Morgunblaðið - 29.06.2018, Side 36
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 180. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Kom að bíl á hvolfi á miðjum vegi
2. Fer ekki úr íslenska...
3. Köttur í gámi frá Álasundi til...
4. 8 milljónir fyrir mörk Alfreðs...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sumardagskrá djassklúbbsins Múl-
ans er í fullri sveiflu og hefur nú
föstudagskvöldum verið bætt við. Í
kvöld er það Arctic Swing Quintet
sem kemur fram á Björtuloftum í
Hörpu kl. 21 en í honum eru nokkrir
af reyndustu djasstónlistarmönnum
landsins, þeir Haukur Gröndal sem
leikur á saxófón, trompetleikarinn
Snorri Sigurðarson, Ásgeir Ásgeirs-
son á gítar, Sigmar Þór Matthíasson
á bassa og Erik Qvick á trommur.
Á efnisskrá tónleikanna verða lög
frá gullaldarárum djassins, 1927-
1945, í skemmtilegum útsetningum,
eins og því er lýst í tilkynningu, þar
sem áherslan er lögð á sveiflu, lag-
ræn sóló og almennan hressleika.
Múlinn býður upp á tónleika út júlí á
miðvikudags- og föstudagskvöldum á
Björtuloftum og munu flestir af
helstu djassleikurum þjóðarinnar
koma fram.
Miðar fást í miðasölu Hörpu, á vef
hennar harpa.is og tix.is.
Múlinn bætir við
föstudagskvöldum
Alþjóðleg farandsýning ungra fata-
hönnuða frá Íslandi, Kína, Panama og
Tansaníu verður haldin kl.
18 á morgun í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Hildur Yeoman tekur
þátt í sýningaröð-
inni, sem ætlað er
að beina sjónum
að ungum og
upprennandi
fatahönn-
uðum.
Farandsýning
ungra fatahönnuða
Á laugardag Suðvestan 5-10 m/s og víða skúrir. Hiti 9 til 18 stig,
hlýjast austanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-8 m/s. Víða dálítil rigning, en
þurrt og bjart veður austanlands. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast eystra.
VEÐUR
Japan krækti í sæti í 16-liða
úrslitum á HM í knattspyrnu
karla í gær þrátt fyrir tap
fyrir Pólverjum í lokaumferð
riðlakeppninnar. Japanir
voru jafnir Senegölum að
stigum þegar dæmið var
gert upp en komust áfram
sökum háttvísi. Kólumbía
komst einnig áfram og
mætir Englendingum sem
töpuðu fyrir Belgum í loka-
umferð G-riðils. Riðlakeppni
HM lauk í gærkvöld. »1,2,3
Háttvísi Japana
skilaði árangri
„Ég skoðaði það mjög vandlega. Nið-
urstaðan var sú að mig langaði að
prófa eitthvað nýtt. Mér finnst
skemmtilegt að spila fótbolta hérna
heima og niðurstaðan var Valur,“
sagði landsliðskonan í
knattspyrnu, Fanndís
Friðriksdóttir, sem
mörgum að óvörum
valdi fremur að
ganga til liðs við
Val en Breiðablik
eftir að hún ákvað
að flytja heim eft-
ir dvöl hjá
franska liðinu
Marseille. »4
Fanndísi langaði að
prófa eitthvað nýtt
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik mætir Búlgörum ytra í dag í for-
keppni heimsmeistaramótsins. Með
sigri tryggir íslenska liðið sér sæti í
milliriðlakeppni HM. Tap þýðir hins-
vegar að við ramman reip verður að
draga að ná sæti í milliriðlakeppn-
inni. Nokkur endurnýjun hefur orðið á
landsliðinu en landsliðsþjálfarinn er
vongóður fyrir leikinn. »2
Leikurinn í Búlgaríu
ræður miklu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við héldum í upphafi að hug-
myndin væri grín,“ segir Ragnar
Santos, einn tíu meðlima í liðinu
TeamFritz, sem nú tekur þátt í
WOW Cyclothon-hjólreiða-
keppninni. Hópurinn ákvað í fyrra
að taka þátt í keppninni til að
heiðra minningu vinar síns, Frið-
jóns Fannars Hermannssonar,
sem lést langt um aldur fram fyrir
um tveimur árum. „Þetta var hug-
mynd sem einn úr hópnum, Finn-
ur Beck, kastaði fram í fyrra. Við
tókum það nú ekkert alvarlega í
upphafi en svo fór hann að pressa
á okkur. Það var síðan ekki hægt
að segja nei þegar það átti að gera
þetta til minningar um Friðjón,“
segir Ragnar, sem hafði ekki átt
hjól frá barnsaldri. Það sama átti
við um hina meðlimi hópsins að
upphafsmanni hugmyndarinnar,
Finni Beck, undanskildum.
