Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018 Kalda stríðið, með sínu við-kvæma ógnarjafnvægi ogviðvarandi hættu á útrým- ingu mannkyns vegna gagnkvæmrar tortryggni austurs og vesturs, varð þeim ágæta tónlistarmanni Sting (sem móðursystir mín lét mig hlusta á, lítt áhugasaman unglinginn) tilefni til að semja lagið sitt um „Rúss- ana“. Það væri full- mikið að segja lagið stórkostlegt en textinn er áhugaverður. Meginstefið er spurningin um hvort Rússar elski ekki börnin sín rétt eins og við hin. Söngvarinn vonar að svo sé, enda sé þeim þá alveg eins mikið í mun og okkur hinum að afstýra allsherj- artortímingu. „Hvorug fylkingin hefur einkarétt á almennri skyn- semi,“ syngur hann; „hvað sem líður hugmyndafræði erum við öll bara manneskjur – og vonandi elskum við öll börnin okkar.“ Okkar köldu stríð Ef við veltum fyrir okkur hvaða mál- efni hafi á undanförnum áratugum skipt íslensku þjóðinni í fylkingar, nánast eins og í „köldu stríði“, eru virkjanaframkvæmdir á meðal þess fyrsta sem kemur upp í hugann. Gjá- in á milli fylkinga er iðulega djúp og illbrúanleg. Al- gengt er að önnur segi um hina: „Þið viljið virkja allt.“ Hin svarar: „Þið viljið vernda allt.“ Það verður að segjast vernd- arsinnum til hróss að þau hafa almennt ekki knúið fram þá stefnu að „vernda allt“, í það minnsta ekki fram til þessa. Þrjár síðustu virkjanaframkvæmdir (stækkun Búrfellsvirkjunar sem gangsett var í vikunni, Þeista- reykjavirkjun og Búðarhálsvirkjun) fóru allar fram í ágætri sátt. Upp á síðkastið hefur það þó orðið áleitin spurning hvaða næstu virkjanir verði samþykktar eins greiðlega, þegar jafnvel lítt sýnilegar fram- kvæmdir á borð við Skrokköldu- virkjun mæta andstöðu þrátt fyrir að tilkvaddir sérfræðingar hafi með faglegri umfjöllun og einkunnagjöf sett þær í flokk minnstu mögulegu umhverfisáhrifa. Virkjanasinnar hafa að sjálfsögðu ekki heldur viljað „virkja allt“, í það minnsta ekki í seinni tíð. Um flesta virkjanakosti sem búið er að setja í verndarflokk vegna neikvæðra um- hverfisáhrifa ríkir fullkomin sátt um að hrófla ekki við þeirri niðurstöðu, þótt á fyrri tímum hafi verið uppi alls kyns hugmyndir sem engum dytti í hug að mæla með í dag. Af framangreindu sést að nálar- auga náttúruverndarsjónarmiða, sem virkjanakostir þurfa að komast í gegnum, hefur þrengst. Líklegt er að þetta sé að hluta til breytt gildis- mat og varanleg þróun, að mörgu leyti heillavænleg, en að hluta til dægursveiflur sem ráðast af efna- hagsástandinu hverju sinni. Styðjum faglega nálgun Það liggur fyrir að við þurfum að auka orkuframleiðslu til að mæta þörfum framtíðarinnar. Hvernig gerum við það? Jú, við höfum komið því þannig fyrir að í stað þess að tvær fylkingar standi í sífelldum hrópum og köllum um hvern virkj- unarkostinn á fætur öðrum eru lög í landinu um hvernig við komumst að niðurstöðu. Við gerum það með verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) sem byggist á fag- legu mati sérfræðinga. Í framhald- inu fer svo fram enn ítarlegra mat á umhverfisáhrifum, m.a. til að tryggja að sveitarfélagið, sem veitir framkvæmdaleyfi, hafi örugglega fullnægjandi upplýsingar í hönd- unum áður en það tekur sína ákvörð- un. Ég notaði tækifærið til að minna á stöðu og tilgang rammaáætlunar þegar ég var í vikunni innt álits á þeim tíðindum að Náttúrufræði- stofnun hefði lagt til við umhverf- isráðherra að Drangajökull og um- hverfi hans yrðu friðlýst, sem samkvæmt fréttum gæti sett Hvalárvirkjun stólinn fyrir dyrnar þó að hún sé í