Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Að mati lögfróðra manna sem
Morgunblaðið leitaði til vegna
dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 21.
júní, þar sem ákvörðun hluthafa-
fundar Stemmu hf. þann 9. maí
2016 að selja lóðaréttindi að Aust-
urvegi 12 og 14 á Hvolsvelli til Fox
ehf. var ógilt, felur niðurstaða hér-
aðsdóms í sér áhugaverða nálgun á
málshöfðunarrétt stjórnarmanna
hlutafélaga samkvæmt 96. gr.
hlutafélagalaga nr. 2/1995.
Segja viðmælendur Morgun-
blaðsins að telja verði að ef nið-
urstaða héraðsdóms standi, að
undangenginni áfrýjun til Lands-
réttar, sé komið fordæmi sem
styrki frekar minnihlutavernd í
félagarétti.
Var vikið úr stjórninni
Með dómnum var farið að kröfu
fyrirtækisins Sjarms og Garms
ehf. og Sigmars Vilhjálmssonar,
sem oftast er kenndur við Ham-
borgarafabrikkuna, en Sigmar og
Sjarmur og Garmur stefndu
Stemmu vegna deilna þeirra Sig-
mars og Skúla Gunnarssonar í
Subway um ferðaþjónustuverkefni
á Hvolsvelli. Sigmar var ósáttur
við að áhugi Íslandshótela á lóð-
unum skyldi vera hunsaður. Ís-
landshótel skiluðu 50 milljóna
króna skuldbindandi tilboði í lóð-
irnar, sem meirihluti félagsins virti
ekki viðlits, að sögn Sigmars. Þessi
í stað var helmingi lægra tilboði
Fox ehf. tekið, en það er í eigu
besta vinar Skúla, eins og fram
kom í héraðsdómi. Greiddi Sigmar
atkvæði gegn þeim viðskiptum á
stjórnarfundi Stemmu fyrir hönd
Sjarms og Garms, en Skúli greiddi
atkvæði með sölunni í krafti meiri-
hluta. Eftir fundinn var Sigmar
rekinn úr stjórninni.
Sigmar segir í samtali við
Morgunblaðið að kjarni málsins sé
sá að dómarinn í málinu hafi sagt í
dómsorði að sá sem sé stjórnar-
maður þegar ákvörðun er tekin,
hafi heimild til að stefna, þó hann
sé ekki lengur í stjórn. „Ef hann
hefði ekki dæmt þetta þannig, þá
hefði það þýtt að stjórnarmanna-
ábyrgðin væri engin,“ segir Sig-
mar.
Sigmar staðfestir að undirbún-
ingur að skaðabótamáli á hendur
Skúla sé þegar hafinn, en það verð-
ur höfðað að sögn Sigmars á
grundvelli ákvörðunar dómsins.
Sigmar bendir á að fyrir minni-
hlutaeigendur í fyrirtækjum geti
fordæmið sem hér hafi mögulega
myndast þýtt að erfiðara verði fyr-
ir þá efnameiri í hlutafélögum að
þvinga fram sínar ákvarðanir. Mik-
il áhætta, tími og útgjöld fylgi því
að höfða dómsmál. „Þar sem það er
kominn vonandi fordæmisgefandi
dómur þá gæti það gefið minni-
hlutaeigendum í framtíðinni betri
vonir um að ná fram réttlæti.“
Vafi um greiðslu hlutafjár
Spurður um málið sem dregið
var til baka fyrir héraði um meint
ólögmæti hlutafjáraukningar í
Stemmu, vill Sigmar lítið tjá sig, en
segir að það sé á borði ríkisskatt-
stjóra og hafi verið þar síðastliðin
tvö ár.
Sigmar staðfestir einnig að þar
sé um að ræða vanefnt hlutafjárlof-
orð Skúla. Að öðru leyti vill hann
ekki tjá sig um málið að svo
stöddu.
Fordæmi í minnihlutavernd
Dómsalur Sigmar í héraðsdómi ásamt Daða Bjarnasyni, lögmanni sínum.
Mátti kæra málið þó hann sæti ekki í stjórn lengur Undirbýr skaðabótamál
gegn Skúla í Subway Mál varðandi ólögmæta hlutafjáraukningu á borði RSK
Deilur
» Sigmar og Skúli eiga báðir
hlut í Sjarmi og Garmi ehf. en
það félag á 36% hlut í
Stemmu.
» Upphaflega stóð til að
byggja upp ferðaþjónustu við
Hvolsvöll þar sem í dag er
Lava-setrið.
