Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Reykjavík Miklar byggingarframkvæmdir standa nú yfir í miðborginni. M.a. er verið að byggja nýtt glæsihótel við hlið Hörpu.
Valli
Fregnir berast úr Vesturheimi
um að Hæstiréttur Bandaríkj-
anna hafi kveðið upp dóm, þar
sem það var talið andstætt stjórn-
arskrá að skylda starfsmenn til að
greiða framlög til launþegafélaga,
sem þeir vildu ekki eiga aðild að.
Fjallað var um dóminn í ritstjórn-
argrein Morgunblaðsins í gær.
Þar er rifjað upp að rétturinn hafi
á árum áður komist að annarri
niðurstöðu um sama álitaefni en
nú talið að sá dómur hafi verið
rangur. Segir í greininni að færð
séu í dóminum nú sannfærandi
rök fyrir þessu.
Síðan er vikið að félagafrelsi á
Íslandi sem tryggt eigi að vera í
stjórnarskránni. Hins vegar hafi
heildarsamtök launþega á vinnu-
markaði og Samtök atvinnulífsins
í eins konar virku samsæri gegn
ákvæðinu tryggt að ákvæði
stjórnarskrárinnar um fé-
lagafrelsi sé orðin tóm. Þetta er
rétt. Ástæða er til að hvetja til
þess að þessi íslenska forsmán
verði borin undir dómstóla til að
fá úr því skorið hvort unnt sé að
þvinga íslenska launþega til að-
ildar að félögum með þessum
hætti þó að þeir sjálfir vilji það
ekki.
Það er hins vegar svolítið
skondið að sjá klykkt út með því í
forystugreininni að Hæstiréttur
Íslands hafi haft „þrek og burði“ til að telja íslensku neyð-
arlögin standast, þegar á það reyndi á árinu 2011. Þá gerði
rétturinn ekki einu sinni tilraun til að rökstyðja hvers vegna
lögmætt hafi verið að fjármagna vernd innlána í íslenskum
bönkum með fjármunum annarra kröfuhafa bankanna. Að
þessu er vikið í bók minni Í krafti sannfæringar, bls. 320-323.
Kannski menn þarfnist aðallega „þreks og burða“, þegar kom-
ist er að niðurstöðu sem ekki er unnt að rökstyðja?
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
» Ástæða er til
að hvetja til
þess að þessi ís-
lenska forsmán
verði borin undir
dómstóla til að fá
úr því skorið
hvort unnt sé að
þvinga íslenska
launþega til að-
ildar að félögum
með þessum
hætti þó að þeir
sjálfir vilji það
ekki.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er lögmaður.
Um þrek
og burði
Fundur leiðtogaráðs
ESB hófst í Brussel í
gær og honum lýkur í
dag. Í aðdraganda
hans hefur athyglin
beinst að deilu innan
þýsku ríkisstjórnar-
innar. Hún er milli
kristilegu systurflokk-
anna (CDU/CSU) en
ekki þeirra og jafn-
aðarmanna (SPD).
Kristilegu flokkarnir, tveir mið-
hægri-flokkar, hafa verið þunga-
miðja þýskra stjórnmála í um það bil
70 ár. Nú hefur jafnvel verið spurt
hvort samstaða þeirra kunni að
rofna vegna mismunandi útlend-
ingastefnu.
Straumur farand- og flóttafólks til
Þýskalands hefur stórlega minnkað
frá árinu 2015 þegar Angela Merkel
kanslari (CDU) ákvað að tekið
skyldi á móti öllum sem komu frá
Sýrlandi og Norður-Afríku til
Þýskalands. Talan ein og hálf millj-
ón er gjarnan nefnd til að lýsa fjöld-
anum sem þá leitaði skjóls hjá Þjóð-
verjum. Nú fyrst er komið að
pólitískum skuldadögum Merkel.
Haustið 2017 var gengið til þing-
kosninga í Þýskalandi. Kristilegir
héldu stöðu sinni sem stærsti þing-
flokkurinn, jafnaðarmenn fóru hall-
oka en Alternative für Deutschland
(AfD), nýr flokkur hægra megin við
CDU/CSU, sigraði í kosningunum
og varð þriðji stærsti þingflokk-
urinn.