nýtingarflokki rammaáætlunar og í undirbúningi. Ég minnti einfaldlega á þá stað- reynd að rammaáætlun er hið lög- bundna ferli til að flokka virkjunar- kosti og leggja á þá faglegt mat færustu sérfræðinga. Mætti raska svæði í verndarflokki? Hvalárvirkjun hlaut jákvæða niður- stöðu í matsferli rammaáætlunar og Alþingi staðfesti þá niðurstöðu sem sinn vilja. Síðan þá hefur umhverfis- mat farið fram, álit Skipulagsstofn- unar á því mati liggur fyrir, og svo er það í höndum viðkomandi leyfis- veitenda, til að mynda sveitar- stjórnar og Orkustofnunar, að meta hvort leyfin verði veitt. Þegar vegið er og metið hversu heppilegt væri að grípa inn í þetta ferli og friðlýsa svæði í nýtingar- flokki áður en það hefur verið virkj- að, sýnist mér að fróðlegt geti verið að velta fyrir sér hvort gera mætti hið gagnstæða, sem væri að raska svæði í verndarflokki áður en það hefur verið friðlýst. Að gera þar sambærilegt rask og virkjun hefði haft í för með sér en bara ekki setja upp túrbínur og virða þar með virkj- unarbannið í hvívetna. Það er algjör óþarfi að gera mér upp þá skoðun, sem því miður hefur verið gert af þessu tilefni, að mér sé ekki annt um íslenska náttúru, að ég telji að náttúran eigi „einungis að þjóna manninum“ og ekki beri að umgangast hana með virðingu. Svarthvítar alhæfingar af slíku tagi eru að mínu mati kaldastríðstal sem skilar litlu. Það er tímabært að við áttum okkur öll á því að Rússar elska líka börnin sín. thordiskolbrun@anr.is Rússar elska líka börnin sín ’Við höfum komiðþví þannig fyrir að ístað þess að tvær fylk-ingar standi í sífelldum hrópum og köllum um hvern virkjunarkostinn á fætur öðrum eru lög í landinu um hvernig við komumst að niðurstöðu. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Að gefnu tilefni varð varla þver- fótað fyrir at- hugasemdum um fótboltann í netheimum í vikunni og hefur forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir verið ötul við að hvetja íslenska landsliðið á Twitter. Eftir tapið gegn Króötum skrifar hún: „Frammistaða ykkar á HM var frábær! Takk fyrir að veita allri þjóðinni innblástur um hvað það þýðir að vinna saman og gefast aldrei upp.“ Berglind Pétursdóttir, einnig þekkt sem Berglind Festival, fer ótroðnar slóðir í matargerð en hún skrifar: „Eina saltið sem er til í vinnunni er bíópoppsalt og nú er linsoðið egg með bíópoppsalti uppáhaldsmaturinn minn.“ Mat- gæðingurinn deildi einnig frásögn af kostakjörum: „Fékk kíló af papriku á 50 kall um helgina. Er að fá smá leið á paprikusúpu og hrökkbrauði með papriku en sæl- ir eru hagsýnir.“ Hallgrímur Helgason rit- höfundur sýnir samstöðu með kjaradeilum ljósmæðra í skrifum sínum á Facebook. „Í guðanna bænum, kæra ríkisstjórn, hlífið okkur við frekari fregnum af kjaradeilum, verkfalli, yfirvinnubanni og upp- sögnum ljósmæðra. Þjóðfélag sem ekki gerir vel við þessa æðstu starfsstétt sína er í veru- legri krísu. (Reyndar byrjaði síð- asta hrun einmitt með verkfalli ljósmæðra.) Og það er bara gjör- samlega óbærilegt að vita af ljós- mæðrum óánægðum og niður- lægðum. Koma svo, VG.“ AF NETINU Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Borð 136.900 TILBOÐ 82.140 Stóll 18.900 Spegill 38 cm 8.900 Spegill 32 cm 6.900 Stóll 29.900 Stóll 18.900 Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi SÆNSK GÆÐI Í 90 ÁR Sænska fyrirtækið Mora hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 90 ár. Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Mora.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.