Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
við óskum ykkur öllum
innilega til hamingju
með Sjómannadaginn
Sjómenn
Ísþykknibúnaðurin frá
Miðhraun 2
210 Garðabæ
587 1300
Kapp@kapp.is
www.Kapp.isthe company
gæðin
Þið þekkið
Tækni sem virkar!
Fljótandi krapaísinn kælir fiskinn
mun hraðar en hefðbundinn ís.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
tefán B. Gunnlaugsson,
dósent við viðskiptadeild
Háskólans á Akureyri,
hefur gert áhugaverðar
rannsóknir á afkomu ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Meðal þess sem hann hefur upp-
götvað er að auðlindarenta grein-
arinnar, þ.e.a.s. hagnaður af nýtingu
sjávarauðlindarinnar umfram hagn-
að atvinnulífsins almennt, var lítil
sem engin fram að fjármálahruni.
„Það er við því að búast að at-
vinnugreinar sem nýta takmarkaða
auðlind á borð við gull, olíu – og
einnig fisk – njóti hagnaðar umfram
fyrirtæki sem keppa á almennum
samkeppnismarkaði. Ef auðlindin er
takmörkuð, og úthlutað til ákveð-
inna aðila, eru hagnaðarforsend-
urnar aðrar en þegar t.d. æ fleiri
keppinautar geta komið inn á mark-
aðinn eins og þekkist í verslunar- og
veitingarekstri, þar sem umfram-
hagnaður kallar á meiri samkeppni
sem loks verður til þess að umfram-
hagnaðurinn hverfur.“
Tekur kipp 2008
Greiningar Stefáns benda til þess að
auðlindarenta sjávarútvegsins hafi
verið sáralítil, og hagnaður grein-
arinnar jafnvel vel undir meðaltali,
allt fram til ársins 2008. Hann tekur
fram að það þýði ekki að sjávar-
útvegurinn hafi ekki verið arðbær,
heldur aðeins að arðsemin hafi ekki
verið umfram meðaltalið. „Það má
finna ýmsar útskýringar á því hvers
vegna það leið svona langur tími frá
því að kvótakerfinu var komið á, ár-
ið 1989, og þar til auðlindarenta
sjávarútvegsfyrirtækja verður
greinileg,“ segir hann. „Fyrst þarf
að nefna að heildaraflinn nærri því
helmingaðist. Þorskaflinn dróst
verulega saman og tegundir eins og
rækja nánast hurfu. Það tók grein-
ina þessi átján ár að vinna upp þetta
tjón með sífellt meiri hagræðingu.
Einn mælikvarði á hagræðinguna er
að skoða fjölda þeirra sem vinna í
sjávarútvegi, sem minnkaði mikið á
tímabilinu á meðan afköst jukust
eða stóðu í stað.“
Sá kippur sem verður árið 2008
stafar bæði af hagræðingu, en ekki
síður af hagfelldum ytri skilyrðum.
Fjármálahrunið varð til þess að
gengi krónunnar lækkaði mikið og
hagur sjávarútvegsins vænkaðist
mikið í samanburði við aðrar at-
vinnugreinar. „Það fer allt að vinna
með greininni; skilvirknin er orðin
meiri, aflinn eykst og gengið er
mjög lágt,“ útskýrir Stefán og bætir
við að sterk tengsl séu á milli raun-
gengis krónunnar og auðlindarentu
sjávarútvegsins.
Veiðigjöldin haldi í
við auðlindarentuna
En hvaða þýðingu hafa þessar nið-
urstöður fyrir greinina? Stefán seg-
ir útreikninga sína meðal annars
sýna hversu mikilvægt það er að
haga veiðigjöldum þannig að þau
endurspegli auðlindarentuna hverju
sinni. „Líta má á veiðigjöldin sem
leið til að skattleggja umfram-
hagnað greinarinnar, og frá árinu
2012 hafa gjöldin tekið að meðaltali í
kringum 20% af auðlindarentunni.“
Hann segir mögulegt að auðlinda-
renta og veiðigjöld hækki ekki eða
lækki í takt, svo að gjöldin geta orð-
ið ýmist óeðlilega há eða lág miðað
við stöðu greinarinnar hverju sinni.
„Módelin sýna að umframhagnaður
sjávarútvegsins minnkar hratt um
þessar mundir en veiðigjöldin hafa
verið á uppleið,“ segir hann. „Það er
pólitísk spurning hversu há veiði-
gjöldin eiga að vera og hvort þau
eiga að taka til sín meira eða minna
en 20% af auðlindarentunni, en það
ætti að vera æskilegt að láta for-
sendur veiðigjaldsins ráðast af
hagnaði greinarinnar hverju sinni –
færa gjaldið nær okkur í tíma –
frekar en að miða við arðsemi grein-
arinnar fyrir tveimur árum.“
Umframhagnaður í
sjávarútvegi nýtilkominn
Útreikningar Stefáns Gunnlaugssonar sýna greinileg umskipti árið 2008 eftir
nærri tveggja áratuga uppbyggingar- og hagræðingarskeið. Núna fara ytri skil-
yrði versnandi og auðlindarenta sjávarútvegsins minnkar um leið. Óheppilegt
er að veiðigjöld og auðlindarenta sveiflast ekki endilega alltaf í takt.
Morgunblaðið/Golli
Bið Langur tími leið frá því að kvótakerfinu var komið á, árið 1989, þar til auðlindarenta sjávarútvegsfyrirtækja varð mikil.
Morgunblaðið/Golli
Viðmið „Líta má á veiðigjöldin sem leið til að skattleggja umframhagnað grein-
arinnar, og frá árinu 2012 hafa gjöldin tekið að meðaltali í kringum 20%.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Breytingar „Það ætti að vera æskilegt að láta forsendur veiðigjaldsins ráðast af hagnaði greinarinnar hverju sinni – færa
gjaldið nær okkur í tíma,“ segir Stefán Bjarni Gunnlaugsson. Auðlindarentan sveiflast einkum í takt við gengið.