Morgunblaðið - 29.06.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Fimm létust í Mumbai í gær þegar lítil flugvél af gerð-
inni King Air C-90 brotlenti á byggingarsvæði í einu
þéttbýlishverfi borgarinnar. Fjórir hinna látnu voru
flugmenn og flugvirkjar um borð í vélinni en sá fimmti
var á jörðinni þar sem hún brotlenti. Að sögn sjúkraliða
á Rajawadi-spítala voru þrír karlar og tvær konur
meðal hinna látnu. Sjónarvottar segjast hafa heyrt
mikla sprengingu, kviknað hafi í tré við bygging-
arsvæðið og eldurinn síðan breiðst út á götu. Hamfara-
hjálp Indlands segist hafa sent björgunarliða til þess að
leita í rústum byggingarsvæðisins að fólki sem kunni
að hafa orðið undir þegar vélin brotlenti.
Indland
Fimm létu lífið í flugslysi í Mumbai
AFP
Mumbai Rústir byggingarsvæðisins þar sem flugvélin brotlenti. Unnið er að leit og björgunaraðgerðum í rústunum.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Evrópa stendur frammi fyrir ýms-
um áskorunum en innflytjenda-
stefnan gæti ráðið örlögum hennar.“
Þessi orð lét Angela Merkel Þýska-
landskanslari falla í aðdraganda
leiðtogafundar Evrópusambandsins
sem hófst í Brussel í gær. Óhætt er
að segja að mikið sé í húfi á fund-
inum og að hart verði tekist á til
þess að komast að sameiginlegri
niðurstöðu í innflytjendamálum.
Bretar sækja fundinn í von um að
ræða um skilmála útgöngu þeirra úr
Evrópusambandinu sem áætlað er
að taki gildi á næsta ári. Viðræðum
hefur lítið miðað undanfarið, eink-
um vegna deilna um landamæri Ír-
lands og Norður-Írlands og hvernig
landamæragæslu skuli háttað eftir
útgönguna. Þó má þykja ólíklegt að
mál Bretlands verði öðrum leiðtog-
um ofarlega í huga á fundinum.
Emmanuel Macron Frakklandsfor-
seti hefur lengi viðrað metnaðarfull-
ar áætlanir um nánari tengsl hag-
kerfa evrusvæðisins, þar á meðal
um sameiginlega fjárhagsáætlun
evruríkjanna og aukna fjárhagsað-
stoð til aðildarríkja í kreppuástandi,
og vonast til þess að geta unnið þeim
stuðning á fundinum. Merkel hefur
lýst yfir veikum stuðningi við sumar
tillögur Macrons en líklegt er þó að
þær tillögur hans sem lagðar verða
fram á fundinum verði ekki eins rót-
tækar og hann gerði sér vonir um.
Flóttamannavandinn verður á
allra vörum á fundinum. Merkel
berst fyrir pólitísku lífi sínu á fund-
inum þar sem flokksfélagar hennar í
Bæjaralandi hafa gagnrýnt hana
harðlega fyrir stefnu hennar í inn-
flytjendamálum. Horst Seehofer,
innanríkisráðherra í ríkisstjórn
Merkel, hefur sett henni þá úrslita-
kosti að finna lausn til að hafa hemil
á innflutningi flóttamanna því ella
muni hann óhlýðnast henni og vísa
sjálfur burt hælisleitendum á landa-
mærum Þýskalands sem hafa þegar
verið skráðir sem hælisleitendur í
öðrum Evrópuríkjum. Án stuðnings
Seehofers og bæverskra flokksherja
hans hættir Merkel á að glata meiri-
hluta sínum á þýska ríkisþinginu. Í
drögum að niðurstöðum fundarins
fallast ríkisleiðtogarnir á að „vinna
náið saman“ til þess að koma í veg
fyrir flutninga hælisleitenda innan
Evrópusambandsins, sem gæti
nægt Merkel til að sefa Seehofer og
félaga þótt orðalagið sé ekki eins af-
gerandi og hún eflaust vonaðist eft-
ir.
Brottfararstöðvar í Afríku?
Meðal tillagnanna sem varpað
hefur verið fram er bygging svokall-
aðra „brottfararstöðva“ utan Evr-
ópu fyrir flóttamenn og tilvonandi
innflytjendur. Þessar stöðvar yrðu
líklega byggðar á ströndum Norður-
Afríku í því skyni að stjórna komu
innflytjenda og koma í veg fyrir sjó-
slys flóttamannabáta, sem hafa ver-
ið tíð á Miðjarðarhafi síðustu árin.
