Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 Árum saman hafa stjórnvöld hafnað áreiðanleikakönnun varðandi byggingu á þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut. Þótt eng- in sátt sé um staðarval vílar stjórnsýslan ekki fyrir sér að ganga þvert gegn rökstudd- um aðvörunum. Furðu sætir að stjórnmálamenn komist upp með að hunsa þjóðarvilja og leyfi að klastr- að verði upp úreltum byggingum við Hringbraut. Byggingaframkvæmdin er ill- framkvæmanleg og dýru verði keypt vegna þrengsla við nærliggj- andi byggð ásamt því að aðliggjandi gatnakerfi ræður ekki við aukið álag sem hlýst af framkvæmdinni. Engin sátt verður þegar stórvirk tæki fara að athafna sig af fullum þunga á byggingasvæðum með stór- felldum efnis- og vöruflutningum árum saman. Tugmilljarða seinvirkar jarðvegs- framkvæmdir þurfa að eiga sér stað auk stórbættra stofnæða og breyt- inga á háspennustrengjum og öðr- um lögnum. Girða þarf stór svæði af vegna framkvæmda ásamt því að koma fyrir plássfrekum bygginga- krönum og þungavinnutækjum. Þegar gamla Hringbrautin, helsta samgönguæðin við spítalann, rofnar er óumflýjanlegt að fram- kvæmdin leiði til þess að starfsfólk, gestir og sjúkrabílar komast ekki óhindrað að spítalanum, jafnvel í bráðatilfellum. Margfeldisáhrifin á umferðarhnútum við Snorrabraut, Eiríksgötu og Barónsstíg munu ekki láta á sér standa. Stjórn- málamenn munu sverja af sér alla ábyrgð og benda á að hún liggi alls staðar annars staðar þegar sjúk- lingar ná ekki tímanlega til spít- alans vegna öngþveitis og annarra uppákoma. Árið 2015 varaði KPMG við með ítarlegum hætti að byggingafram- kvæmd við Hringbraut væri óá- sættanleg þar sem aðliggjandi gatnakerfi stæði ekki undir umferð- arflæði ásamt öðrum annmörkum og óvissuþáttum. Útvaldar verkfræðistofur hafa eftirlitslítið getað leyft sér að hanna spítala með úreltum- og kostnaðar- sömum hætti og vanþekkingu, án útboða og aðhalds. Sama rugli á síð- an að viðhalda næstu árin. Miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi fyrir sérhagsmunaöfl að geta mjólk- að ríkissjóð áfram, og láta sig engu varða að uppbygging við Hring- braut er illframkvæmanleg. Draga má í efa að áratuga hönn- unar- og verkfræðikostnaður stand- ist skoðun og notagildi sé í sam- ræmi við útlagðan kostnað og eðlilegt viðskiptasiðferði. Þó svo að milljörðum hafi verið mokað eft- irlitslaust í hönnun á uppbyggingu við Hringbraut er sá fórnarkostn- aður léttvægur miðað við það sem hlýst af því að halda óábyrgu verk- ferli áfram. Það er galið að hönnun hátæknisjúkrahúss eigi sér stað án þess að þekking liggi þar að baki. Úti um allan heim hafa nýtísku- sjúkrahús verið byggð á örfáum ár- um og eðlilegast er að nýta sér ut- anaðkomandi þekkingu með sem minnstum tilkostnaði. Framkvæmdir við Hringbraut eru erfiðasta og dýrasta bygging- arleið sem fyrirfinnst á Reykjavík- ursvæðinu, jafnt ofan- sem neðan- jarðar. Engu að síður víla verk- fræðistofur ekki fyrir sér, sem og helstu ráðgjafar og hönnuðir, að ýta undir glórulausar framkvæmdir. Byggingarmáti neðanjarðar er um- fangsmikill og einkennist af löngum göngum, ranghölum og tengibygg- ingum, sem eiga eftir að verða þjóð- inni dýrkeypt. Einnig á að byggja fimm hæða bílastæðakjallara neðanjarðar þótt brjóta og sprengja þurfi tugþúsundir rúm- metra af klöpp. Tímafrekt og kostn- aðarsamt er að endur- byggja gömul og