Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 34
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að er mjög ángæjulegt að
skoða hve miklar framfar-
ir hafa orðið í öryggis-
málum sjómanna á aðeins
nokkrum áratugum. Ekki
aðeins hefur banaslysum fækkað
heldur eru alvarleg meiðsli og ör-
kuml orðin fátíð. „Hér áður fyrr
voru slysin mjög tíð, banaslysin al-
geng og mikið um útlimamissi. Allt
er þetta orðið sjaldgæft í dag,“ segir
Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna.
Margir samverkandi þættir skýra
þann árangur sem náðst hefur.
Hilmar nefnir fyrst af öllu það starf
sem unnið var hjá rannsóknarnefnd
sjóslysa sem síðar varð hluti af
rannsóknarnefnd samgönguslysa.
„Allt frá árinu 1970 hafa rannsóknir
og mælingar nefndarinnar skipt
miklu máli í öllum forvörnum og
hjálpað stofnunum eins og Slysa-
varnaskólanum að sjá hvar brýnast
væri að reyna að koma í veg fyrir
slysin. Öll slysaskráning er svo mik-
ilvæg því hún hjálpar okkur að læra
af slysunum og sjá til þess að þau
endurtaki sig ekki.“
Betri skip og vandaðri búnaður
hafa líka haft mikið að segja.
„Greiningar leiddu það í ljós að sum
af þeim slysum sem voru algeng
fyrr á dögum mátti skrifa á hönnun
og gæði þess búnaðar sem notaður
var um borð. Með betri hönnun og
betri búnaði tókst að eyða
ákveðnum tegundum slysa. Hönn-
uðir nýrra skipa hafa núna við mjög
greinargóð gögn að styðjast til að
gera skipin að enn öruggari vinnu-
stað.“
Læra að gæta sín
Loks nefnir Hilmar mannlega þátt-
inn. Frá stofnun Slysavarnaskólans
hefur þar verið unnið markvisst að
öryggisþjálfun sjómanna svo þeir
sýni aðgát við störf sín og setji sig
ekki óvart í hættulegar aðstæður.
„Alveg sama hversu splunkuný skip
og góðan búnað við höfum, þá er það
mannlegi þátturinn sem ræður úr-
slitum. Sjómenn þurfa að fara var-
lega og láta ekki eins og naut í flagi.
Það var vel þekkt hér áður fyrr að
hugsunarhátturinn var iðulega sá að
redda málunum og sjómanninum
tamt að stökkva til ef hann sá að
eitthvað var að fara úrskeiðis, en í
Slysavarnaskólanum er brýnt fyrir
mönnum að það er ekkert sem heitir
að grípa inn í þegar þung veiðarfæri
eða öflugur búnaður eiga í hlut,“ út-
skýrir Hilmar. „Sjómenn verða líka
að gæta sín á því að þó að tekjur
geti verið góðar þegar vel fiskast, og
öllum sé umhugað um að veiðarnar
gangi sem best, þá þýða slysin að
bæði skipið og sjómaðurinn tapa
tekjum. Mestur er þó skaðinn fyrir
sjómanninn sem verður fyrir slys-
inu, því hætt er við að hann komist
aldrei aftur í þessa vinnu sína og
þrátt fyrir að hann fái mögulega
ágæta eingreiðslu frá trygginga-
félagi þá reiknast það sem lélegt
kaup til frambúðar.“
Fimm daga grunnur
Frá árinu 1993 hafa allir sjómenn
verið skyldaðir til að fara í öryggis-
fræðslu og eru tvenns konar nám-
skeið í boði fyrir byrjendur. „Ann-
ars vegar er námskeið fyrir þá sem
vinna á smábátum og varir í einn
dag, en hins vegar fimm daga nám-
skeið fyrir áhafnir stærri skipa. Síð-
an er gerð um það krafa að allir
sæki endurmenntun ekki sjaldnar
en á fimm ára fresti,“ segir Hilmar.