Framlegð félagsins var 4,6 millj-
arðar króna, samanborið við 4,7
milljarða króna árið áður, eða
24,7% framlegð samanborið við
24,9% á síðasta ári.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, af-
skriftir og skatta (EBITDA) nam
1.193 milljónum króna á fyrsta
fjórðungi rekstrarárs Haga, sam-
anborið við 1.277 milljónir króna í
fyrra. EBITDA-hlutfall var 6,4%,
samanborið við 6,7% árið 2017.
Handbært fé frá rekstri á tíma-
bilinu nam 550 milljónum króna,
samanborið við 1.090 milljónir
króna fyrir ári. Handbært fé nam
373 milljónum króna í lok tímabils-
ins. Eigið fé félagsins var 18,7 millj-
arðar króna í lok maí og eigin-
fjárhlutfall 61,6%.
Í afkomutilkynningu Haga til
Kauphallar kemur fram að fyrsti
ársfjórðungur sé í takti við áætl-
anir og gera stjórnendur sem fyrr
ráð fyrir að EBITDA á rekstrar-
árinu verði um 5 milljarðar króna.
Fjárfestingaáætlun er einnig
óbreytt eða um 1,8-2,0 milljarðar
króna.
Hagnaður Haga á fyrsta fjórðungi
rekstrarársins var 728 milljónir
króna. Í fyrra nam hagnaður
félagsins á sama fjórðungi, sem
spannar mars, apríl og maí, 850
milljónum króna.
Vörusala nam 18,6 milljörðum
króna á fjórðungnum, samanborið
við 19,0 milljarða króna árið áður.
Sölusamdráttur tímabilsins milli
ára er 2,4%. Í matvöruhluta Haga
var sölusamdráttur 2,8% í krónum
talið en 3,8% í stykkjum.
Minni hagnaður Haga á fyrsta fjórðungi
Afkoma í takti við áætlanir stjórnenda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hagar Eiginfjárhlutfallið er 61,6%.
29. júní 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 106.91 107.43 107.17
Sterlingspund 140.02 140.7 140.36
Kanadadalur 80.48 80.96 80.72
Dönsk króna 16.622 16.72 16.671
Norsk króna 13.091 13.169 13.13
Sænsk króna 11.91 11.98 11.945
Svissn. franki 107.2 107.8 107.5
Japanskt jen 0.9693 0.9749 0.9721
SDR 150.1 151.0 150.55
Evra 123.85 124.55 124.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 153.6639
Hrávöruverð
Gull 1256.8 ($/únsa)
Ál 2151.0 ($/tonn) LME
Hráolía 76.54 ($/fatið) Brent
Gengi hlutabréfa
í Eik fasteigna-
félagi lækkaði
mest í viðskiptum
gærdagsins í
Kauphöll Íslands,
eða um 3,65%.
Velta með bréfin
var í kringum 159
milljónir króna.
Hlutabréf í Eim-
skip lækkuðu um
1,90% og svipað í Reitum. Ekkert
félag hækkaði í kauphöllinni í gær.
Veltan í Kauphöll Íslands var rétt
rúmlega 1,4 milljarðar króna. Mest
var veltan með bréf Marels, fyrir
343 milljónir króna.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,03%
í viðskiptum gærdagsins en vísitalan
hefur hækkað um 4,7% það sem af er
árinu.
Rautt í
Kauphöll
Markaðir Ekkert fé-
lag hækkaði í gær.
Úrvalsvísitalan
lækkaði um 1,03%
● Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli
var 3,9% samkvæmt vinnumark-
aðsrannsókn Hagstofunnar.
Áætlað er að 209.300 manns á
aldrinum 16-74 ára hafi verið á
vinnumarkaði í maí, sem jafngildir
83,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru
201.100 starfandi en 8.200 manns
án vinnu og í atvinnuleit.
Samanburður mælinga fyrir maí
2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið
jókst um 6.000 manns en hlutfall
þess af mannfjölda lækkaði um 1,3
prósentustig. Atvinnulausir voru um
2.100 færri en í maí í fyrra og hlut-
fall þeirra lækkaði um 1,2 prósentu-
stig.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var
2,3% í maí, en íslenskur vinnumark-
aður sveiflast reglulega milli mánaða
vegna árstíðabundinna þátta.
Atvinnuleysi í apríl var 4,5%, en
árstíðaleiðrétt var það 3,5%. Árstíða-
leiðrétt atvinnuleysi lækkaði því um
1,2 prósentustig milli mánaða.
Atvinnuleysi í maí
minna en í fyrra
Atvinna Yfir 83% atvinnuþátttaka í maí.
STUTT
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar