Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Í
slenski sjávarklasinn er drif-
kraftur nýrra hugmynda og
stuðlar að öflugu samstarfi fyr-
irtækja og frumkvöðla í sjávar-
útvegi og haftengdri starfsemi.
Með sterkari tengingum og sam-
vinnu opnast ný tækifæri til nýsköp-
unar og atvinnusóknar til fram-
tíðar.“ Þetta er megininntakið í
samtali við Bertu Daníelsdóttur,
framkvæmdastjóra sjávarklasans,
sem hún sér sem gott tæki til fram-
fara og aukinnar verðmætasköpun í
íslenskum sjávarútvegi.
Af nógu er að taka þegar leitað er
eftir fréttum hjá Bertu af því sem
helst væri verið að sýsla með hjá
sjávarklasanum. „Það sem efst er á
baugi hjá okkur núna er að „JA Ice-
land“ frumkvöðlakeppni framhalds-
skóla er nýlokið, en hún hvetur ungt
fólk til að ná árangri í hinu al-
þjóðlega viðskiptaumhverfi. Í henni
tóku allir framhaldsskólar á Íslandi
þátt. Krakkarnir þurftu að vinna
frumkvöðlahugmynd, þurftu að
skapa vöru úr því og semja við-
skiptaáætlun. Árangurinn var svo
sýndur í Smáralind og niðurstöður
kynntar, en við tókum þátt í þessu í
ár og í fyrra með því að hitta krakk-
ana og taka sæti í dómnefnd. Feng-
um við þannig að hitta hátt í þrjú-
hundruð framhaldsskólanema alls
staðar af landinu. Þær hugmyndir
sem tengdust haftengdri nýsköpun
efndum við til sýningar á hérna í
Húsi sjávarklasans. Er sýningin enn
opin gestum og gangandi. Þar kem-
ur fram afskaplega skemmtilegt
hugvit hjá unga fólkinu. Þorið, hug-
vitið og dugnaðurinn var einstakur
og klárlega má segja, að framtíðin er
bara björt með þessu unga fólki.“
Berta segir að auk þessarar
keppni sé sjávarklasinn stöðugt að
vinna með ungum frumkvöðlum í
nýjum hugmyndum.
Móta stefnu í flutningamálum
„Annað sem við höfum verið að
vinna hörðum höndum að er stefnu-
mótun í flutningamálum fyrirtækja
sem tengjast sjávarútvegi. Í sjáv-
arklasanum er starfandi svonefndur
flutningahópur þar sem flutninga-
fyrirtæki bæði á láði og á legi eiga
aðild að. Við héldum nýlega stefnu-
mótunarfund með Sigurði Inga Jó-
hannssyni samgönguráðherra en
þangað var boðið fulltrúum flutn-
ingafyrirtækja, en flutningarnir
skipta okkur gríðarlegu máli. Fisk-
urinn sem fer um vegi landsins eða
siglt er eða flogið meðfrá landinu er
gífurlega verðmætur, en það er aug-
ljóst öllum, að vegakerfið á Íslandi
er alls ekki nógu gott.
Í fluginu hefur Ísland lengi verið
miðstöð loftflutninga, bæði til aust-
urs og vesturs. Það er hins vegar að
breytast með nýjum og mun lang-
drægari flugvélum. Við þessu verð-
um við að bregðast og tryggja að Ís-
land verði áfram þessi milli-
lendingarstaður þegar horft er til
vöruflutninga. Í því efni hefur Isavia
verið að skoða ýmsa möguleika varð-
andi Keflavíkurflugvöll. Við þurfum
alltaf að vera að horfa á endingu vör-
unnar og þá skipta örar flugferðir
okkur öllu máli og gott aðgengi að
þjónustunni. Á það bæði við hvort
sem um flutninga með flugi eða skip-
um er að ræða.
