Morgunblaðið - 29.06.2018, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
✝ Ingibjörg ElínKristinsdóttir,
alltaf kölluð Elín,
fæddist í Reykja-
vík 26. október
1932. Hún lést á
hjúkrunar-
heimilinu Eyri 23.
júní 2018, eftir
snörp og erfið
veikindi. Elín var
dóttir hjónanna
Gísla Jóhanns
Jónssonar loftskeytamanns, f. í
Gaulverjabæ, Árnessýslu 1910,
d. 1941, og Svövu Halldórs-
dóttur, f. 1910 á Húsavík,
Norður-Þingeyjarsýslu, d. 1993.
Foreldrar hennar skildu. Fóst-
urforeldrar Anna Sigrún Jóns-
Anna Kristín, f. 1951, eig-
inmaður Sigurður Heiðdal
Hauksson. Þeirra synir eru
Hreinn, f. 1978, og Haukur, f.
1980. 2) Halldóra, f. 1954, eig-
inmaður Jón Reynir Sigurvins-
son. Halldóra á tvo syni, Arnar
Snæ, f. 1984, og Birgi Fannar,
f. 1985. Stjúpsynir Halldóru og
synir Jóns eru Magni Hreinn, f.
1983, og Ísleifur Muggur, f.
1994. Langömmubörnin hennar
voru orðin 13.
Elín ólst upp á Akureyri hjá
fósturforeldrum sínum. Þau
tóku hana í fóstur nokkurra
vikna gamla. Þar lifði hún sín
æskuár og eignaðist vini sem
héldu vinskap á meðan þau
lifðu. Elín vann ýmis störf eftir
að hún fluttist til Reykjavíkur,
þó lengst af afgreiðslustörf í
bókaverslunum.
Kveðjuathöfn verður í Ísa-
fjarðarkirkju í dag, 29. júní
2018, kl. 16. Jarðsett verður í
Kópavogi.
dóttir og Kristinn
Jóhannesson en
þau áttu einn son,
Jón, f. 1935, d.
1985.
Elín ólst upp á
Akureyri til 17 ára
aldurs en þá flutti
hún til Reykjavík-
ur.
Átti þrjá hálf-
bræður samfeðra,
Brynjólf, Gunnar
og Jón Braga, og tvær hálf-
systur sammæðra, Þyri Huld
og Sif Huld.
Eiginmaður Elínar var
Hreinn Snæland Halldórsson, f.
1929, d. 2012. Þau giftu sig 4.
júlí 1953. Dætur þeirra eru: 1)
Elsku mamma mín hefur
kvatt þetta líf. Konan sem var
mín fyrirmynd og klettur. Kon-
an sem synir mínir dýrkuðu.
Alltaf var hún reiðubúin að
rétta þeim hjálparhönd og
styrkja. Hvatti þá áfram í því
sem þeir voru að gera ef henni
fannst það til framdráttar fyrir
þá. Hún fylgdist með þeim og
fjölskyldum þeirra til hins síð-
asta. Þeir voru duglegir að
koma með börnin sín til hennar
og hafði hún mikið gaman af
því. Hún var svo barngóð.
Mamma hafði sjaldan verið
veik og held ég að það sé telj-
andi á fingrum annarrar hand-
ar þau skipti sem hún þurfti að
leita læknis fyrir áttrætt. Ef
eitthvað kom upp á var hún
fljót að ná sér upp úr því. Það
var ekki fyrr en pabbi dó árið
2012 að það fór að bera á veik-
indum hjá henni. Hún hafði
hugsað um hann heima eftir að
hann greindist með alzheimer í
nokkur ár og svo fór hún dag-
lega til hans eftir að hann fór á
hjúkrunarheimilið Mörkina, en
þar var hann í rúmt ár. Ég dáð-
ist alltaf að umhyggju hennar
og nærgætni við hann. Þau
voru bestu vinir og félagar og
báru ómælda virðingu hvort
fyrir öðru. Þau ferðuðust mikið
bæði hér heima og til annarra
landa þegar bæði voru heil-
brigð. Mamma bjó þeim ynd-
islegt heimi og var fjölskyldan
henni alltaf efst í huga. Þegar
pabbi féll frá og veikindi sóttu
á mömmu ákvað hún að flytja
vestur til okkar. Þar keypti hún
sér litla þjónustuíbúð og leið
vel með okkur í nánast næsta
húsi. Fyrir tveimur árum datt
hún heima og lærbrotnaði og
þurfti að fara í aðgerð. Eftir
það gat hún ekki búið ein og
komst inn á hjúkrunarheimilið
Eyri. Hún var farin að gleyma
og líkamlegur og andlegur
styrkur hafði minnkað mjög.
