Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 28

Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 28
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson það var ekki alveg ljóst hver ætti að annast dagskrána, og ekki hver sem er fær um að taka verkefnið að sér enda fylgir því umtalsverður kostnaður að halda svona hátíð. Nú hafa Akureyr- arstofa og Sjómannafélag Eyjafjarðar tekið höndum saman um að snúa þessu við og er stefnt að því að hátíðin fái aftur sinn fyrri sess. Við erum ánægð með þá stórfínu dagskrá sem tókst að setja saman í ár og hyggjumst halda enn glæsilegri sjómannadag á næsta ári.“ Siglt á Húna II Það verður mikið um dýrðir á Akur- eyri um helgina og segir Ragnar að bærinn muni sýna sínar bestu hliðar, en bæjarbúar eru hvattir til að flagga í tilefni dagsins. „Sjómannadagurinn hefst með hefðbundnum hætti með sjómannadagsmessum í bæði Gler- árkirkju og Akureyrarkirkju og að messum loknum verður lagður blóm- sveigur að minnisvarða um týnda og drukknaða sjómenn.“ Formleg skemmtidagskrá hefst kl. 13 þegar boðið verður upp á skemmti- siglingu á Húna II, hvalaskoð- unarbátum og fleiri fögrum fleyjum. Bátarnir sigla frá Torfunesbryggju að Sandgerðisbót þar sem trillur af öllum stærðum og gerðum slást í för með þeim í hópsiglingu inn á Pollinn. „Sigl- ingaklúbburinn Nökkvi verður líka með og verður farin hópsigling hér fyrir framan bæinn. Veðurspáin lítur vel út og ætti að vera mikill áhugi á að komast í siglingu um fjörðinn í blíð- unni.“ Frá kl. 14 til 17 færast hátíðahöldin upp í Hamra, útivistar- og tjaldsvæði skáta. „Skátarnir leggja gjörva hönd á plóg og verður skemmtidagskrá á svæðinu þar sem m.a. verður efnt til fjöldasöngs og Einar Mikael töframað- ur sýnir sjónhverfingar,“ segir Ragn- ar. „Hoppukastalar verða fyrir börnin og bátar á tjörnunum, rafmagnsbílar á brautum og keppt í koddaslag. Skátar selja grillaðar pylsur í fjáröflunarskyni Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is R agnar Hólm Ragnarsson, kynningarfulltrúi hjá Ak- ureyrarbæ, segir að það hafi gerst á Akureyri eins og víða annars staðar á landinu að það hafi smám saman dreg- ið úr hátíðahöldum á sjómanna- deginum. „Það stafaði m.a. af því að og ætti andrúmsloftið að minna á karníval.“ Hluti af sögu bæjarins Skemmtidagskránni lýkur um kl. 17 en Ragnar segir margt annað um að vera í bænum og þurfi enginn að láta sér leiðast. „Það má t.d. heimsækja menningarstofnanir bæjarins og við hæfi að líta við í Minjasafninu og Iðn- aðarsafninu þar sem áhugaverðar sýn- ingar eru í gangi og veita m.a. innsýn í atvinnu- og byggðasögu svæðisins.“ Reiknar Ragnar með góðri þátttöku enda sjávarútvegurinn einn af burð- arstólpum atvinnulífsins á Akureyri. „Það var ekki síst vegna sjávarútvegs- ins að byggðin óx og blómstraði, og þó svo að atvinnulífið sé blessunarlega orðið mun fjölbreyttara í dag leika út- gerð og fiskvinnsla enn veigamikið hlutverk. Akureyri er líka orðin ein af þungamiðjum landsins í rannsóknum og kennslu á sjávarútvegssviðinu og fjöldi nemenda sem stundar sjávar- útvegsnám við Háskólann á Akur- eyri.“ Karnívalstemning á Akureyri Í Hömrum verða leiktæki og sprell og farin hópsigling á Pollinum, vonandi í glampandi sól. Kumpánar Ragnar Hólm Ragnarsson með Steina Pje á Húna II. Eikarbáturinn fallegi mun taka þátt í stórri hópsiglingu um Pollinn á sjómannadaginn. Átök Frá sjómannadeginum 2012. Akureyringar láta ekki sitt eftir liggja í róðrarkeppni. Bæjarhátíð Aukinn kraftur hefur verið lagður í undirbúning sjómannadagsins á Akureyri að undanförnu til að koma þessum hátíðisdegi aftur á þann stall sem hann verðskuldar. Bæjarbúar fylgjast með róðrarliðum etja kappi. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.