Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Á
sjómannadaginn er að
vanda mikil dagskrá í til-
efni dagsins enda sjávar-
útvegur, sjómenn og fjöl-
skyldur þeirra Grindvík-
ingum kær.
„Dagskráin hefst á sjómanna-
dagsmessu í Grindavíkurkirkju,
kór Grindavíkurkirkju leiðir söng-
inn undir stjórn Elínar Rutar
Káradóttur organista og sr. Elín-
borg Gísladóttir þjónar fyrir altari.
Ræðumaður er Leifur Guðjónsson
og sjómannshjónin Ásdís Ester
Kristinsdóttir og Kristmundur Óli
Jónsson lesa ritningarlestur,“ segir
Björg um dagskrána í ár.
Forsætisráðherra ávarpar
og kraftajötnar takast á
„Eftir messu fer heiðrun sjómanna
fram í kirkjunni og að því loknu
verður gengið að minnisvarðanum
Von og lagður blómsveigur til
minningar um þá sem hafa
drukknað. Lúðrasveit verkalýðsins
mun taka þátt í athöfninni og frá
minnismerkinu heldur fólk að
Kvikunni þar sem hátíðahöld í til-
efni sjómannadagsins fara fram.
Forsætisráðherra, Katrín Jak-
obsdóttir, flytur ræðu og setur
daginn formlega.“
Sjómannadagurinn er mjög há-
tíðlegur í Grindavík að sögn Bjarg-
ar og í tilefni dagsins verður sjó-
mannakaffi í Gjánni þar sem
Hérastubbur bakari stendur fyrir
myndarlegri kaffisölu. „Ágóðinn af
kaffisölunni rennur til tveggja
ungra bakara og konditora sem
eru á leið á heimsmeistaramót
ungra konditora í München í sept-
ember,“ útskýrir hún. „Að hátíð-
ardagskrá lokinni tekur við fjöl-
skylduskemmtun á hátíðarsviðinu
þar sem þær Skoppa og Skrítla
stíga á svið, Íþróttaálfurinn, Solla
stirða og Siggi sæti heimsækja
gesti og leikhópurinn Lotta lætur
ekki sitt eftir liggja.“
Á Sjóaranum síkáta má svo bú-
ast við hrikalegum átökum þegar
kraftakarlar keppa í keppninni
„Sterkasti maður á Íslandi – The
Viking Challenge“ í myllugöngu,
drumbalyftu, uxagöngu og trukka-
drætti. Við bryggjuna geta ungir
og aldnir svo skoðað fiskasafn Sjó-
arans síkáta þar sem finna má
marga af helstu nytjafiskum sem
veiðast við Ísland. Furðufiskar sem
veiðst hafa á grindvískum bátum
verða einnig til sýnis.
Að sögn Bjargar verður mikið
um tónlist í kirkjunni í sjó-
mannadagsmessunni, í Kvikunni
verða ljósmyndasýning og mynd-
listarsýning auk þess sem gestir
geta skoðað Saltfisksetrið. „Börn á
öllum aldri finna eitt og annað við
sitt hæfi, fjölbreytt skemmtiatriði
verða á sviðinu og leiktæki sem
Sjómanna- og vélstjórafélag
Grindavíkur býður gestum að
prófa.“
Hægt er að
nálgast nánari
upplýsingar um
dagskrána á vef-
svæðinu
www.grinda-
vik.is/sjoar-
innsikati.
Þegar talið berst að mikilvægi
sjómannadagsins í Grindavík minn-
ir Björg á að sjómenn og fjöl-
skyldur þeirra hafa í gegnum sög-
una fært miklar fórnir um leið og
þeir hafa fært landi og þjóð bjargir
sem hafa haldið lífinu í lands-
mönnum og skapað það samfélag
sem við eigum í dag. „Verðmæta-
sköpun sjávar-
útvegs verður til
með mikilli
vinnu sjómanna
og það er mjög
mikilvægt að við
sýnum þessum
aðilum virðingu,
munum eftir
mikilvægi þeirra í verðmæta-
sköpun þjóðarinnar og uppbygg-
ingu innviða. Án sjómanna og
þeirra fórna sem þeir hafa fært
byggjum við ekki við það blómlega
samfélag sem við búum við í dag.
Við eigum að vera stolt af sjávar-
útveginum og innprenta unga fólk-
inu okkar stolt og virðingu fyrir
þessum hetjum hafsins í nútíð og
fortíð.“
Sjálf ætlar Björg ekki að missa
af skemmtuninni enda þótt ærinn
starfi sé að skipuleggja jafn viða-
mikinn viðburð.
„Þar sem ég sé um að skipu-
leggja þessa miklu hátíð sem sjó-
mannadagurinn og Sjóarinn síkáti
eru ætla ég að vera í Grindavík
enda hvergi betra að upplifa sam-
spil sjávarútvegs og samfélags en
einmitt við höfnina þar og ég geri
mitt besta til þess að heimsækja
alla þá viðburði sem í boði verða.“
Eitthvað fyrir alla á Sjóaranum síkáta
Sjómannadagurinn er
haldinn sérstaklega há-
tíðlegur í Grindavík enda
eru bæjarbúar stoltir af
sjávarútveginum. „Við
eigum að innprenta
unga fólkinu okkar stolt
og virðingu fyrir þessum
hetjum hafsins í nútíð
og fortíð,“ segir Björg
Erlingsdóttir, sviðsstjóri
frístunda- og menning-
arsviðs, en hún hefur
framkvæmd hátíðar-
innar með höndum.
Fjölmenni Hátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík er ávallt geysivel sótt enda á sjávarútvegurinn sterka taug í Grindvíkingum.
Boltaleikur Þessi mennsku boltar eru ávallt vinsælir enda mikið fjör þó stjórnin sé takmörkuð.Skemmtun Litagleðin og hláturinn eru jafnan við völd á Sjóaranum síkáta.
Björg Erlingsdóttir
Kraftakarlar Það er við hæfi að aflraunamenn reyni með sér á sjómannadaginn,
hetjum hafsins til heiðurs – enda ófáir dugmeiri en sjómenn Íslands.
Krabbakló Það er gaman að skoða dýr sjávar í návígi, þó vissara sé að vanar hend-
ur haldi á þeim, ekki síst þegar um sjávardýr með óárennilegar klær er að ræða!
„Án sjómanna og þeirra
fórna sem þeir hafa fært
byggjum við ekki við það
blómlega samfélag sem
við búum við í dag“