mygl- uð húsakynni þar sem strípa þarf hvern ein- asta fermetra, skipta út gluggum, raf- og pípulögnum, brjóta upp gólf og veggi til að endurnýja lagnir og fletta múr og ein- angrun af veggjum vegna myglu. Að ætla sér síðan að laga starfsemina að gamalli og úr- eltri teikningu er galið. Framkvæmd vegna jáeinda- skanna undanfarin ár gefur fyllilega til kynna hversu óábyrgar kostn- aðaráætlanir eru, samanber að sú framkvæmd hefur ríflega fjórfald- ast úr 250 milljónum í um 1.100 milljónir og verkinu ekki lokið. Stundum þarf að viðurkenna mis- tök og læra af þeim, ekki síst þegar sjúkir og slasaðir eiga allt undir því að vel takist til. Enga iðnaðarmenn er að hafa vegna þenslu, nema þá helst ónot- hæfa eða á uppsprengdu verði. Við slíkar aðstæður er ábyrgðarlaust að vaða af stað með stærstu fram- kvæmd Íslandsögunnar og vita ekki einu sinni hvað hún á að kosta eða byggingartíma. Flestum er ljóst að kostnaðartölum og tímasetningum hefur verið slengt fram af algjöru ábyrgðarleysi. Stjórnvöldum er fyrirmunað að ná sátt um nýtt staðarval á nýju sjúkrahúsi á skjótan hátt þar sem ofsahagsmunir og sérhagsmuna- gæsla ráða för. Þjóðin þarf að taka upplýsta ákvörðun með lýðræð- islegum hætti um staðarval til að tryggja betri sátt ásamt því að huga að útboði á hagkvæmu nýtísku- sjúkrahúsi. Stjórnvöld stuðla að þjóðarglæp með stærstu framkvæmd Íslands- sögunnar við núverandi efnahags- ástand og þenslu sem ýtir undir hærri byggingarkostnað sem skilar sér út á hinn almenna húsnæðis- markað. Verðbólga mun hækka og riðla enn frekar efnahagslegum stöðugleika. Einnig er óafturkræft að hunsa að umferðarflæði á helstu stofnæðum í gegnum borgina er sprungið. Í því ljósi ber að flytja stærsta vinnustað landsins annað. Til að verkefnið klárist á traustan og farsælan hátt færi best á að þjóðarsjúkrahúsið okkar yrði boðið út á nýjum og betri stað í heild sinni með verulegum kvöðum. Flýta ber allri skipulags- og hönnunar- vinnu til að tryggja framkvæmd, tímasetningu og verkábyrgð. Undir slíkri ábyrgð verður illa risið nema hún sé á einni hendi og niðurnjörv- uð með afgerandi hætti. Vandséð er hvernig verkábyrgð haldi án yfirumsjónar öflugs og trausts erlends byggingafyrirtækis. Höfuðstöðvar Orkuveitunnar og uppbygging síðustu áratuga gefa fullt tilefni til að látið sé af óábyrgu verkferli. Stjórnvöld og stjórnsýsla eru óhæf til tryggja að sem best verði staðið að uppbyggingu nýs sjúkra- húss með sem hagkvæmustum hætti, og slíkt ber að uppræta. Byggingaábyrgð þarf að vera til staðar til að forða ríkisjóði frá tug- milljarða kostnaðarauka og töfum. Landspítali við Hring- braut og afleiðingar Eftir Vilhelm Jónsson »Útvaldar verk- fræðistofur hafa eftirlitslítið getað leyft sér að hanna spítala með úreltum og kostn- aðarsömum hætti og vanþekkingu, án útboða og aðhalds. Vilhelm Jónsson Höfundur er fjárfestir. vilhelmjons@gmail.com Rammaáætlun var samþykkt samhljóða á Alþingi. Hún er sátt milli sjónarmiða verndunar- og virkj- unaráforma. Á Íslandi er þrígreint ríkisvald. Þótt tvær greinar þess séu mjög tengd- ar vegna þingræðis þá er skiptingin þannig að Alþingi segir með lögum og þingsálykt- unum framkvæmdavaldinu fyrir verkum. Ráðherra má aldrei fara gegn vilja þingsins. Það hlýtur einn- ig að gilda um undirstofnanir hans. Ég rifja þetta upp vegna þess að Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gert