Þarna leið henni vel og var ein-
staklega vel hugsað um hana.
Þessi síðustu ár eru mér mjög
mikilvæg í minningunni þar
sem ég gat sinnt mömmu og
verið með henni meira en áður.
Við urðum miklar vinkonur. Ég
er Guði þakklát fyrir að hafa
gefið mér þetta tækifæri til að
hugsa um hana. Á tímabili
skiptum við um hlutverk og
hlógum við oft að því. Ég á
margar minningar um mömmu
og erfitt að setja þær á blað.
Þær á ég með mér og kem til
með að deila þeim með börnum
mínum síðar. Sterkasta minn-
ingin er í huga mér hversu stór
persóna mamma var, sterk og
sjálfstæð. Hún hvatti mig til að
hugsa vel um mig, alveg fram á
síðasta dag sem hún gat tjáð
sig. Ég lofaði henni því. Hún
vissi að þetta yrði erfitt fyrir
mig en hún sagðist jafnframt
hlakka til að hitta pabba. Þess
vegna samgleðst ég henni. Við
trúðum báðar á annað líf og
ræddum það oft. Það var ótrú-
leg reynsla sem ég varð fyrir
síðasta morguninn hennar þeg-
ar ég sat hjá henni, og er ég
núna sannfærð um að það er líf
eftir þetta líf þótt í annarri
vídd sé. Mamma fékk friðsælt
andlát með okkur báðar syst-
urnar hjá sér. Hjartans þakkir
til Jóns Reynis fyrir það hve
mikill stuðningur hann var við
hana og gleðigjafi. Hann var
hennar besti vinur eins og hún
sagði við mig. Ég kveð elsku
mömmu mína með miklu þakk-
læti fyrir allt sem hún var mér
og mínum og bið algóðan Guð
að taka á móti henni og leiða
inn í eilífa ljósið.
Góða nótt elsku mamma mín
og Guð geymi þig!
Þín
Halldóra.
Elsku amma mín er fallin
frá. Ég minnist hennar góð-
mennsku og með þakklæti fyrir
allar þær góðu stundir sem við
áttum og fyrir þá hlýju sem
hún sýndi mér öllum stundum,
allt frá því að ég var ungur
fótboltastrákur og fram á full-
orðinsárin. Amma var glæsileg
kona og maður fylltist ákveðnu
stolti að vera í kringum hana.
Hún var mikill húmoristi, hafði
gaman af ferðalögum, tónlist og
að dansa. Hún var mikill og
góður lífsförunautur afa míns
heitins en þau voru mjög náin
og góðir vinir. Ég hef alltaf
dáðst að þeirra hjónabandi og
þeirri einstöku vináttu sem ein-
kenndi þeirra samband. Það
var gott að eiga ömmu eins og
ömmu mína því til hennar gat
ég leitað og rætt lífið og til-
veruna hverju sinni því hún átti
ráð undir rifi hverju. Við áttum
að baki marga kaffibolla, sér-
staklega í Kópavoginum, þar
sem umræðuefnin voru jafn-
mörg og þau voru breytileg.