Óvíst er þó hvernig staðið yrði að
byggingu slíkra stöðva, hvert skipu-
lag þeirra yrði og í hvaða Afríkuríkj-
um þeim yrði komið fyrir.
„Sífellt fleiri standa í þeirri trú að
aðeins sterk valdbeiting, andevr-
ópsk og ófrjálslynd í eðli sínu og
með tilhneigingu til einræðistil-
burða, geti unnið bug á straumi
ólöglegra innflytjenda,“ sagði Don-
ald Tusk, forseti Evrópuráðsins, í
orðsendingu til fundargestanna.
„Mikið er í húfi og tíminn á þrotum.“
Mikilvægur leiðtogafundur
Brexit ekki ofarlega á forgangslista þjóðanna á leiðtogafundi í Brussel
„Mikið er í húfi og tíminn er á þrotum,“ segir Tusk, forseti Evrópuráðsins
AFP
Fundurinn Angela Merkel Þýskalandskanslari og Emmanuel Macron
Frakklandsforseti mæta til leiks á leiðtogafundi Evrópusambandsins.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Leit er hafin að nýjum dómara í
hæstarétt Bandaríkjanna til að
hlaupa í skarðið fyrir Anthony Kenn-
edy, sem hyggst setjast í helgan
stein í júlí. Kennedy hefur lengi ver-
ið miðjusinnaðasti dómarinn í rétt-
inum og því oft verið í aðstöðu til að
greiða úrslitaatkvæði þar sem helm-
ingur hinna dómaranna hneigist til
vinstri og hinn til hægri. Atkvæði
Kennedys tryggði meðal annars að
hjónaband samkynhneigðra var lög-
leitt í öllum ríkjum Bandaríkjanna
árið 2015. Eftirmaður Kennedys
verður annar hæstaréttardómarinn
sem Donald Trump Bandaríkjafor-
seti fær að útnefna á eftir Neil Gor-
such, sem tók sæti í hæstaréttinum í
fyrra.
Gorsuch tók við af íhaldsmannin-
um Antonin Scalia, sem lést í febrúar
2016. Sæti Scalia stóð autt í rúmt ár
áður en Gorsuch tók við þar sem
Mitch McConnell, forseti neðri
deildar Bandaríkjaþings, neitaði að
leyfa atkvæðagreiðslu um nýtt dóm-
araefni á síðasta forsetaári Baracks
Obama með þeim röksemdum að of
stutt væri til næstu forsetakosninga.
Gagnrýnendur McConnells hafa
sakað hann um hræsni þar sem nú er
styttra til þingkosninga en þá var til
forsetakosninga.
Trump er líklegur til að tilnefna
íhaldsmann í dómaraembættið. Úr-
skurðir hans gætu því haft mikil
áhrif á ákvarðanir um réttindi til
fóstureyðinga og lagaréttindi sam-
kynhneigðra á næstu árum.
Trump hefur leit að nýjum
hæstaréttardómara
Útnefningin þýðingarmikil fyrir ýmis umdeild málefni
Tilkynnt hefur
verið að Donald
Trump og Vladí-
mír Pútín, forset-
ar Bandaríkj-
anna og Rúss-
lands, muni
hittast í Helsinki
hinn 16. júlí
næstkomandi.
Þetta kemur fram á fréttavef AFP.
Þetta verður fyrsti formlegi leið-
togafundur forseta ríkjanna frá því
að Barack Obama hitti Dímítrí
Medvedev árið 2009. Litið var á
þann fund sem nýtt skref í átt að
vinsamlegri samskiptum ríkjanna
en ekki rættist úr þeim fyrirheitum.
Samskipti Rússlands og Bandaríkj-
anna eru nú óvinsamlegri en þau
hafa verið frá því á kaldastríðs-
árunum þrátt fyrir að Trump hafi
oft lýst yfir vilja til að vingast við
Pútín.
„Ég held að við munum tala um
Sýrland. Ég held að við munum tala
um Úkraínu. Ég held að við munum
tala um ýmislegt,“ sagði Trump.
„Og við sjáum hvað gerist. Á fund-
um veit maður aldrei hvað gerist,
er það nokkuð?“ John Bolton, ör-
yggisráðgjafi Trumps, sagði að
ekki myndi koma til tals að aflétta
viðskiptaþvingunum sem lagðar
voru á Rússland eftir innlimun
Rússa á Krímskaga árið 2014. Þó
hefur Trump persónulega lýst yfir
þeirri skoðun sinni að skaginn til-
heyri Rússlandi með réttu.
TRUMP OG PÚTÍN FUNDA
Hittast í Helsinki
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk