Morgunblaðið - 11.06.2018, Page 12

Morgunblaðið - 11.06.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018 VÖNDUÐ JEPPADEKK Á FRÁBÆRU VERÐI STÆRÐ 315/70R17 49.600,- kr. STÆRÐ 285/70R17 46.900,- kr. ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900 WWW.ARCTICTRUCKS.IS ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR! Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Þetta sló alveg í gegn,“ segirDavíð Arnórsson sem rek-ur súrdeigsbakaríið Arcticbakery í Prag ásamt unn- ustu sinni, Auði Ósk Vilhjálms- dóttur, og Guðbjarti Guðbjartssyni. Þau opnuðu bakaríið fyrir sex vikum og hefur það hlotið gríðarlega góðar viðtökur. Bakaríið er í vesturhluta Prag í hverfinu Malá Strana, einu af eldri hverfum Pragborgar. Vinsælt frá fyrsta degi ,,Frá fyrsta degi var þetta vin- sælt, við auglýstum ekki, opnuðum bara dyrnar. Frá og með þeim degi hefur bara verið bilað að gera,“ segir Davíð. Bakaríið hefur einnig fengið verðskuldaða athygli frá fjölmiðlum úti í Tékklandi og hafa margir skrif- að um bakaríið þrátt fyrir að skammt sé liðið frá opnun. Davíð segir opnunina hafa verið krefjandi: ,,Við erum fyrst núna að ná tökum á framleiðslunni, maður talar ekki tungumálið og enskan er ekki á allra vörum hérna. Svo er þetta svolítill frumskógur, allt er af- greitt á pappír.“ Aðspurður hvers vegna Prag hafi orðið fyrir valinu segir hann að þau hafi einfaldlega ,,fílað“ borgina. ,,Prag er svo alþjóðleg borg, það er allra þjóða fólk hérna. Það er það sem gerir hana svona skemmtilega, svo mikið litróf hérna,“ segir Davíð. Austur-Evrópa er ekki langt komin í súrdeigsgerð og það skemmdi ekki fyrir.“ Snúðar og ástarpungar Í bakaríinu má helst finna súr- deigsbrauð, krossant, ástarpunga, vínarbrauð, skonsur með bláberjum eða hindberjum og súkkulaði, súkkulaðikrossant og snúða með ostakremi. Mest fer af snúðum og ástarpungum. „Austur-Evrópumenn taka mjög vel í þetta skandinavíska bak- arí, þetta er algjör nýjung hérna. Það kom sérstaklega á óvart hvað ástarpungarnir eru vinsælir. Þeir áttu bara að vera til sýnis í byrjun og þeir kláruðust alltaf. Ég steikti þá í mjög litlum potti til að byrja með. En nú er hann orðinn stærri.“ Ástar- pungar séu alíslenskt fyrirbæri og því góð landkynning. Kleinur er líka seldar í einhverjum mæli og þá oft Íslendingum. ,,Á næstum hverjum einasta degi koma íslenskir hópar hingað og kaupa kleinur.“ Davíð seg- ir að íslenskir ferðamenn og Íslend- ingar sem eru búsettir í Prag sæki bakaríið. Allt í einu sé orðið eftir- sóknarvert að fá kleinur, enda eru þær vandfundnar á þessum slóðum. Súrdeigsbakaríin eru ekki mörg í Prag og gefur það bakaríinu vissa sérstöðu. „Ætlunin var alltaf að gera súrdeigsbrauð með hráefni frá Tékklandi en það var bara ekki að ganga. Svo vikuna fyrir opnun fann ég gamla, skrýtna karla upp í sveit sem voru að steinmala hveiti. Þetta reyndist vera besta hveitið sem ég hef á ævi minni smakkað og bakað úr. Þetta voru hálfgerðir munkar, Íslendingar stofna bakarí í Tékklandi Íslendingarnir Davíð Arnórsson, Auður Ósk Vilhjálmsdóttir og Guðbrandur Guðbrandsson tóku sig til og opnuðu súrdeigsbakarí í vesturhluta Prag í Tékk- landi. Bakaríið, sem var opnað fyrir sex vikum, hefur fengið frábærar viðtökur. Ánægð í Prag Auður Ósk Vilhjálmsdóttir og Davíð Arnórsson stofnuðu súrdeigsbakaríið ásamt Guðbrandi Guðbrandssyni. Sex nýjar söguvörður voru afhjúp- aðar á Akureyri fyrir helgina. Forsaga málsins er sú að í tilefni 150 ára kaupstaðarafmælis Akureyrar árið 2012 var ákveðið