„Við fórum bara allir og keypt-
um okkur hjól síðasta haust. Við
höfðum ekki hjólað frá því við vor-
um börn en ákváðum að byrja að
æfa síðasta haust. Það var síðan
lítið æft í vetur en menn byrjuðu
að æfa aftur nú í byrjun sumars,
þó mismikið,“ segir Ragnar.
Virkilega skemmtileg upp-
lifun
Spurður hvers vegna hjólreiða-
keppni hafi orðið fyrir valinu til að
heiðra minningu Friðjóns segir
Ragnar ástæðuna einfalda. „Þetta
áttu bara að vera nokkrir vinir að
fara og hjóla saman. Vera síðan
sveittir hver innan um annan og
njóta þess að sofa saman. Þar að
auki er stemningin í þessu bara
frábær,“ segir Ragnar en hóp-
urinn skiptir leiðinni á milli sín.
Helmingur hópsins hjólar um 130
km á meðan hinir ferðast um í bíl
og reyna að safna orku.
Að sögn Ragnars voru meðlimir
hópsins tilbúnir að leggja mikið á
sig til að taka þátt í keppninni.
„Flestir búum við á Kársnesi í
Kópavogi en þó ekki allir. Einn
kom t.d. frá Boston til að taka
þátt í þessu,“ segir Ragnar og
bætir við að markmið hópsins sé
fyrst og fremst að ná að klára
keppnina. „Til að byrja með væri
frábært að ná að klára þetta enda
erum við að keppa í hjólreiðum í
fyrsta sinn. Að gera það á tveimur
sólarhringum og sofa nánast ekk-
ert er mjög erfitt fyrir menn í
mismikilli þjálfun,“ segir Ragnar
og bætir við að hann yrði afar
sáttur ef liðið kæmi í mark í kvöld.
Hjóla í minningu góðs vinar
10 vinir taka
þátt í hjólreiða-
keppni WOW air
Ljósmynd/TeamFritz
Vinir Þrátt fyrir að í liðinu séu 10 manns segja strákarnir að þeir séu í raun ellefu að Friðjóni meðtöldum.
Hingað til hefur ferð hópsins gengið afar vel en þó hafa smávægileg
vandamál komið upp. Þegar hópurinn var tiltölulega nýlagður af stað
sprakk á dekki eins meðlimanna. Á meðan hluti hópsins kláraði um 130
km leið eyddi hinn helmingurinn tíma í að finna verkstæði sem gat gert
við dekkið. Leitin tók tíma og varð til þess að nokkrir meðlimanna fengu
ekki nauðsynlega hvíld áður en farið var af stað að nýju. Að sögn Ragnars
hefur ferðin, að sprungna dekkinu undanskildu, gengið mjög vel. Þá hafi
veðrið verið frábært á leið þeirra frá Borgarnesi til Akureyrar. „Við vorum
í 18 gráðum og glampandi sól fyrir norðan þannig að þetta er alveg æðis-
legt,“ segir Ragnar.
Frábært veður það sem af er
EITT SPRUNGIÐ DEKK EN ANNARS GENGIÐ EINS OG Í SÖGU