Amma var líka kona sem átti
óvenjumargar kaffikönnur í
geymslunni hjá sér. Ég veit
ekki hversu margar vélar hún
átti en hún var oft og tíðum
ekki nægilega ánægð með nýju
vélarnar og fékk þá mömmu til
að versla nýja kaffivél fyrir sig.
Svona gekk þetta svolítið fyrir
sig á tímabili og ég hafði svolít-
ið gaman af þessu. Fannst orð-
ið spennandi að sjá hvort ein-
hverjar kaffivélar væru búnar
að bætast í safnið þegar ég
kom við í Kópvoginum. Amma
hafði sínar ástæður fyrir þessu,
annaðhvort pössuðu vélarnar
ekki í innréttinguna eða helltu
einfaldlega ekki upp á nægilega
gott kaffi. Hún vildi bjóða vin-
um og fjölskyldu upp á gott
kaffi og meðlæti og maður fór
aldrei svangur frá henni.
Amma gaf mér vandaða kaffi-
vél úr geymslunni fyrir nokkr-
um árum sem ég lagði til hliðar
fyrir skemmstu og kom fyrir á
góðum stað hjá mér. Ég ætla
að taka fram þá vél og minnast
ömmu minnar á degi hverjum
enda yljar tilhugsunin um
þessa yndislegu konu sem ég
var svo lánsamur að geta kallað
ömmu mína. Hún á stóran þátt
í því hvernig ég lít á lífið og til-
veruna, hvernig maður einblín-
ir á það jákvæða og nýtur lífs-
ins á sama tíma. Ég mun alltaf
minnast hennar fyrir þá hlýju
sem hún sýndi mér og tvíbura-
dætrum mínum og er þakklátur
fyrir þann tíma sem við fengum
saman. Minning hennar er ljós
í lífi mínu og dætra minna.
Arnar Snær Pétursson.
Amma, amma, amma, þú
yndislega kona. Ekki bjóst ég
við því að sitja hér nú og skrifa
um þig minningargrein þegar
ég hitti þig um páskana. En sú
er nú raunin. Það eru svo mörg
orð sem mig langar til að skrifa
þér en þegar á það reynir
staðna fingur á lyklaborðinu.
Hugurinn reikar fram og til
baka og ég festist hálfpartinn í
því að gráta, hlæja og brosa yf-
ir svo mörgu. En amma mín,
það sem ég græt er að fá ekki
að hitta minn eina sanna perlu-
vin aftur sem varst þú og að
heyra það frá öðrum eftir að þú
ert farin að ég hafi verið í
miklu uppáhaldi hjá þér og ver-
ið þér góður gleður mig meir
en nokkuð annað. Ég græt
núna gleði- og sorgartárum
örugglega jafn mikið og þegar
þú renndir upp í höku einu
sinni. En ég hefði nú getað sagt
mér þetta sjálfur um að ég
væri þér góður, þar sem ég
lagði mig allan fram við að
hjálpa til við að þú hefðir það
gott síðustu árin. Ég var að
gjalda þér nefnilega í sömu
mynt. Kærleika, virðingu, kurt-
eisi, gjafmildi, traust, hlýju og
vinskap að eilífu.
Amma mín, eftir að ég kom
til þín rétt áður en þú sofnaðir,
þá vissirðu að þetta var ég, því
þú sagðir „sæll, vinur“, og
reyndir að brosa. Það sagði
mér allt sem segja þurfti, og að
sitja hjá þér og halda í hönd
þína var líklega besta samtal
sem ég hef nokkurn tímann átt
við manneskju. Alger kyrrð,
hönd í hönd.
Eins sárt og það er, elsku
amma, að þú sért farin í sum-
arlandið góða, þá gleðjumst við
yfir því að þú fáir hvíldina sem
þig var farið að lengja svo eftir.
Ég veit að afi er líka kampa-
kátur núna, þið í göngutúr með
Kóngsa og Gosa. Gætir ekki
fengið betri móttökur en þar.
