Morgunblaðið - 02.06.2018, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Stokkhólmur er vel settur hvaðplötubúðir varðar og endur-reisn vínylsins sem afspil-
unarforms og kjörgrips sem kætir
safnarann hefur gert að verkum að
rekstrargrundvöllur búðanna er að
styrkjast. Bæði eru eldri og ráðsett-
ari búðir farnar að sjá til sólar eftir
mögur ár og einnig njóta spánnýjar
verslanir af sama tagi þess að eftir-
spurnin er stöðug nú um stundir og
útgáfa eykst með hverju árinu.
Svipaða þróun hefur maður séð
í Reykjavík, en við erum ágætlega
sett hvað svona búðir varðar miðað
við stærð borgarinnar. Merkilegt, að
nú er geisladiskurinn úti í horni á
meðan vínyllinn tekur upp allt spari-
pláss, en þessu var öfugt farið fyrir
Stokkhólmsheilkennið
Tveir „vinir“ Höfundur ásamt eiganda plötuverslunarinnar Got to Hurry Records í Stokkhólmi.
kvartöld eða svo. Búðirnar í Stokk-
hólmi eru nokkrir tugir, og eru af
alls kyns meiði, en þrjár þeirra sótti
ég heim sérstaklega. Ég var búinn
að fá leiðarvísi frá íslenskum tón-
bróður í Stokkhólmi en fyrstu búð-
ina rambaði ég þó óforvarandis inn
í, gekk fram á skilti sem á stóð „Got
to Hurry Records“. Ég einfaldlega
hlýddi þessu og flýtti mér inn í
hliðargötu í gamla bænum þar sem
búðin lúrði.
Í ljós kom að um sérvörubúð
var að ræða en undir voru plötur að
langmestu leyti frá sjöunda og átt-
unda áratugnum. Allar þær sveitir
sem fóru mikinn í þá tíð, frá Love, til
Pink Floyd, Kinks, ELP, Bítla, Doors
o.s.frv., hafa notið veglegra vínyl-
endurútgáfna á síðustu árum og allt
blasti þetta þarna við. Eigandinn,
frumeintakið sem hann var, vinaleg-
ur mjög og fyrr en varði vorum við
komnir á bólakaf í narðaspjall. Hann
reif m.a. upp forláta eintak af Ice-
cross-plötunni goðsagnakenndu og
Trúbrot og Svanfríði bar á góma.
Næst var það þungarokksbúðin
Sound Pollution, glæsileg verslun
þar sem þungarokk af öllum
stærðum og gerðum var á boð-
stólum. Afgreiðslumaðurinn, með
sítt skegg og hár, þekkti Kötlu, Sól-
stafi og hina færeysku Hamferð og
það var gaman að spjalla við hann.
Vínyláhugamenn þekkja þetta, það
er eins og maður sé kominn „heim“
þegar maður fer inn í svona búðir.
Maður er heill, einhvern veginn.
Síðasta búðin sem ég heiðraði með
nærveru minni var Pet Sounds,
hefðbundin „hipstera“-búð sem
maður finnur í flestum stórborgum.
Starfsmennirnir á sextugsaldri og í
„Jazz Festival“ bol, með grátt í
vöngum, þykk gleraugu og í Con-
verse-skóm. Og endurútgáfa af
Crooked Rain, Crooked Rain með
Pavement á fóninum.
Höfum það á hreinu að ýmislegt
sem sagt er um Svía er hreina satt.
Allar búðirnar sem ég heimsótti
voru yfirmáta snyrtilegar, allt var
„kassalaga“, allt á tæru. Þetta er
blessun Svíanna og bölvun um leið.
Eða eiga þungarokkarar að ilma?
» Vínyláhugamennþekkja þetta, það er
eins og maður sé kom-
inn „heim“ þegar maður
fer inn í svona búðir.
Maður er heill, einhvern
veginn.
Pistilritari sótti Stokk-
hólm heim um síðustu
helgi og brá sér að
sjálfsögðu í nokkrar
plötubúðir. Þær voru
„sænskar“ mjög, eins
og við mátti búast.
