Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 Reykjavík Miklar byggingarframkvæmdir standa nú yfir í miðborginni. M.a. er verið að byggja nýtt glæsihótel við hlið Hörpu. Valli Fregnir berast úr Vesturheimi um að Hæstiréttur Bandaríkj- anna hafi kveðið upp dóm, þar sem það var talið andstætt stjórn- arskrá að skylda starfsmenn til að greiða framlög til launþegafélaga, sem þeir vildu ekki eiga aðild að. Fjallað var um dóminn í ritstjórn- argrein Morgunblaðsins í gær. Þar er rifjað upp að rétturinn hafi á árum áður komist að annarri niðurstöðu um sama álitaefni en nú talið að sá dómur hafi verið rangur. Segir í greininni að færð séu í dóminum nú sannfærandi rök fyrir þessu. Síðan er vikið að félagafrelsi á Íslandi sem tryggt eigi að vera í stjórnarskránni. Hins vegar hafi heildarsamtök launþega á vinnu- markaði og Samtök atvinnulífsins í eins konar virku samsæri gegn ákvæðinu tryggt að ákvæði stjórnarskrárinnar um fé- lagafrelsi sé orðin tóm. Þetta er rétt. Ástæða er til að hvetja til þess að þessi íslenska forsmán verði borin undir dómstóla til að fá úr því skorið hvort unnt sé að þvinga íslenska launþega til að- ildar að félögum með þessum hætti þó að þeir sjálfir vilji það ekki. Það er hins vegar svolítið skondið að sjá klykkt út með því í forystugreininni að Hæstiréttur Íslands hafi haft „þrek og burði“ til að telja íslensku neyð- arlögin standast, þegar á það reyndi á árinu 2011. Þá gerði rétturinn ekki einu sinni tilraun til að rökstyðja hvers vegna lögmætt hafi verið að fjármagna vernd innlána í íslenskum bönkum með fjármunum annarra kröfuhafa bankanna. Að þessu er vikið í bók minni Í krafti sannfæringar, bls. 320-323. Kannski menn þarfnist aðallega „þreks og burða“, þegar kom- ist er að niðurstöðu sem ekki er unnt að rökstyðja? Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Ástæða er til að hvetja til þess að þessi ís- lenska forsmán verði borin undir dómstóla til að fá úr því skorið hvort unnt sé að þvinga íslenska launþega til að- ildar að félögum með þessum hætti þó að þeir sjálfir vilji það ekki. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Um þrek og burði Fundur leiðtogaráðs ESB hófst í Brussel í gær og honum lýkur í dag. Í aðdraganda hans hefur athyglin beinst að deilu innan þýsku ríkisstjórnar- innar. Hún er milli kristilegu systurflokk- anna (CDU/CSU) en ekki þeirra og jafn- aðarmanna (SPD). Kristilegu flokkarnir, tveir mið- hægri-flokkar, hafa verið þunga- miðja þýskra stjórnmála í um það bil 70 ár. Nú hefur jafnvel verið spurt hvort samstaða þeirra kunni að rofna vegna mismunandi útlend- ingastefnu. Straumur farand- og flóttafólks til Þýskalands hefur stórlega minnkað frá árinu 2015 þegar Angela Merkel kanslari (CDU) ákvað að tekið skyldi á móti öllum sem komu frá Sýrlandi og Norður-Afríku til Þýskalands. Talan ein og hálf millj- ón er gjarnan nefnd til að lýsa fjöld- anum sem þá leitaði skjóls hjá Þjóð- verjum. Nú fyrst er komið að pólitískum skuldadögum Merkel. Haustið 2017 var gengið til þing- kosninga í Þýskalandi. Kristilegir héldu stöðu sinni sem stærsti