahatur í Evrópu. Sérstakir gestir fundarins voru m.a. fulltrúar samtaka gyðinga í Evrópu sem lýstu ótrúlegu öryggisleysi gyðingafjölskyldna í stór- borgum Evrópu. Þetta kemur okkur á óvart sem höfum tilhneigingu til að líta á evrópskar borgir sem griðastað fólks af ólíkum uppruna. Það var vægast sagt fróðlegt að heyra lýsingar kollega minna á aðgerðum sem ríkin hafa þurft að grípa til til að stemma stigu við þessari óværu til viðbótar við almenna öryggisgæslu á götum úti. Það er til marks um áhyggjur manna af þessari þróun að gyðingahatur hafi yfirleitt verið til sérstakrar umræðu á þessum nýlega ráðherra- fundi. Ógnandi ummæli Sigríður Á. Andersen dómsmála- ráðherra 2 7 . j ú l í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R8 S k o ð U n ∙ F R É T T A B l A ð i ð SKOÐUN 2 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 7 9 -A C B C 2 0 7 9 -A B 8 0 2 0 7 9 -A A 4 4 2 0 7 9 -A 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.