Ráðist gegn kolefnasporum
Það þarf líka að skoða kolefnasporin
og hvernig við spörum þau í flutn-
ingum sjávarafurða á leið úr landi á
markaði erlendis. Það er alltaf hægt
að bæta sig og það er að gerast með
nýjum tækjakosti. Nýju þoturnar
eru allt önnur tæki en þær sem eru
25-30 ára gamlar. Munurinn er eins
og í bifreiðum, þar hafa vistvænir
bílar verið að mæta til leiks og dís-
ilbílar eru á útleið. Tæknin er að
hjálpa okkur og það er komin miklu
meiri græn hugsun í fyrirtækjum í
dag en var fyrir svona tíu til fimmtán
árum. Meðan veiðarnar eru sjálf-
bærar eins og við Íslandsstrendur
þá er það hluti af heildinni að sýna
fram á að við erum að spara kolefna-
sporin í flutningunum. Um þetta eru
fyrirtækin farin að hugsa. Sýnileiki
hins vistvæna skiptir máli og allt
þarf að hanga saman, enda gríð-
arlega öflugt markaðsvopn að geta
sýnt fram á að verið sé að lækka ko-
lefnasporin og veiðarnar séu sjálf-
bærar. Það auðveldar mjög sölu
hinnar fersku vöru sem býður upp á
rekjanleika á öllum þáttum veiða og
vinnslu. Í vaxandi mæli gera neyt-
endur um allar jarðir auknar kröfur
til matvæla. Þeir vilja vita meira um
það sem er í pakkningunum, hvernig
það er unnið, hvernig því er komið á
land og svo framvegis. Við þessu eru
íslensk fyrirtæki að bregðast.“
Fyrirmynd annarra
Berta segir að Íslendingar séu um
margt fyrirmynd annarra þjóða
hvað veiðar og vinnslu varðar. „Það
er bara þannig að það sem íslenskur
sjávarútvegur gerir elta hvítfisk-
framleiðendur í öðrum löndum, til
dæmis í Bretlandi. Þeir elta Ísland
og við erum alltaf svolítið leiðandi í
breytingum. Samþykki Íslendingar
nýjar aðferðir í veiðum og vinnslu
telja aðrir sig búna fá samþykki fyrir
því að fara sömu leið eða svipaða.“
Í þeirri umbyltingu sem átt hefur
sér stað í veiðum og vinnslu sjáv-
arafurða undanfarin ár hafa sprottið
upp öflug fyrirtæki sem framleiða
tækjabúnað er fleygt hefur verð-
mætasköpuninni fram. Orðstír
þeirra hefur borist út fyrir land-
steina og eru þessi fyrirtæki orðin
þekkt á alþjóðavísu. Nefnir Berta til
dæmis tæknifyrirtækin Marel,
Völku, Hampiðjuna og Skagann 3X
til marks um það. „Þetta eru fyr-
irtæki sem selja búnað sinn um allan
heim. Erlendir aðilar hafa oft sam-
band og spyrja hvar þeir geti séð
tækin í notkun. Yfirleitt er nú byrjað
á því að selja þau hér á landi og þá
koma þeir og kíkja í stóru húsin hér.
Þeir leita til Íslands og ég held það
sé styrkur fyrir tæknifyrirtæki að
vera íslensk að uppruna. Heima-
markaðurinn er sterkur og Íslend-
ingar eru kröfuharðir þegar kemur
að tækni og nýjungum.“
Aukin alþjóðleg samvinna
Berta segir alþjóðlega starfsemi
klasans alltaf að aukast. „Það er
mikill og vaxandi áhugi á okkur, sér-
staklega frá Bandaríkjunum en Evr-
ópulöndin er farin að hafa mun
meira samband en áður. Þar vilja
menn heyra í okkur og hitta. Sér-
staklega sýna menn því áhuga
hvernig okkur tekst að nýta fiskinn
allt að 100% en við erum enn undir
80% þó að svo einstaka hús sé að ná
100%. Hvernig Íslendingar nýta
þorskinn mun betur en aðrar þjóðir.
Bandaríkin hafa sýnt okkur áhuga í
töluverðan tíma og þá bæði frá aust-
ur- og vesturströndinni. Þar er Þór
Sigfússon, stofnandi sjávarklasans
og stjórnarformaður, nýbúinn að
vera á ferðalagi. Í Portland í Ore-
gon-ríki var honum boðið að fjalla
um þessa nýtingu en þar eru ungir
frumkvöðlar sem vilja feta sig sömu
leið og Íslendingar. Vilja þeir nýta
fiskinn betur, jafnvel í heilsubótar-
og tískuvörur. Þeir eru afar áhuga-
samir og hafa leitað mjög til okkar
eftir aðstoð.
Þessi erlenda starfsemi okkar er
öflugust í Bandaríkjunum en við er-
um einnig í Båtsfjörd í Noregi og í
Alaska. Þá erum við að starta sam-
starfi við aðila í Indónesíu. Í síðustu
viku var ég að tala á samnorrænni
ráðstefnu um áhrif tækni á störf
framtíðarinnar, við vorum líka í
Helsinki í Finnlandi og þessa dag-
ana er einn fulltrúi staddur í Eist-
landi og einnig að fjalla um fullnýt-
inguna sem hefur heppnast svo vel
hjá okkur. Í síðustu viku fékk ég boð
um að tala á ráðstefnu í Portúgal
annars vegar og hins vegar í gamla
sovétlýðveldinu Georgíu í september
nk. Þannig að áhuginn er mikill á að
heyra hvernig Íslendingar eru að
vinna sjávarafurðir. Og verðmæta-
sköpunin liggur ekki lengur bara í
hnakkastykkinu og flakinu eins og
áður. Aukaafurðirnar eru orðnar gíf-
urlega verðmætar. Þó er enn í dag
verið að farga þeim í mörgum lönd-
um meðan við erum að búa til pen-
inga úr þeim á Íslandi. Það þykir eft-
irtektarvert og úti í heimi er tekið
eftir þessum árangri okkur.“
Viðvarandi þróunarstarf
Berta segir viðverandi þróunarstarf
ástundað og nýjungar komi því stöð-
ugt fram. „Það sem við erum að gera
núna með til dæmis með Mathöllina
á Hlemmi og núna Granda mathöll-
ina, sem við vorum að opna, er ein
leið til að auka frumkvöðlastarfið og
nýsköpunina. Í mathöllinni á Granda
erum við með einn vagn þar sem
frumkvöðlar geta komið með vörurn-
ar sínar og verið í til dæmis mánuð
eða svo. Þá hefur vantað vettvang til
að kynna vörurnar sínar; til að at-
huga hvort markaður sé fyrir þær.