þing- flokkurinn, jafnaðarmenn fóru hall- oka en Alternative für Deutschland (AfD), nýr flokkur hægra megin við CDU/CSU, sigraði í kosningunum og varð þriðji stærsti þingflokk- urinn. Andstaða við útlendingastefnu Merkel var helsta baráttumál AfD. Að kosningum loknum tók það Merkel tæplega hálft ár að mynda stjórn að nýju með SPD. Hún eftir- lét SPD embætti fjár- málaráðherra. Horst Seehofer, leiðtogi CSU, varð innanríkis- ráðherra og fékk þar með framkvæmd út- lendingastefnunnar í sínar hendur. Fyrir rúmum hálfum mánuði kynnti hann í 63 liðum hvernig hann ætlaði að standa að gæslu þýskra landamæra. Hann sagði Merkel hafa samþykkt 62,5 liði. Spurning er hvort 0,5 sem eftir eru verða til að fella stjórn Merkel og jafnvel sundra samstöðu CDU og CSU. Kosningar í Bæjaralandi Sambandslýðveldið Þýskaland skiptist í 16 sambandslönd og er Frí- ríkið Bæjaraland (Freistaat Bayern) syðst þeirra. Landið er annað fjöl- mennasta sambandslandið með um 13 milljónir íbúa, en stærst að flat- armáli, um 70.000 ferkílómetrar. Fyrir utan landamæri að öðrum þýskum sambandslöndum liggja landamæri Bæjaralands að Tékk- landi og Austurríki. CSU, Kristilega sósíalsambandið, hefur verið ráðandi flokkur Bæjara- lands frá síðari heimsstyrjöld. For- sætisráðherra landsins hefur komið úr röðum flokksins síðan 1957 og frá 1966 (fyrir utan kjörtímabilið 2008 til 2013) hefur flokkurinn átt meiri- hluta á þingi í höfuðborginni Münch- en. Nú á flokkurinn 101 þingmann af 180 á þingi Bæjaralands. Kosið verður til þingsins í október 2018 og sækir AfD í fyrsta sinn gegn CSU. Einfalda lýsingin á því sem greinir á milli CDU og CSU er að Bæjaraflokkurinn sé íhaldssamur á Í desember 2017 tók ný ríkis- stjórn við völdum í Austurríki með mið-hægri-flokkinn ÖVP í forsæti en hægriflokkinn FPÖ með innanríkis- málin. Miðvikudaginn 20. júní var sameiginlegur fundur ríkisstjórna Austurríkis og Bæjaralands í Linz í Austurríki og voru útlendingamál þar á dagskrá. Pólitísk áhrif frá Austurríki og Ítalíu eru meiri í Bæjaralandi en öðrum sambandslöndum Þýska- lands. CSU-menn telja sig verða að sýna hörku á borð við nágranna sína, jafnt gagnvart Merkel og öðr- um. Lítið skjól í Brussel Efnt var í skyndi til 16 ESB-ríkja leiðtogafundar í Brussel sunnudag- inn 24. júní að undirlagi Merkel. Til- lögu hennar um fund í Berlín var hafnað og Donald Tusk, forseti leið- togaráðs ESB, vildi ekki boða fund- inn. Það kom í hlut Jean-Claudes Junckers, forseta framkvæmda- stjórnar ESB, að fara að ósk Þýska- landskanslara. Enginn sameiginlegur árangur náðist á fundinum. Merkel hafði vonað að ná samkomulagi við Giu- seppe Conte, nýjan forsætisráð- herra Ítalíu, um eitthvað sem róaði Seehofer en það mistókst. Lars Rasmussen Løkke, forsætis- ráðherra Danmerkur, og Sebastian Kruz kanslari vinna að hugmynd um sérstaka móttöku- og brottvísunar- stöð hælisleitenda utan ESB, helst í Norður-Afríku. Ítalir vilja þetta líka. Fulltrúar Póllands og Ungverja- lands sátu ekki leiðtogafundinn 24. júní. Þeir eru hins vegar á leiðtoga- ráðsfundinum núna og árétta harða andstöðu við kvótastefnuna sem Merkel hefur fylgt, það er að hvert ESB-ríki verði skyldað til að taka sinn hlut hælisleitenda frá Ítölum. Xavier Bettel, forsætisráðherra Lúxemborgar, sagði eftir litla leið- togafundinn: „Þetta mál snýst ekki um hve lengi Merkel getur haldið lífi sem kanslari.