Morgunblaðið - 29.06.2018, Side 10

Morgunblaðið - 29.06.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 Octavia Limo G-Tec Sjálfskiptur Listaverð: 3.550.000 kr. Afsláttur: -360.000 kr. Verð frá: 3.190.000 kr. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is Nú bjóðum við takmarkað magn valdra bíla frá ŠKODA á frábæru tilboðsverði. Stundum þarf maður ekki að hugsa sig tvisvar um – gríptu þetta einstaka tækifæri og náðu þér í nýjan ŠKODA á snilldarverði. Hlökkum til að sjá þig! 5 ár a áb yr g ð fy lg ir fó lk sb ílu m H E K LU að up p fy llt u m ák væ ð u m áb yr g ð ar sk ilm ál a. Þ á er að fi nn a á w w w .h ek la .is /a b yr g d Šumarverð ŠKODA ŠKODA Superb Limo Ambition Listaverð: 5.060.000 kr. Afsláttur: -480.000 kr. Verð frá: 4.580.000 kr. ŠKODA Á SNILLDARLEGU SUMARTILBOÐI! Kíktu á hekla.is/skodas umar og sjáðu öll sumartilboð in! BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sala gistinátta á Íslandi á bókunar- síðunni Expedia hefur aukist um rúman fimmtung milli ára. Aukning- in er m.a. rakin til aukins framboðs vegna færri bókana á hótelum. Expedia er ein vinsælasta bókun- arsíða heims. Þar má bóka flug, gist- ingu og bílaleigubíl á einum stað. Ólafía Lárusdóttir, viðskiptastjóri Expedia í Reykjavík, segir aukn- inguna líka vitna um breytta kaup- hegðun. Traust í netviðskiptum hafi aukist mikið síðustu ár. Fólk sé í vax- andi mæli að bóka ferðalög á netinu. „Þetta eru áhugaverðir tímar fyrir ferðaþjónustuna. Tilfinning okkar hjá Expedia er að salan sé svolítið að færast til ferðaskrifstofa á netinu. Það kemur líka til af því að það er meira laust á hótelunum en í fyrra. Það skapar tækifæri fyrir netfyrir- tækin til að selja gistinætur. Áður var búið að bóka herbergin löngu áð- ur en bókunarglugginn hjá okkur opnaðist,“ segir Ólafía. Úr 80 dögum í 60 daga Hún segir til skýringar að ferða- menn skipuleggi ferðir með styttri fyrirvara en áður. Fyrir nokkrum ár- um hafi ferðir verið bókaðar með að meðaltali 80 daga fyrirvara. Nú sé tíminn kominn niður í 60 daga. Ólafía segir meðalverð á gistingu hafa lækkað milli ára. Hversu mikið sé erfitt að segja. Markaðurinn sé enda orðinn mjög fjölbreyttur. Þessi þróun vegi á móti styrkingu krón- unnar og hækkun verðlags. Ólafía telur aðspurð að þetta ár verði ágætt í ferðaþjónustunni. „Það lítur út fyrir að þetta verði mjög gott ár hjá okkur,“ segir Ólafía. Fáar bílaleigur í góðum rekstri Steinn Logi Björnsson, forstjóri Bláfugls, segir síðasta ár hafa verið „vont ár í afkomu íslenskra ferða- þjónustufyrirtækja“. Áhrifin eigi eftir að koma upp á yfirborðið. „Til dæmis býst ég við að fáar bíla- leigur hafi komið vel út úr síðasta ári og það á við um fleiri geira. Fram- undan eru væntanlega samrunar og grisjun í greininni. Eigið fé í fyrir- tækjum í ferðaþjónustu er lítið. Menn hafa getað stofnað félög með lítið eigið fé og vaxið hratt,“ segir Steinn Logi og bendir á að hætt hafi verið við ýmis hótelverkefni. Bankar séu nú varkárari. Breyttar aðstæður muni birtast í minni fjárfestingu í ýmsum greinum ferðaþjónustu. „Stór hluti af vextinum í ár, og það sem knýr vöxt ferðaþjónustunnar í ár, verður millilandaflugið en síður túrisminn. Sala íslenskra flugfélaga á sætum til útlendinga er útflutning- ur á millilandaflugi, hvort sem það er til Íslands eða um Ísland.