Þeir sem eru að hefja sjómennsku
fá þó undanþágu og geta frestað
námskeiðinu í allt að 180 lögskrán-
ingardaga til sjós. „Má líta á það
sem hálfgerðan reynslutíma þar
sem menn geta áttað sig á því hvort
sjómennskan á vel við þá eða ekki,“
segir Hilmar og upplýsir blaðamann
um að það skapi ekki aukna hættu
þó að óreyndasta fólkið um borð hafi
ekki setið öryggisnámskeið. „Slysa-
gögnin sýna að reyndari áhafnar-
meðlimir eru í meiri hættu en nýlið-
inn. Þeir sem eru að hefja sjó-
mennsku eru gjarnan undir vernd-
arvæng hinna og undir vökulu auga
þeirra á meðan þeir kunna ennþá
lítið til verka.“
Ástæðan fyrir því að námskeið
smábátasjómanna er miklu styttra
er að þar er ekki eins mikill búnaður
um borð og í stóru skipunum. „Það
er mikill munur á lítilli trillu með
einu handslökkvitæki og togara með
tveimur reykköfunartækjum og
slöngubúnaði. Öryggismálin eru
talsvert öðruvísi á stærri skipum,“
segir Hilmar en bætir við að áhöfn
farþegabáta þurfi líka að sitja fimm
daga námskeið.
Spennandi skóladagur
Þeir sem sitja námskeið Slysavarna-
skólans eru nær undantekningar-
laust ánægðir með og þakklátir fyrir
fræðsluna. Hilmar segir þess gætt
að koma efni námskeiðana til skila á
skýran hátt og að þátttakendur
þurfi ekki að stunda strembna
heimavinnu eða lesa sig í gegnum
þykka doðranta. Mörgum þykja
námskeiðin mjög skemmtileg enda
fá þeir m.a. að æfa rétt viðbrögð við
alls kyns kringumstæðum og gera
sjóæfingar í flotbúningum. Sjálfur
hefur Hilmar mikið yndi af starfinu.
„Ég er búinn að vera hérna í 27 ár
og finnst hver dagur skemmtilegri
en dagurinn á undan.“
Ákveðin störf um borð kalla á að
sjómenn bæti við sig sérhæfðum
námskeiðum sem geta tekið nokkra
daga. „Sumir einstaklingar þurfa að
sitja allt að fimm námskeið, þar af
fjögur sem verður að halda við á
fimm ára fresti. Þetta eru t.a.m. sér-
námskeið í eldvörnum, sem tekur
fjóra daga; sérnámskeið í meðferð
björgunarfara sem tekur tvo daga
til viðbótar; og lyf- og læknishjálp
sem skipstjórnarmenn þurfa að sitja
til að læra á lyf og læknisáhöld svo
þeir geti sinnt því betur ef slys og
veikindi verða um borð. Einnig
höldum við sérstakt námskeið í
mannauðsstjórnun og námskeið fyr-
ir þá sem þurfa að sigla á svæðum
þar sem hætta getur verið á sjórán-
um eða annars konar vágestum. Allt
eru þetta námskeið sem veita al-
þjóðleg réttindi og eru bæði gjald-
geng og nauðsynleg fyrir þá sem
vilja vinna á erlendum skipum.“
Ekki gott kaup að vera á tryggingabótum
Þótt það geti hlaupið
mikið kapp í sjómenn
þegar vel fiskast þurfa
þeir að fara varlega við
vinnu sína og hafa hug-
fast að slysin geta orðið
bæði þeim og skipinu
dýr. Nákvæm skráning
slysa kemur að miklu
gagni og hjálpar sjó-
mönnum að læra af
reynslu hver annars.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þekking „Slysagögnin sýna að reyndari áhafnarmeðlimir eru í meiri hættu en nýliðinn. Þeir sem eru að hefja sjómennsku eru gjarnan undir verndarvæng hinna og undir vökulu auga þeirra,“ segir Hilmar.
Morgunblaðið/RAX
Hætta Mynd af björgunaræfingu. Þegar slysin gerast skipta rétt viðbrögð öllu máli.
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Meðal áherslumála Slysavarnaskólans undanfarin ár er að áhafnir fram-
kvæmi áhættumat um borð í skipum sínum. „Við höfum unnið að þessu verk-
efni í samvinnu við tryggingafélögin og er um að ræða mikilvægan þátt í for-
vörnum,“ segir Hilmar.
„Áhöfnin fer þá vandlega yfir skipið sitt, skoðar vinnulag, aðferðir og ör-
yggisþætti, og hvaða öryggisbúnaður er fyrir hendi. Öryggið er því sett á odd-
inn áður en haldið er af stað til veiða, og ekki bara rokið af stað.“
Áhöfnin hafi gætur á skipinu