Elska þig, amma mín, takk
svo mikið fyrir hreinlega allt.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlést okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig, elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo, amma, sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Þinn perluvinur og barna-
barn,
Birgir Fannar Snæland.
Elín
Kristinsdóttir Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
EYRÚN RANNVEIG ÞORLÁKSDÓTTIR,
Krossi í Ölfusi,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum,
Selfossi laugardaginn 23. júní.
Jarðarförin fer fram frá Kotstrandarkirkju laugardaginn
30. júní klukkan 14.
Ragnheiður Lúðvíksdóttir Þorsteinn Jóhann
Vilmundarson
Magnús Arnulf Lúðvíksson Laufey Jónsdóttir
ömmubörn, langömmubörn, systkini
og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA GUÐRÚN HELGADÓTTIR,
píanókennari,
Árskógum 8,
áður Háaleitisbraut 28, Reykjavík,
lést á Landsspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 24. júní.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 9. júlí kl. 15.
Lára Rafnsdóttir Jóhannes Atlason
Theódóra G. Rafnsdóttir
Hlöðver Örn Rafnsson Sigríður Sverrisdóttir
Högni Rafnsson Antonia Gutes Turu
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, sonur og tengdasonur,
NJÁLL ÞÓRÐARSON,
Vesturási 44, Reykjavík,
lést laugardaginn 23. júní.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 4. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast Njalla er bent á styrktarreikning fyrir dætur hans, kt.
210873-3179, reikn.nr. 0370-22-007331.
Þóra Pétursdóttir
Katla Njálsdóttir Yrsa Njálsdóttir
Þórður V. Njálsson Auður B. Stefnisdóttir
Elín Kr. Halldórsdóttir
Ástkæra eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
GUÐRÚN ERNA NARFADÓTTIR,
sjúkraliði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 26. júní.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 2. júlí klukkan 15.
Jón Sturla Ásmundsson
Sigurlaug, Svava og Erna Björk
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
KRISTJANA ÞORGRÍMSDÓTTIR
frá Syðri-Gegnishólum,
Sigtúni 32, Selfossi,
lést á dvalarheimilinu Sólvöllum á
Eyrarbakka þriðjudaginn 26. júní.
Útförin auglýst síðar.
Guðrún Jónsdóttir Albert Sigurjónsson
Sigurður Jónsson
og barnabörn
Ástkær mamma, amma og langamma
okkar,
ELNA ORVOKKI BÁRÐARSON,
lést á heimili sínu, Fellaskjóli í Grundarfirði,
laugardaginn 23. júní.
Útför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag,
föstudaginn 29. júní, klukkan 14.
Gústaf Þorsteinsson
Bárður Orri Þorsteinsson
Karl Bjarni Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Systir mín og frænka okkar,
ÞÓRHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
Dúdda,
fyrrverandi vararæðismaður Íslands
og leiðsögumaður,
sem lést á heimili sínu í Fuengirola
laugardaginn 12. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 4. júlí klukkan 15.
Þorsteinn Þorsteinsson
Gauti Kristmannsson
Þorsteinn Kristmannsson
Kristmann Egill Kristmannsson
Eiður Páll Sveinn Kristmannsson
Leifur Ragnar Jónsson
Kristín Ragna Jónsdóttir
Jón Ragnar Jónsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
stjúpfaðir, afi og langafi,
MAGNÚS MAGNÚSSON,
lést á Dvalarheimilinu Hraunbúðum í
Vestmannaeyjum miðvikudaginn 27. júní.
Útförin fer fram frá Landakirkju miðviku-
daginn 4. júlí klukkan 14.
Elín Helga Magnúsdóttir Fannar Eyfjörð Skjaldarson
Bjarkey Magnúsdóttir
Jón Bernódusson Martína Bernódusson
Þuríður Bernódusdóttir Gísli Erlingsson
barnabörn og barnabarnabörn
systkinin frá Borgarhóli