“ Breyttar Íslandsferðir Steinn Logi hefur langa reynslu af íslenskri ferðaþjónustu. Hann kom m.a. að stofnun Samtaka ferðaþjón- ustunnar og var fyrsti formaður þeirra. Hann segir fjölda ferða- manna ekki segja alla söguna. „Sú mæling skiptir sífellt minna máli. Ísland er orðið dýrara og þá styttist dvölin. Ferðamönnum frá Mið-Evrópu er líka að fækka. Þeir eru með lengstu meðaldvölina, til dæmis Þjóðverjar, Ítalir og Frakk- ar. Þeir koma hingað og eru í tvær, þrjár vikur. Bandaríkjamennirnir, sem eru sífellt stærra hlutfall er- lendra ferðamanna á Íslandi, dvelja hér mun skemur. Þeir fá enda styttra sumarfrí. Þá eru Asíubúar yfirleitt að sameina fleiri en eitt land í ferðum sínum.“ Steinn Logi segir þetta þó ekki helsta áhyggjuefnið. „Það er í sjálfu sér eðlilegt að það hægi á vextinum. Ég held að Ísland fari ekkert af rat- sjánni aftur. Aðalblikurnar sem nú eru á lofti eru kostnaðurinn í grein- inni og samkeppnin. Þá vísa ég til styrkingar krónunnar og launa- hækkana. Þessir þættir hljóta að hafa áhrif á afkomu fyrirtækja,“ segir Steinn Logi sem telur íslenska ferðaþjónustu ekki standa undir svo háum launum. Þá bendir Steinn Logi á að flug- geirinn einkennist af reglubundnum sveiflum. Icelandair og WOW air hafi vaxið hratt við kjöraðstæður. Eftirspurn hafi aukist og vextir verið lágir, ásamt fleiri þáttum eins og til dæmis lágu eldsneytisverði. Með hækkandi eldsneytisverði, auknum launakostnaði og fleiri þáttum hljóti framlegð flugfélaganna að fara minnkandi. Samkeppnin að harðna Davíð Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Dohop, segir bókunum hafa fjölgað milli ára. Bókanir komi fyrst og fremst frá Íslendingum. Ferðir á HM eigi þátt í fjölgun bókana. Davíð segir aðspurður að Ísland eigi í harðnandi samkeppni við önnur lönd um ferðamenn. Áfangastöðum fyrir ferðalög fjölgi ár frá ári. „Ísland er ekkert sérstakur staður í huga einhvers sem býr í Evrópu. Hann er kannski með fimm lönd á lista til að heimsækja en það er líka ódýrt að fljúga til 100 annarra áfangastaða, til dæmis frá Bret- landi,“ segir Davíð. Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við HÍ, segir Ísland í sömu stöðu og þegar t.d. þorskafli dróst saman á 9. áratugnum og hagræðing varð óum- flýjanleg í greininni. Í kjölfarið hafi sjávarútvegsfyrirtæki sameinast, skipum fækkað og störfum fækkað. „Eftir gríðarlega fjölgun ferða- manna síðustu 5-6 ár er farið að hægja á og bæta þarf grunnrekstur í greininni. Miklar launahækkanir og gengishækkun setja gríðarlegan þrýsting á hagræðingu. Það mun gerast með því að einhver fyrirtæki hætta rekstri og önnur sameinast.“ Slaki á hótelum skapar tækifæri  Alþjóðlega bókunarsíðan Expedia hefur selt ríflega fimmtungi fleiri gistinætur á Íslandi en í fyrra  Meira er laust á hótelunum  Forstjóri Bláfugls segir árið í fyrra hafa verið erfitt í ferðaþjónustu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ferðamenn á Arnarhóli Færri hópar koma nú frá Evrópu en í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.