Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 23
1.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Volg frönsk súkkulaðikaka
Þessi kaka er borin fram með hindberja-
sósu.
KAKAN
2 bollar hveiti
2 bollar sykur
2⁄3 bollar kakó
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 tsk. gróft salt
1½ bolli mjólk
½ bolli grænmetisolía
2 stór egg
2 msk. vanilluextrakt
TOPPUR
1½ tsk. óbragðbætt gelatín
2 msk. kalt vatn
1 bolli sykur
¾ bollar kornsíróp
3 stórar eggjahvítur
½ vanillustöng, skorin í tvennt og fræin
skröpuð úr
Hitið ofninn í 160°C. Smyrjið tvö kassa-
laga form sem eru 20x20 cm. Setjið bök-
unarpappír í botninn, smyrjið hann og
stráið hveiti inn í. Hristið afganginn af
hveitinu úr.
Hrærið saman hveiti, sykur, kakó, lyfti-
duft, matarsóda og salt í stórri skál.
Hrærið saman í annarri skál mjólk, egg
og vanillu. Bætið blautu efnunum við
þurrefnin og hrærið þar til það rétt
blandast saman.
Setjið í formin og bakið í um 40 mín-
útur. Kælið í formunum á grind í smá-
tíma og takið síðan úr formunum til að
kakan kólni alveg.
Setið gelatínið í kalt vatn og látið
standa þar til það mýkist, eða í um fimm
mínútur.
Blandið saman ½ bolla af sykri og korn-
sírópi í potti og hrærið yfir meðalhita þar
til sykurinn leysist upp. Hitið án þess að
hræra þar til blandan nær 120°C eða í um
tíu mínútur. Takið af hitanum og blandið
gelatíninu við.
Á meðan þetta er að hitna stífþeytið
þá saman eggjahvítur, vanillu og sykur.
Bætið sykrinum út í smám saman og
þeytið þar til hvíturnar verða stífar og
glansandi, eða í um fimm mínútur.
Hellið heitri kornsírópsblöndunni út í
eggjahvíturnar og hrærið stöðugt á með-
an, þar til blandan er orðin þykk, eða í
um átta mínútur.
Kveikið á grillinu í ofninum. Dreifið
blöndunni ofan á kökurnar. Látið standa í
um mínútu. Grillið síðan kökurnar undir
grillinu í ofninum þar til þær brúnast, eða
í um fimm mínútur. Snúið eftir þörfum
svo kökurnar grillist jafnt. Berið fram
heitt.
Ostborgarinn á Bragganum er með chedd-
ar-osti og notaður er 175 g borgari. Það
sem einkennir hann er ferska salsað sem
borið er fram með honum og sterka majo-
nesið.
PICO DE GALLO-SALSA
4 tómatar, skornir í litla bita
1 meðalstór rauðlaukur, þunnt skorinn
búnt af nýsöxuðu kóríander
4 hvítlauksgeirar, skornir í litla bita
1 jalapeno, skorinn í litla bita
safinn úr einni límónu
salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Öllu blandað vel saman.
STERKT SKYRMAJONES
50 g majones
10 g sriracha-sósa
2 g sesamolía
10 g skyr
Öllu blandað vel saman. Passar vel með
frönskum.
Ostborgari með fersku
salsa og sterku majonesi
Líka er á matseðli veganborgari úr kínóa með mangó og guacamole-sósu.
1 lítri repjuolía eða jarðhnetuolía
250 ml sýrður rjómi
190 ml majones
3 msk. sólþurrkaðir tómatar
35 g grillaðar rauðar paprikur
1 msk. límónusafi
1½ tsk. nýmalaður svartur pipar
2 tsk. salt
45 ml hvítvín
1 msk. fínskorinn hvítlaukur
2 gulir laukar
500 ml súrmjólk
280 g hveiti
1 tsk. hvítlauksduft
350 ml bjór
2 msk. rifinn parmesanostur
Hitið olíuna í djúpsteikingarpotti eða
pottjárnspotti í 180 °C.
Blandið saman í matvinnsluvél sýrðum
rjóma, majonesi, tómötum, paprikum,
límónusafa, ½ tsk pipar, 1 tsk. salt, hvít-
víninu og fínskorna hvítlauknum.
Skerið laukinn í 1 cm þykkar sneiðar,
fjarlægið hýðið og skiptið niður í hringi.
Látið liggja í súrmjólk í eina klukku-
stund.
Blandið saman 140 g af hveiti, afgang-
inum af saltinu og piparnum og hvít-
lauknum og blandið vel saman. Blandið
vel saman í meðalstórri skál bjórnum og
afganginum af hveitinu.
Fjarlægið laukhringina úr súrmjólkinni
og hristið aukavökva af. Dýfið í hveiti og
hristið aukahveiti af. Dýfið næst ofan í
bjórdeigið. Setjið laukhringina ofan í ol-
íuna en passið að hafa þá ekki of marga í
einu svo þeir festist ekki saman. Þegar
þeir eru orðnir gullnir á lit eru þeir fjar-
lægðir úr olíunni og þurrkaðir á eldhús-
rúllublaði.
Borið fram með jalapeno-majonesi.
Djúpsteiktir laukhringir
í bjórdeigi