Í hátt í tuttugu gluggum í miðborg-
inni, í fyrirtækjum og heimahúsum,
verður opnuð á morgun, sunnudag,
göngusýningin Leiðin heim. List-
stofnunin Wind and Weather Gall-
ery, sem starfrækir sýningarglugga
á Hverfisgötu 37, stendur að sýning-
unni og verkin eru eftir valinkunna
íslenska listamenn og erlenda sem
búsettir eru hér á landi. Þar á meðal
eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Helgi
Þorgils Friðjónsson, Claudia Haus-
feld, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hrafn-
kell Sigurðsson, Theresa Himmer
og Rebecca Erin Moran. Á korti sem
útbúið hefur verið má sjá staðsetn-
ingu sýningarglugganna og býður
framkvæmdin upp á forvitnilega
gönguferð um miðbæinn.
Hluti af sýningunni er færanlegt
gallerí, Dragsúgur, sem mun vera
staðsett á nokkrum stöðum í borg-
inni næstu vikur en til að byrja með
á Austurvelli þar sem gestir geta
fengið sér ódýran espressó-
kaffibolla í innsetningu Egils Sæ-
björnssonar og Ívars Glóa.
Kathy Clark rekur Wind and
Weather Gallery og er sýningar-
stjóri ásamt Annabelle von Grise-
wald. „Listamennirnir takast allir á
við, og hver á sinn hátt, hugmyndina
um „ferðina heim“ sem vísað er til í
heiti sýningarinnar,“ segir Kathy.
Og hún segir verkin unnin í hina
ýmsu miðla og vera einstaklega fjöl-
breytileg. „Meðan á Listahátíð
stendur munum við sjö sinnum
bjóða upp á leiðsögn, gönguferð á
milli allra hluta sýningarinnar,“
segir hún en lagt verður af stað frá
Klúbbi Listahátíðar í Hafnarhúsinu.
Fyrsta leiðsögnin verður eftir opn-
unina þar á morgun klukkan 16.
„Ég skapaði Dragsúg, færanlegt
gallerí sem er nákvæm eftirmynd
gluggagallerísins míns á Hverfis-
götu 37, og hefur það nánast öðlast
sjálfstætt líf. Allar sýningarnar eru
skoðaðar utan frá, af götunni, nema
það er hægt að fara inn í Dragsúg.
Við opnuðum innsetningargjörning
Egils og Ívars, espressóbarinn, í
honum við Hverfisgötu um síðustu
helgi. Barinn er opinn frá 10 til 18
alla daga og ferðast núna niður í bæ,
verður kominn á Austurvöll á sunnu-
dag og mun vonandi verða vel sóttur
þar. Eftir 9. júní taka aðrir lista-
menn Dragsúg yfir, Styrmir Örn
Guðmundsson og Agata Mickiewicz,
verða við Hallgrímskirkju og færa í
verki sínu næturmyrkur yfir Ísland í
júní,“ segir Kathy.
Nokkrir gjörningar verða í
tengslum við Dragsúg á næstunni en
hann snýr heim á Hverfisgötu 21.
júní, undir lok Listahátíðar, og verð-
ur fagnað með götuveislu. efi@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Sýningarstjórarnir Kathy Clark og Annabelle von Grisewald í Dragsúgi, færanlega galleríinu sem var í gær fyrir
framan Wind and Weather Gallery á Hverfisgötu 37 þar sem einn hluti göngusýningarinnar er settur upp.
Fjölbreytileg glugga-
verk á göngusýningu
„Eftir að fyrsta tónleikahelgi Ljótu
hálfvitanna á Hard Rock Cafe tókst
líka svona fáránlega frábærlega
var aðeins tímaspursmál hvenær
leikurinn yrði endurtekinn. Nú er
það komið á hreint,“ segir í tilkynn-
ingu frá hljómsveitinni Ljótu hálf-
vitunum sem kemur fram á fyrr-
nefndum stað, Hard Rock Cafe, í
kvöld kl. 22.
„Það er ekki útlit fyrir að frekari
tækifæri gefist til að hlýða á Hálf-
vitana leika listir sínar hér sunnan
heiða í sumar svo allt verður lagt
undir, ekkert til sparað, öll spil lögð
á borðið og svo framvegis og svo
framvegis,“ segir enn fremur og að
forsala miða fari fram á tix.is en
þeir verða einnig seldir við inn-
gang.
Ljótu hálfvitarnir aftur á Hard Rock
Morgunblaðið/Kristinn
Hálfvitagangur Nokkrir hinna Ljótu
hálfvita fyrir ansi mörgum árum.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Sun 10/6 kl. 20:00 Lokas.
Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Allra síðustu sýningar!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 2/6 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar um helgina!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 2/6 kl. 20:30 aukas. Fös 8/6 kl. 20:30 Lokas.
Tilnefnd til sex Grímuverðlauna. Allra síðustu sýningar.
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200