Morgunblaðið - 11.06.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 11.06.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hjörleifur B. Kvaran hæstaréttar- lögmaður segir íslensk yfirvöld ekki hafa sinnt lögbundinni rannsóknar- skyldu í skattamáli skjólstæðings síns. Hæstiréttur staðfesti dóm Hér- aðsdóms Reykjavíkur í máli manns- ins, sem var gert að greiða skatta vegna vinnu í Máritaníu 2006 til 2010. Hjörleifur segir til skoðunar að fara fram á endurupptöku máls- ins. Maðurinn starfaði á árunum 2006 til 2010 á skipi sem gert var út frá Máritaníu. Fram kemur í dómi Hæstaréttar (418/2017) að maðurinn dvaldi þessi ár að jafnaði 240 til 260 daga á ári utan Íslands. Hjörleifur segir skjólstæðing sinn ekki hafa átt heimili á Íslandi á þess- um árum. Hann hafi í heimsóknum til Íslands gist hjá ættingjum. Lagði fram vottorð „Maðurinn flutti lögheimilið frá Íslandi og tilkynnti það til Márit- aníu. Síðan ákveður skattrannsókn- arstjóri árið 2012 að taka málið til skoðunar. Skattrannsóknarstjóri skorar á hann að sýna vottorð um búsetu í Máritaníu, sem hann gerir. Þá segir skattrannsóknarstjóri að ekki sé hægt að taka mark á þessum vottorðum. Ísland sé enda ekki í stjórnmálasambandi við Máritaníu. Þar byrjar vitleysan. Svo fer málið til ríkisskattstjóra, sem ákvað í úr- skurði sínum að skattleggja allar tekjurnar sem maðurinn hafði í Má- ritaníu. Þá skilaði maðurinn reyndar betra vottorði um að hafa greitt skatta í Máritaníu og hversu mikið. Þá er aftur sagt að ekki sé hægt að taka mark á þessu vottorði. Ísland hafi enda ekki stjórnmálasamband við Máritaníu,“ segir Hjörleifur. Vottorðin ekki tekin gild Rangfærslan hafi síðan runnið í gegnum dómskerfið. „Málinu er svo stefnt fyrir héraðs- dóm og krafist ógildingar á úrskurði ríkisskattstjóra. Þá tekur ríkislög- maður þetta upp eftir ríkisskatt- stjóra og heldur því fram, og byggir á því, að ekki sé hægt að taka nein vottorð gild því við séum ekki með stjórnmálasamband við Máritaníu. Síðan byggir héraðsdómur dóm sinn að hluta til á því að ekki sé hægt að taka mark á þessum vottorðum. Við séum enda ekki með stjórnmála- samband við Máritaníu. Svo fer mál- ið fyrir Hæstarétt og enn heldur ríkislögmaður þessu sama fram, að við séum ekki með stjórnmálasam- band, og á því er byggt í Hæstarétti líka. Forsendur dóms Hæstaréttar byggjast meðal annars á því. Málið endar þannig að sú vitleysa fer í gegnum allt kerfið að stjórnvöld halda því fram að við séum ekki með stjórnmálasamband við Máritaníu,“ segir Hjörleifur. Var skylt að upplýsa Hann segir ríkislögmann hafa af- sakað þetta eftir á. „Svo hringir ríkislögmaður í mig klukkutíma eftir að dómur Hæsta- réttar var kveðinn upp og segir: „Ég gleymdi að minnast á að við erum í stjórnmálasambandi við Máritaníu og höfum verið það frá 2004. Ég ætl- aði að minnast á það í ræðu minni en gleymdi því,““ hefur Hjörleifur eftir Einari Karli Hallvarðssyni ríkislög- manni. „Auðvitað átti ríkislögmaður að upplýsa mig og Hæstarétt um þetta fyrir málflutninginn. Hefði ég vitað að við hefðum stjórnmála- samband hefði ég byggt málflutning minn í Hæstarétti að hluta til á öðrum grunni. Þar sem við erum með stjórnmálasamband var ekkert annað í boði en að íslensk stjórnvöld hefðu samband við stjórnvöld í Máritaníu og könnuðu gildi þessara vottorða fyrst þau voru á annað borð að véfengja þau. Það var aldrei gert. Stjórnvöld eiga að sinna sinni rann- sóknarskyldu samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og henni hefur gjör- samlega verið klúðrað í þessu máli,“ segir Hjörleifur. Stendur ríkislögmanni nær Hjörleifur segir til skoðunar að fara fram á endurupptöku málsins en segir jafnframt að það standi reyndar ríkislögmanni nær, þar sem hann gleymdi að upplýsa um atriði sem „skiptu verulegu máli í allri málsmeðferðinni“. Umbjóðandi hans sitji uppi með mikinn kostnað af málaferlunum. „Hann situr uppi með verulega skattaskuld. Hann var búinn að borga skatta í Máritaníu og er svo gert að borga skatta af sömu upphæð á