Andstaða við útlendingastefnu
Merkel var helsta baráttumál AfD.
Að kosningum loknum tók það
Merkel tæplega hálft ár að mynda
stjórn að nýju með SPD. Hún eftir-
lét SPD embætti fjár-
málaráðherra. Horst
Seehofer, leiðtogi
CSU, varð innanríkis-
ráðherra og fékk þar
með framkvæmd út-
lendingastefnunnar í
sínar hendur. Fyrir
rúmum hálfum mánuði
kynnti hann í 63 liðum
hvernig hann ætlaði að
standa að gæslu
þýskra landamæra.
Hann sagði Merkel
hafa samþykkt 62,5
liði. Spurning er hvort 0,5 sem eftir
eru verða til að fella stjórn Merkel
og jafnvel sundra samstöðu CDU og
CSU.
Kosningar í Bæjaralandi
Sambandslýðveldið Þýskaland
skiptist í 16 sambandslönd og er Frí-
ríkið Bæjaraland (Freistaat Bayern)
syðst þeirra. Landið er annað fjöl-
mennasta sambandslandið með um
13 milljónir íbúa, en stærst að flat-
armáli, um 70.000 ferkílómetrar.
Fyrir utan landamæri að öðrum
þýskum sambandslöndum liggja
landamæri Bæjaralands að Tékk-
landi og Austurríki.
CSU, Kristilega sósíalsambandið,
hefur verið ráðandi flokkur Bæjara-
lands frá síðari heimsstyrjöld. For-
sætisráðherra landsins hefur komið
úr röðum flokksins síðan 1957 og frá
1966 (fyrir utan kjörtímabilið 2008
til 2013) hefur flokkurinn átt meiri-
hluta á þingi í höfuðborginni Münch-
en. Nú á flokkurinn 101 þingmann af
180 á þingi Bæjaralands.
Kosið verður til þingsins í október
2018 og sækir AfD í fyrsta sinn gegn
CSU. Einfalda lýsingin á því sem
greinir á milli CDU og CSU er að
Bæjaraflokkurinn sé íhaldssamur á
Í desember 2017 tók ný ríkis-
stjórn við völdum í Austurríki með
mið-hægri-flokkinn ÖVP í forsæti en
hægriflokkinn FPÖ með innanríkis-
málin. Miðvikudaginn 20. júní var
sameiginlegur fundur ríkisstjórna
Austurríkis og Bæjaralands í Linz í
Austurríki og voru útlendingamál
þar á dagskrá.
Pólitísk áhrif frá Austurríki og
Ítalíu eru meiri í Bæjaralandi en
öðrum sambandslöndum Þýska-
lands. CSU-menn telja sig verða að
sýna hörku á borð við nágranna
sína, jafnt gagnvart Merkel og öðr-
um.
Lítið skjól í Brussel
Efnt var í skyndi til 16 ESB-ríkja
leiðtogafundar í Brussel sunnudag-
inn 24. júní að undirlagi Merkel. Til-
lögu hennar um fund í Berlín var
hafnað og Donald Tusk, forseti leið-
togaráðs ESB, vildi ekki boða fund-
inn. Það kom í hlut Jean-Claudes
Junckers, forseta framkvæmda-
stjórnar ESB, að fara að ósk Þýska-
landskanslara.
Enginn sameiginlegur árangur
náðist á fundinum. Merkel hafði
vonað að ná samkomulagi við Giu-
seppe Conte, nýjan forsætisráð-
herra Ítalíu, um eitthvað sem róaði
Seehofer en það mistókst.
Lars Rasmussen Løkke, forsætis-
ráðherra Danmerkur, og Sebastian
Kruz kanslari vinna að hugmynd um
sérstaka móttöku- og brottvísunar-
stöð hælisleitenda utan ESB, helst í
Norður-Afríku. Ítalir vilja þetta líka.
Fulltrúar Póllands og Ungverja-
lands sátu ekki leiðtogafundinn 24.
júní. Þeir eru hins vegar á leiðtoga-
ráðsfundinum núna og árétta harða
andstöðu við kvótastefnuna sem
Merkel hefur fylgt, það er að hvert
ESB-ríki verði skyldað til að taka
sinn hlut hælisleitenda frá Ítölum.
