Morgunblaðið - 29.06.2018, Page 31

Morgunblaðið - 29.06.2018, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018 Hildur Loftsdóttir hildurl@mbl.is Síðasta lag fyrir fréttir nefnast söng- tónleikar sem haldnir verða á Kvos- læk í Fljótshlíð kl. 20.30 á morgun, laugardag. Þar koma fram söng- konurnar Aðal- heiður Margrét Gunnarsdóttir mezzósópran og Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir sópran auk Gló- dísar Margrétar Guðmundsdóttur píanóleikara og Eyrúnar Anítu Guðnadóttur harm- onikkuleikara. Fullveldi og íslensk lög Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og eiginmaður hennar Björn Bjarnason eru skipuleggjendur viðburða á Kvoslæk. Þetta eru fyrstu tónleikar sumarsins af fernum, en einn fyrir- lestur af fjórum hefur þegar verið haldinn og tengjast þeir allir 100 ára afmæli fullveldisins. „Við höfum staðið fyrir tónleikum, fyrirlestrum, flóamörkuðum og bókakynningum á Kvoslæk í þó nokkur ár,“ segir Rut. „Þemað í fyrirlestraröðinni er fullveldið en þeir fjalla allir um aðdraganda þess að Íslendingar öðluðust fullveldi. Síð- an hagaði svo skemmtilega til að þeg- ar allir voru búnir að ákveða sínar efnisskrár fyrir tónleikana kom í ljós að þar verða flutt íslensk lög að mestu leyti. Á mínum tónleikum í lok september verður auk verka eftir Mozart og Mendelssohn flutt verk eftir Jón Ásgeirsson, sem verður ní- ræður í október.“ Tónlistarfólk úr sveitinni Tónleikarnir á morgun bera þá heimilislegu yfirskrift Síðasta lag fyrir fréttir. „Þarna verða flutt öll þessu fallegu íslensku uppáhalds- sönglög; „Gígjan“, „Lindin“, „Í fjar- lægð“ o.fl. Lögin spanna langt tíma- bil, alveg frá Árna Thorsteinssyni og yngsti lagahöfundurinn er Tryggvi Baldvinsson. Þetta verður mjög fjöl- breytt dagskrá,“ segir Rut sem býst við að allir tónleikagestir muni þekkja allar þessar söngperlur. Ey- rún Aníta harmonikkuleikari mun spila frá kl. 20 og vekja stemninguna áður en söngdagskráin hefst um kl. 20.30. Allar tónlistarkonurnar sem koma fram tengjast sveitinni og það á við um flestallt tónlistarfólkið sem fram kemur í sumar. Það hefur allt sótt framhaldsmenntun til Reykjavíkur og til annarra landa. Þau hafa lokið prófum frá Listaháskólanum, Söng- skólanum, Tónskóla þjóðkirkjunnar, Svíþjóð, Hollandi og Bandaríkjunum. „Næstu tónleikar nefnast Bræðra- lög og þar koma fram Bjarni Guð- mundsson, Einar Þór bróðir hans og Guðjón Halldór Óskarsson, sem leik- ur á píanóið. Þeir eru allir frá Hellu og Hvolsvelli. Síðustu tónleikar sum- arsins heita Uppáhaldslög Öðlinga, það er karlakór af svæðinu, sem ætl- ar að syngja létt lög undir stjórn Guðjóns Halldórs. Það er bara á tón- leikunum með mér sem koma strengjaleikarar úr Reykjavík,“ seg- ir Rut. Sveitaferð að sumarlagi Rut segir að undanfarin ár hafi hvort tveggja fólk úr Reykjavík og úr sveitinni mætt á tónleikana og fyrir- lestrana á Kvolslæk. „Við reynum að kynna þetta vel fyrir austan, en líka á höfuðborgar- svæðinu því við vitum að marga lang- ar að koma, bæði til að heyra það sem við bjóðum upp á hverju sinni en líka að fara út í sveit að sumarlagi og eiga góða stund,“ segir Rut Ingólfs- dóttir fiðluleikari og hvetur sem flesta til að gera sér ferð að Kvoslæk í sumar. Okkar helstu söngperlur  Fernir tónleikar verða á Kvoslæk í Fljótshlíð í sumar Söngperlur Glódís, Aðalheiður, Eyrún og Þóra flytja alþekkt sönglög. Rut Ingólfsdóttir » Sýningin New-Zoéland/Nýja-Zoéland var opnuð í Listastofunni við Hringbraut í gær. Henni er lýst sem „innblásinni ferð í duttlungafullan hugarheim lista- mannsins Zoé Sauvage gegnum teikningu/málverk, myndband, innsetningu“ og landið sem sé heimsótt sé frændeyja Nýja-Sjálands. Eftir langt háskólanám og meistarapróf í vistfræði, siðfræði og þróunarvísindum ákvað Sauvage að túlka heillun sína á hinum lifandi heimi yfir í listaheiminn, eins og það er orðað í tilkynningu frá Listastofunni þar sem segir að í myndlistarheimi hennar þjóni vatnslitablettir og blek hlutverkum í frumlegri fléttu af persónulegum goðsagnalegum alheimi. Myndlistarsýning Zoé Sauvage, Nýja-Zoéland, var opnuð í Listastofunni í gær Gestir Carissa og Annel voru við opnun sýningarinnar. Ánægðir Olivier og Sæmundur voru á meðal sýningargesta. Listakonan Zoé Sauvage opnaði í gær myndilistarsýningu sína í Listastofunni að Hringbraut 119. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Myndlistarkonan Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir opnar einkasýninguna Kyrrð í dag kl. 17 í sýningarrýminu Kjallaranum sem er í versluninni Geysir Heima að Skólavörðustíg 12. Jóna Hlíf sýnir ný verk, gólfskúlptúra og textaverk og vinnur út frá nýrri frásögn og með nýja efniviði, samkvæmt til- kynningu. Í forgrunni er leikur með konseptin „afstrakt“ og „form“ með hliðsjón af því hvað felst í að eitthvað sé staðbundið, segir þar. Líkt og í fyrri verkum Jónu Hlífar er einnig unnið með tungumálið, orð og samspil ljóss, forms og lita og tengjast öll verkin endurminningum um staði á eða nálægt hálendi úr misgömlum ferðalögum. „Að baki hverju verki er mynd af stað sem reynt er að lýsa í eins fáum orðum og hægt er, með því að draga fram kjarnann úr endurminningunni af upplifuninni. Það sem sameinar eru heiðríkja, tærleiki og kyrrð – að minnsta kosti í huganum,“ segir í til- kynningu. Gréta Rún Snorradóttir sellóleik- ari leikur við opnun sýningarinnar og boðið verður upp á léttar veit- ingar. Kyrrð í Kjallaranum Jóna Hlíf Halldórsdóttir Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.