Íslandi. Ég veit ekki hvort maðurinn sé svo fjarhagslega vel stæður að geta haldið málinu áfram,“ segir Hjörleifur. Hann segir það umhugsunarefni ef alþýðumaður þurfi frá að hverfa í dómsmáli gegn ríkisvaldinu, sem hafi nær ótakmörkuð fjárráð. „Já, þetta er umhugsunarefni. Maðurinn yrði þá að fá gjafsókn í endurupp- tökumáli, því það er verulega íþyngj- andi og kostnaðarsamt að standa í málaferlum. Málaferli hans við ís- lenska ríkið hafa kostað mikið fé, allt út af rangfærslum af hálfu opinberra stjórnvalda,“ segir Hjörleifur. Rannsóknarskyldan vanrækt  Lögmaður manns sem höfðaði skattamál gegn ríkinu segir stjórnvöld ekki hafa sinnt rannsóknar- skyldu  Það hafi haft áhrif á framgang dómsmálsins  Vottorð mannsins voru ekki könnuð Morgunblaðið/Kristinn Lögmaður Hjörleifur B. Kvaran hæstaréttarlögmaður segir íslensk yfirvöld ekki hafa sinnt lögbundinni skyldu sinni í skattamáli skjólstæðings síns. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Skemmdaverkahrina hefur skekið Seljaskóla undanfarið. Margar rúður hafa verið brotnar, grindverk skemmd og sömuleiðis leiktæki, og lítil prýði er að veggjakroti sem sjá má á veggjum skólans. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla, vakti athygli á þessu í Facebook-hópnum „Íbúasamtökin betra Breiðholt“. Magnús segir skemmdarverkin hafa aukist mikið undanfarið. „Skemmdarverk hafa svo sem komið upp hérna af og til en núna í vor höf- um við orðið vör við töluvert meira af þeim en áður.“ Hann telur að með samtaka- mætti íbúa megi sporna við skemmdarverk- unum. „Umræð- an er til þess gerð að við pössum í sameiningu upp á þessar eignir okk- ar því öll viljum við hafa húsið fallegt og lóðina góða. Við biðjum íbúa um að láta okkur vita ef þeir hafa ein- hverjar upplýsingar um skemmdar- verkin, þannig getum við reynt að skilja betur hvað er í gangi.“ Ekki hefur enn þótt tilefni til þess að gera lögreglu viðvart um skemmdarverkin og er Magnúsi ókunnugt um það hvaða fólk hefur verið að verki. „Við erum ekki með eftirlitsmyndavélar eða neitt slíkt til að fylgjast með svæðinu eftir að skóla er lokið.“ Magnús hefur áhyggjur af þróun- inni í sumar. „Við erum auðvitað að fara í frí næstu tvo mánuðina svo við verðum ekki hér til að fylgjast með. Þetta skólahús stendur hérna í miðju hverfinu og yfir sumartímann leika mörg börn sér hérna og þá er ekki gott að það séu glerbrot á svæðinu og skemmd leiktæki.“ Skemmdarverkahrina skekur Seljaskóla  Rúður, grindverk og leiktæki eyðilögð  Krotað á veggi Magnús Þór Jónsson Þyrla Landhelg- isgæslu Íslands var í gær kölluð út vegna sjó- manns sem slas- aðist við vinnu sína um borð í norsku skipi. Var skipið við veiðar úti fyrir Suð- austurlandi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins slasaðist sjómaðurinn eftir fall. Landhelgis- gæslan vildi í gærkvöldi ekki veita nánari upplýsingar um líðan manns- ins, en hann var fluttur á sjúkrahús. Þá var önnur þyrla Gæslunnar einnig kölluð út og var hún send á Snæfellsnes. Þar urðu tvö slys í fót- boltaleikjum og í öðru þeirra lenti leikmaður í hrauni fyrir utan völlinn. Var sá fluttur undir læknishendur á Landspítala. Slasaðist eftir fall LSH Tvær þyrlur voru kallaðar út. Fjölsótt hundasýning var haldin í Hafnarfirði um helgina og er hún sögð hafa heppnast með ágætum. Þessir hundaeigendur, sem ljós- myndari festi á filmu, létu sér hins vegar nægja að ganga um Elliðaár- dal í Reykjavík, þrátt fyrir vætu og fremur svalt loft. Ljóst er að útivistarfólk landsins mun þurfa að láta sig hafa grá- myglulegt veður eitthvað lengur því samkvæmt spá Veðurstofu Ís- lands er útlit fyrir að skýjað verði á höfuðborgarsvæðinu næstu daga með lítilsháttar úrkomu. Þá hefur hitabylgjan sem lá yfir Norðaustur- og Austurlandi fyrstu daga mán- aðar fjarað út, en veðurfræðingar eiga von á nokkuð hlutlaust veður verði um allt land. Hiti verður lík- lega svipaður um land allt, í kring- um tíu gráðurnar. teitur@mbl.is Í gönguferð á votum sumardegi Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.