að setja upp sögu- skilti í elstu bæjarhlutunum þar sem bæjarbúum og gestum, innlendum sem erlendum, yrðu kynnt brot úr sögu bæjarins í máli og myndum. Þessi skilti fengu nafnið söguvörð- ur, sem er gegnsætt orð og lýsandi. Þannig hafa vörður um aldir verið leiðarvísir á ferðum manna um land- ið, en með því að hafa sögu sem for- skeyti orðsins er jafnframt minnt á að varðan geymir sögu bæjarins. Með því að fylgja söguvörðunum er hægt að ganga á milli elstu bæjarhluta Akureyrar og fræðast um sögu um- hverfisins og nálægra húsa. Söguvörðurnar hafa verið settar upp í nokkrum áföngum. Árið 2012 voru sex slíkar settar upp í Inn- bænum, elsta bæjarhlutanum, seinna tvær í Grímsey og þrjár í miðbæ Akureyrar og nú í þessum áfanga Söguslóðir í elstu hverfum Akureyrar hafa verið varðaðar Fróðleikur í nokkrum áföngum Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Fróðleikur Frá afhjúpun söguvörðu við Menningarhúsið Hof sl. föstudag. Það sem einum finnst frábærtfinnst öðrum fáranlegt. Éghlustaði á annars stór- skemmtilegan fyrirlesara um dag- inn segja frá því, með leikrænum tilburðum, hvað það væri leiðinlegt og glatað að lyfta lóðum í líkams- ræktarstöð. Þetta var rúmum sextíu sekúndum eftir að hann hafði sagt að það mikilvægasta í mannlegum samskiptum væri virðing. Virðing fyrir öðrum. Fyrir ólíkum sjónar- miðum. Ekki bara við borðhald – fyrirlesturinn snerist mikið til um það – heldur í lífinu almennt. Daginn eftir fyrirlesturinn las ég viðtal við reffilega konu í annasömu starfi sem sagði að það sem færði henni líkamlega orku og hugarró væri lyftingar. Það væri ekkert betra til að hreinsa hugann og styrkja líkamann en að vera ein með sjálfri sér að lyfta lóðum. Mér varð hugsað til borðsiða- meistarans þegar ég las viðtalið við hana. Mér varð líka hugsað til sjálfs míns. Ég hef oft dæmt það sem fær- ir öðrum gleði og orku. Sérstaklega þegar ég var yngri, ég held ég sé orðinn betri í því núna að átta mig á því að við erum ólík og höfum áhuga á ólíkum hlutum. Stundum finnst mér erfitt, jafnvel ómögulegt, að skilja af hverju fólk fær gleði og orku út úr ákveðnum hlutum, en ég skynja samt gleðina og reyni að skemma hana ekki fyrir þeim sem hana upplifa. Júróvisjón og konung- leg brúðkaup eru dæmi um hluti sem ég á erfitt með að tengja við. En á móti tengi ég við hluti sem aðrir eiga erfitt með að skilja. Ég er alveg hættur að taka inn á mig þótt aðrir tengi ekki við það sem gefur mér orku. Það skiptir bara engu máli hvað fólki finnst um að ég hlusti enn þá á fyrstu Iron Maiden-plöturnar, vilji frekar labba upp tröppur en að taka lyftur og sé alfarið á móti þrælsmótandi stimpil- klukkum. Ég er sammála borðsiða- meistaranum um að virðing fyrir öðrum sjónarmiðum, áhugamálum og lífsviðhorfum sé eitt það mikil- vægasta í mannlegum samskiptum. Kannski aldrei mikilvægara en akkúrat núna þegar sumir af leið- togum heimsins hvetja frekar til sundrungar og „við á móti þeim“ hugsunarháttar en til samvinnu og samkenndar. En við verðum þá að fara eftir því sem við segjum. Fylgja gildum okkar. Sýna virðingu í verki, ekki bara orði. Njótum ferðalagsins! Borðsiðir eða lyftingar? Njóttu ferðalagsins Guðjón Svansson guðjón@njottuferdalagsins.is Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles- ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi, sem heldur úti bloggsíð- unni njottuferdalagsins.is AFP Hamingja Konungleg brúðkaup eru nokkuð sem höfundur tengir ekki við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.