“ ESB breytir um stefnu Austurríkismenn efndu til sér- stakrar æfingar þriðjudaginn 26. júní með her og lögreglu til að loka landamærum sínum gagnvart Slóv- eníu. Sögðu yfirvöld að þetta væri gert vegna óvissunnar um stefnu Þjóðverja og þess sem væri að gerj- ast á flóttamannaleiðum í Balkan- löndunum. Að kvöldi sama dags komu for- ystumenn stjórnarflokkanna CDU, CSU og SPD saman í Berlín til að ráða ráðum sínum. Að morgni mið- vikudags 27. júní voru skilaboðin þessi: Staðan er mjög alvarleg. Ekk- ert samkomulag milli CDU og CSU og formaður SPD getur engu svarað um hvort sambandsþingið verði rof- ið og boðað til kosninga. Biðstaða fram yfir fund leiðtogaráðs ESB. Líf stjórnar Angelu Merkel er í húfi. Útlendingamálin eru kansl- aranum dýrkeypt. Í þeim hafa hins vegar orðið þáttaskil innan ESB. Stefnan um kvótaskiptingu hælis- leitenda er á undanhaldi. Nú er rætt hvaða aðferðum skuli beitt til að reka hælisleitendur frá einstökum löndum og halda þeim í sérstökum búðum í Norður-Afríku. Líklegt er að leiðtogaráð ESB ákveði að stór- efla Frontex, landamærastofnun Evrópu, til að gæta ytri Schengen- landamæranna. Stefna harðlínu- manna eins og Seehofers verður stefna ESB. Stjórn Merkel er borg- ið. Eftir Björn Bjarnason » Líf stjórnar Angelu Merkel er í húfi. Útlendingamálin eru kanslaranum dýrkeypt. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Útlendingamálin eru Angelu Merkel dýrkeypt sviði félagsmála og íhlutunarsamur á sviði fjármála. Þetta er áherslu- munur milli flokka sem í sjö áratugi hafa átt samleið þótt stundum hafi slest upp á vinskapinn og nú illilega í útlendingamálunum. Horst Seehofer vill reka alla hæl- isleitendur sem sótt hafa um hæli eða skráð sig í öðru ESB/Schengen- landi tafarlaust frá Þýskalandi. Dublin-reglugerðin, hluti Schengen- samstarfsins, gerir ráð fyrir að um- sóknir allra hælisleitenda séu teknar til athugunar sé óskað hælis við landamæri ríkis og eigi hælisleitand- inn rétt á að dveljast í viðkomandi landi á meðan umsóknin er vegin og metin. Angela Merkel vildi ekki að Seehofer gripi til einhliða aðgerða af þessu tagi. Hafa yrði samráð um málið innan ESB og helst ná sam- eiginlegri niðurstöðu á leiðtogaráðs- fundinum 28. og 29. júní, Seehofer skyldi halda að sér höndum fram yf- ir fundinn og samþykkti hann það. Þótt CSU búi sig undir átök við AfD í komandi kosningum hefur flokkurinn ekki síður auga á því sem gerist í austurrískum og ítölskum stjórnmálum. Sebastian Kruz, kanslari Austurríkis, er í forystu þeirra innan ESB sem vilja harða útlendingastefnu. Ný stjórn á Ítalíu hefur einnig gripið til harðra ráð- stafana gagnvart fólki á ólöglegri ferð yfir Miðjarðarhaf. Matteo Salv- ini innanríkisráðherra vill einnig reka 500.000 ólöglega innflytjendur frá Ítalíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.