Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Blaðsíða 26
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018
Simon Porte Jacquemus sýndi fyrstu herrafatalínu sína á heimaslóðum í Suður-Frakklandi í vikunni. Línan
ber nafnið „Le Gadjo“ og fór sýningin fram á lítilli strönd nærri Marseille. Jacquemus er sá hönnuður
sem er á hvað mestri uppleið í tískuheiminum og spennandi að sjá hvernig herralínunni verður tekið.
Jacquemus í Suður-Frakklandi
Tískuheimurinn beið með eftirvæntingueftir fyrstu sýningum tveggja hönn-uða fyrir stór frönsk tískuhús á nýlið-
inni tískuviku í París. Virgil Abloh sem hefur
verið þekktari fyrir götutísku frekar en há-
tísku er tekinn við stjórninni hjá Louis Vuit-
ton. Takmark hans er að endurskilgreina hvað
sé lúxus en hann vill ekki að tíska sé bara fyrir
hina fáu, sem endurspeglast e.t.v. í því að hann
vinnur að línu í samstarfi við IKEA.
Forveri hans hjá Louis Vuitton, Kim Jones,
er nú við stjórnvölinn hjá Dior. Línunni var vel
tekið en takmarkið var að hún varpaði ljósi á líf
Christians Dior sjálfs. Línurnar voru mýkri en
þær hafa verið undanfarið
hjá Dior.
Önnur lína sem vakti síð-
an athygli var hönnun Oli-
viers Rousteing hjá Balmain en
þar fékk hann innblástur frá poppgoð-
inu Michael Jackson og reyndar líka
bandarískum menntaskólastíl.
Það sem línurnar eiga sameiginlegt
er að sniðin eru frekar víð, hvíti lit-
urinn heillar á allt frá buxum til jakka
og bola, guli liturinn átti góða innkomu
og blómamynstur eða litrík mynstur
voru líka áberandi.
Fatalína Oliviers Rousteing fyrir Balmain var m.a. innblásin af fatastíl poppgoðsins Michaels Jackson.
Herratískuviku í París er nýlokið en þar sýndu
hönnuðir tískuna fyrir sumarið 2019.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Bjart og
heillandi
Louis Vuitton
býður uppá
bæði stórar
töskur og
beltatöskur
eins og hér
fyrir neðan
fyrir næsta
sumar.
Jakkafötin frá Dior
er hægt að fá í
mörgum litum fyrir
næsta sumar, bæði
í mjúkum litum og
sterkum, eins og
þessum pastel-
bleika eða í gulum
lit eins og þau hér
fyrir neðan.
Blómamynstur
komu líka við sögu. AFP