Xavier Bettel, forsætisráðherra
Lúxemborgar, sagði eftir litla leið-
togafundinn: „Þetta mál snýst ekki
um hve lengi Merkel getur haldið
lífi sem kanslari.“
ESB breytir um stefnu
Austurríkismenn efndu til sér-
stakrar æfingar þriðjudaginn 26.
júní með her og lögreglu til að loka
landamærum sínum gagnvart Slóv-
eníu. Sögðu yfirvöld að þetta væri
gert vegna óvissunnar um stefnu
Þjóðverja og þess sem væri að gerj-
ast á flóttamannaleiðum í Balkan-
löndunum.
Að kvöldi sama dags komu for-
ystumenn stjórnarflokkanna CDU,
CSU og SPD saman í Berlín til að
ráða ráðum sínum. Að morgni mið-
vikudags 27. júní voru skilaboðin
þessi: Staðan er mjög alvarleg. Ekk-
ert samkomulag milli CDU og CSU
og formaður SPD getur engu svarað
um hvort sambandsþingið verði rof-
ið og boðað til kosninga. Biðstaða
fram yfir fund leiðtogaráðs ESB.
Líf stjórnar Angelu Merkel er í
húfi. Útlendingamálin eru kansl-
aranum dýrkeypt. Í þeim hafa hins
vegar orðið þáttaskil innan ESB.
Stefnan um kvótaskiptingu hælis-
leitenda er á undanhaldi. Nú er rætt
hvaða aðferðum skuli beitt til að
reka hælisleitendur frá einstökum
löndum og halda þeim í sérstökum
búðum í Norður-Afríku. Líklegt er
að leiðtogaráð ESB ákveði að stór-
efla Frontex, landamærastofnun
Evrópu, til að gæta ytri Schengen-
landamæranna. Stefna harðlínu-
manna eins og Seehofers verður
stefna ESB. Stjórn Merkel er borg-
ið.
Eftir Björn
Bjarnason » Líf stjórnar Angelu
Merkel er í húfi.
Útlendingamálin eru
kanslaranum dýrkeypt.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Útlendingamálin eru Angelu Merkel dýrkeypt
sviði félagsmála og íhlutunarsamur
á sviði fjármála. Þetta er áherslu-
munur milli flokka sem í sjö áratugi
hafa átt samleið þótt stundum hafi
slest upp á vinskapinn og nú illilega í
útlendingamálunum.
Horst Seehofer vill reka alla hæl-
isleitendur sem sótt hafa um hæli
eða skráð sig í öðru ESB/Schengen-
landi tafarlaust frá Þýskalandi.
Dublin-reglugerðin, hluti Schengen-
samstarfsins, gerir ráð fyrir að um-
sóknir allra hælisleitenda séu teknar
til athugunar sé óskað hælis við
landamæri ríkis og eigi hælisleitand-
inn rétt á að dveljast í viðkomandi
landi á meðan umsóknin er vegin og
metin.
Angela Merkel vildi ekki að
Seehofer gripi til einhliða aðgerða af
þessu tagi. Hafa yrði samráð um
málið innan ESB og helst ná sam-
eiginlegri niðurstöðu á leiðtogaráðs-
fundinum 28. og 29. júní, Seehofer
skyldi halda að sér höndum fram yf-
ir fundinn og samþykkti hann það.
Þótt CSU búi sig undir átök við
AfD í komandi kosningum hefur
flokkurinn ekki síður auga á því sem
gerist í austurrískum og ítölskum
stjórnmálum. Sebastian Kruz,
kanslari Austurríkis, er í forystu
þeirra innan ESB sem vilja harða
útlendingastefnu. Ný stjórn á Ítalíu
hefur einnig gripið til harðra ráð-
stafana gagnvart fólki á ólöglegri
ferð yfir Miðjarðarhaf. Matteo Salv-
ini innanríkisráðherra vill einnig
reka 500.000 ólöglega innflytjendur
frá Ítalíu.