tillögur um friðlýsingu gíf- urlegs landflæmis sunnan friðlands- ins á Hornströndum. Samkvæmt fréttum er tekið fram í þeirra skýrslu að tillögunni sé sérstaklega beint gegn virkjunaráformum í Ófeigsfirði sem Alþingi hefur sam- þykkt með Rammaáætl- un. Þannig skorar und- irstofnun umhverfis- ráðherra á hann að fara gegn vilja þingsins. Gert er ráð fyrir ákveðnu ferli í Ramma- áætlun. Náttúrufræði- stofnun hefur ekki kom- ið að athugasemdum við virkjunaráform fyrr en nú. Lyktar það illa. Er því líkast sem ráðherra hafi gefið fyrirmæli þar um. Í gögnum Náttúrfræðistofnunar er getið um þetta landsvæði og ástæður þess að rétt þykir að friða það eru vegna jarðfræði. Virkjunin skemmir ekki slíkt. Hún er byggð neðanjarðar og stíflur eru gerðar úr jarðefnum og því hægt að má þær burtu ef ástæða þykir til. Margir geta fallið fyrir áróðri Landverndar í þessu máli. Þetta er langt í burtu. Fáir búa þarna og virkjunin breytir ekki miklu í heild- arorkuframleiðslu landsins. Orku- stofnun hefur áætlað orkuþörf Ís- lendinga miðað við að halda sömu velsæld og nú er og að við stöndum við skuldbindingar okkar í loftslags- málum. Þeir sjá fyrir mikla þörf. Möguleikar fyrir stórvirkjanir eru nánast taldir og því verður orkuþörf okkar ekki fullnægt nema með mörgum smærri virkjunum. Land- vernd berst á móti þeim öllum. Ef við látum öfgar ráða og höfnum sátt og málamiðlun milli virkjana og verndunar lendum við í orkuskorti sem getur leitt til þess að öflin sem vilja lítið friða nái yfirhöndinni. Sala okkar á umhverfisvænni orku til stóriðju en gífurlega stórt framlag til loftslagsmála. Með henni sparast margföld mengun Íslend- inga miðað við að orkan yrði ella framleidd með kolum. Samtök eins og Landvernd starfa eftir tilfinningum en ekki eftir skyn- semi. Þannig fáum við ekki hag- kvæmustu lausnirnar með því að hlusta á þau. Það er sorglegt að þau hafi komið kvislingi á ráðherrastól sem virðist beita undirstofnunum sínum til að fara gegn vilja Alþingis. Möguleikar okkar í baráttu við loftslagsvána eru ekki að loka álver- um. Þeir eru að virkja meira og skipta út brennslu á jarðefnaelds- neyti fyrir raforku, í höfnum, í verk- smiðjum í upphitun, jafnvel í ferjum og skipum auk farartækja. Land- vernd á eftir að berjast áfram fyrir hverju sem við gerum hér eftir sem hingað til. Við megum ekki reisa virkjanir, leggja raflínur eða nokkuð það sem er forsenda framfara og minni hækkunar á hitastigi jarðar. Ein ósannindin sem Landvernd beitir er að lítið sé eftir af ósnortn- um víðernum og við græðum svo mikið á að vernda þau. Staðreyndin er sú að mikill hluti af norðurhveli jarðar er ósnortin víðerni auk þess eru eyðimerkur jarðarinnar lítt byggðar. Með því að troða þessum ósannindum í okkur aftur og aftur gætu margir farið að trúa þeim. Höldum sátt um málamiðlun vernd- unar og friðunar og hlustum ekki á öfgarnar. Við þurfum velsæld til að knýja velferðarkerfið. Fer utanþingsráðherra gegn vilja þingsins? Eftir Þorstein Ásgeirsson Þorsteinn Ásgeirsson »Með því að troða þessum ósannindum í okkur aftur og aftur gætu margir farið að trúa þeim. Höfundur er pípulagningameistari. Fallegar vörur fyrir falleg heimili Opið virka daga kl. 10-18 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Hágæða sláttutraktorar frá 40 ár á Íslandi Sterkir og notendavænir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.