Þetta erum við að gera í samstarfi
við Matarauð Íslands og atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytið. Þar
geta frumkvöðlar spreytt sig og selt
vörurnar sínar án þess að þurfa fara
út í stórar fjárfestingar eða binda sig
einhvers staðar. Í Granda mathöll
verðum við auk þess með sérstakar
hillur þar sem frumkvöðlarnir sem
eru hér í húsinu hjá okkur geta selt
sínar vörur gestum og gangandi.“
Í samtalinu hafði ég orð á því við
Bertu að hún virtist blússandi bjart-
sýn á framtíð íslensks sjávaraútvegs.
„Ég er alltaf bjartsýn, það eru bara
bjartir tímar framundan og við þurf-
um bara að halda góðum damp í sigl-
ingunni. Í lok samtalsins nefnir hún
eina nýjung sem verið er að undirbúa
í Sjávarklasanum.
Taka í notkun viðskiptahraðal
„Við erum að fara af stað með svo-
nefndan viðskiptahraðal í haust.
Hann gengur undir vinnuheitinu „til
sjávar og sveita“ og er unninn í sam-
starfi við Icelandic Startups fyr-
irtækið. Þetta hefur verið reynt fyrir
til dæmis ferðaiðnaðinn og tæknifyr-
irtæki, en núna ætlum við að taka
matvælin inn í hraðalinn. Þá koma
ungir frumkvöðlar með sýna hug-
mynd og farið er í gegnum 10 vikna
prógramm þar sem þeim er hjálpað
við að vinna betur úr hugmyndinni,
gera ítarlegri markaðsáætlanir, við-
skiptaáætlanir, jafnvel hvernig koma
megi framleiðsluferli af stað. Hug-
myndirnar eru yfirleitt misjafnlega á
veg komnar. Hraðallinn tekur alveg
utan um málið og eftir tíu vikur eru
viðkomandi komnir vel á skrið. Þá fá
þeir aðstoð leiðbeinenda úr við-
skiptaheiminum, sem styðja við bak-
ið á frumkvöðlunum og hjálpa þeim
að feta sín fyrstu spor. Samstarfið
við viðskiptalífið hefur verið af-
bragðs gott. Á þeim vettvangi hefur
ætíð verið tekið á móti frumkvöðl-
unum fagnandi. Allir hafa verið bún-
ir og boðnir að aðstoða, kannski
þyrftum við bara fleiri fjárfesta til
liðs við þetta.“
Samfélag 65 fyrirtækja
Hús sjávarklasans er samfélag fyr-
irtækja og frumkvöðla í hafsæknum
greinum við Vesturhöfnina í Reykja-
vík. Þar skapa 65 framsækin fyr-
irtæki nýjan sjávarútveg, allt frá ný-
stofnuðum sprotum sem eru að stíga
sín fyrstu skref yfir í útibú rótgró-
inna félaga. Í húsinu starfa um 140
manns frá yfir 12 löndum. Þar eru
fyrirtæki í fiskeldi, fisksölu, sjáv-
arútvegstækni, hugbúnaðargerð,
hönnun, líftækni, snyrtivörum, ráð-
gjöf, rannsóknum og ýmsu öðru. Hús
sjávarklasans er samfélag þessara
fyrirtækja og vettvangur fyrir þau til
að skapa saman ný verðmæti.
Morgunblaðið/Valli
Sigrar „Ég er alltaf bjartsýn, það eru bara bjartir tímar framundan og við þurfum bara að halda góðum damp í siglingunni,“
segir Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri sjávarklasans. Með hverju árinu bætist eitthvað nýtt og spennandi við klasann.
Útungun Á vettvangi sjávarklasans hafa góðar hugmyndir dafnað.
Ljósmynd/sjávarklasinn
Slot Hús sjávarklasans er að finna á besta stað á Grandagarði. Auður Úr fiskafurðum má m.a. vinna lyf, smyrsl og fæðubótarefni.
Suðupottur nýjunga sem laðar að
Hús sjávarklasans
hefur orðið að suðu-
potti nýjunga og hafa
aðrar þjóðir sótt í
smiðju Íslendinga um
hvernig nýta megi allar
afurðir fisksins til fulls.
Hefur starfsemi sjáv-
arklasans getið af sér
tugi nýrra fyrirtækja.