Morgunblaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 13
ná sér í brauð fyrir kvöldmatinn.
Fólk er aldrei heima hjá sér, það er
alltaf á vappinu.“
Gamall draumur að veruleika
Eins og áður segir hefur bak-
aríið notið mikilla vinsælda og ekki
síður á samfélagsmiðlum. Á Insta-
gram er strax hægt að finna margar
myndir undir myllumerkinu #arctic-
bakehouse. Viðskiptavinir bakarís-
ins birta óspart myndir af keyptu
bakkelsi þaðan. Davíð segist ekki
hafa eytt krónu í auglýsingar á bak-
aríinu. Hann hefur verið bakari síð-
an hann var 13 ára.
,Aldrei gert neitt annað. Mig
hefur dreymt um það síðan ég var
yngri að opna í svona gamalli borg
og gömlu húsnæði. Þetta er svona
sögufrægt hús, það má ekki breyta
neinu, sem gerir þetta enn þá
skemmtilegra.“
Bláberjaskonsur Girnilegar nýbakaðar bláberjaskonsur með súkkulaði.
stunda sjálfsþurftarbúskap. Hjá
þeim fann ég þrjár tegundir af hveiti
sem eru hágæða, þetta er bara fjár-
sjóður. Núna koma þeir hingað einu
sinni í viku með tonn af hveiti, á eld-
gömlum bíl. Þeir mala hveitið einum
degi áður en það kemst í mínar
hendur, sem er ekki algengt.“
Öðruvísi neyslumynstur
Bakaríið er opnað snemma á
morgnana og er lokað seint, eða um
áttaleytið á kvöldin.
Davíð segir neyslumynstur
Tékka gjörólíkt því sem þekkist á
Íslandi. Helsti munurinn sé hve
margir sækja í bakaríið á kvöldin.
Brauð seljist í miklum mæli eftir
klukkan sex á kvöldin, en íslenskum
bakaríum er lokað um það leyti.
,,Fólk er svo mikið úti hérna. Það fer
kannski út í garð með teppi og
skreppur síðan í bakaríið til þess að
Ástarpungar Nýbakaðir ástarpungar eru algjört lostæti.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2018
bætast við sex nýjar söguvörður á
Oddeyri. Sú efsta er við Hof en hinar
eru á gönguleiðinni niður Strandgöt-
una, eða ein varða til móts við hverja
hliðargötu og sú neðsta í nágrenni
við Gránufélagshúsin. Þar með verð-
ur búið að varða gönguleið milli
þriggja elstu hverfa Akureyrar.
Skiltin eru öll með QR-kóða sem
auðvelda þeim fróðleiksfúsu sem eru
með snjallsíma að sækja viðbótar-
fróðleik, auk þess sem þar er hægt
að nálgast mynd af skiltunum. Einnig
má finna þessar upplýsingar með því
að fara á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Söguvörðurnar eru samstarfsverk-
efni Minjasafnsins á Akureyri, Akur-
eyrarstofu og Framkvæmdadeildar
Akureyrar en Norðurorka hefur frá
upphafi verið bakhjarl verkefnisins
og eru þær gjöf til Akureyringa.
Minjasafnið lagði til gamlar ljós-
myndir á vörðurnar, Jón Hjaltason
sagnfræðingur samdi texta, Teikn á
lofti hefur séð um alla hönnun, smíði
standanna hefur verið á höndum Út-
rásar og prentun var hjá Skiltagerð
Norðurlands í Ólafsfirði.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bæjarmynd Horft yfir byggð í brekku og fjöruna á Akureyri í átt að Oddeyrinni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Nonnahús Heimaslóð Jóns Sveins-
sonar, þekktasta Akureyringsins.
Í dag, mánudag, verður rusl hreinsað
og plokkað í Kópavogi undir styrkri
stjórn vinnuskólans í bæjarfélaginu.
Starfið hefst klukkan 8.30 í Foss-
vogsdal við íþróttahúsið Fagralund
við Furugrund. Alls 450 starfsmenn á
vegum Vinnuskólans þræða bæinn
auk þess sem Vinnuskólinn í Reykja-
vík verður í samstarfi við Kópavogs-
skólann og því verða samanlagt um
1.000 unglingar að plokka og tína
upp allt rusl sem á vegi þeirra verður.
Auk vinnuskólanna tekur starfsfólk
Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar
þátt og verða allir starfsmenn mið-
stöðvarinnar í plasthreinsun þennan
dag. Sömuleiðis tekur Blái herinn
þátt í deginum og liðsinnir við hreins-
un á plasti á strandlengjunni í Kópa-
vogi. Leikskólar bæjarins munu einn-
ig taka þátt í verkefninu og mun
yngsti aldurshópurinn plokka saman
þennan dag.
Vinnuskólinn hvetur alla Kópa-
vogsbúa til að taka þátt í að hreinsa
bæinn og fjarlægja allt plast, hvort
sem það er í garðinum heima, í kring-
um húsið, á bílastæðinu eða á leið-
inni í vinnuna. Hægt verður að
hringja í Þjónustumiðstöð og til-
kynna hvar finna má afrakstur dags-
ins sem verður hirtur upp af starfs-
mönnum.
1.000 unglingar láta til sín taka í umhverfisbótum
Ljósmynd/Kópavogsbær
Kópavogur Tekið rækilega til hendi.
Plokkað verður af krafti í Kópavogi í dag
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.